þriðjudagur, október 28, 2003
 
Bíllinn undirbúinn fyrir veturinn
Jæja þá eru vetrardekkin komin undir Galantinn. Sissi var svo góður að setja þau undir fyrir mig. Ekki veitti af þar sem það er alveg "ágætis" hálka á götum borgarinnar. Svona í leiðinni, fyrst að bíllinn minn var kominn inn á verkstæðið, bætti hann olíu á vélina og setti frostlög í vatnið. Notaði ég auðvitað tækifærið og tíndi saman draslið mitt úr Mözdunni og setti það yfir í Galantinn (alla ilmgjafana mína og sköfukústinn).
 
Vetrarmorgun
Þetta var sko ekki minn morgun í morgun. Í fyrstalagi þurfti að skafa og svo var fljúgandi hálka í götunni. Í öðru lagi var búið að loka þeirri leið sem ég fer venjulega í vinnuna og það var ekkert merkt svo að allt í einu kom maður bara að lokunarskilti og komst ekki lengra. Ég snéri ég við og fór aðra leið og þá var árekstur þar og umferðin þvílíkt slow. Ég komst nú samt á réttum tíma í vinnuna (því ég er alltaf svo tímanleg í því að leggja af stað). En í þriðja lagi þá er mér búið að vera hálf kalt í allan morgun og eitthvað pirruð. Vonandi lagast þetta þegar líður á daginn.... Ekki er öll von úti enn, svo ég segi bara: upp með brosið og best að hækka á ofnunum.
mánudagur, október 27, 2003
 


Dagurinn leið hratt. Fór í heimsókn til Sigurlínu vinkonu, eftir vinnu. Hún er búin að vera fyrir norðan í næstum viku. Vorum bara að spjalla og hafa það kósí. Átti svo að vera að nudda kl 18 en nuddþeginn kom ekki.... og lét ekkert vita af sér.... þvílíkt fúlt. Fór svo og færði Sissa mat á verkstæðið en varð fyrir nettu áfalli þegar ég fann að það var komin fljúgandi hálka..... og ég sem hélt að það væri sumar ennþá...hehehehehe.
Verð að fara að vera duglegri að spila á gítarinn minn..... hef eiginlega ekkert spilað í 2 vikur, alveg lost. Allt gítarsiggið mitt að verða ónýtt :o(
sunnudagur, október 26, 2003
 

 
Alltaf að læra eitthvað nýtt
Jæja ég var loksins að læra að setja inn myndir.... gekk frekar erfiðlega hjá mér... tók nokkrar tilraunir. Endaði með því að ég leitaði aðstoðar hjá Snorra, sem hefur örugglega talað við Dobba og Snúllu, og þá gekk þetta loksins. Takk takk Snorri minn :o)
 

 
Jæja nú er þessi helgi að klárast. Pabbi, mamma og Þura systir lögð af stað norður. En þau eru búin að vera í gistingu hjá mér síðan á fimmtudagskvöldið. Það hefði nú verið gaman að hafa þau aðeins lengur.... en skyldurnar kalla(vinna og skóli). Það er nú ekki svo oft sem að maður hittir þau. Og þegar maður hittir þau er það yfirleitt frekar stutt. Kannski að maður fái almennilegt sumarfrí næsta sumar. Það er allavega frekar ólíklegt að við förum norður um jólin, þar sem að við þurfum sennilega að vera að flytja þá. Vonandi náum við samt að skreppa smá. Við höfum alltaf farið norður yfir jólin svo að það yrði örugglega skrítið að gera það ekki..... vera ekki hjá fjölskyldunni.... (það eru allir fyrir norðan nema Freyja systir og tengdapabbi). En ef að við förum norður um jólin verður það sennilega líka frekar stutt stopp. En þetta á allt eftir að koma í ljós. :o)
laugardagur, október 25, 2003
 
Það varð víst engin keppni hjá Sissa..... það var svo léleg mæting að þeir fóru bara að leika sér í staðin. Svo að þetta var víst óþarfa eyðsla á góðum straumum hjá mér... :o(
 
Jæja nú er stóri dagurinn hennar Freyju systir runninn upp. Var að koma heim frá því að hjálpa henni við að setja á kökur. Útskriftar-athöfnin er svo milli kl 13 og 15, í Háskólabíói. Við pabbi hjálpuðumst að við að stytta pilsið hennar í gærkvöldi. Mikið var ég nú fegin að þurfa ekki að taka alla ábyrgðina á því ein....hehe.
Horfðum samt auðvitað á Idol í gær. Og að sjálfsögðu komst minn maður áfram. Samt kaus ég nú ekki.... ég var að stússast í þessari pils-styttingu. Jæja nú er ég búin að koma upp um mig.... nú vita allir með hverjum ég held. En það er nú ekkert til að skammast sín fyrir..... 41% kjósenda var greinilega sammála mér í gær.

Sissi er út í Njarðvík að keppa.... sendi honum góða strauma (kannski er það bíllinn sem þarf góða strauma....rafstrauma.... EKKI BILA BÍLL OG HALTU ÞIG Á BRAUTINNI!!!!)
fimmtudagur, október 23, 2003
 
Pabbi, mamma og Þura eru að koma suður í kvöld. Ég hef ekki séð þau síðan við Sissi fórum norður að smala í byrjun september. Þau ætla að vera í bænum fram á sunnudag. Freyja er nefnilega að útskrifast sem Líffræðingur frá á laugardaginn. Og auðvitað verður veisla fyrir nánustu fjölskyldu og vini.... mér er meira að segja boðið....hehe...... Ég reyndar þurfti að vinna fyrir boðinu.... búin að vera að lesa ritgerðirnar hennar og leiðrétta stafsetningarvillur o.þ.h.
En allavega, það verður gaman að fá fjölskylduna suður :o)
miðvikudagur, október 22, 2003
 
LR-snyrtivörur
Ég er búin að vera að reyna að panta snyrtivörur frá LR síðan um miðjan sept. Þ.e. ég var auðvitað löngu búin að gefast upp. Reyndi að hringja næstum á hverjum degi í tvær vikur. (þá á ég náttúrulega við að ég reyndi að hringja á lagerinn hjá LR snyrtivörum á Íslandi). Var svo áðan að fá símtal frá þeim á lagernum.... voru að fá tölvupóstinn frá mér núna... eru búin að vera erlendis.... ég hefði örugglega verið fljótari að panta þetta að utan.... gera tollaskýrsluna sjálf, og allt það vesen, sem átti að vera úr sögunni eftir að lagerinn kom hingað til Íslands. En allavega, ég ákvað að taka þetta samt. Þarf að punga út fyrir þessu á morgun. Rukka inn fyrir þessu bara þegar þetta kemur til mín.... þá fæ ég sundurliðunina hver á hvað..... er náttúrulega löngu búin að gleyma því.

 
Greiðslumat
Vá!!! það er engin smá vinna að útvega öll gögn sem þurfa að fylgja umsókninni um greiðslumatið. Og auðvitað viðbótarlánið. Það þarf vottorð fyrir þessu og hinu..... skattaskýrslur, yfirlit yfir hitt og þetta. Það liggur bara við að maður ætti að vera á tímakaupi við þetta. Þvælast út og suður um allan bæ.

En jæja þarf að fara að huga að nuddi. Endilega allir skrifa í nýju gestabókina okkar.... á nýju fínu heimasíðunni okkar :o)
þriðjudagur, október 21, 2003
 
Ég hef sjaldan verið jafn fljót í sturtu og í gærkvöldi...(ég kann ekki að vera fljót í sturtu)
Var að nudda til að verða 19. Gekk frá eftir nuddið, hoppaði í sturtu, þurrkaði og sléttaði á mér hárið og var klár í slaginn fyrir kl 20. Okkur hjónunum var nefnilega boðið í mat til Sigrúnar og Gulla (vinafólks okkar). Tókum Súlí vinkonu með okkur... óþarfi að vera að fara á mörgum bílum. Fengum svo þetta líka ljúffenga læri og með því. Svo eftir matinn var spjallað (við stelpurnar allavega.... strákarnir voru að reyna að horfa á eitthvað en fannst við vera full háværar). Og áður en maður vissi var klukkan orðin allt of margt og tími til að koma sér heim. Maður ætti nú eiginlega að gera meira af þessu... hittast, borða saman og spjalla.
sunnudagur, október 19, 2003
 
Ég get aldrei skilið hvað helgarnar eru fljótar að líða. En svo er nú komið að þessi helgi er senn á enda og við tekur næsta vinnuvika.
Upp úr hádegi í dag fórum við Sissi og keyptum okkur ís. Rúntuðum smá meðan ísinn rann ljúflega niður. Skruppum svo í nokkrar búðir.... Pennan-Eymundsson, Mál og menningu, Expert og Elko. Fórum svo á videoleigu og leigðum tvær myndir. Rosalega er nú gott að eiga svona rólegan dag. Þurfa ekki að gera neitt. Vona að fleiri hafi átt jafn þægilegan dag og ég.
laugardagur, október 18, 2003
 
Verslunarferð
Fór með Freyju systir í verslunarleiðangur í dag. Hún var að leita sér að blússu fyrir útskriftina. Fórum bæði í Smáralindina og Kringluna..... vá ekki skil ég hvernig fólk nennir svona. Það var allt fullt af fólki og þá meina ég allt troðið. Ég er bara alveg búin að vera andlega.
Svo virðist sem að tískan í dag sé ekkert voðalega fín.... ekki ætlast til að maður sé sparilegur. En að lokum fundum við blússu, þannig að sá hausverkur er allavega frá.
 
Idol
Var að horfa á Idol í kvöld..... það má nú ekki missa af því. Súlí vinkona kom og horfði með mér. Fín skemmtun, Jói og Simmi alveg ótrúlega miklir brandarakallar. Stundum held ég samt að þeir stressi keppendurna upp með öllu þessu bulli. Ég er þegar búin að ákveða með hverjum ég held .... læt samt ekkert uppi að sinni (ætli símareikningurinn minn eigi eftir að hækka þegar símakosningarnar byrja.... hver veit).
miðvikudagur, október 15, 2003
 
MSN
Ég elska msn! Á msn getur maður talað við marga í einu..... Ég er t.d búin að vera ein heima í allt kvöld (sem oftar), og er búin að vera að tala við svona tvo til þrjá í einu. Og get meira að segja verið að tala í símann í leiðinni. Ég er að vísu ekki mikil símakelling (vinn samt hjá Simanum... svo að í rauninni er ég Síma-kerling..hehe). En með þessu móti hefur maður samband við vinina, sem maður kannski talar ekki oft við í síma eða augliti til auglitis. Það eru alltaf allir svo uppteknir að maður hittir vinina allt of sjaldan. En lang flestir eiga tölvu og eyða ótrúlega miklum tíma við hana (ég t.d). Er þá ekki bara tilvalið að vera að tala saman á meðan..... nýta tímann???? Þetta er allavega mín skoðun :o)
þriðjudagur, október 14, 2003
 
Mér finnst hálf leiðinlegt þegar það er alltaf verið að hringja og reyna að fá að senda sölufulltrúa til manns. Og oftast segjum við nú nei..... en Sissi sagði já í gær. Þannig að við fengum tryggingaráðgjafa og sölumann til okkar áðan. Og ótrúlegt en satt þá ákváðum við að slá til.... flytja allar tryggingarnar okkar, frá því tryggingafélagi sem við höfum verið hjá, yfir á þetta tryggingafélag. Lofar alveg 20þús lækkun á innbús og bílatryggingunum hjá okkur. Og hagstæðari Líf- og sjúkdómatryggingu. Eins gott að það standist!!! Ekki veitir af að hugsa sig vel um þegar það kemur að fjármálunum. Manni tekst víst aldrei að spara nóg.
mánudagur, október 13, 2003
 
Fór á læknavaktina..... það var víst ekkert hægt að gera fyrir mig. Ég er þó allavega með hrein lungu og ekki með streptococca... það er þó alltaf gott að vita. Læknirinn sagði mér bara að slaka á og að ég mætti búast við að vera hóstandi "jafnvel í viku í viðbót". Ég verð nú búin að hósta öllu innan úr hálsinum á mér eftir vikuna... púff. Og ég á að vera heima a.m.k. á morgun líka. (Hann vildi nú helst að ég yrði lengur heima en.... vá ég er að geggjast). Það er eitt að vera heima og annað að ÞURFA að vera heima.
 
Fór ekki í vinnuna í dag. :o( Var hóstandi í mest alla nótt. Og þegar ég "vaknaði" í morgun kom ég varla upp hljóði. Ákvað að panta mér tíma hjá lækni. En nei.... þá er læknirinn minn líka veikur. Og enginn tími laus hjá neinum lækni fyrr en á morgun. Fékk tíma kl 11:20 í fyrramálið en ætla samt að reyna að kíkja á vaktina milli kl 16 og 18.

Mamma hringdi í mig í morgun. Athuga hvernig ég hefði það. Sagði mér að hún væri að baka (hún var að vinna alla helgina svo að hún á frí í dag). Mamma hafði spurt Þuru systir hvað hún ætti að baka. Var að spá í eplaköku en það voru víst engin epli til (og í sveitinni er nú ekki hægt að hlaupa út í næstu sjoppu til að redda því). Þá datt Þuru í hug..... "en er ekki eitthvað til sem heitir appelsínukaka". Þá hefur Þura aldrei (svo hún muni til) smakkað appelsínukökuna hennar mömmu. Þessi einstaka appelsínukaka hefur sennilega ekki verið bökuð eftir að Þura fór að muna eftir sér. Er Þura samt að verða 15 ára núna í des. Svona appelsínukaka var í öllum afmælum og veislum þegar ég var lítil..... en það er víst orðið alveg ótrúlega langt síðan það var......hmmmmm. Og eftir allt þetta appelsínuköku tal langar mig alveg ógurlega mikið í appelsínuköku. Ætli það sé ekki aðeins of langt fyrir mig að skreppa í kaffi norður í Bárðardal. Og jafn langt fyrir mömmu að koma hingað suður til að færa mér kökusneið. Svo að mér verður nú ekki kápan úr því klæðinu ;)
sunnudagur, október 12, 2003
 
Í dag er ég búin að vera að reyna að hanna nýju heimasíðuna mína. Hún er nú samt ekki alveg tilbúin ennþá. Snorri er að reyna að kenna mér á forritið sem ég á að nota.... frontpage virkaði ekki nógu vel fyrir okkur..hehe...sérviskan alveg að fara með mig. Svo fannst Freyju systir ég vera svo lasleg ennþá að hún heimtaði að mæla mig (eyrnamælir- ekki rassamælir) og ég er víst ennþá með hita (38 stig) :o( .

Ég fékk smá áfall í dag. Fór með Súlí vinkonu í Rúmfatalagerinn og viti menn.... það er allt fullt af jólavörum. Rosalega líður tíminn hratt. Maður þarf að fara að huga að jólagjöfunum ef að maður ætlar ekki að vera á síðustu stundu.

Jæja ætti kannski að fara að skríða í bólið. Það er víst vinna á morgun...... nenni ekki að vera veik heima meira. Veit samt ekki hvort að það sé mikið gagn af mér í vinnunni eins og ég er. Ég er svo hás að það heyrir sennilega ekki í mér nokkur sála (svoltið slæmt þegar maður vinnur við að tala í síma... hmmmm). En það verður bara að koma í ljós í fyrramálið. Góða nótt :o)
laugardagur, október 11, 2003
 
Undur og stórmerki gerðust í dag.... ég horfði á fótboltaleik.... landsleikinn..... Ísland-Þýskaland. Og ég sem horfi aldrei á fótbolta.
Er líka búin að vera að reyna að gera heimasíðu (www.simnet.is/gulsis) en það fór allt í klessu svo að það verður bara byrjað upp á nýtt. Var nú samt alveg við það að gefast upp... en það er víst alveg bannað.
Ég og tölvur.....púff.
Þannig að nú er það bara að fara að hanna í huganum og teikna það kannski upp á blað og gera þetta skipulega..... þá kannski tekst mér að gera heimasíðu. Ég skal vera þrjóskari en tölva... ég er nú ekki naut fyrir ekki neitt.
Ætli ég sé ekki svona pirruð af því að ég er enn ekki orðin alveg frísk..... Ég er enn svo stífluð af kvefi að það er leitin að öðru eins.... og hausverkur í samræmi við það.
Eina ráðið við þessu er sennilega að taka því rólega. Þannig að þetta verður ekki lengra hjá mér í dag. :o)
föstudagur, október 10, 2003
 
Í dag eru 3 mánuðir þangað til ég þarf að vera flutt út úr húsnæðinu sem ég bý í núna. Við erum núna að safna gögnum til að fara í greiðslumat. Sem segir að sjálfsögðu að við ætlum að reyna að kaupa íbúð. Búin að fá nóg af því að flytja. Og vitandi það að við fáum hvort eð er ekki leiguíbúð í svipuðum stærðarflokki (og við erum í) á jafn góðum kjörum og við höfum verið með. Fyrst að maður þarf hvort eð er að fara að auka útgjöldin, þá er nú alveg eins gott að setja það í eigin íbúð. Ekki vera að henda peningunum í leigu. Við eigum samt aðeins eftir að finna út hvernig við reddum útborguninni. En reddast þetta ekki alltaf????? :o)

Jæja nú þarf ég eiginlega líka að fara að finna einhvern sem að vill hjálpa mér að setja upp síðuna fyrir mig..... þar sem ég kann ekkert svoleiðis. Ég hef nú aldrei verið mikil tölvukona...hehe
fimmtudagur, október 09, 2003
 
Fór í vinnuna í dag eftir þessa tvo eymdardaga. Er samt ekki enn orðin nógu hress (er enn með hor og slef).
Sissi fór líka í vinnuna í dag. Við lágum nefnilega bæði veik heima.... erum svo samrýmd hjónin....hehe. Hann hefur nú samt getað sofið meira en ég. Ég hef aldrei getað sofið bara og sofið. Mér verður bara illt í skrokknum... þarf kannski bara að fá mér betra rúm. En Sissi getur sofið allan daginn og hef ég því haft voða lítinn félagsskap af honum þessa dagana.
Ég er því búin að vera á netinu og horfandi á DVD á milli þess sem ég reyni að sofa. Orkan er auðvitað ekki mikil þegar maður er með hita, kvef og hálsbólgu. En þetta er vonandi að ganga yfir hjá okkur.

miðvikudagur, október 08, 2003
 
Blogg-byrjun
Er búin að vera veik heima síðustu tvo daga... og sjáið hvert það leiddi mig.... í bloggið :o)

Powered by Blogger