fimmtudagur, nóvember 27, 2003
 
Tilboðinu tekið
Jæja nú er loksins eitthvað að gerast í þessum íbúðarmálum okkar. Tilboðinu okkar í Grýtubakkann var tekið. Svo nú er það bara að fara að rétta fram peningana. Það að vísu kom eitt babb í bátinn......afhendingunni seinkar aðeins. Við semsagt fáum ekki íbúðina afhenta fyrr en 1. feb. Sem þýðir að við erum húsnæðislaus í 21 dag. Ætlum reyndar að athuga hvort að við fáum ekki vera hér út janúar. Nú annars er þá bara að redda sér gistingu ..... verra með allt draslið okkar. En við förum nú ekki í þunglyndi út af svona smámunum.... því þetta reddast allt einhvernveginn :o) Við erum allavega komin með stað til að búa á eftir 1. febrúar 2003. Og það íbúð sem við komum til með að eiga..... ekki slæmur pakki það...hehe.
miðvikudagur, nóvember 26, 2003
 
Tilboð í íbúð


Gerðum tilboð í dag í íbúð í Grýtubakkanum sem við skoðuðum í gærkvöldi. Tilboðið gildir til hádegis á morgun og við ættum að vera búin að heyra eitthvað frá fasteignasalanum í síðasta lagi þá. Vonum að það verið jákvætt.



Er búin að vera að skrifa jólakort í dag..... ein 30 stk sem þýðir að ég er rétt rúmlega hálfnuð. Held að ég segi það gott í dag.... þarf nefnilega að pakka inn jólagjöfum líka.... þessum sem ég keypti um helgina. Mér finnst best að pakka bara inn og merkja jafnóðum svo að maður sé nú ekki að rugla saman hver á að fá hvað.
þriðjudagur, nóvember 25, 2003
 
Skoða skoða skoða
Það er búið að setja íbúðina í Súðarvoginu á hold, þar sem eigandinn er ekki alveg búinn að ákveða hvort hann ætlar að selja eða ekki. Fórum því að skoða 2 íbúðir í kvöld. Báðar voru þær í Grýtubakkanum. Okkur leist nú bara mjög vel á aðra þeirra og erum við því að spá í að gera tilboð í hana á morgun. Vonandi gengur það betur en þetta tilboð okkar í Súðarvogsíbúðina.
 
Home sweet home


Er stundum að flækjast eitthvað á netinu. Í þetta skiptið var ég að skoða Þingeyjarsveit.is. Og eitt leiddi af öðru og fann ég þessar fínu upplýsingar um sveitina mína, svona fyrir ykkur sem viljið komast að því hvaðan ég er. Eða vita kannski að ég er úr Bárðardal, en vita ekkert hvar hann er.
 
Vetur konungur


Það er ekki alveg laust við það að mér finnist vera kominn vetur. Ég er búin að þurfa að moka bílinn upp tvisvar í dag. Í morgun, þegar ég var að fara í vinnuna, var allt frosið á bílnum og þurfti ég því að beita hörku við að ná skaflinum af bílnum. En áðan, þegar ég var að fara úr vinnunni aftur, var það ekki eins erfitt. Snjómagnið var nú ágætt, en mér nægði samt að nota sópinn og sópa af bílnum. Það sem mér finnst hinsvega verra er að ég held ég komist ekki upp með það mikið lengur að eiga ekki vetrarskó. Mér er t.d. frekar kalt á tánum núna..... og ekki bætir nú úr skák að sokkarnir eru örlítið rakir. Skórnir mínir halda ekki svona miklum snjó í burtu frá litlu sætu táslunum. Allavega ekki þegar maður þarf að standa svona lengi úti í snjónum og moka af bílnum.
mánudagur, nóvember 24, 2003
 
Vel nýttur dagur
Dagurinn í dag var nú bara ágætlega nýttur. Var aðvitað að vinna frá kl 9-13 hjá Símanum, eins og alla virka daga. Nuddaði til kl 18. Fór svo á Síma-fund kl 19 sem stóð til að verða 21. Kom loks heim, knúsaði Sissa og nuddaði aðeins, þar sem hann sat fyrir framan tölvuna. Ekki hægt að segja annað en að ég hafi notað daginn vel :o)
 
Ný (tölvu)mús
Fórum á sunnudaginn og fjárfestum í nýrri mús. Sú gamla var alveg að gera mig geðveika (og Sissa líka). Skrollið vikaði ekki alveg eins og það átti að gera....... þú kannski skrollaðir og skrollaðir og allt á fullu að gerast en svo endar allt bara á sama stað. Og svo var sama hvað maður reyndi að þrífa kúluna neðan á músinni...örin fór bara þangað sem henni sýndist. Þannig að við fórum á nokkra staði bárum saman vöru og verð og enduðum í expert og keyptum þar eina (alveg rándýra.... fyrir mig allavega) á tæplega 4500. Og núna er Gulla litla bara glöð og ánægð... er nú samt enn að venjast nýju músinni.... hún er nefnilega með miklu fleiri takka en sú gamla (mjög sniðugt allt) :o)
laugardagur, nóvember 22, 2003
 
Persónuleikatest
Strumpa-Gulla:


Find your inner Smurf!



Ég er víst teiknimyndavondukallageðklofi...hmmmmm







Hvaða teiknimyndavondukall ert ÞÚ?


Var að taka test á því hvaða Friends persóna ég er. Útkoman var þessi (ekki alveg það sem ég bjóst við, þar sem ég er nuddari og spila á gítar...hint, hint):





I'm Rachel Green from Friends!

Take the Friends Quiz here.

created by stomps.





 
Bráðum koma blessuð jólin


Byrjaði jólaundirbúninginn í dag. Fór og keypti jólakortin og nokkrar jólagjafir. Ekki seinna vænna. Aðventan alveg að fara að koma. Og það eru svo margar jólagjafir sem við gefum að það er eins gott að skipta útgjöldunum niður á a.m.k. 2 mánuði.
 
Djamm
Fór í gær kl 17 aftur í vinnuna..... ekki til að vinna heldur til að vera í smá opnunarteiti. Vorum loksins með innflutningspartý Þjónusturversins í Á31. Það var boðið upp á snittur og drykki. Var ég þar til rúmlega 19. En þar sem ég er svo matvönd var ég enn svöng og keypti Subway, í kvöldmatinn, á heimleiðinni. Svo um kl 20:30 mættum við hjónin á Mekka sport, þar sem partýinu var haldið áfram. Fengum við meira að segja að horfa á Idol á risaskjá. Og eins og ég var búin að lofa kaus ég Jón (bæði á mínum og Sissa síma). Og viti menn....... hann bara vann þennan þátt.
Eftir Idol spilaði hljómsveitin Fígúra fyrir djammfíkla Símans (og alla hina sem á staðnum voru). Var mikil gleði í gangi og ég held bara að allir hafi skemmt sér mjög vel, allavega skemmti ég mér alveg frábærlega. Ég reikna hinsvegar með að fólk sé mishresst í dag. En ég er auðvitað alltaf jafn hress...hehehehehe... ekki allir jafn heppnir og ég.

föstudagur, nóvember 21, 2003
 
Vinnudjamm


Jæja það hlaut að koma að því...... Ég er búin að vera að vinna hjá Símanum síðan um miðjan mars sl (= í 8 mánuði) og ekki enn djammað með þessu liði. Það hefur einhvernveginn alltaf hitt svoleiðis á að ég hef farið norður þær helgar sem á að gera eitthvað. En ekki núna. Nú verð ég sko með.
fimmtudagur, nóvember 20, 2003
 
Herra skattstjóri........TAKK!
Haldiði að ég sé ekki bara að fá endurgreitt frá skattinum :o) . Já, á þessum tíma! Ég kærði nefnilega skattaútkomuna í ágúst.....var samt eiginlega hætt að hugsa um þetta. Hélt að það kæmi ekkert út úr þessu, af því að ég hafði ekkert heyrt hingað til. En viti menn. Fallist var á kæruna. Og ég fæ endurgreitt eitthvað rétt tæplega 10 þúsund og Sissi eitthvað aðeins minna en ég. Ekki amarlegt það.
 
Uppistand á Nasa
Fórum á uppistandið á Nasa í gærkvöldi (Sissi bauð konunni sinni). Mjög gaman. Verst hvað stólarnir voru óþægilegir. Ég held að þeir hafi verið hannaðir til þess að auka söluna á barnum. Maður þarf nefnilega alltaf að vera að standa upp (til að hleypa blóðinu í rassinn) og til að hafa einhverja ástæðu til að standa upp..... fer maður á barinn. Þeir græddu nú samt ekki mikið á okkur í þetta skiptið. En hvað um það. Uppistandararnir voru mjög misgóðir. Bjarni töframaður fór alveg á kostum...... ég alveg grenjaði úr hlátri. Og Haukur (í horni) Sig. var einnig mjög góður. Steinn Ármann var hins vegar mjög slappur. Ég að vísu hef aldrei fílað hann neitt svakalega en hann náði engri stemmningu upp í salnum. Hann var farinn að endurtaka sig. Þ.e. segja aftur brandarana, sem enginn hlóg að í upphafi, aftur þegar líða tók á atriðið hans. Og auðvitað hlóg enginn að þeim þá heldur.... því þeir voru ekkert fyndnir. Samt var það nú Steinn Ármann sem var, um daginn, kosinn Uppistandari ársins 2003. Verð ég því að segja hér að, miðað við frammistöðu hans í gærkvöldi, get ég nú ekki verið sammála þeim dómi.
miðvikudagur, nóvember 19, 2003
 
Myndir komnar á heimasíðuna
Jæja loksins loksins!!! Nú eru loksins komnar örfáar myndir inn á myndasíðuna og mynd af Lúllu inn á síðuna um hana. Það ætlaði nú samt ekki alveg að takast hjá mér. Var búin að reyna lengi lengi..... ég og tölvur.... púúúúfffffffffffffffffffffffff!!!!! En með góðri hjálp frá honum Denna (og msn) tókst þetta að lokum..... þ.a.s. ekki alveg strax. Ég var búin að vera svo lengi að reyna að það gekk allt á afturfótunum hjá mér. Stóð smá upp..... andaði djúpt..... settist niður aftur......... fór aftur yfir það sem Denni hafði sagt mér að gera og viti menn!!!! það gekk.
En allavega, endilega skoðið myndir áður en ég skemmi eitthvað aftur...hehehehehe :o)
þriðjudagur, nóvember 18, 2003
 
Skoða skoða
Vorum að skoða íbúðina í Súðavoginum. Leist bara ágætlega á hana. Það þarf reyndar að gera slatta fyrir íbúðin. Það er samt eitthvað sem hægt væri að gera smátt og smátt. Verst að eigandinn er að spá í að hækka verðið á íbúðinni. En við getum ekki keypt fyrir mikið meira en sett er á hana. Við erum nú samt eiginlega byrjuð að skipuleggja hvernig við myndum vilja hafa íbúðina. En þetta á samt allt eftir að koma í ljós. Ekkert víst að við fáum íbúðina einu sinni.
mánudagur, nóvember 17, 2003
 
Krílaskoðun
Fór ásamt Bryndísi Evu að skoða litla strákinn hennar Möggu Lukku. Og auðvitað er hann algjör dúlla. Það klingdi hátt í eggjastokkunum hjá okkur Bryndísi, enda báðar barnlausar og sennilega aðeins farið að langa í. Við færðum þeim útigalla, en gáfum leyfi á að skipta honum út fyrir eitthvað annað ef það hentaði betur.
sunnudagur, nóvember 16, 2003
 
Myndaalbúm
Er búin að vera að leita mér að fríu myndaalbúmi á netinu. Er ekki ennþá búin að finna neitt sem ég er sátt við og kem nógu miklu inná. Ef einhver er með tillögu endilega láttu mig vita, gullams@simnet.is . Verð að fara að koma myndasíðunni í gagnið.
laugardagur, nóvember 15, 2003
 
Fleiri nuddarabörn


Jóhanna Jakobsd; sem var með mér í nuddskólanum, eignaðist dreng 28. okt. 2003. Óskum henni auðvitað til hamingju :o)
(myndin er ekki af drengnum hennar Jóhönnu)
föstudagur, nóvember 14, 2003
 
Idol


Horfði auðvitað á Idol áðan. Og sá sem ég hélt með komst áfram. Fékk meira að segja 52% greiddra atkvæða. Ég var nú samt búin að lofa honum Denna að kjósa Jón og stóð að sjálfsögðu við það. En það dugði honum þó bara í 3ja sætið. Aldrei að vita nema að hann komist í næst þátt. Og þá bara kýs ég hann aftur, og vona að hann komist áfram.
 
Íbúðarskoðun
Fórum áðan að skoða íbúðina í Hraunbænum. Féllum ekki fyrir henni. Var illa uppsett og svo er 11-11 á hæðinni fyrir neðan og suðið í kælinum heyrist stöðugt upp (í allri íbúðinni). Ég held að ég yrði þokkalega geðveik á að þurfa alltaf að vera með þetta suð í eyrunum. Ekki sniðugt. Hina íbúðina fáum við víst ekki að skoða fyrr en eftir helgi. Eigandinn er víst ekki á landinu eins og er. Get samt eiginlega ekki beðið. Við erum svona næstum því búin að innrétta hana í huganum (hmmmmmm) án þess þó að vera búin að skoða hana. Keyrðum þarna framhjá þegar við vorum búin að skoða hina. Ég held að þetta yrði allt í lagi...... og Sissi er kolfallinn ;o)
 
Var að nudda til rúmlega 21 í gærkvöldi og átti þá auðvitað eftir að ganga frá og svona eftir nuddið. Og eins og venjulega er auðvitað ekki kvöldmatur fyrir en eftir vinnu. En haldiði ekki bara að hann Sissi hafi eldað þessa líka æðislegu máltíð.
Hann bjó til sjávarréttasúpu (krabbasúpa + humarsúpa + skelfiskur + risarækjur) og það var bara forrétturinn. Í aðalrétt hafði hann svo (osta og hvítlauks)fylltar, kryddlegnar svínasneiðar með kartöflugratíni og hrásalati. Ætlunin var svo að hafa ís í eftirrétt en augljóslega vorum við orðin svo södd að ísinn komst ekki fyrir (og ég sem get alltaf borðað ís.... hafði ekki lyst á honum). Það er nú ekki amarlegt að fá svona máltíð í miðri.... næstum því miðri.... viku. Verst hvað það er óhollt að borða svona seint. Við reyndar fórum nú frekar seint að sofa líka (svo að við höfum kannski verið eitthvað komin af stað í meltingarferlinu). Vorum nefnilega svo upptekin við að leita okkur að íbúð. Erum reyndar búin að finna tvær sem okkur líst vel á. Þessi hérna er í fyrsta sæti. Og þessi í öðru. En við erum auðvitað ekkert hætt að leita. Sissi ætlar samt að athuga hvort að við getum ekki fengið að skoða þessar tvær í dag eða á morgun. Við erum nefnilega að deyja úr spenningi ... eftir að við fengum niðurstöðurnar um viðbótarlánið í gær.
fimmtudagur, nóvember 13, 2003
 
Viðbótarlán
Loksins, loksins!!!! JIBBÍ, JIBBÍ, JEI, JEI..... HÚRRA, HÚRRA
Vorum að fá niðurstöðurnar úr umsókninni okkar um viðbótarlánið....... og við fengum samþykki. "Þann 12.11.2003 var samþykkt að veita yður viðbótarlán, allt að upphæð kr. 2.113.000."
Núna getum við loksins farið að hella okkur af fullum krafti út í það að leita að okkar fyrstu íbúð. :o) :o) :o)
miðvikudagur, nóvember 12, 2003
 


Þessi vinnudagur var nú aðeins styttri en þeir tveir næst á undan. Átti reyndar að vera að nudda til kl 20. En síðasta nuddinu var frestað, fram í næstu viku, og var ég því búin kl 18. Voða notalegt bara.... eldaði meira að segja á eðlilegum tíma. Og búin að ganga frá eftir matinn fyrir kl 20.... "næs". Lofar góðu fyrir kvöldið. Kannski maður finni sér bara einhverja góða mynd og slaki á í sófanum. Hver veit??????
þriðjudagur, nóvember 11, 2003
 


Annar langur dagur senn á enda. Það fækkaði reyndar um eitt nudd hjá mér í dag. En það var samt fyrsta nuddið og var ég því alveg jafn langt fram á kvöld og í gær. Skellti mér svo í langa og heita sturtu til að reyna að slaka smá á. Vonandi gengur mér betur að sofna í kvöld en í gærkvöldi. Þyrfti nú sennilega sjálf að fara að komast í nudd. Þarf að fara að taka út eitthvað af þessum nuddum sem ég á inni hjá skólafélögum mínum úr nuddskólanum.
mánudagur, nóvember 10, 2003
 
Langur dagur


Þetta er búinn að vera langur dagur. Var að vinna hjá Símanum 9-13 eins og alla virka dag, og svo að nudda til kl rúmlega 21. Ég er einhvernveginn ekki alveg tilbúin til að fara að slaka á strax, þegar ég er að nudda svona seint. Ég held kannski að það sé að mér finnist klukkan ekki vera orðin svona margt..... kvöldið á allt að vera eftir... en er það augljóslega ekki. En allavega þessi vika er víst öll svona hjá mér. Er að nudda til 21 og 21:30 alla þessa viku. Það má eiginlega segja að ég hafi verið farin að troða á dagana hjá mér. En þetta er fínt svona inn á milli. Gæti nú kannski ekki verið að nudda svona mikið alltaf, allar vikur. Reyni yfirleitt að vera að nudda ekki lengur en til kl 20 á kvöldin. En ég passa mig nú líka á því að eiga frí um helgar. Því ef ég hef enga orku get ég nú ekki gefið mjög gott nudd...hmmmm.
sunnudagur, nóvember 09, 2003
 
Helgin
Þessi helgi var jafn fljót að líða og þær síðustu. Pabbi og Þura farin norður aftur. Helga, systir pabba, var með þeim báðar leiðir. Og kíkti hún, með þeim, á mig þegar þau kvöddu. Þetta er í fyrsta skipti sem Helga kemur í heimsókn til mín síðan ég flutti hingað suður ( fyrir rúmlega 4 árum).
Tókum bæði föstudags- og laugardagskvöldið bara rólega. Á föstudagskvöldið var að sjálfsögðu horft á Idol. Og á laugardagskvöldið leigðum við okkur tvær myndir og höfðum það bara kósí með nammi og ís :o)
Í dag erum við Sissi búin að vera að fylla út umsóknareyðublað fyrir viðbótarlán. Þetta gengur allt eitthvað svo hægt hjá okkur. Það er alltaf svo mikið að gera og svo erum við búin að vera svo þreytt síðan við komum að utan. Tekur alltaf smá tíma að jafna sig, eftir svona ferðir. Svo þegar maður byrjar vikuna þreyttur verður öll vikan erfið.
föstudagur, nóvember 07, 2003
 
Pabbi og Þura koma í kvöld. Ætla að leggja af stað "eftir hádegi en fyrir kvöldmat" sagði pabbi í gær, ekki mjög nákvæmt en ég veit þó allavega að þau koma í dag..... hehe. Þau reyndar ætla að gista hjá Freyju systir í þetta skiptið, þar sem þau gistu hjá mér síðast.
Svo má að sjálfsögðu ekki gleyma Idol í kvöld. Ég missti að vísu af síðasta þætti (var ekki á landinu) og hef einhvern veginn ekkert heyrt hverjir það voru sem komust áfram. Ég hef reyndar ekkert verið að spyjast fyrir um það heldur. Hélt að það yrði meira talað um það svo að ég þyrfti ekki að auglýsa fáfræði mína.

Fékk sms í gærmorgun frá Möggu Lukku nuddara (sem var með mér í nuddskólanum). Hún var að segja mér að hún hefði eignast dreng. Og auðvitað óskum við Möggu Lukku og Jóa til hamingju með snáðann :o). Alltaf skemmtilegt að fá svona skilaboð.
fimmtudagur, nóvember 06, 2003
 
Jæja, nú styttist í helgina. Pabbi og Þura systir ætla að koma í smá skreppi túr hingað suður. Fjóla frænka er nefnilega að halda upp á 50 ára afmælið sitt á laugardagskvöldið. Mamma verður heima þar sem skepnurnar eru komnar á hús og einhver þarf að sinna þeim. Ekki er samt orðið alveg ljóst hvort þau feðgin komi á föstudagskvöld eða laugardagsmorgun. Þuru langar víst að fara í einhverjar búðir. Til að það takist þurfa þau að koma á föstudagskvöldinu. En það á bara eftir að koma í ljós. Gaman samt, hvað það er óvenju stutt á milli þess, að maður fær að sjá þau. Því svo er stefnt á að hafa laufabrauðsdag 29. nóv. og þá förum við norður (nema að það verði brjálað veður og ófært.....hmmmm).
miðvikudagur, nóvember 05, 2003
 

þriðjudagur, nóvember 04, 2003
 
Snjókoma
Jæja maður getur víst ekki horft fram hjá því lengur að það er kominn vetur. Þurfti að moka bílinn upp (liggur við) í hádeginu þegar ég var búin í vinnunni. Það kom nefnilega þessi þvílíka snjókoma eftir að ég mætti í vinnuna, en svo var engin snjókoma samt þegar ég var að fara heim. Nú kemur litli krakkinn upp í manni..... mig langar bara að vera úti að leika mér þegar það er svona snjór. Það er nefnilega ekkert svo voðalega kalt, þrátt fyrir snjóinn. Auðvitað er nú samt kaldara en var í Budapest núna um síðustu helgi, en ég er nú Íslendingur og þoli það alveg.
mánudagur, nóvember 03, 2003
 
Sunnudagurinn 2. nóvember 2003
Síðasti dagurinn í Budapest. Þurftum að vera búin að tæma herbergið fyrir hádegi. Náðum því auðveldlega.....hehe(fæturnir samt ekki alveg að virka). Svo var tekin stefnan á Westend-mollið. Núna átti sko að versla fyrst að það hafði ekki verið hægt hina dagana. EN.... það fór nú samt þannig að við versluðum eiginlega ekki neitt...... löbbuðum bara og löbbuðum (allar misfellur voru nú samt orðnar erfiðar yfirferðar þar sem vöðvarnir í fótunum voru gjörsamlega búnir á því og farnir í verkfall). Fengum okkur að borða á Friday´s og skoðuðum svo aðeins meira. Maður varð nú hálf ruglaður (ok.... ruglaðri) af því að vera þarna..... þetta var svo stórt og mikið af búðum. Vorum komin á hótelið aftur um kl 17, alveg búin að vera eftir helgina. Rútan, sem keyrði okkur á flugvöllin, kom rétt fyrir kl 18. Klukkutíma seinkun var á fluginu.... jæja þá höfum við bara meiri tíma í fríhöfninni..... en nei.... Mjög léleg fríhöfn ekkert hægt að eyða þar :o( Lögðum svo af stað heim kl 21:50. Græddum klst á leiðinni og vorum lent á Leifsstöð um kl 1 þrátt fyrir 4 tíma flug (tímamismunur). Eyddum auðvitað í nammi ofl. í fríhöfninni. Brunuðum heim og fórum að sofa. Þessi helgi er búin að vera mjög skemmtileg en það er samt rosalega gott að vera komin heim. :o)
 
Laugardagurinn 1. nóvember 2003
Fórum á fætur það seint að við rétt misstum að morgunmatnum á hótelinu. Löbbuðum niður á "Laugarveg" þeirra Budapestbúa. Það var búið að segja okkur að það væri opið frá 10 til 14 á laugardögum. Það gleymdist samt að það væri hátíðisdagur þennan laugardag og því allt lokað. Þannig að við löbbuðum bara og skoðuðum svæðið í kring, fórum alveg niður að Dóná en vorum samt alltaf bara í Pest-hlutanum. Fundum okkur veitingahús og fengum okkur að borða..... auðvitað ungverska gúllassúpu í forrétt og svo einhverja fína rétti sem við svona eiginlega vissum ekkert hvað var...hehe. Eftir matinn löbbuðum við aðeins meira. Fæturnir samt aðeins farnir að kvarta. Tókum svo Taxa í dýragarðinn. Þetta var þessi svaka fíni dýragarður og voru eiginlega flest dýr sem manni datt í hug þarna. Það tók okkur 3 klst að labba um allan dýragarðinn og skoða og skoða. Vorum reyndar hálf svekkt yfir því að það voru engir fílar :o( Lögðum af stað heim..... labbandi, fundum okkur svo taxa sem keyrði okkur á hótelið. Það væri nú ljúft ef að það væri svona ódýrt að taka taxa hér á Íslandi. Vorum að spá í að fara með neðanjarðarlestinni en vildum samt frekar ferðast ofanjarðar og geta horft í kringum okkur í leiðinni. Þegar við komum á hótelið var okkur sagt að það væri búið að panta borð á einhverjum mexikóskum stað.... en það væri ekki fyrr en kl 22:15. Við lögðum því af stað í leiðangur til að finna okkur eitthvað smá í svanginn til að stoppa garnagaulið. Sá leiðangur okkar tók næstum 2 klst (auðvitað vorum við gangandi...hehe). Komum svo á hótelið vel tímanlega fyrir ferðina á veitingastaðinn. Var þá bróðurparturinn af hópnum, sem við fórum með, saman kominn hjá barnum...hehe. Fórum í leigubílum á veitingastaðinn..... þegar þangað var komið borðuðum við auðvitað en bættum svo um betur og vorum ekta Íslendingar.... sungum og sungum. Fórum auðvitað mjög seint að sofa... :o)
 
Föstudagurinn 31. október 2003
Eftir morgunverð á hótelinu var farið í útsýnisferð um Budapest. Fengum að heyra í grófum dráttum sögu borgarinna og Ungverjalands. Skoðuðum margt en stoppuðum samt ekki oft. Þessi ferð tók rúmlega 4 tíma. Enduðum rétt hjá svona kolaportsmarkaði og kíktum þar inn.... í langan tíma..... það var svo mikið svæði til að skoða. Keyptum samt ekki neitt.... þetta var bara það sama aftur og aftur og aftur => dúkar!!!! Löbbuðum svo í rólegheitunum aftur á hótelið, hvíldum okkur smá og tókum okkur svo til fyrir árshátíð Margt smátt - Bolur. Mættum niður í anddyrið um kl 18, klár í slaginn. Leigubílar fluttu okkur svo á þennan fína veitingastað þar sem við fengum fjórréttaða máltíð. Að matnum loknum færðum við okkur í annan sal á veitingastaðnum og horfðum á sýningu. Það var steppað, dansað kan kan og fl; eldgleypir og svona ýmislegt, í þessari sýningu. Mjög skemmtilegt. Svo að sjálfsögðu dönsuðum við undan okkur lappirnar. Þegar þessum stað var lokað átti að fara á einhvern skemmtistað sem er staðsettur í molli í Buda-hlutanum af Budapest. Þegar þangað var komið nenntum við Sissi ekki að fara inn á þennan stað (erum orðin svo gömul....hehe). Löbbuðum aðeins um og skoðuðum mollið, en tókum svo bara leigubíl heim á hótelið. Rosalega var nú gott að leggjast útaf.
 
Fimmtudagurinn 30. október 2003
Fórum til Budapest. Lögðum af stað upp úr kl 15 og flugið tók rúma 4 tíma, týndum líka einum klukkutíma úr sólarhringnum... tímamismunur. Fórum svo í rútu að hótelinu sem við dvöldum á..... Mercure Korona. Korona er í Pest hlutanum af Budapest. Þegar við vorum svo búin að skrá okkur inn á hótelið var komið að því að finna sér eitthvað að borða. Fórum svo að sofa seint og um síðir.

Powered by Blogger