þriðjudagur, desember 30, 2003
 
Jólamyndir
Var að setja inn nokkrar jólamyndir..... endilega kíkið í myndaalbúmið :o)
laugardagur, desember 27, 2003
 
Gleðileg jól
Erum búin að vera í góðu yfirlæti, borðum, sofum og liggjum í leti. Hvernig er hægt að hafa það betra, ja mér er bara spurn. Flökkum á milli staða...... hver vill gefa okkur að borða næst??? hehehe. Fengum alveg fullt af góðum gjöfum og þökkum við öllum kærlega fyrir gjafir og kort :o). Ég sem hef verið frekar fátæk á skó, fékk meira að segja tvö pör.... bæði frá Sissa og mömmu og pabba. Peysu, dvd, lampa, grill-pönnu og fleira og fleira og ekki má nú gleyma jólabókinni. Fékk eina bók og er þegar komin vel á veg með hana. Hún er samt 291 bls svo að ég á nóg eftir enn. Það eru engin jól nema að maður fái allavega eina nýja bók til að lesa. Ég er reyndar farin að lesa mun minna en ég gerði. Ég á það nefnilega til að detta svo inn í bækurnar sem ég er að lesa að ég geri ekkert annað fyrr en ég er búin með bókina. Og það hentar ekki alltaf neitt voða vel. En jólin eru rétti tíminn til að láta það eftir sér að liggja yfir bók. Mér fannt samt að Birgitta Halldórs hefði átt að gefa út bók. Bækurnar hennar höfða ágætlega til mín nefnilega. En þessi jólin les ég bara Mary Higgins Clark..... Birgitta hlýtur að gefa út bók fyrir næstu jól og bíð ég bara spennt.
Jólagjafirnar í ár fara samt flestar beint ofan í kassa og verða ekki teknar upp aftur fyrr en við erum flutt. (Skór og peysur fara samt auðvitað strax í notkun enda viljið þið ekki að ég sé nakin.... hehe.... nema Sissi kannski, hann vill stundum að ég sé án klæða ;o) ).
mánudagur, desember 22, 2003
 
Sybbin í dag
Ég er örlítið sybbin í dag. Fór ekki að sofa fyrr en kl 2:30 í nótt. Vorum að svissa nudd- og svefnherberginu. Og þetta var miklu meira mál en að ég hafði ímyndað mér. Svo var ég líka að lita á mér hárið. Súlí vinkona er reyndar farin norður svo að strípurnar verða að bíða. Er því bara með einlitt dökkt hár núna. Mér fannst skárra að vera með einlitt dökkt en strípur og ógurlega rót.
Það var nú svoltið skrítið að sofa ekki í sama herbergi og venjulega. En málið er að við fáum að hafa f.v. nuddherbergið áfram ef að við fáum ekki geymsluna á nýja staðnum fyrr. Og því ætlum við að fara að stafla kössum inn í það herbergi. En það gengi náttúrulega ekki upp ef að ég væri að nudda þar líka.
Kisu fannst við samt svoltið skrítin að vera að færa allt til svona. Var alveg ónýt. En um leið og ég var komin upp í rúm og farin að klappa henni, þá fannst henni þetta alveg þess virði.....hehe

Nú eru bara 2 dagar til jóla. Er að vinna í dag og á morgun. Þá hlýtur jólaskapið að fara að koma. Sennilega samt ekki fyrr en ég stend upp úr stólnum mínum, eftir vinnu á morgun. Og uppgötva að ég þarf ekki að vinna meira fyrr en á næsta ári....hehe.... þá hlýtur þetta að koma.
föstudagur, desember 19, 2003
 
Styttist í jólin


Núna eiga bara Bjúgnakrækir, Gluggagægir, Gáttaþefur, ketkrókur og Kertasníkir eftir að koma til byggða. Þetta þýðir vissulega að Stekkjastaur, Giljagaur, Stúfur, Þvörusleikir, Pottasleikir, Askasleikir, Hurðaskellir og Skyrgámur eru allir komnir. Það hefði kannski verið einfaldara að orða þetta svona: Það eru bara 5 dagar til jóla :o) Ekki er ég nú samt ennþá komin í jólafrí. Það frí sem hófst hjá mér í dag var víst bara helgarfrí. Ég þarf að vinna bæði mánudag og þriðjudag í næstu vikur og þá er ég loksins komin í JÓLAFRÍ!!!!!! Ekki það að ég get svosem ekki kvartað mikið. Ég fer í frí kl 13 á Þorláksmessu og mæti ekki aftur í vinnu fyrr en 2. janúar (á næsta ári).
Ég er nú samt ekki komin í neitt voðalega mikið jólaskap. Reyndar kom nú aðeins með snjónum í morgun en bara smá. Ástæðan er sú að ég hef ekki skreytt neitt. Er bara með nokkra jóladúka, aðventukrans og aðventuljós. Ég sem er vön að vera með seríu í hverjum glugga og vera búin að skreyta allt (nema jólatréð) um miðjan desember. En það hentar ekki neitt voðalega vel að vera að tína jólaskrautið upp úr kössum þegar maður er að pakka niður og flytja. Við erum að reyna að tína niður í kassana og því var jólaskrautið að mestu látið eiga sig. Sissa er að vísu alveg sama en ég, litla jólabarnið, kemst bara engan veginn í jólaskap. Samt er ég búin að skrifa öll jólakortin. Og kaupa allar jólagjafir og pakka þeim inn.
Það hlýtur nú samt að koma þegar ég hætti í vinnunni 23. des og er komin í jólafrí. Þá ætti jólaskapið að hellast yfir mig. Og spennan og tilhlökkunin flæðir yfir mig þegar ég átta mig á því að jólin eru daginn eftir.
fimmtudagur, desember 18, 2003
 
Undirritun
Nú er loksins að koma að því að við Sissi eignumst íbúð. Undirrituðum í dag kaupsamninginn að nýju íbúðinni okkar. Og borguðum auðvitað helminginn af útborguninni + kostnað. Eigum svo að fá íbúðina afhenta 1. febrúar. Og svo 3 mánuðum eftir afhendingu, sem sagt 1. mai, eigum við að borga hinn helminginn af útborguninni og fáum þá afsalið af eigninni.
Ég verð nú alveg að viðurkenna að ég er alveg ógurlega spennt. Og ekki held ég að spenningurinn sé neitt minni hjá Sissa. Mikið verð ég nú samt ánægð þegar við getum flutt í nýju íbúðina og farið að gera það sem okkur langar við OKKAR íbúð :o)
miðvikudagur, desember 17, 2003
 
Eintómt klúður


Í september reyndi ég að panta snyrtivörur frá LR-lagernum á Íslandi, en gekk heldur illa að ná inn til að panta. Mánuði seinna var hringt í mig og ég spurð hvort að ég vildi ennþá panta þær vörur sem ég hafði beðið um(ég sendi tölvupóst með pöntuninni). Ég vildi það, jú, endilega og greiddi fyrir vörurnar sem ég pantaði. Svo líður og bíður og aldrei fær ég vörurnar í hendurnar. Svo öðrum mánuði síðar er aftur hringt í mig og ég spurð hvort að ég sé búin að fá pöntunina mína.... NEI... átti nú að fara að reyna að rekja sendinguna. Svo í dag fékk ég sms frá Guðlaugu Steinsdóttur í Hafnarfirði sem sagðist hafa fengið pakkann minn. Ég bruna auðvitað í Hafnarfjörðinn og næ í pakkann. Hafði hún þá þurft að borga fyrir að leysa út pakkann og borgaði ég henni þá upphæð. En mér finnst nú hálf hallærislegt að ég þurfi að greiða extra fyrir að fá pöntunina mína 3 mánuðum eftir að ég panta. Og ekki nóg með það heldur vantar í pöntunina vörur sem ég er búin að greiða fyrir(áður en pöntunin var send út) og var svo ekki til þegar pöntunin var afgreidd. Pöntunin átti sem sagt ekki að koma beint til mín heldur átti hún fyrst að fara á LR-lagerinn hérna á Íslandi sem átti svo að senda til mín. Þess vegna er ég í rauninni búin að tvíborga sendingarkostnaðinn þar sem ég var búin að borga LR-lagernum en þurfti svo aftur að greiða til fá vörurnar leystar úr póstinum(sem lagerinn átti að gera en ekki ég).
En eitt er það sem ég skil ekki....... hvernig í ósköpunum póstinum datt í hug að senda þetta í Hafnarfjörðinn????? Pakkinn var merktur, jú, Guðlaug Steinsdóttir EN.. mitt heimilisfang og bæði heimasíma-númerið mitt og gsm-númerið mitt stóðu skrifuð utan á pakkann. AF HVERJU Í ÓSKÖPUNUM VAR EKKI BARA HRINGT Í MIG EÐA TILKYNNINGIN UM PAKKANN SEND Á ÞAÐ HEIMILISFANG SEM STÓÐ UTAN Á SENDINGUNNI????? Ja mér er bara spurn!!!!
þriðjudagur, desember 16, 2003
 
Pabbinn á afmæli


Pabbi er 49 ára í dag. Hann er alveg að verða stór strákur...hehehe. Vonum að hann njóti dagsins og sendum honum innilegar afmæliskveðjur :o)
mánudagur, desember 15, 2003
 
Nudd
Það virðist vera nóg að gera hjá mér í nuddinu núna. Eitthvað sem ég bjóst ekki við..... svona samanborið við desember í fyrra. Held að ég hafi kannski nuddað 3 nudd í desember í fyrra (var reyndar með fleiri bókanir sem var svo afpantað).
Núna t.d. er ég fullbókuð fram að jólum og er meira að segja farin að bóka í janúar þá sem ekki komast að fyrir jól. Verst að ég skuli ekki geta nuddað nema bara til og með 7. janúar og svo ekki fyrr en í febrúar. Það er nefnilega orðið ljóst, að við fáum ekki að vera hérna áfram. Megum reyndar halda nuddherberginu undir dótið okkar ef að okkur tekst ekki að fá geymsluna á nýja staðnum fyrr. Og svo er það bara að betla gistingu hjá einhverjum góðhjörtuðum. Og þegar þannig stendur á, er ég víst án nuddaðstöðu. Það verður því það fyrsta sem verður gert í nýju íbúðinni....að koma upp nuddaðstöðu. Og þá fyrst get ég haldið áfram að nudda í öllum...hehe. Sissa finnst ég nú samt svoltið tæp á því..... er með bókuð nudd til 7. janúar svo að við höfum bara einn dag til að setja allt dótið inn í nuddherbergið og klára að pakka. En mér finnst alveg nóg að þurfa að hætta þá...... slæmt að geta ekki nuddað þegar eftirspurnin er svona mikil. En fólk hlýtur að skilja þá aðstöðu sem ég er í, og bíða bara rólegt þangað til ég get hafist handa á ný.
Janúar í fyrra var nú líka frekar lélegur.... vægast sagt... svo að kannski er ég ekki að missa af miklu. Þetta lítur bara svo vel út ennþá... allavega ef marka má desember. Að vísu gætu orðið einhver afföll sem ég veit ekki um núna. Ég held nefnilega að Sissi sé að verða veikur, þannig að það gæti einhver pest verið að ganga. Og nuddþegarnir mínir sleppa nú kannski ekki allir.
En ég ætla ekkert að fara að verða neitt svartsýn. Og því segi ég bara..... þetta lítur mjög vel út :o)
sunnudagur, desember 14, 2003
 
Jólagjafirnar klárar
Kláraði að kaupa síðustu jólagjafirnar í dag. Og var núna að enda við að pakka öllum gjöfunum inn. Ég á heldur ekki eftir að skrifa nema eitt eða tvö jólakort. Svo núna er bara næst á dagskrá að koma gjöfunum til réttra aðila. Eina þarf ég reyndar að senda út til Færeyja.... átti að vera búin að því, held að síðasti dagurinn hafir verið á föstudaginn (12/12). En ég er viss um að Guðrið verði ekkert fúl við mig þó að hún fái eina gjöf á milli jóla og nýárs..... fínt að fá einn pakka svona eftirá.

Dróg Sissa með mér í ljós. Og hann slakaði svo vel á að hann meira að segja dottaði í ljósunum. Hehehe, og hann sem var búinn að vera að gera grín að mér. Ég var nefnilega að tala um það við hann um daginn að mér þætti svo sniðugt að bekkurinn dinglaði þegar tíminn væri búinn. Því að þá vaknar maður og er ekkert að liggja sofandi á bekknum eftir að tíminn er búinn. Ég sofnaði nefnilega um daginn þegar ég var í ljósum...... það er svo notalegt að liggja þarna í hitanum. Og svo hrökk ég upp þegar tíminn var búinn og bekkurinn dinglaði.
Mér fer alveg að takast að verða brún. Ég er búin að vera 1/2 ár með 20 tíma ljósakort.... Sissi búinn að koma með mér 3x (minnir mig) og svo bauð ég Súlí vinkonu um daginn og nú er bara einn tími eftir. Mér ætti samt að takast að klára þennan eina tíma núna fyrir jólin áður en kortið rennur út...... hehe..... ótrúlegt hvað mér reynist erfitt að klára þetta kort.... og mér sem finnst svo gott að slaka á í ljósum...hmmmmm. :o)
 
Jóla jóla jóla


Skellti mér í jólaklippinguna í dag. Svo fórum við Sissi að kaupa jólagjafir. Kláruðum jólagjafakaupin að mestu. Nú á ég bara eftir að kaupa jólagjöfina til Sissa og svo eina aðra jólagjöf. Rétt komum við heima til að henda af okkur árangrinum af innkaupunum og brunuðum svo í Grafarvoginn. Fórum til Einars og Ásu og svo með þeim, og fleirum, á jólahlaðborð á Kaffi Reykjavík (þetta var semsagt verkstæðisliðið). Maturinn var frábær og borðuðum við vel..... eiginlega of vel. Létum við fara vel um okkur og nutum tónlistarinnar og hvers annars, eftir matinn. Skutlaði ég svo Einari og Ásu heim og kom svo beint heim (rétt áðan). Þetta er búin að vera mjög góð kvöldstund og þakka ég kærlega fyrir mig :o)
föstudagur, desember 12, 2003
 
Föstudagskvöld


Enn eitt föstudagskvöldið með enn einn stjörnuleitarþáttinn. Ég er nú eiginlega orðin "húkt". Má ekki missa af einum einasta þætti. Missti reyndar helling úr síðasta þætti en horfði þá bara á endursýninguna á sunnudagskvöldinu. Og enn er ég sátt, Idolin mín enn inni. Og þrátt fyrir spár dómaranna var Jón ekki í einu af 3 neðstu sætunum. Og auðvitað var Kalli "seif". Sem sagt, það eru Jón og Kalli sem eru í toppsætunum hjá mér. Við vorum að tala um það tvær í vinnunni í dag, að við mættum ekki missa úr þátt. Og að þetta væri eiginlega komið á það stig hjá okkur, að við færum út í búð að kaupa kók og maarud. En mér tókst að stilla mig..... lét sem sagt nægja að vera bara í kókinu....var með Maarud síðasta föstudag. Segið svo að auglýsingar borgi sig ekki. En það er eiginlega verra hvernig þetta fer með símareikninginn. Ef að maður er alltaf að kjósa í Idol..... kr. 198,- úr mínum gemsa og svo kr. 198,- úr Sissa gemsa... allt á einn reikning sem dregst af laununum mínum. Ef að áfram heldur sem horfir fara launin mín hjá Símanum varla að duga fyrir símareikningnum...... ætli ég geti samið um greiðslur...hehe (bara smá spaug .... ég fæ nú aðeins meira en þetta í laun).
 
Jólasveinninn minn


Stekkjastaur kom til byggða í nótt. Hann gleymdi nú samt að setja í skóinn minn.... eins og alltaf. Ég hef nefnilega aldrei fengið í skóinn. Ég er kannski bara svo óþæg að ég fæ ekki einu sinni kartöflur. Ég þarf kannski líka að setja skóinn í gluggann til að fá eitthvað í hann....hmmm.

En allavega nú er virkilega farið að styttast í jólin. Ekki nema 12 dagar.
miðvikudagur, desember 10, 2003
 
Byrjuð að pakka
Sissi kom heim með fullt af pappakössum í gær. Og nú erum við byrjuð að pakka niður dótinu okkar. Erum reyndar ekki búin að pakka miklu, en byrjuð samt. Ég veit nú ekki alveg hvar við eigum að setja kassana sem við erum búin að pakka niður í. Því geymslan er full af drasli. En við hljótum að finna eitthvað út úr því.....með tíð og tíma. Það er ótrúlegt hvað manni tekst alltaf að safna miklu drasli. Allar hirslur fullar af dóti. Svo þegar maður flytur fer maður í gegnum draslið ... hendir einhverju og hirðir annað. Og byrjar svo upp á nýtt að safna drasli, í nýju húsnæði.
mánudagur, desember 08, 2003
 
Síðasti húsaleigupeningurinn


Fór áðan og borgaði síðustu húsaleiguna fyrir þessa íbúð (alla vega eins og staðan er í dag). Það er fyrir 9 daga í desember. Við áttum nefnilega inni einn mánuð... sem gengur upp í síðasta mánuðinn hér. Og þetta er náttúrulega allt miðað við það að við yfirgefum þessa íbúð 9. jan..... nýju eigendurnir koma 10. Við vorum reyndar að spá hvort að við gætum fengið að vera hérna eitthvað örlítið lengur. Við eigum nefnilega ekki að fá nýju íbúðina okkar fyrr en 1. feb. En við höfum ekki enn fengið uppgefið símanúmer nýju eigendanna og því ekki getað samið við þá. Og erum líka ennþá að vona að við gætum kannski fengið íbúðina okkar eitthvað aðeins fyrr. En þetta er víst eitthvað sem gerist á næsta ári....hehehehe.
 
Sissi kominn heim
Sissi kom heim kl 8 í morgun. Mjög þreyttur að sjálfsögðu. Fékk að leggja sig fram að hádegi, en fór þá í vinnuna. Hann var semsagt búinn að vera á ferðinni í alla nótt. Stoppaði 6 sinnum á leiðinni til að hvíla sig smá .... einu sinni lagði hann sig reyndar í klukkutíma. Ég fékk að vera í símasambandi við hann svona af og til í nótt.... mér fannst ekkert sniðugt að hann væri að keyra svona þreyttur og hvað þá svona langa leið. Þegar hann kom heim sagði hann mér að það vantaði 2 klst upp á að hann væri búinn að vaka í 2 sólarhringa. Hann ætlar líka bara rétt að skreppa á verkstæðið eftir vinnu og koma svo heim og hafa það rólegt í kvöld. Mér finnst nú mjög líklegt að hann fari bara snemma (þá á ég við ... MJÖG snemma) að sofa í kvöld.
Bíllinn komst semsagt í lag, það bara tók helv... langan tíma. Og kostaði mikla fyrirhöfn að ógleymdri peningaupphæðinni sem fór í allt þetta vesen.
sunnudagur, desember 07, 2003
 
Makalaus helgi
Þessi helgi er búin að vera frekar skrítin. Sissi er búinn að vera á Akureyri síðan á föstudag og ég ein hér í höfuðborginni. Hann er nefnilega búinn að vera að reyna að gera við bílinn minn sem bilaði um síðustu helgi. Ég er nú eitthvað hálf vængbrotin að hafa hann ekki hjá mér. Kann ekki að vera svona ein. Sérstaklega ekki þegar ég er ekki með bíl sem ég get treyst. Það er alltaf svona spenningur að vita hvort að Mazdan fari í gang eða ekki. Og þegar ég er á þannig bíl þá svosem er ég ekki mikið á ferðinni. Og því er ég að mestu búin að sitja heima og láta mér leiðast. Skrapp samt smá í afmælisveisluna hans Snorra í gær og í ljós. Svo rétt skaust ég í Rúmfatalagerinn í dag og kom við í búð á heimleiðinni og keypti mjólk. Svo bara sit ég í tölvunni eða að horfa á video/dvd. Vona bara að Sissa takist að klára að gera við bílinn. Verst að hann er ekkert búinn að sofa í 1 1/2 sólarhring. Vildi að hann gæti bara gist fyrir norðan og komið í fyrramálið en hann þarf víst að mæta í vinnuna í fyrramálið. Það er víst enginn sem getur hlaupi í skarðið fyrir hann í vinnunni hjá honum.
laugardagur, desember 06, 2003
 
Þura systir á afmæli


Litla systirin mín er 15 ára í dag (hætt að vera lítil). Við sendum henni okkar bestu afmæliskveðjur. Hafðu það nú gott í dag Þura mín. :o)
 
Tómlegt án Sissa
Jæja var að koma heim af djamminu. Fórum nokkrar saman á Gaukinn rétt fyrir níu.....þar voru engin sæti laus og svo mikill hávaði að ekki var hægt að heyra Idolin syngja. Ákváðum því bara að koma heim til mín og horfa hér á Idol og kíkja svo bara aftur á Gaukinn þegar það væri búið. Það drógst að vísu aðeins en við vorum komnar þangað rétt fyrir 1. Hörku stuð. Hefðu að vísu mátt vera aðeins fleiri sem maður þekkti.... það voru eitthvað svo fáir úr þjónustuverinu. Dansaði aðeins og kjaftaði helling. En ósköp er samt tómlegt að koma heim og enginn Sissi. Hann var kominn norður rétt um hálf eitt í nótt. Það var víst hálka stóran hluta leiðarinnar og alveg fljúgandi hálka niður Öxnadalsheiðina. Ég vona bara að það gangi vel að gera við bílinn minn, svo að Sissi komi sem fyrst aftur til mín. Hann reiknaði nú samt ekki með því að hann kæmi fyrr en seint á sunnudaginn. Þetta væri það mikið mál að það tæki örugglega alveg þann tíma. En það er nú allt í lagi að láta sig dreyma (um að þetta gangi vel og hann komi fyrr).
föstudagur, desember 05, 2003
 
Jólaglögg


Sissi er að fara norður á eftir til að gera við bílinn minn. Og ég verð því ein hérna í höfuðborginni á meðan. Til að mér leiðist ekki eins mikið hef ég ákveðið að skella mér á djammið með vinnufélögunum. Jólaglögg á Gauknum. Veit samt ekki hvort að ég verð neitt lengi, það fer bara eftir stemningunni.
 
Saumaklúbbur
Jæja, fyrsti saumaklúbburinn minn var í kvöld. Vorum reyndar búnar að ákveða, í sumar, að halda saumaklúbb. Einhvernveginn frestaðist það samt alltaf og frestaðist. Þangað til um daginn að við ákváðum bara dagsetningu og stóðum við hana. Þetta var líka voðalega kósí. Hittumst í þetta skiptið heima hjá Bryndísi Evu. Hún var búin að baka og fínt fínt. Vorum reyndar bara fjórar, en verðum vonandi fleiri næst. Ég ætla samt ekki að halda saumaklúbb fyrr en ég verð flutt og búin að koma mér fyrir.
miðvikudagur, desember 03, 2003
 
Snorri á afmæli


Snorri, kærastinn hennar Freyju systir, á afmæli í dag. Og auðvitað óskum við honum innilega til hamingju með árin 30.
 
Bíldruslan
Jæja er loksins komin heim...... fljúgandi. Fórum nefnilega norður á föstudagskvöldið. Það var laufabrauðshelgi hjá familíunni minni. En svo þegar við vorum að leggja af stað suður aftur bilaði bíllinn..... upp á Öxnadalsheiði. Við náðum að snúa við og keyra aðeins af stað í átt til Akureyrar aftur, en þá dó bíllinn aftur. Við vorum samt þá komin í örlíðið símasamband og með herkjum gátum við beðið um að við yrðum dregin til baka. Jón Ingi, fósturpabbi Sissa, kom á Landrovernum og sótti okkur. Á mánudaginn fórum við svo í það að finna nýja vél í bílinn og kaupa alla þá varahluti sem að vantaði.... sumt fengum við sent með flugi héðan að sunnan. Svo var að finna aðstöðu........ fengum enga góða, þá á ég við með lyftu. Þannig að Sissi ákvað að reyna að taka vélina bara upp úr bílnum í staðin fyrir niður úr. Það tók samt heilan sólarhring að losa alla bolta og festingar.... allt pikkfast og leiðinlegt. Og bara til að komast að því að það var ekki hægt að taka vélina upp..... :o( Við tókum því það ráð að fljúga suður.... skildum bílinn eftir fyrir norðan... og Sissi þarf svo að fara norður aftur um næstu helgi til að gera við bílinn og koma á honum suður. En fram að þessu var helgin fín....... fékk fiskréttinn hennar mömmu og fínt fínt. Er líka búin að setja inn nokkrar myndir frá helginni....endilega kíkið.

Powered by Blogger