laugardagur, janúar 31, 2004
 
Stoltir íbúðareigendur
Loksins loksins loksins. Búin að fá lyklana afhenta. Og núna er ég bara að bíða eftir að Sissi geti byrjað að flytja dótið upp. Hann er nefnilega með eina lykilinn að geymslunni.
Mér sýndist svona í fljótu bragði að það þurfi bara blettun á stofuna. Það er nefnilega svo stutt síðan íbúðin var máluð... í september. En svefnherbergin eru öll í litum svo að við málum allavega bæði aukaherbergin, spurning með hjónaherbergið. En það ætti allavega ekki að vera neitt sem liggur á áður en við flytjum inn. Ég þarf bara rétt að strjúka úr eldhússkápunum og svo er hægt að byrja að raða í þá. Þetta verður sko gaman. Ég get ekki beðið eftir að Sissi komi svo að eitthvað fari að gerast.... Gulla litla er svoltið óþolinmóð núna.
 
Íbúðarafhending í dag kl. 17:15
Sissi var að hringja í mig (hann er einhversstaðar hjá eða á Selfossi) og sagði mér að ég mætti fara á eftir kl 17:15 og fá íbúðina afhenta. Og ég er þokkalega að deyja úr spenningi. Rúminu og ískápnum (amk) verður svo hent upp í kvöld og örugglega sofið þar í nótt. Á morgun verður svo allt á fullu við að flytja dótið okkar upp úr geymslunni og auðvitað reynt að koma sem mestu á sinn stað.
fimmtudagur, janúar 29, 2004
 
Til gamans ættleiddi ég "Useless blob"
Adopt your own useless blob!
 
Vonbrigði


Sissi hringdi í seljanda nýju íbúðarinnar okkar í dag. Og við fáum hana ekki fyrr en í hádeginu á sunnudaginn (1.feb). Þannig að það er orðið ljóst að við getum ekki nýtt alla helgina í að koma okkur fyrir eins og ég var að vona. Það er nefnilega eitthvað svo lítið sem að maður getur gert frá hádegi á sunnudegi. Helgin er þá eiginlega búin og vinnudagur daginn eftir. Sem þýðir að það fer sennilega öll vikan í að gera klárt þannig að ég geti byrjað að nudda. Var nefnilega að vona að ég gæti byrjað að nudda aðeins fyrr. Er eiginlega búin að fullbóka vikuna á eftir. Og samt eru nokkrir sem ég á að hafa samband við um leið og ég byrja aftur að nudda.
Ætli ferðin norður til að ná í Lúllu kisu verði þá ekki bara fram og til baka ferð. Ef að við þurfum að nota helgina i allt annað líka. Þetta á samt auðvitað eftir að koma betur í ljós. Aldrei að vita hverju maður getur komið í verk, ef spenningurinn er alveg að fara með okkur. Og í augnablikinu er hann þokkalega að fara með mig. Nú og auðvitað ef að við fáum nógu mikið af fólki til að aðstoða okkur við að bera allt draslið upp úr geymslunni. Margar hendur vinna létt verk.
(Ég er farin að sakna kisu svo mikið að ég geri ekki annað en að skoða krúttlegar kisumyndir.... og auðvitað skelli ég einni og einni með í bloggið mitt)
miðvikudagur, janúar 28, 2004
 
Spennan alveg að ná hámarki


Núna eru bara 2 vinnudagar þangað til við eigum að fá íbúðina okkar afhenta. Við eigum samt eftir að heyra í seljendunum til að kanna hvort að það gæti nokkuð orðið fyrr. Þar að segja fyrr en á sunnudag.
Erum búin að vera hjá Freyju systir núna síðan á mánudag. Elduðum rosa góðan bullufiskrétt, ala Gulla, í gærkvöldi. Sissi er reyndar alltaf á verkstæðinu. Er að reyna að hjálpa Hjalta að gera við bílinn sinn. Hjalti lenti nefnilega í árekstri á föstudaginn síðasta. Enginn slasaðist samt og það er fyrir öllu.
Sissi er líka búinn að koma Coltinum aftur á götuna. Það er samt ennþá gat á farþegahurðinni eftir að brotist var inn í hann. Þetta er í fyrsta skipti sem ég sé bíl sem hefur verið brotist svona inn í. Gert gat á hurðina en ekki brotin rúða. En af því að Sissi getur allt.... ætlar hann að reyna að redda þessu gati einhvernveginn... án þess að skipta um hurð.

Ég er búin að vera að nudda núna eitt nudd á dag. Frekar miklir snúningar fyrir eitt nudd. Tekur 2 1/2 tíma að nudda 60 mín nudd. Inn í því eru ferðir undirbúningur og frágangur. Það hefði verið fínt að taka tvö nudd.... því að þá deilast ferðirnar og svoleiðis þá allavega niður á tvö nudd. En þetta er síðasta vikan sem ég verð að nudda á Chakra svo að ég ætla ekkert að vera að böggast á því. Í næstu viku verð ég svo að gera klára nýju nuddaðstöðuna mína. Og vikuna þar á eftir er það bara að nudda aftur á fullu. Þegar að verða vel full fyrsta vikan og nokkrir sem bíða eftir að ég segi þeim hvenær ég byrja aftur. Þetta er allt að verða voða spennandi og ég er orðin svo spennt að Sissi heldur að ég sé að breytast í GORM.
þriðjudagur, janúar 27, 2004
 
Vistaskipti
Tókum okkur til í gær og skiptum um samastað. Byrjuðum á því að elda svaka góðan mat fyrir gestgjafana okkar í Grenigrundinni. Og að sjálfsögðu gegnum við frá öllu eftir matinn. Pökkuðum dótinu okkar saman .... hentum því út í galantinn og færðum okkur yfir til Freyju systur. Reikna með að við verðum þar þangað til við fáum íbúðina okkar, um næstu helgi.
Letin er samt búin að ráða ríkjum hjá mér síðustu daga. En nú þarf ég að rífa mig upp og fara að nudda í dag. Er með eitt nudd á Chakra í dag kl 15:30.
Sat í gær og var að horfa á Survivor. Fyrstu syrpuna. Það er víst eitthvað Survivor maraþon í gangi á Skjá 1. Sýna Survivor frá 9 á morgnanna til kl 17:30 ... stanslaust (og sleppa meira að segja auglýsingunum innan úr þáttunum). Og svo eru síðustu þættirnir úr syrpunni sýndir eftir að venjulegu dagskránni lýkur um kvöldið. Þetta á víst að vera svona alla vikuna.... ein syrpa á dag. Sem sagt það er syrpa nr 2 í dag og svo koll af kolli. En ein spurning: Hver nennir að horfa á Survivor heilan dag????
Mér nægði að horfa á um 3 þætti og þá var ég komin með nóg.
sunnudagur, janúar 25, 2004
 
Þorrablót og bruni í Bárðardal
Ekki varð eins gaman, fyrir þorrablótsgesti, og til stóð, á Þorrablóti í Bárðardal. Því þegar skemmtiatriðin voru rétt að enda þá sást að það var kviknað í á næsta bæ. Kertagerðin á Stóruvöllum brann til kaldra kola, sjá frétt. Þorrablótið hélt samt áfram og reyndi fólk að gera það besta úr aðsæðum. Aldrei að vita nema að þetta hafi þá verið rétta þorrablótið til að missa af, fyrst ég þurfti að missa af þorrablóti á annað borð. Vonum bara að Kertagerðin á Stóruvöllum hafi verið vel tryggð og hægt verði að byggja upp þarna aftur. Ekki er mikið af atvinnu að fá í Bárðardal og synd ef að ekki er hægt að koma kertagerðinni aftur af stað.
 
Matur og bíó


Fórum til Sigrúnar og Gulla í mat, í kvöld (eða gærkvöldi miðað við þessa dagsetningu - það er víst komið fram yfir miðnætti). Mjög góður matur og þökkum við kærlega fyrir okkur. Þar sem við sátum svo fyrir framan sjónvarpið stakk ég upp á því að við skelltum okkur í bíó. Allir tóku rosalega vel í það og skelltum við okkur á "Haunted Mansion" með Eddie Murphy. Og ákvað ég að bjóða þeim skötuhjúum í bíó, í þakklætisskyni fyrir matinn.
Myndin var fín. Helling hægt að hlægja. Góð skemmtun, allavega kvarta ég ekki.
laugardagur, janúar 24, 2004
 
7 dagar enn án heimilis
Á morgun er nákvæmlega vika þangað til við eigum að fá íbúðina okkar afhenta. Og auðvitað er ég alveg að deyja úr spenningi.
Hefði alveg verið til í að vera heima í sveit samt núna. Það er nefnilega þorrablót í kvöld. Langaði ofboðslega mikið að fara en komst ekki þetta árið. Í staðinn förum við Sissi í Taco til Gulla og Sigrúnar. Vorum búin að vera að velta fyrir okkur að halda bara sjálf þorrablót.... ef að Súlí færi ekki norður. En Súlí fór norður og Hörður er að fara að halda útskriftarpartý með bekknum sínum. Þannig að okkar þorrablót verður bara að bíða betri tíma.
Erum að spá í að skipta um samastað. Fáum að gista hjá Freyju systir síðustu vikuna okkar í heimilisleysi. Verst að vindsængin okkar var óvart sett ofan í kassa og í geymsluna okkar. Og það þýðir að við reynum ekki einu sinni að finna hana. Freyja og Snorri ætla að athuga hvort að við getum fengið lánaða dýnu eða dýnur hjá foreldrum Snorra.
 
Útskriftardagurinn hans Harðar


Hörður - bróðir Sigurlínu vinkonu - var að útskrifast í dag. Fékk titilinn diploma í Véliðnfræði frá Tækniskólanum. Hann er nú samt þegar byrjaður að læra meira. Er ennþá í Tækniskólanum og vill fá stærri titil. En engu að síður óskum við Herði hjartanlega til hamingju með þennan skemmtilega áfanga. Og gangi þér vel í því sem þú ert að nema núna.
 
Fleiri test


What Famous Leader Are You?





What Classic Movie Are You?



Conscious self
Overall self
Take Free Enneagram Personality Test


ESFJ - "Seller". Most sociable of all types. Nurturer of harmony. Outstanding host or hostesses. 12.3% of total population.
Take Free Myers-Briggs Word Test




föstudagur, janúar 23, 2004
 
8 dagar í stóru stundina
Stóra stundin er þegar við fáum afhenta fyrstu íbúðina OKKAR!!!

Síðasta vikan hlýtur að verða fljót að líða. Sérstaklega ef að það verður eitthvað að gera á nuddstofunni. Ég er nefnilega búin að lofa að leysa af líka í næstu viku. Það var nú ekki erfitt í þessari viku þar sem ég nuddaði bara eitt nudd. Reyndar það eina sem er leiðinlegt við þetta er þegar nuddþegarnir afboða sig með stuttum fyrirvara. Þá er ég kannski búin að hanga og bíða í einhvern tíma fyrir ekki neitt svo. En það getur alltaf komið eitthvað uppá á síðustu stundu. Það gæti auðvitað líka gerst hjá mér og ég myndi vilja að nuddþegarnir gætu fyrirgefið mér.... svo auðvitað fyrirgef ég þeim.
Ég ætlaði mér nú samt að fara í nudd í þessari viku en komst svo ekki vegna þess að ég átti alltaf að vera að nudda. Þegar svo var afpantað þá var náttúrulega of seint fyrir mig að reyna að ná mér í tíma. Vonandi get ég séð betur hvernig næsta vika verður og kannski fundið mér tíma sem ég get farið í nudd.

Það gengur nú ekki alveg eins vel og ég hafði vonað, að redda heimasíðunni minni. Mig vantar nefnilega "drop down" takka til að geta bætt við öðru myndaalbúmi. Hann Denni ætlaði að reyna að skoða þetta fyrir mig. En hann er að flytja, til Ísafjarðar, og er því búinn að vera frekar upptekinn og ekki haft tíma. Og það verður sennilega frekar langt fyrir mig að fara að hitta hann á Ísafirði, fyrir einhverjar sérþarfir í mér með heimasíðuna mína. Vonandi reddast þetta samt einhvernveginn. Ef einhver getur aðstoðað mig endilega látið mig vita.
fimmtudagur, janúar 22, 2004
 
9 dagar í afhendingu
Styttist óðfluga í það að við fáum íbúðina afhenta..... húrra, húrra, húrra, húrra.

Fór fýluferð á nuddstofuna í dag. Meira að segja 2 fýluferðir. Byrjaði á því að ég gleymdi símanum mínum "heima" og ákvað að snúa ekki við þegar ég fattaði það. Kem á stofuna og þá hafði gleymst að skilja eftir opið fyrir mig (þar sem ég er ekki með lykil). Þurfti því að fara og sækja símann til að geta hringt í eiganda stofunnar. Fékk þá að vita að það væri auka lykill á hárgreiðslustofunni sem er í sama húsi. Fer svo á hárgreiðslustofuna til að fá lykilinn. Þær sögðu mér þá þar að nuddþeginn kæmi ekki, en að þær hefðu ekki vitað hvert þær ættu að hringja til að láta vita.
En á hárgreiðslustofunni hitti ég hins vegar Sigrúnu Garðarsd. sem var í sveit á Rauðá (þegar við vorum litlar), sem er rétt hjá heima. Og spjölluðum við heillengi saman. Svo að fýluferðin var kannski ekki bara fýluferð...... alltaf gaman að hitta gamla kunningja sem maður hefur ekki hitt lengi.
miðvikudagur, janúar 21, 2004
 
10 dagar þangað til við fáum íbúðina afhenta


Jæja nú fer þetta alveg að koma. Ekki nema 10 dagar þangað til við eigum að fá íbúðina afhenta. Og enn held ég í þann draum að við fáum hana kannski fyrr (ekki miklar líkur) Það má alltaf láta sig dreyma.
Það hefur orðið eitthvað minna um þetta nudd sem ég átti að nudda, heldur en ég bjóst við. Nuddaði ekki nema eitt nudd í gær, átti að vera með tvö. Átti að vera með eitt nudd í daga, endaði með ekki neitt. Og nú er bara spurningin hvernig morgundagurinn endar. Átti að vera með tvö nudd, þeim hefur þegar fækkað niður í eitt og svo er bara spurningin hvort að það stendur.

Við erum búin að taka þá ákvörðun að fara ekki á Þorrablótið í ár. Sem er mjög sorglegt, að mínu mati. Höfum bara ekki nógu góðan bíl til að skrölta þetta. Fyrir utan peningalegu hliðina auðvitað. Förum bara ennþá sprækari þá á næsta ári. Önnur hliðin á þessu máli er að þessi helgi er aðeins of snemma til að ná í Lúllu kisu úr sveitinni. Og þá þurfum við að fara fljótlega norður aftur til að ná í kisu. Og eingan veginn höfum við efni á því að fara norður 2 með svona stuttu millibili. Fyrsta afborgunin af íbúðinni er nefnilega svoltið hærri en hinar og sú afborgun er núna um næstu mán.mót.
 
Alltaf gaman af testum!
Þetta er ég, alltaf jafn ung í anda ;o)

My inner child is sixteen years old today

My inner child is sixteen years old!


Life's not fair! It's never been fair, but while
adults might just accept that, I know
something's gotta change. And it's gonna
change, just as soon as I become an adult and
get some power of my own.


How Old is Your Inner Child?
brought to you by Quizilla

þriðjudagur, janúar 20, 2004
 
11 dagar eftir af heimilisleysi
Ekki mikið að gerast þessa dagana. Ég er farin að telja niður í það að við fáum íbúðina.
Fór í gær til Bryndísar Evu og fékk að skoða brúðargjafir og myndir. Verðum vonandi duglegri við að hittast eftir að ég flyt í nýju íbúðina sem er alveg í næsta nágrenni við Bryndísi.
Fór líka í gær og keypti mér eina bók til að lesa í aðgerðarleysi mínu. Var ekki fyrr búin að kaupa bókina en mér var falið verkerfni og er því bara komin á 2 blaðsíðu í bókinni.
Svo er ég að fara að nudda á eftir. Leysa af eina, sem var með mér í skólanum, seinnipartinn í dag, morgun og fimmtudag. Ekki nema 5 nudd samt sem ég tek fyrir hana. En fít, ég hef þá eitthvað að gera á meðan. Verst að ég held að ég sé að fá eitthvað kvef og hálsbólgu. Lifi bara á nasaspreyi, hálsmolum og hvítlauk.....hehe.....hhhhvítlaukurinninn.....hehehe
sunnudagur, janúar 18, 2004
 
Maggi Skarp. á afmæli í dag


Maggi - kærastinn hennar Sigurlínu vinkonu - er 30 ára í dag. Drengurinn eyddi deginum í sveitasælunni í Svartárkoti. Reyndi að vísu að halda upp á afmælið í gærkvöldi, en sökum slæmra veðurskilyrða varð frekar fámennt. Óskum við honum innilega til hamingju með að vera kominn á fertugsaldurinn :o) Hittumst vonanadi fljótlega. Afmæliskveðjur úr borginni.
laugardagur, janúar 17, 2004
 
Brúðkaup Magga og Evu


Í dag létu tengdapabbi og Eva Lind pússa sig saman, í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Og héldu svo þessa fínu veislu á eftir. Sissi var svaramaður fyrir pabba sinn, og stóð sig eins og hetja. Við vorum að koma "heim" úr veislunni og erum alveg sprungin. Óskum við þeim brúðhjónum innilega til hamingju með daginn. Og Evu einnig til hamingju með afmælið, en hún varð 30 ára í dag. :o)
föstudagur, janúar 16, 2004
 
Idol úrslit


Idolið fór alveg eins og ég vildi. Kalli vann og Jón var í 2. sæti. Ekki slæmt það!!! Ég er meira að segja búin að halda með Kalla frá því að hann kom fyrst fram. Jón kom svo sterkur inn aðeins síðar. Og eru þeir tveir búnir að fá öll mín atkvæði. Þannig að ég hlýt að eiga eitthvað í þeirra sigri. Ekki það að þeir hefðu sjálfsagt alveg getað þetta án minnar hjálpar.
Fínn árangur strákar...Innilega til hamingju!!!.... ég er stolt af ykkur.
 
Út að borða og í Bíó
Fórum á "Stælinn" í gærkvöldi. Mjög gott. Ég var svo góð að bjóða afmælisbarninu út að borða. Og þegar við vorum búin að borða, brunuðum við í Smárabío og skelltum okkur á LOTR. Fórum reyndar bara í venjulegan sal..... ekkert lúxus. Það var nefnilega ekki sýning í Lúxus-salnum fyrr en kl 22 og það er aðeins of seint fyrir mig, svona á virku kvöldi, til að horfa á svona langa mynd. Við fórum því í bíó kl 20 og var myndin búin kl 23:36.

Svo á að vera party í kvöld. Reynda Idol-partý og afmælispartý í sambland. Ætlum jafnvel að panta okkur eitthvað sniðugt að borða öll saman. Þannig að það er sko stuð framundan.
fimmtudagur, janúar 15, 2004
 
Hann á afmælí í dag


Hann Sissi minn sæti á afmæli í dag. Hann er 27 ára gamli kallinn...hehe. Ég vakt hann í morgun með afmæliskossi og gjöfum. Gaf honum "Need4speed underground" PS2 leikinn, Terminator 3 á dvd og buxur. Svo er stefnan tekin á American style í kvöldmatinn og bíó á eftir. Ekki fer mikið fyrir því að ég haldi að öðru leiti upp á afmælið hans þar sem við erum húsnæðislaus. Og ekki kann ég við að bjóða fólki í heimsókn þangað sem ég er í heimsókn.
En allavega Sissi minn, innilega til hamingju með afmælið :o)
miðvikudagur, janúar 14, 2004
 
Furðulegir dagar
Undanfarnir dagar hafa nú verið heldur undarlegir. Á auðvitað hvergi heima og hef því verið hálf eirðarlaus. Og þar sem ég er heimilislaus get ég auðvitað ekki nuddað svo að ég hef ekkert að gera frá því kl 13 á daginn (er reyndar búin að vera að breyta heimilisfanginu okkar í þjóðskránni og á pósthúsinu og svona). Súlí situr því uppi með mig og getur lítið lært á meðan.....held að hún sé samt ekkert mikið fúl við mig. Það hlýtur líka að vera eitthvað mikið að þegar ég er farin að fara í búðaráp á hverjum degi (ég sem er MJÖG lítið fyrir að rápa í búðir). Og ekki nóg með það heldur fór ég í Smáralindina tvisvar í gær og Kringluna tvisvar í dag.....geri aðrir betur. Í báðum tilvikum fór ég fyrst með Súlí og svo með Sissa.
Svo er ég einhvernveginn alltaf þreytt. Fer seint að sofa og sef frekar illa (á svefnsófa á ókunnugum stað). Vakna svo með bauga og fer illa til höfð í vinnuna.... allavega ver heldur en venjulega, og þá er nú mikið sagt...hehe.
En það er nú strax hálfnuð fyrsta vikan svo að þessar þrjár vikur, sem heimilisleysi okkar varir, hljóta að líða hratt. Og þá get ég loksins farið að gera það sem ég vil á mínu EIGIN heimili :o)
mánudagur, janúar 12, 2004
 
Afmælisbörn


Hef ekki komist í tölvuna til að setja inn afmælisbörnin.
Í gær átti Jón Ingi - fóstupabbi Sissa - afmæli. Og í dag eiga Edith - amma Sissa - og Karen Ýr - systir Sissa - afmæli. Óskum við þeim öllum innilega til hamingju.
 
Heimilislaus
Erum orðin heimilislaus. Það reyndar tók okkur allt föstudagskvöldið og allan laugardaginn (frá 9 - 22:30) að klára að flytja allt dótið okkar út úr Bakkaselinu. Og með pússl-lagni Sissa tókst okkur að setja alla búslóðina okkar inn í geymsluna á nýja staðnum. Þeir Hörður, Trausti og Gulli voru svo vænir að hjálpa okkur, með stærstu hlutina og helling af kössum, á föstudagskvöldinu.
Súlí vinkona, Hörður og Trausti voru svo væn að hýsa okkur í óákveðinn tíma. Fengum að gista hjá þeim á laugardagskvöldið og sl nótt. Og einnig eru þau búin að segja okkur að við megum vera eins lengi og við viljum. Ætli það sé ekki bara konfektið okkar sem þau sækjast í .... hí hí.
Við Súlí tókum okkur svo til og bökuðum helling í gær. Við bökuðum Jógúrtbrauð, Beikonbollur (gerbollur), og heilhveitihorn. Elduðum svo þennan æðislega kvöldverð..... hakkréttur í ofni að hætti Gullu og Súlíar.
föstudagur, janúar 09, 2004
 
Tuskulegur morgun
Og það í tvennum skilningi. Ég var frekar tuskuleg í morgun. Fékk svona heiftarlega í magann í morgun, að ég gerði klósettið að mínum besta vini :o( Og ekki skánaði það þegar ég fékk hausverk í ofanálagt. Fór því ekki í vinnuna. Eftir að ég náði að taka verkjatöflu (án þess að hún færi beint í gegn) fór ég nú aðeins að hressast. Og þá var ekki annað að gera en að taka sér tusku í hönd. Er því búin að vera að reyna að vera dugleg..... ekki seinna vænna þar sem við þurfum að fara héðan út í kvöld...síðasta lagi í fyrramálið.
Fáum meira að segja geymsluna, á nýja staðnum, seinni partinn í dag. Svo ef að við fáum einhverja hjálp ætlum við að reyna að flytja eins mikið og við getum þangað. Í það minnsta flytjum við frystikistuna, ísskápinn og þvottavélina.
Sissi ætlar að athuga með pláss á gistiheimili, fyrir okkur, í dag. Við erum nefnilega ekki ennþá búin að ákveða hvar við verðum. Freyja systir getur hýst okkur eitthvað. Súlí vinkona er búin að bjóða okkur að gista og svo er Einar, sem á verkstæðið sem Sissi er á á kvöldin, einnig búinn að bjóða okkur að vera. En auðvitað er alltaf óþægilegt að vera inná öðrum. Né gaman fyrir fólk að vera með fólk í gistingu í stofunni.... alltaf smá óþægilegt.
miðvikudagur, janúar 07, 2004
 
Síðustu nuddin
Í dag og kvöld er ég að nudda síðustu nuddin fyrir flutninga. Er að nudda til kl 21 í kvöld en eftir það get ég víst ekki nuddað fyrr en ég verð búin að koma mér upp nuddaðstöðu í nýju í búðinni. Á morgun þarf ég nefnilega að pakka niður nudddótinu. Og á föstudaginn/kvöldið þarf allt að vera orðið klárt til afhendingar. Íbúðin verður svo afhent nýjum eigendum í hádeginu á laugardag.
Kannski að ég hafi þá tíma til að koma sjálfri mér í nudd. Það væri nú ekki svo vitlaust. Skammarlegt hvað ég fer sjaldan í nudd. Tími ekki að eyða tíma í sjálfa mig.... því tíminn er jú peningar, sérstaklega þegar ég get verið að nudd á meðan.
Það versta er kannski að við erum ekki ennþá búin að koma því á hreint hvar við verðum, í þessu millibilsástandi. En það hlýtur nú að reddast. Höfum ekkert of miklar áhyggjur af því. Nú ef ekki annað, hlýtur að vera hægt að finna pláss, fyrir okkur, hjá hinum rónunum á Hlemmi....hehe.
þriðjudagur, janúar 06, 2004
 
Þrettándinn


Í dag er þrettándi dagur jóla. Sem þýðir..... síðasti jóladagur.... JÓLIN ERU BÚIN. Og mjög gott veður fyrir þrettándabrennur. Ekki það að jólin voru búin hjá mér 2. janúar. Ég nefnilega skreytti ekkert þessi jólin (vegna flutninganna) og því er ekkert búið að vera neitt svakalega jólalegt hjá mér. Og eiginlega bara allt í drasli, þar sem við erum að pakka öllu niður. En ég bæti mér það bara upp næstu jól. Þá verður sko skreytt..... þá get ég meira að segja farið að kaupa varanlegt jólaskraut. Því líkur eru á að við verðum í þeirri íbúð í þónokkur ár. OKKAR EIGIN ÍBÚÐ :o) :o) :o)
mánudagur, janúar 05, 2004
 
Flutningar
Þá er síðasta vikan okkar í þessu heimilisfangi runnin upp. Erum búin að vera alla helgina að pakka og pakka niður. Og reyna að stafla öllu dótinu inni í f.v. nuddherberginu. Við erum meira að segja búin að pakka niður leirtauinu og matvælunum (nema því sem er í ísskápnum) svo að það fer ekki mikið fyrir eldamennsku, hér á þessu heimili, þessa dagana.
Er reyndar að nudda fram á miðvikudag. En þá er eiginlega orðinn síðasti séns að klára að pakka og þrífa það sem á að þrífa (aðallega þurrka af og þrífa glugga). Því svo þurfum við að yfirgefa svæðið á föstudagskvöldið (síðasta lagi fyrir hádegi á laugardag). Það á reyndar að rífa niður og breyta, þegar nýja fólkið kemur, svo að ég þarf ekki mikið að vera að þrífa (ekkert smá heppin ég).
Það er orðið rosalega tómlegt hérna. Engar myndir lengur á veggjunum. Sófasettið meira að segja farið. Sjónvarpið er ekki einu sinni lengur inni í stofu. Það er að sjálfsögðu ekki mikill tími heldur til að horfa á sjónvarp svo það passar ágætlega að hafa það hjá rúminu. Eini tíminn er nefnilega þegar maður er að skríða í bólið. Þá er ágætt að kíkja smá á sjónvarpið svona meðan maður er að undirbúa sig fyrir svefninn.



Horfði auðvitað á Idol samt á föstudaginn. Hefði eiginlega viljað sjá Önnu Katrínu fara, en Tinna stóð sig nú ekkert vel heldur. Skil ekki hvað dómararnir þurfa alltaf að vera að bögga Jón. Það mætti halda að hann hefði gert þeim eitthvað. Þó að hann hafi ekki alltaf sungið perfect. Ég get ekki betur munað en að Anna Katrín sé næstum því alltaf með í hálsinum eða með kvef..... er það ekki frekar undarlegt (svona í hverri viku).... nú og ef hún er alltaf með í hálsinum, er þá nokkuð hentugt fyrir hana að vera poppstjarna???? Nei, bara svona smá vangaveltur. Ja mér fannst allavega Jón standa sig með prýði núna og ekki var Kalli síðri. Svo að mínir menn eru alveg að standa sig þessa dagana :o) og eiga atkvæðin mín fyllilega skilið.
laugardagur, janúar 03, 2004
 
Brúðkaup Bryndísar Evu og Árna


Í dag kl 16 ætla þau Bryndís Eva og Árni Baldvin, að ganga í það heilaga. Og mér er meira að segja boðið. Veislan er svo kl 18. Megi þau eiga bjarta og gæfuríka framtíð. Velkomin í hóp okkar giftu, krúttin mín. Og innilega til hamingju með daginn :o)
föstudagur, janúar 02, 2004
 
Bætt bloggsíða
Var að bæta svona "comment"a dæmi inn á síðuna hjá mér..... endilega allir kommentera :o)
 
Mánuður án Lúllu kisu
Það var undarlegt að vakna í morgun og engin kisa að þvælast fyrir fótunum á mér. Kisa gerir það nefnilega alltaf þegar ég fer á fætur og alveg þangað til ég er búin að gefa henni að borða. Við ákváðum hins vegar að geyma kisu í sveitinni þar til við værum flutt. Við verðum nefnilega húsnæðislaus í 3 vikur og þá er frekar óhentugt að vera með kisu.
Kisa fór í sveitina, með okkur, á aðfangadag og er búin að vera þar síðan (þó að við séum búin að vera á flakkinu sjálf). En þær systurnar (Lúlla kisa og Snotra kisa) eru nú ekki orðnar neinar perlu-vinkonur ennþá. Kisa í sveitinni tók samt betur á móti Lúllu kisu en einum kisanum frá næsta bæ.... hann fékk sko að finna fyrir því. Það hefur auðvitað verið urrað smá, en það er nú samt aðallega Lúlla sem er eitthvað að láta í sér heyra. Þetta er nú heldur ekki í fyrsta skipti sem Lúlla kemur í sveitina. Hún er auðvitað fædd þar og svo var hún nú tíður gestur fyrstu árin. Núna síðari árin hefur hún hins vegar farið að verða leiðinlegri í bílnum og því bara tekin með í lengstu ferðunum (þ.e. þegar við erum viku eða lengur).
Í þetta skiptið fór Sissi og fékk róandi töflu, fyrir kisu, hjá dýralækninum. Og var kisa því mjjjjööööög róleg alla leiðina. Hún var fyrst að lifna við aftur þegar við vorum alveg að verða komin til Akureyrar (enda tæpa 5 tíma á leiðinni). Svo gistum við á Akureyri. Það tók okkur svo smá tíma að fá hana góða á leiðinni austur í Bárðardal, þar sem engin róandi tafla var gefin áður en farið var í þá ferð.
fimmtudagur, janúar 01, 2004
 
Gleðilegt nýtt ár!!!!!


2004 .... komið nýtt ár. Og jólafríið búið. Vorum að koma í menninguna aftur. Búin að fá okkur að borða og búin að tína farangurinn inn úr bílnum.
Jólafríið er búið að vera mjög fínt. Fórum norður á Þorláksmessu í brjáluðu veðri og vorum 5 1/2 klst á leiðinni til Akureyrar. Fórum svo í sveitina á aðfangadag, þar sem við fengum rosa góðan mat og áttum góða kvöldstund. Á Jóladagskvöld var svo matur hjá tengdó á Akureyri. Annan í jólum var árlegt jólaboð (mömmu-fjölskylda) í Lyngholti. Þar var í boði fullt af smákökum, tertur og heitir réttir..... allt of mikið að éta.
Litla ferðafélagið (við Sissi) var svo eins og jójó.... Akureyri - Bárðardalur - Akureyri - Bárðardalur, eins og venjulega. Gamlárskvöldi eyddum við svo á Akureyri hjá tengdó....sprengdum áramótin, eins og okkur væri borgað fyrir það, í brjáluðu veðri. Fórum seint að sofa og seint á fætur, á nýju ári. Lögðum af stað til Reykjavíkur rétt fyrir fjögur og vorum tæpa fimm tíma á leiðinni, í fljúgandi hálku og hvassviðri.
Og á morgun verður bara farið í vinnuna eins og fyrir jólafrí og haldið áfram, þar sem frá var horfið, að pakka niður og undirbúa flutning.

Við tókum alveg helling af myndum, en þar sem myndaalbúmið mitt er orðið fullt (og ég ekki búin að ná mér í nýtt) fáið þið bara smá sýnishorn, svona til að byrja með :o)

Powered by Blogger