sunnudagur, febrúar 29, 2004
Lítill svefn
Það varð frekar lítið um svefn í nótt.... það litla sem við sváfum, sváfum við í morgun. Vorum nefnilega að mála ganginn, stofuna, borðstofuna og eldhúsið. Allt er þetta með sama lit.... þetta er svona opið svæði sem rennur allt saman. Ég sem sagt skreið á gólfinu meðfram öllum veggjum og málaði gólflistana og svona meðfram því sem þurfti að mála meðfram. Og Sissi byrjaði á því að fylla í göt.... bletta hurðir.... fylla betur í götin... pússa spatlið.... og mála veggina. Þetta átti bara að vera einfalt og þægilegt. Ein umferð átti að nægja, því við höldum sama lit. En málningin er eitthvað furðuleg svo að við neyðumst til að mála aðra umferð. Þarf samt ekki að mála meðfram aftur. Svo þegar ég var búin að mála meðfram fór ég í það að skafa upp úr gólfinu, gamlar málningarslettur eftir fyrri íbúa...... og var nóg af slettunum (ég er komin með blöðrur og/eða sár á hvern einasta putta.... frekar óhentugt fyrir nuddara).
Við vorum að byrja milli kl. 9 og 10 í gærkvöldi og hættum um kl. 5 í morgun. Samt á ennþá eftir að fara seinni málningar-umferðina. Ég reikna með að það verið gert í kvöld..... þegar Sissi er búinn að gera við bílinn, sem hann var búinn að lofa að gera við í dag.
Í gær var mánuður (4 vikur) frá því að við fengum íbúðina afhenta. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Og ekki er ennþá búið að halda innflutningspartýið. En það fer nú að líða að því. Íbúðin er að verða komin í það horf að hægt verði að bjóða til slíks fagnaðar. Þegar stofan verður orðin svona nokkurnveginn eins og við viljum að hún verði...... þá minnkar líka draslið sem enn bíður í aukaherberginu.... þá mun ég bjóða fólki í teiti :o)
laugardagur, febrúar 28, 2004
Vikan búin
Tíminn líður svo hratt eitthvað hjá mér þessa dagana. Er búin að vera að nudda á fullu og er fullbókuð til 8. mars. Var meira að segja að nudda núna áðan, þó að ég nuddi aldrei á laugardögum. Svo var ég líka að fá fyrsta skrautskriftarverkefnið mitt eftir flutningana. Er að fara að skrifa utan á matreiðslubók fyrir manninn sem ég leigði hjá í Bakkaselinu. Ég hef skrifað mjög mikið fyrir hann.... hélt kannski að það myndi hætta núna þar sem ég er ekki í kjallaranum hjá honum lengur. En hann bara hringdi í mig og kom áðan með bókina. Hann semsagt hefur verið að binda inn bækur í frístundum sínum.
Það var bjórkvöld í vinnunni í gærkvöldi..... ég fór ekki .... ákvað að vera skynsöm og vera heima þar sem ég er enn ekki orðin nógu góða af þessari hálsbólgu og kvefi sem mér tókst að ná mér í. Vildi því bara vera heima í rólegheitunum og eiga kannski smá séns á að vera orðin góð í næstu viku.
miðvikudagur, febrúar 25, 2004
Bolludagur, Sprengidagur og Öskudagur
Þessir dagar eru búnir að vera eitthvað hálfdaprir. Við hjónakornin erum búin að vera hálfslöpp eitthvað... með hálsbólgu og kvef. Bollur Bolludagsins voru keyptar að kvöldi bolludags og ekki snædd nema ein af þeim. Keyptum bara svona 6 í pakka með engu í. Keyptum svo jurtarjóma til að setja inní. Sissi eldaði saltkjöt og baunir á sprengidaginn og voru Hjalti Steinn og Freyja með okkur í mat. Steini, bróðir Sissa, kíkti líka á okkur en vildi ekki borða.
Mikið er ég fegin að ég er ekki lengur að vinna í verslun. Þessi dagur .... Öskudagur... á að vera skemmtilegur en þegar maður heyrir ekkert nema margar misheppnaðar útgáfur af Gamla-Nóa þá hættir hann að vera skemmtilegur. Og ég er sko búin að taka út minn skerf að þeim látum. Sat því bara við símann í dag og varð ekki vör við neina "syngjandi" krakkaorma. Og svo þegar ég var búin að vinna, var að sjálfsögðu allt um garð gengið og bara nokkrir grímuklæddir krakkar enn á röltinu hér og þar.
Þegar ég var ung..hehe.. þá vorum við með öskupoka (sem við saumuðum sjálf og settum ösku í) og vorum að hengja aftan í mann og annan. Og svo var grímuball kvöldið eftir. Og ekkert svona nammigræðgiskjaftæði. En nú er öldin önnur ... eins og ritað stendur...hehehe... Jæja nú er ég að verða heldur háfleyg og ætti því að fara að róa mig niður.
mánudagur, febrúar 23, 2004
Konudagurinn
Helgin er búin að vera ágæt. Föstudagskvöldinu eyddum við Súlí í að horfa á eina stelpumynd meðan Sissi var að byrja að undirbúa fjarstýrðabílinn sinn fyrir keppnina, sem var í dag (konudaginn). Fór ég meira að segja snemma að sofa og þar af leiðandi var ég komin á fætur um kl 9 á laugardagsmorgun. Skellti mér í smá búðarráp með Berglindi en keypti mér ekki neitt.... henni gekk samt aðeins betur. Laugardagskvöldið fór svo í heljarinnar afmælispartý þeirra Sigrúnar og Harðar. Þau eiga bæði 25 ára afmæli um þessar mundir og ákváðu að slá saman í eitt MAGNAÐ partý.
Sissi þurfti svo að mæta á keppnina í morgun kl 9... varð reyndar örlítið á eftir áætlun. Og í hádeginu skellti ég mér að horfa á hann keppa. Batterýin voru eitthvað að stríða Sissa og náðu af einhverri ástæðu ekki að duga út hítin. Og lenti hann því í 4. sæti í SuperTouringA..... sem er samt alveg ágætt. Eldaði ég svo þennan heljarinnar kvöldmat.... Læri með öllu tilheyrandi og skellti svo ís í eftirrétt. Bauð meira að segja Súlí vinkonu að borða með okkur.... strákarnir hennar, þeir Trausti og Hörður, lögðu ekki í svona vænan kvöldverð.... eitthvað slappir ennþá eftir stuð næturinnar.
Konudagurinn minn fór því í það að gera allt fyrir mig sjálf þar sem Sissi hafði öðrum hnöppum að hneppa.... en hann fær sko að bæta mér það upp síðar ;o) Enduðum kvöldið á því að horfa á 2Fast 2Furious (hvernig sem það er nú skrifað)... alveg mögnuð mynd sem við eigum örugglega eftir að horfa á nokkrum sinnum í viðbót. En nú er víst konudagurinn búinn... komin ný dagsetning allavega... og best að fara að skella sér í bælið.
laugardagur, febrúar 21, 2004
Sigrún Vésteins á afmæli!!!
Sigrún á afmæli í dag. Stúlkan er 25 ára og ætlar að halda upp á það, við annan mann, í kvöld með miklum látum. Vonum við að daman eigi góðan dag og ætlum við að samgleðjast henni í kvöld. Til hamingju :o)
föstudagur, febrúar 20, 2004
Vikan að verða búin
Tíminn líður ekkert smá hratt núna. Er búin að vera á fullu alla vikun að nudda og nudda. Seint á kvöldin, þegar ég er búin að nudda, erum við svo að reyna að halda áfram að koma okkur fyrir. Hengdum upp myndir inni í nuddherbergi í gær. Reyndum það fyrst á miðvikudaginn en bara til að komast að því að það er alveg vonlaust að negla nagla í veggina hérna. Það fóru held ég 10 stálnaglar í ruslið fyrir 2 sem komust í vegginn. Og þá gáfumst við upp. Þannig að það þarf að bora fyrir öllu sem fer á veggina. En við erum alltaf svo seint að gera allt og þá kannski kann maður ekki alveg við að vera mikið að bora. En þetta er allt að koma. Sissi setti líka upp hnífaseglana inni í eldhúsi.... nú loksins get ég farið að umgangast beittu hnífana án þess að eiga það stöðugt á hættu að skera mig (ég er nefnilega algjör snillingur í því).
Í dag fórum við svo í Sorpu með 3 svarta ruslapoka fulla af rusli og einn pappakassa fullan af öðrum pappakössum.
fimmtudagur, febrúar 19, 2004
Og svo verð ég að hætta þessu testa-bulli!
Dark magician. You love the dark because of it's
beauty and just the life that no-one else sees.
Mysterious, calm, quiet... But that doesn't
mean you're not friendly!
Please rate ^^
What kind of dark person are you?
brought to you by Quizilla
miðvikudagur, febrúar 18, 2004
Fleiri og fleiri test ;o)

You are a goddess!
Which Ultimate Beautiful Woman are You?
brought to you by Quizilla

You have an entrancing kiss~ the kind that leaves
your partner bedazzled and maybe even feeling
he/she is dreaming. Quite effective; the kiss
that never lessens and always blows your
partner away like the first time.
What kind of kiss are you?
brought to you by Quizilla
mánudagur, febrúar 16, 2004
Himnesk???
You came from heaven. Beauty and kindness are two
of your strong points. You always think of
other's before yourself. Your radient
personality effects others around you. People
want to be you, but you seem to be to modest
and shy to realize the truth. You try not to
sin, but people force you to. Think twice about
the people you hang out with and take the right
path in life. A poem that best describes you is
"Path less traveled by" be Robert
Frost. Keep up your shining personality and the
love of heaven shall return.
Where did you come from when you were born?
brought to you by Quizilla
Hvernig vampíra er ég????
Well well well, the old fashioned 17th century
vampire, one of my faves. You look for the good
things in life, you posses a lot of classical
class, and follow that of the original
vampires, you have no shame in what you are,
infact you embrace it, you love it and wouldn't
have it any other way. Your wealth is
unspeakable and your way of luring people with
your mystical ways and looks is amazing, and
most people would often call you The
Seductress. Please rate this quiz!
What Kind Of Vampire Would You Be? (Cool answers)!
brought to you by Quizilla
Helgin
Fórum norður á föstudaginn. Vorum að ná í Lúllu kisu, sem er búin að vera í pössun í sveitinni síðan um jól. Brunuðum beint heim í sveit á föstudagskvöldinu. Kisa þóttist vera eitthvað fúl við okkur. En um leið og við byrjuðum að klappa henni fyrirgaf hún okkur alveg..hehe. Ég fór bara snemma á fætur á laugardaginn, með kisu, gaf henni að borða og klappaði henni smá. Pabbi og mamma fóru svo í leikhús kl 16 og ég greiddi Þuru systir fyrir þorrablótið sem hún (og pabbi og mamma) voru að fara á um kvöldið. Þegar ég var búin að greiða Þuru skutluðum við henni til vinkonu hennar, sem bauð henni á þorrablótið, og brunuðum sjálf til Akureyrar.
Hjá tengdamömmu fengum við gæs í kvöldmatinn...... rosa gott (hef ekki fengið gæs svo lengi). Fórum í heimsókn til Edda, bróður hennar tengdamömmu, hann var að flytja í nýja íbúð. Hann var svaka montinn með nýju íbúðina og lítur hún mjög vel út hjá honum.
Kvöldið var svo mjög rólegt og þægilegt.... reyndar ekkert farið neitt mjög snemma að sofa en ekkert svo voðalega seint heldur.
Fór á fætur rétt fyrir hádegi á sunnudaginn. Við Sissi fórum svo og versluðum afmælisgjafir handa Karen (litla systir Sissa) og Jóni Inga (fósturpabbi Sissa), en þau áttu afmæli í janúar. Og auðvitað eyddum við aðeins meira.... í okkur sjálf...hehehe. Að sjálfsögðu fórum við líka í Brynju og keyptum okkur Brynju-ís...namm namm.
Vorum svo komin rétt um kl 21 í gærkvöldi aftur í bæinn.... kisa alveg hissa á því hvert við fórum.... fannst við eitthvað hálf rugluð að fara ekki á gamla staðinn. En hún hlýtur nú að venjast því að búa þarna.... verst að hún þarf að gerast inniköttur, en það venst örugglega eftir smá tíma.
miðvikudagur, febrúar 11, 2004
Sissi sjónvarpsstjarna
Sissi kom í sjónvarpsþættinum at , á rúv, núna í kvöld. Ég var bara að standa upp úr sófanum frá því að horfa á hann. Stóð sig bara með prýði. Ég þarf því ekkert að skammast mín mikið fyrir hann.....hehe... bjóst nú reyndar ekkert við því. Hann fékk meira að segja að leika sér í sjónvarpinu. Og svo sagði hann mér að Sigrúnu, þáttarstýrunni, hefði þótt bíllinn hans lang flottastu. En hvað veit ég... ekki fékk ég að vera viðstödd... hehe.
Fyrir þá sem misstu af þættinum get ég bent á að þátturinn er endursýndur á föstudaginn kl 16:35 og laugardaginn kl 11:25.
Það er að vísu ekki eins og að þetta sé í fyrsta skipti sem Sissi kemur í sjónvarpinu. Hann kom nefnilega í þættinum Mótor á Skjá 1 sl. vetur. Þá að tala um húsbílinn sem hann var(er ekki alveg búinn að klára)að smíða.
En nú get ég allavega sagt að ég sé gift sjónvarps"stjörnu" hehehe.... ekki amalegt það.
þriðjudagur, febrúar 10, 2004
Testin góðu

You are going to Marry Josh Hartnett. He is really
shy, but don't let that fool you. He is really
outgoing and sweet with those he loves and will
be loyal to them for the rest of his life.
Congrats!!
Which male celebrity are you going to marry? (now 12 (i just added more, and still more to come!)results that have pics!)
brought to you by Quizilla
Mamma á afmæli
Hún mamma mín á afmæli í dag. Þessi merka kona, sem tókst svona líka vel að ala af sér þessi fullkomnu börn (sem eru við systurnar 3), er nú orðin 45 ára. Og ætlar hún að vera með saumaklúbb í kvöld. Óskum við henni innilega til hamingju með árin 45 og vonum að hún eigi góðan dag :o)
mánudagur, febrúar 09, 2004
Byrjað að nudda
Í dag var ég að nudda fyrsta nuddið mitt í nýju íbúðinni. Herbergið er ekki alveg fullklárað ennþá en samt alveg hægt að nudda. Það gekk bara vel.....nema að ég skar mig á brotnum kertastjaka í gærkvöldi og er með langan skurð á fingurgómi löngutangar hægri handar..(hehe flókið). Þar af leiðandi get ég ekki notað löngutöng hægri handar við að nudda... sem er frekar óhentugt. En þetta tókst alveg og nuddþeginn kvartaði ekkert þó að ég væri svoltið spasstísk við að nudda...hehe. Vona að ég hætti að finna svona mikið til í fingrinum þar sem ég er að nudda tvö nudd á morgun. Leiðinlegt að nudda eins og spassi í marga daga. Ekki víst að fólki finnist ég voða góður nuddari þegar ég nudda þannig. En ég segi fólki bara ástæðuna og þá hlýtur það að fyrirgefa mér .... eða allavega gefa mér annan séns ;o)
sunnudagur, febrúar 08, 2004
Listamaður
Sissi er búinn að komast að því að hann er listamaður, ja allavega í dag. Og ég var list(a)málari í gær....hehe. Sissi er semsagt búinn að vera að bauka við það í allan dag að koma listum á veggi og loft í nuddherberginu. Ég er aðeins búin að vera að hjálpa við það en voða lítið samt. Ég hef aðallega verið í því að taka upp úr kössum. Búin að ganga frá öllum vídeospólunum og dvd-myndunum. Það er reyndar samt ekki varanlegur staður því að við þurfum eiginlega að kaupa einhverja góða hirslu undir þetta. Erum búin að sprengja skápinn utan af dvd-myndunum. Fórum í Ikea og fundum ljós fyrir nuddherbergið og það er komið upp og rósettan líka.
Jæja best að hætta þessu hangsi og fara að strauja gluggatjöldin sem eiga að fara fyrir gluggann í nuddherberginu. Svo förum við að henda nudddótinu þangað inn og þá get ég nuddað á morgun. :o)
Máli, máli
Vorum rétt að klára að mála nýja nuddherbergið mitt. Sissi er að saga til lista sem eiga að fara á vegginn (ég málaði þá fyrr í kvöld.... hmmm það var víst í gærkvöldi miðað við þessa dagsetningu).
Fór með Súlí vinkonu á hestamót á svelli. Það var nú frekar svalt úti en við, ungu sveitastúlkurnar, kunnum að klæða okkur eftir veðri og leið okkur því þokkalega. Vinkona Súlíar (stelpa sem er með henni í háskólanum) var að keppa og hreppti hún annað sætið í sínum flokki (systir hennar var í því fyrsta).
Einar og Ása buðu okkur í mat. Þetta var jólamaturinn...... síðbúinn. Maturinn var góður og rann ljúflega niður. Og þökkum við kærlega fyrir okkur :o)
föstudagur, febrúar 06, 2004
Að koma sér fyrir
Ótrúlegt hvað maður á mikið drasl. Við erum búin að vera alla vikuna að tína upp úr kössum og reyna að koma okkur fyrir. Sissi er bara búinn að vera svo lítið heima að þetta hefur gengið frekar hægt. Ég er búin að vera að þvo upp. Pakkaði nefnilega öllu leirtauinu okkar inn í dagblöð og þarf því að þvo það allt upp jafnóðum og ég geng frá því í skápa. Þetta gerir það auðvitað að verkum að ferlið tekur frekar langan tíma.
Stefnum á að mála nuddherbergið í kvöld. Sissi ætlar að kaupa í dag það sem uppá vantar til að hægt verði að gera það klárt. Ég fer svo að nudda á fullu í næstu viku og þá þarf nuddherbergið að vera tilbúið.
Hættum við að fara norður um þessa helgi. Bæði af því að það er svo mikill snjór allsstaðar og við viljum ekki vera að leggja út í einhverja veður og færðaróvissu. Og svo líka af því að það er svo mikið sem að við þurfum að vera búin að gera hérna í íbúðinni fyrir næstu viku. Kisa greyið þarf því að vera án okkar og við án hennar eina viku í viðbót.
Ætlum að reyna að nýta helgina sem best. Förum sennilega í heimsókn til Einars og Ásu (sem eiga verkstæðið sem Sissi vinnur á) og náum í gluggatjöldin sem þau ætla að lána okkur og kíkjum á hillusamstæðu sem þau eru að reyna að losna við (það er samt ekkert voðalega mikið pláss eftir hjá okkur svo að það er ekki víst að við getum tekið hana).
fimmtudagur, febrúar 05, 2004
Afmæli, afmæli
Sigurlína og Bryndís Eva vinkonur mína eiga báðar afmæli í dag. Og báðar eru þær 27 ára. Megið þið eiga góðan dag. Innilega til hamingju báðar tvær.
þriðjudagur, febrúar 03, 2004
Heimilistölvan komin í gang
Eitt það nauðsynlegasta.... tölvan og netið.... komið í gang þó að allt annað sé í rúst. Ætlaði samt að fara að laga tenglasíðuna mína. Ekkert vit í að hafa allar Síma-síðurnar ennþá inni þegar búið er að sameina þær allar í eina síður. En nei!!!! þá er LeapFTP forritið mitt orðið útrunnið..... þetta gengur ekki. Loksins þegar ég er komin í mína tölvu og ætti að geta lagað þetta kemur svona uppá. Verð að fá einhvern til að kippa þessu í liðinn fyrir mig við tækifæri.
Týndir hlutir fundnir
Sá hlutur, sem við söknuðum sem mest og vorum farin að hafa áhyggjur af að væri horfinn, kom loksins í leitirnar í gærkvöldi. Mikill léttir...... og þá á ég við MIIIIKIIIILLLLLL!!!!!
Það er loksins að fara að koma einhver smá mynd á íbúðina okkar. Sófinn kominn á sinn stað..... sjónvarpið (að vísu ótengt ennþá) og eldhúsáhöldin að tínast á sinn stað.
Ætlaði reyndar að fá mér samloku með skinku og osti í morgunmat í gærmorgun en endaði með samloku bara með skinku þar sem ég fann ekki ostaskerann ;o) , hann er nú samt kominn fram núna..hehe.
Sissi er að fara í sjónvarpsviðtal í dag (sennilega byrjað). Hann er að fara að tala um fjarstýrða bíla við Villa naglbít og á þetta að koma fram í þættinum @ á ruv.
Sissi minn bara orðinn algjör sjónvarpsstjarna.... hefur áður komið fram í þættinum mótor, á Skjá 1, þar sem hann talaði um húsbílinn sem hann var að smíða (er í smá biðstöðu en ekki alveg fullkláraðar innréttingarnar).
Það er nú ekki amalegt að eiga svona frægan kall...hehe.
mánudagur, febrúar 02, 2004
Skipulagning
Gistum fyrstu nóttina okkar, í nýju íbúðinni, aðfaranótt sunnudags. Rosa spenningur. Freyja, Snorri, Jói og Árni hjálpuðu, okkur á laugardagskvöldið, við að bera helling að kössum og hlutum upp. Svo komu Simbi og Hjalti í gær og hjálpuðu einnig. Núna er svona mesta draslið komið upp. Verst er að við finnum ekki allt....vonandi finnst það samt fljótlega (við verðum alveg brjáluð ef því hefur verið stolið). Fórum svo í Byko og Ikea í gær og keyptum ýmislegt sem vantaði. Nýja skrá í útidyrnar og nýjan hengilás á geymsludyrnar og svona. Reyndar borgaði Einar, sem á verkstæðið, allt sem við vorum búin að tína okkur í körfu í Byko. Sagði að þetta væri innflutningsgjöfin frá þeim hjónum. Okkur fannst þetta eiginlega of mikið en hann hlustaði ekki á okkur. Sagði bara að nú þyrfti hann ekki að fara að leita að einhverju handa okkur. Þökkum við því kærlega fyrir þessa rausnalegu gjöf. Erum svo núna að skipuleggja inn í íbúðina... hvað á að vera hvar... og taka upp úr kössum. Og auðvitað finnur maður ekki það sem maður leitar að... allavega ekki alveg strax. En þetta kemur allt.
