miðvikudagur, mars 31, 2004
 
Afmælisbarn dagsins


Hann Ketill, bekkjarbróðir minn frá því í grunnskóla, á afmæli í dag. Hann er 27 ára á þessum snjóbjarta degi.
Mér varð eitthvað svo mikið hugsað til hans í morgun og áttaði mig þá á því að þetta er afmælisdagurinn hans. Hef ekki hitt hann í nokkur ár. Það væri nú samt gaman að hitta hann við tækifæri. Vona að hann eigi góðan afmælisdag, pilturinn. Til hamingju Ketill minn.
þriðjudagur, mars 30, 2004
 
Herbalife kynning
Var að koma heim afherbalife kynningu.... ekki það að ég er á móti herbalife. Fór bara til að vera með, sýna mig og sjá aðra. Og þetta var nú bara ágætir kynning. Ég var að þamba herbalife-te, svona vatnslosandi, í allt kvöld... svo að það er spurning hvort að það verði ekki 10 klósettferðir í nótt. Ekki það að ég er nú svosem vön að drekka mikið.... samt bara vatn... og næ þó að sleppa nætur-pissu-ferðum.
En allavega þá ætla ég ekki að fara að háma í mig herbalife. Ekki það að þeir sem eru ánægðir mega alveg eiga sitt herbalife fyrir mér og bara gott hjá þeim. Ég get alveg fengið mér vítamín, minnkað matarskammtana og hreyft mig meira og sennilega drukkið ennþá meira vatn....og léttst af því..... án þess að vera að þamba duft og gleypa grænar töflur allan daginn. Segi bara svona.
Ég viðurkenni alveg að ég hefði alveg gott af því að léttast um þónokkur kíló... en það verður notuð einhver önnur aðferð en herbalife til þess. Ég skal samt alveg koma á fleiri kynningar og vera memm. Og ég er alveg góð.... er ekkert með neitt skítkast eða neitt svoleiðis. Sit bara róleg (já.... ég get líka verið róleg) og hlusta.


En að öðru máli..... ég held að ég hafi eitthvað misskilið það sem ég heyrði í útvarpinu í dag. Það var þetta með að vorið væri komið og það ætti að fara allur snjórinn. Eða þá að þetta hvíta sem ég sé detta ofan úr himninum séu ofsjónir hjá mér. Ég hafði ekki einu sinni undan við að skafa af bílnum, eftir kynninguna. Það var bara kominn jafnmikill snjór aftur þegar ég var komin hringinn. Ég nefnilega er alltaf svo dugleg þegar ég er að skafa af bílnum. Ég t.d. núna áðan, sópaði öllum snjónum líka af þakinu á bílnum og svona. Tek vel af öllum rúðum. Mér nefnilega finnst skemmtilegra að sjá út um rúðurnar á bílnum þegar ég er að keyra. Og þá á ég líka við hliðarrúðurnar....því stundum þarf maður að skipta um akrein... og þá vil ég geta séð hvort að það er einhver bíll þar eður ei. Og gott er nú líka að sjá út um afturrúðuna.....ég vil vita hvert ég bakka og sjá hvort að það er pláss fyrir mig að bakka. Mér þætti allavega leiðinlegt að komast að því að það væri ekki nógu mikið pláss..... svona bara með því að finna það.
Ég er samt ekki að segja að mér finnist snjórinn leiðinlegur....... þvert á móti mér finnst snjórinn ágætur..... það er þetta blessaða slabb sem ég er á móti..... og af einhverjum ástæðum þá KEMUR ALLTAF SLABB hér í Reykjavík. Það er ekki svona eins og fyrir norðan, þar sem það er snjór..... og þá meina ég snjór, ekki slabb. Þar getur maður farið út án þess að verða blautur í tærnar þó að jörðin sé hvít..... sem er mjög gott (að verða EKKI blautur í tærnar) En þetta breytist víst ekkert þó að ég tuði um það.....Því hversu mikið sem ég trúi því, þá er ég ekki Guð..... hann nefnilega laug..heheheh... Guðlaug....thíhíhíhí. (I made a funny!!! hehehehe)
sunnudagur, mars 28, 2004
 
Stelpukvöld
Vorum með smá stelpukvöld..... ekki smástelpukvöld heldur smá stelpukvöld (bara svona svo að það sé á hreinu ;o) ). Þær komu hingað til mín Sigrún, Súlí og Sigrún. Elduðum við saman og vorum svo bara að kjafta og fíflast í allt kvöld... eða reyndar voru það Súlí og Sigrún Herm. sem sáu að mestu um eldamennskuna og við Sigrún Vé. sáum um að þvo upp á milli rétta og eftir. Þetta var hörku máltíð. Forréttur, aðalréttur og eftirréttur.... vorum svo saddar eftir allt þetta át að snakkið verður að bíða betri tíma..... það er semsagt ennþá ósnert upp á bekk. Vorum jafnvel að spá í að horfa á einhverja góða stelpumynd en letin tók völdin þegar að snæðingi var lokið og sátum við eins og klessur í sófanum og töluðum um allt milli himins og jarðar... og auðvitað voru gömlu góðu tímarnir stór hluti af þessum umræðuefnum okkar. "Ja, þegar við vorum nú ungar þá........" Alltaf skemmtilegar svona umræður....hehehehehe. Verðum bara að gera meira af þessu stúlkur mínar.
Sissi greyið fékk að dúsa á verkstæðinu og svo niðri í geymslu á meðan á herlegheitunum stóð (ekki misskilja þetta). Og svo var bara kallað í hann þegar stúlkurnar vantaði far heim... um að gera að nota sér svona góða þjónustu. Ekki það að ég er ekkert viss um að Sissa hefði þótt neitt gaman að vera með okkur. Hann var búinn að segja að hann gæti ekki gert neitt með mér í kvöld. Hann átti nefnilega svo mikið eftir að gera fyrir nýja fína bílinn (fjarstýrða) fyrir keppnina sem er á morgun. Svo að ég hafði ekkert samviskubit þegar ég sagði honum að það væri ekki gert ráð fyrir honum í kvöldmat og hann gæti nokkuð bara reddað sér sjálfur....hehehe. Ég var samt ekkert leiðinleg þegar ég sagði þetta..... og hann tók því bara vel. Bað reyndar um leyfi til að fá að hoppa í sturtu. Og ég svosem leyfði honum það.... sagði samt að hann yrði þá kannski að strippa smá fyrir okkur og tók hann ekkert illa í það. En það varð svo ekkert úr því..... hann hélt að hann yrði svo klunnalegur.... hann nefnilega á engar buxur sem að hann getur rifið svona af sér.
En þetta var nú alveg æðislegt kvöld. Byrjuðum um kl. 18:30 og stelpurnar eru nýfarnar heim. Þetta er að vísu engi frammistaða að vera búnar að gefast upp svona fljótlega upp úr miðnætti...hehe kl. 2. En við erum náttúrulega engin unglömb lengur og okkur er því fyrirgefið. Takk,enn og aftur, fyrir frábært kvöld stelpur mínar, þið eruð æðislegar.
 
Gestabókin
Já, það er þetta með gestabókina!!!! Það virðist eins og að fólk sé hrætt við að skrifa í hana. Ég veit allavega að það er ekki bara ég sem fer inn á þessa síður (það er svoltið sem kallast teljari sem gefur annað til kynna). En af einhverjum ástæðum eru það ekkert voðalega margir sem kvitta fyrir. En auðvitað eru það alltaf einhverjir inn á milli sem eru svo indælir..... vildi bara að það væru fleiri. Mér finnst nefnilega svo gaman þegar fólk skrifar í gestabókina. En ég ætlaði allavega að reyna að leiðrétta þann misskilning að hún bíti..... Gestabókin er alveg meinlaus..... hún ræðst ekki á einn eða neinn.
laugardagur, mars 27, 2004
 
Aðalfundur F.Í.N. - F.Í.H.N.


Fór í morgun á aðalfund F.Í.N. og upp úr hádegi var ég allt í einu á aðalfundi F.Í.H.N. Nafninu var sem sagt breytt á fundinum. Úr Félag íslenskra nuddara í Félag íslenskra heilsunuddara. Ég held að ég hafi verið ein eða önnur af 2 sem ekki voru sammála þessari nafnabreytingu. Það voru nú samt ekki 20 mættir á fundinn (fyrir utan stjórnina) svo að mér finnst að ekki megi breyta svona stóru atriði eins og nafni félagsins... en fundurinn er löglegur ef að 10 mæta svo ég get ekkert sagt.
Sagði mig úr ritnefndinni en var í staðin kosin til að vera ein af 4 sem fara á þing B.I.G. (Bandalag íslenskra græðara) núna 27. mai nk. En það verður vonandi bara gaman..... ég er nefnilega svo mikil fundamanneskja eða þannig (var alveg að grotna á fundinum í morgun). Ég ætlaði nú eiginlega ekki að nenna á fundinn í morgun. En þar sem ég er búin að kvarta svo mikið yfir því hvað nuddarar eru lélegir að mæta á aðalfundinn þá eiginlega varð ég að fara, til að vera ekki eins og allir hinir.
Fundurinn var bara drifinn áfram og við fengum ekkert að standa upp fyrr en eftir að fundi var slitið. Sátum sem sagt nonstop í 3,5 klst. Maraþonseta... rassinn var svoltið aumur og flestir voru farnir að samþykkja allt sem sagt var bara til að þetta gengi hraðar fyrir sig. Við þurftum nefnilega að hlusta á upplesningu allra greina, laga félagsins og samþykkja, hverja og eina fyrir sig, vegna nýja nafnsins á félaginu.
Það var sem betur fer ákveðið að halda gamla merki félagsins að öðru leiti en því að það þarf að troða einu Hi inn í það. Ágætis merki sem fólk er farið að kannast við. Það kom einnig fram að loksins er farið að grilla í það að nuddskólinn flytjist í Fjölbrautarskólann við Ármúla. Það er þegar byrjað að hanna viðbygginguna með tilliti til þess að þar fari fram nuddkennsla. Sagt er að viðbyggingin eigi að vera risin vorið 2005... ég á nú samt eftir að sjá það takast. En þetta verður að sjálfsögðu til þess að það verður mun ódýrara að læra nudd og því er ekki reiknað með mikilli ásókn um inngöngu í N.Í. næsta vetur. Ekki það að ég held að það sé bara allt í lagi að taka eitt ár í hlé frá því að útskrifa 20 nuddara. Það endar nú einhverntíman með því að nuddaramarkaðurinn mettist. Ekki það að það eru nú alltaf viss afföll af nuddnemunum. Ekki allir sem útskrifast sem nuddarar, þ.e. klára nematímana sína, þessa 968, sem taka þarf eftir að nuddskólinn er búinn. Ég held meira að segja að úr mínum hópi hafi ekki nema helmingurinn klárað sína tíma og útskrifast sem nuddarar.
föstudagur, mars 26, 2004
 
Afmæli gærdagsins
Ég er greinilega ekkert að standa mig í blogginu þessa dagana..... því að ég gleymdi að setja afmælisbörn gærdagsins inn hjá mér..... Ekkert illa meint en ég var bara að hugsa um annað í gærkvöldi. Var að nudda frameftir og svona.



En það var hún Linda mín Fr. (vinkona og samstarfskona með meiru) sem átti afmæli í gær..... varð 24 ára, stúlkukindin. Vonum við að hún hafi átt góðan dag. Til hamingju Linda mín.
þriðjudagur, mars 23, 2004
 
Kaupauki
Linda F. hringdi í mig í gærkvöldi (þegar ég var í sturtu en ég hringdi svo í hana aftur þegar ég var búin í sturtu) alveg að springa úr hamingju. Hún var nefnilega búin að frétta af því að Síminn ætlaði að vera góður við starfsfólkið sitt. Kaupauki, kaupauki, kaupauki. Og nú er gott að vera að vinna hjá Símanum. Ekki það að ég fæ nú reyndar ekki mikið. Þetta miðast við starfshlutfall á árinu 2003. Sem þýðir að ég sem byrjaði að vinna, hjá Símanum, um miðjan mars ætti að fá ca 95 þús. En þar sem ég er líka bara í 50% vinnu fæ ég að sjálfsögðu ekki nema 50% af þessum 95 þúsundum. Og svo á skatturinn að sjálfsögðu eftir að kroppa sitt af líka. Þannig að það eru líkur á því að ég fái rétt um 20 þús í hendurnar. En eins og alltaf þá eru 20 þús alltaf 20 þús og vel þegin þar að auki. Ég er því símanum mjög þakklát fyrir þennan kaupauka. Vonum bara að þetta sé bara fyrsta skiptið af mörgum sem að Síminn hugsar svona vel til starfsfólksins. Og að á næsta ári verð ég búin að vinna í heilt almanaksár og fái kaupauka í samræmi við það.

Ég áttaði mig loksins á því um daginn hvað skatturinn var í raun og veru. Þetta er bara dulunefni skrattans. Ég var sem sagt ekki að gera SKAtta skýrslu um helgina heldur SKRAtta skýrslu...hehehe.
Skil ekki af hverju fyrirtæki mega ekki gera vel við starfsfólk sitt án þess að skatturinn þurfi að hirða næstum því helminginn af því. Fyrirtæki mega ekki einu sinni skaffa vinnufatnað lengur án þess að starfsmaðurinn, sem fær fatnaðinn, þurfi að borga af því skatt. Ótrúlegt!!! En ég kannski er ekki nógu pólítísk til að skilja málið.
Maður er að reyna að koma undir sig fótunum og það er endalaust verið að plokka af manni allt sem hægt er (í alltof há laun þingmanna :os ) og það sem eftir stendur af laununum dugir varla fyrir reikningunum. Og þó er ég nú ekki með mikið af reikningum miðað við marga aðra. Jújú auðvitað þurfum við alveg að borga fyrir það að við vorum að kaupa okkur íbúð. Þar sem það eru nú ýmis gjöld sem koma inn með því og svona. En það er ekki eins og það hafi ekki verið kominn tími á það að við keyptum okkur íbúð. Búin að vera í leiguhúsnæðum í að verða 9 ár, saman. Og þar áður var ég náttúrulega búin að vera að leigja á veturna, frá því að ég byrjaði í VMA (haustið '93).
sunnudagur, mars 21, 2004
 
Skattaskýrsluskil
Þetta tókst hjá mér. Ég er búin að skila skattaskýrslunni. Vona bara að hún hafi verið rétt hjá mér. Náði loksins í pabba, sem að var sammála mér í því sem ég hélt en var ekki alveg viss á. Svo að þannig fór það inn.... vesen í kringum íbúðakaupin... fylla inn alveg fullt að reitum sem að ég hef aldrei þurft að fylla inní áður. Og reikna út vaxtagjöldin af lántökukostnaðinum... eitthvað svona vesen pesen. En allavega, þetta er allt komi inn og ég er búin að ýta á senda takkann. Og ég held, jafnvel, að ég sé ekki ennþá orðin gráhærð... en það var samt stutt í það. Ég tók mér gott hlé frá skattaskýrslunni um miðjan daginn í dag (sá um matinn og horfði smá á sjónvarpið). Er svo bara tiltölulega ný sest niður fyrir framan tölvuna. Ég fyllti skýrsluna nefnilega út á eyðublöðunum sem við fengum send og lét svo Sissa fara yfir það áður en að ég fyllti það inn á netið. Prentaði það svo út úr tölvunni og lét Sissa líka fara yfir það áður en ég skilaði framtalinu inn rafrænt ;o)
Ekki það að það er orðið svo lítið sem maður þarf að fylla inní. Þetta er að mestu fyrirfram innfyllt.... nema lánadæmið og fjárhagurinn um áramótin. Mesta púlið er því að reikna út vaxtagjöldin... og vita hvaða tölur maður á að fylla inní hvar í sambandi við íbúðalánin. Ég verð allavega reynslunni ríkari að ári. Og ef að allt verður samþykkt eins og ég fyllti inn núna.... þá bara lítur út fyrir að við fáum einhverjar nokkrar krónur endurgreiddar frá skattinum í ágúst. Þannig að nú er bara að krossa fingur og vona að svo fari sem horfir.
 
Sameignin
Var að þrífa sameignina. Ég er samt aðeins á mótþróaskeiðinu. Er búin að ákveða að skúra ekki niðri í kjallara fyrr en fólk hirðir draslið sitt sem liggur þar í hrúgum. Held að íbúarnir hérna í stigaganginum hafi ekki alveg fattað tilganginn með geymslunum. Þar á draslið að geymast.... ekki fyrir framan geymslurnar heldur inni í þeim!!!!!!! Ég ryksugaði samt allsstaðar annarsstaðar og gerði fínt. Og nú er bara að komast að því hvert við eigum að skila sameignarspjaldinu. Við erum búin að búa hér í tæplega 2 mánuði og það hefur enginn fundur verið haldinn í stigaganginum til að koma okkur inn í málin hér. Mér finnst að það eigi að vera skylda að halda fund í stigaganginum þegar nýjir einstaklingar flytja inn.

Skattaskýrslan er líka alveg að verða klár...... Er búin að eyða öllum morgninum í að finna út hvernig ég á að fylla íbúðarkaupin inn á skýrsluna. Ég og skattaskýrslur erum ekki vinir. Að einhverjum ástæðum endar það samt alltaf með því að ég geri skattaskýrsluna að mestu ein og á síðustu stundu. Hef nú samt yfirleitt hringt í pabba ef ég lendi í einhverjum vandræðum en hann svaraði ekki í morgun.... kannski vissi hann að ég var að gera skattaskýrsluna og nennti ekki að svara...hehehe nei nei sagði bara svona. Ég veit samt alveg að pabba finnst ekkert gaman heldur að gera skattaskýrslu.
fimmtudagur, mars 18, 2004
 
jahérna ;o)
Var að skoða heimasíðuna hjá Stórutjarnaskóla, kíki þangað reglulega. Til að athuga hvort að ég sjái einhverjar myndir af Þuru systir, núna fann ég eina. Ekki skil ég alveg að fólk sé að segja að við séum líkar.... kíkið hér. Hehehehe. Hún er nú samt svoltið sæt.... þó að hún sé kannski ekki alveg eins og venjulega.
 
Bögg bögg


Stundum get ég nú orðið svoltið pirruð.... ég veit að það trúir því enginn, en það er samt sannleikurinn. Ég t.d. verð alveg svakalega pirruð þegar bílastæðinu mínu er stolið. Ég á merkt einkastæði og það skal alltaf einhver leggja í það. Ég reyndar næ því nú í flestum tilfellum þegar ég kem heim kl 13:30 en ef að ég kem heim eitthvað seinna en það .... þá er iðulega einhver í því. Ekki legg ég í merkt einkastæði..... og það er ekki eins og merkingin sjáist ekki..... mig langar stundum bara að keyra á bílana sem leggja í stæðið mitt.... en auðvitað tími ég ekki að skemmt elskulega bílinn minn ;o)

Mér varð ekki að ósk minni.... góða veðrið er búið. Og það kom meira að segja eitthvað hvítt úr loftinu í dag..... svona inn á milli glæru dropanna. Þá fór mér nú ekki að lítast á blikuna.... en svo var það búið þegar ég var búin að nudda.

Fór í Kringluna með Freyju systir. Hana vantaði svo buxur. Og auðvitað fundum við buxur á hana. Ég notaði ferðina og kíkti í Símann og fékk mér breiðbandsáskrift. Við Sissi ákváðum að skella okkur á áskrift. Við erum nefnilega svo mikið heima að horfa á sjónvarpið....hehehehe. Allt í lagi að prófa smá. Tókum allan pakka..... Úrvalið... yfir 40 stöðvar. Og það var hún Krummi sem afgreiddi mig. Hún var sko að vinna í þjónustuverinu með mér, en fór svo að vinna í Símabúðinni í Kringlunni.... og líkar víst bara svona ljómandi. En auðvitað saknar hún samt okkar, skemmtilega fólksins, í þjónustuverinu.
Sissi var eitthvað að þvælast með Helga Stefáni, áðan þannig að við buðum honum bara aftur í mat. Það er ekki svo oft sem maður sér hann að þetta er bara gaman.
miðvikudagur, mars 17, 2004
 
Í sól og .....
Æðislegur dagur í dag. Maður getur nú ekki kvartað þegar maður fær svona daga eins og eru búnir að vera undanfarið. Ég meina.... það er auðvitað ekkert sérstaklega hlýtt úti en ekkert kalt heldur. Svoltið svona gluggaveður.
Var á talsímanámskeiði fram til kl 12 í dag. Nuddaði svo til kl 19. Og fyrst að Sissi gat ekki komið heima alveg strax, þá skellti ég mér bara í ljós. Er búin að eiga 20 tíma ljósakort síðan í desember........ og það var alveg ónotað. Ég semsagt var að nota fyrsta tímann af því núna í kvöld. Skellti mér í góða sturtu og líður nú alveg undursamlega ;o) .
Vonandi fáum við fleiri svona daga. Ég er alveg tilbúin til þess að það fari bara að koma vor. Þó finnst mér nú líklegt að það eigi eftir að koma eitthvað smá hret í viðbót. Ég held allavega að það sé frekar ólíklegt að vorósk mín verði að veruleika. En ég ætla allavega að njóta þess sem við fáum. Er að vísu líka að nudda til kl 19 annaðkvöld..... svo þá er nú eitthvað farið að kólna. Kannski fáum við góða helgi... hver veit????
Ég var að tala við mömmu í dag. Og þau eru nú ekki alveg jafn heppin fyrir norðan, og við hérna fyrir sunnan. Þar er víst allt orðið hvítt, aftur. Ekkert brjálað veður samt, en svona meira út í vetrarveður en vorveður. Þau eru samt ekkert fúl. Það er búið að vera ágætis veður fyrir norðan líka, svo að þau kvarta ekkert.
þriðjudagur, mars 16, 2004
 
Sólskinsdagur
Það er alveg frábært veður..... það er kominn svona vorfílingur í mann. Allavega í gær og í dag. Ég er reyndar búin að vera á námskeiði í allan dag.... í vinnunni. Mjög sniðug námskeið.... vonandi verð ég ennþá betri í vinnunni fyrir vikið. Var meira að segja að vinna til rúmlega 16 í dag. Er reyndar að fara aftur á morgun á námskeið, en bara til 12.
Þegar ég svo var búin að vinna langaði mig svo mikið að vera úti, að ég hringdi í Súlí vinkonu og dróg hana með mér upp í Heiðmörk í göngutúr. Og það er alveg frábært að vera úti að labba núna í þessu frábæra veðri. Sólskin og blíða. Vorum alveg í 1 og 1/2 tíma á röltinu. Og auðvitað var mikið spjallað líka.....þögnuðum ekki allan tímann ;o) hehehehe. Svo skutlaði ég Súlí bara heim og er nú að bíða eftir kvöldmatnum..... Sissi er sko að elda... hann bauð nefnileg Helga Stefáni, frænda sínum í mat. Helgi er í heimsókn, hérna á Íslandi, í nokkra daga. En hann hefur búið í Færeyjum í nokkur ár. Við höfum ekki séð hann síðan hann flutti .... sennilega ein 4 eða 5 ár. Svo að auðvitað fékk hann að koma í heimsókn, fyrst að hann hringdi og bað svona fallega...hehehehehehe... smá grín... hann er alltaf velkominn.
sunnudagur, mars 14, 2004
 
Árshátíð Símans


Árshátíð Símans var í gær, haldin í Breiðablikshúsinu í Kópavogi. Og auðvitað fórum við. Reyndar byrjuðum við á því að fara í partý til Ingu (BB-tengiliðs) og þar var alveg hörku stuð og fullt af fólki. Þaðan fór svo rúta með okkur á árshátíðina. Það var rosalega góð mæting, og allir í banastuði. Það voru nú reyndar ekki margir þarna, fyrir utan þjónustuversfólkið, sem ég þekkti en einhverjir þó. Við fengum ferska sjávarrétti í forrétt, lambakjöt og kjúkling í aðalrétt og ístertu í eftirrétt. Það var Bautinn á Akureyri sem sá um matinn og umgjörðina á árshátíðinni. Og á hann hrós skilið. Ég gaf nú reyndar Sissa megnið af forréttinum mínum, borðaði sjálf skelfiskinn en ekkert annað. Ég er nefnilega ekkert voðalega hrifin af rækjum og svona.... en Sissa fannst forrétturinn alveg æðislegur. Hann borðaði nú reyndar tæplega 4 skammta af forréttinum. Það voru nefnilega fleiri við borðið okkar sem ekki voru mjög hrifnir af sjávarréttum og Sissi borðaði bara fyrir þá líka.... hehe. Aðalréttinn borðaði ég allan, en lét mér nú samt nægja það sem var skammtað á diskinn í upphafi. Það fengu sér nú flestir aðrir, á borðinu, ábót.... reyndar fékk Sissi sér ekki ábót, en hann fékk líka svo mikið í forrétt að það er nú kannski engin furða. Og að sjálfsögðu var ísinn mjög góður.... en það er nú kannski ekki að marka mig.... ég ELSKA ís.
Skemmtiatriðin voru mjög góð. Margrét Eir Hjartardóttir söng, það var sýndur magadans og Örn Árnason kom og skemmti, fékk hann nú reyndar Karl Ágúst til liðs við sig en hann var einnig veislustjóri. Svo var sýnt myndband sem skemmtinefndin tók upp og var það mjög gott hjá þeim.... og þakka ég skemmtinefndinni fyrir góða frammistöðu. Og ekki má nú gleyma Lagerlúðunum sem spiluðu fyrir okkur, með Jón 500-kall í broddi fylkingar. Og ég verð nú bara að viðurkenna að mér fannst þeir bara nokkuð góðir (ég má nú ekki hæla þeim of mikið svo að þeir ofmetnist ekki...hehehe).
Stuðmenn komu svo og spiluðu á ballinu. Við Sissi fórum reyndar heim fljótlega eftir að ballið byrjaði. Mér er búið að vera svo illt í bakinu og Sissi var kominn með hausverk (af kastaraljósunum sem að færðist um salinn og skall alltaf öðruhvoru á okkur ... alltof skært). Þannig að við vorum ekkert sérstaklega vel upplögð fyrir mikil skrall. Komum okkur bara vel fyrir inni í stofu og horfðum á xXx, með Vin Diesel (ég reyndar dottaði yfir henni..... missti allavega alltaf brot og brot úr...... en var búin að sjá hana áður og því enginn skaði skeður....hehe).
En kvöldið var ágætt og ég mjög sátt.

föstudagur, mars 12, 2004
 
Háralitun
Annað kvöld verður árshátíð Símans og því byrjar útlitsundirbúningurinn í kvöld. Linda kemur til mín á eftir og við ætlum að lita hárið á hvor annarri. Maður verður nú að spara líka stundum sko. Það er svo dýrt að fara á stofur til að láta lita á sér hárið... og Gulla litla á nú ekki mikinn pening þessa dagana. Þannig að það er bara farið út í búð og keyptur pakkalitur.... þó að það sé fyrir árshátíðina ;o) Vonum bara að allt takist vel og við verðum svaka gellur á árshátíðinni.
fimmtudagur, mars 11, 2004
 
Nýtt forrit
Það kom að því. Ég er loksins komin með nýtt FTP forrit í tölvuna hjá mér. Snorri var svo vænn að setja það upp í tölvunni hjá mér, eftir að ég nuddaði hann í gær. Þannig að ég setti loksins breyttu tenglasíðuna mína inn.... hún reyndar tókst ekki eins vel hjá mér og ég var að vona, en linkunum fjölgaði allavega. Verð að pæla aðeins meira í þessu. Var búin að sjá fyrir mér svo flotta síðu, en tókst engan veginn að gera hana eins og ég ætlaði.... enda er ég svosem enginn tölvusnillingur. En æfingin skapar meistarann og ég er enn bara að æfa mig í heimasíðugerð. Þannig að ég vona að mér sé fyrirgefið.
Er ekkert búin að vera neitt mjög virk heldur upp á síðkastið. Það er búið að vera svo mikið að gera í nuddinu og svo erum við alltaf að reyna að koma okkur betur fyrir, þegar ég er ekki að nudda. Og það leiðir til þess að það er ekki mikill tími aflögu til að vera í heimasíðuleikfimi. En núna kannski fer ég að reyna að vera virkari þar sem við erum svona að mestu leyti búin að koma okkur fyrir. Aðallega aukaherbergið sem er eftir og svo eigum við eftir að mála líka svefnherbergið.
þriðjudagur, mars 09, 2004
 
Breimandi köttur
Kisa er búin að vera að gera útaf við okkur. Hún er búin að vera breimandi síðan á föstudaginn síðasta. Og vá!!!!! er hægt að vera á þörfinni eða???? Hún var bara utan í öllum í partýinu. Hún er líka búin að vera að hafa svo hátt að það liggur við að það heyrist yfir í næstu götur. Og auðvitað fáum við ekki mikinn svefn á meðan hún lætur svona. Ég verð því miður að viðurkenna að það hafa nokkrum sinnum komið upp frekar ljótar hugsanir, en ég hendi þeim út jafnharðan. Sissi fór svo í gær og keypti pilluna handa kisu, eftir að ég var búin að segja honum að hún yrði svona einu sinni í mánuði. Og nú þurfum við að gefa henni eina pillu á dag, þangað til hún hættir að breima.... sem gæti orðið eftir svona 2-3 daga. Verst að nágrannarnir verða sennilega búnir að henda okkur út áður. Við höfum reyndar lokað kisu inni á klósetti svona í mestu látunum..... bara svona.. okkar og annarra vegna. En þetta er bara tímabil sem gengur vonandi fljótlega yfir og þá verður hún aftur sama gamla, góða kisan okkar.
sunnudagur, mars 07, 2004
 
Innflutningsgleði


Héldum þessa feikna innflutningsgleði í gær (og fram á nótt). Byrjuðum á kaffi um kl 15, og kom fyrsti gesturinn á slaginu. Kaffið var áætlað til kl 18 en drógst alveg þangað til fyrsti gestur mætti í partýið sem byrjaði kl 20:30. Síðustugestir kaffisins og fyrsti gestur partýs mættust í tröppunum.
Gleðin tók svo öll völd og mættu rétt um 30 manns, allir í fullu fjöri, og skemmtu sér alveg ógurlega (að ég best veit). Mikið var um hlátur og lék fólk á alls oddi (sumir þó meira en aðrir). Síðasti gestu partýsins var svo að yfirgefa staðinn rétt rúmlega 4 í nótt. Þá var Sissi reyndar búinn að rölta út á pizzastað og kaupa pizzu og hvítlauksbrauð, sem rann ljúflega niður. Við höfðum nefnilega ekki tíma til að fá okkur að borða áður en partýið byrjaði þar sem engin pása varð á milli kaffis og partýs.
Var ég þó komin snemma á ról og búin að ganga frá öllu, eftir gleði næturinna, fyrir hádegi.
Við Berglind fórum svo í búðaráp..... enn að reyna að finna föt fyrir árshátíð Símans. Hittum við fleiri símastarfsmenn í sömu erindagjörðum. Rápið skilaði samt engum árangri og mun ég því reyna að finna eitthvað í skápnum mínum til að vera í :o( mig sem langaði svo í eitthvað nýtt og flott.
Við Sissi fórum svo bara og eyddum peningnum, sem ég ætlaði að eyða í föt, í Ikea, í myndaramma og fleira. Og fengum okkur svo að borða á "stælnum"
föstudagur, mars 05, 2004
 
Hörður á afmæli í dag !!!


Hörður, bróðir Sigurlínu vinkonu, á afmæli í dag. Hann er 25 ára, pilturinn. Óskum við honum innilega til lukku og vonum að hann eigi góðan dag.
fimmtudagur, mars 04, 2004
 
Nuddmaraþon
Það er bara allt brjálað í nuddinu hjá mér. Er búin að vera fullbókuð síðan ég byrjaði að nudda aftur eftir heimilisleysispásuna. Og ekki nóg með það heldur er ég orðin fullbókuð fram til 16. mars. Auðvitað verða alltaf einhver afföll en það er búið að vera alveg ótrúlega lítið og ekkert í þessari viku. Þannig að ég get allavega ekki kvartað.

Við hættum við að mála aðra umferð, þó að sú sem við máluðum væri eitthvað skrítin. Ákváðum að bíða aðeins með það. Ætlum bara að kaupa okkur betri málningu, svipaða á litin, þegar við höfum efni á því. Óþarfi að vera að fara aðra umferð með sömu málningu og svo yrði sú umferð kannski alveg jafn skrítin. Þetta er nefnilega einhver ódýr Byko-málning og erum við búin að heyra að hún sé víst oft svona. Erum svo búin að vera að reyna að koma okkur enn meira fyrir... höfum samt ekki haft mikinn tíma þar sem við erum bæði frekar upptekin þessa dagana. Náðum loksins í gærkvöldi að setja upp öll ljósin nema í aukaherberginu. Sissi fór í gær og keypti nokkur ljós og nú held ég að okkur vanti bara eitt.... Þ.a.s. við eigum ljós en engin tvö eins... og við viljum hafa tvö eins ljós í herberginu. Þannig að nú er óskandi að við finnum eitt ljós sem er eins og eitthvert af þessum ljósum sem við eigum.... eigum nefnilega 3 týpur.
Næst verður málað í hjónaherberginu... veit ekki alveg hvenær samt.... vona að það verði einhverntíman fljótlega þar sem ég nenni ekki að vera að tína bækurnar í bókahilluna fyrr en við erum búin að mála.... svona svo að ég þurfi ekki að taka þær úr strax aftur.
miðvikudagur, mars 03, 2004
 
Alltaf jafn saklaus
uni
You are Form 3, Unicorn: The Innocent.

"And The Unicorn knew she wasn't meant to
go into the Dark Wood. Disregarding the advice
given to her by the spirits, Unicorn went
inside and bled silver blood.. For her
misdeed, the world knew evil."


Some examples of the Unicorn Form are Eve
(Christian) and Pandora (Greek).
The Unicorn is associated with the concept of
innocence, the number 3, and the element of
water.
Her sign is the twilight sun.

As a member of Form 3, you are a curious
individual. You are drawn to new things and
become fascinated with ideas you've never come
in contact with before. Some people may say
you are too nosey, but it's only because you
like getting to the bottom of things and
solving them. Unicorns are the best friends to
have because they are inquisitive.


Which Mythological Form Are You?
brought to you by Quizilla


Powered by Blogger