föstudagur, apríl 30, 2004
Föstudagur til fjár!!!
Það á býsna vel við daginn í dag allavega. Fengum nefnilega útborgað í dag... jibbí jei!!! Ekki það að það þýðir að það þarf að borga reikningana á mánudaginn.... þá á einnig vel við "mánudagur til mæðu"...hehehe. Ég er alveg óhemju fyndin í dag. Allavega finnst mér það. Það er spurning með hvað hinum finnst.
Ég var að ræða það við Berglindi, vinkonu og vinnufélaga, um daginn að það væri allt í lagi að fara í partý þar sem ég þekki eiginlega engan.... því að ég væri svo skemmtileg sjálf að það hlyti að verða gaman hjá mér... Og auðvitað sagði hún að það væri alveg satt...... svona eiga vinir að vera!!!
Svona til gamans þá langar mig að kenna þeim, sem áhuga hafa, að brjóta sama þvott.... kíkið hér!
fimmtudagur, apríl 29, 2004
Nýklippt Gulla
Ég er ekkert að standa mig í þessu bloggi hérna núna. Þetta er búin að vera mjög róleg vika eitthvað. Var veik heima á þriðjudaginn. Kunni ekki við að keyra í vinnuna með sjóntruflanir og aðra fylgikvilla mígrenis. Fór í ljós... bæði á mánudag og miðvikudag. Og var núna að koma úr klippingu. Það ver svosem ekki gerð nein mikil breyting. Bara verið að særa neðanaf og reynt að losna við mesta slitið. Ég er samt núna alveg að pirrast yfir öllum litlu hárunum sem eru út um allt núna. Klæjar í hálsinn og andlitið... væri farin í sturtu ef að við Sissi værum ekki að fara í ljós í kvöld. Ég fer nú ekki að fara í sturtu oft á dag.
Greyið randaflugan mín er dáin. Hún lifði ekki nema í sólarhring. Ég er ekki viss um að henni hafi fundist við góðir húsbændur. Ég held meira að segja að við höfum haft meira gaman af henni heldur en hún okkur.
Mér fannst nefnilega mjög gaman að geta skoðað lifandi randaflugu í návígi..... forvitnin alveg að gera útaf við mann. Súlí vinkona sagði að þetta væri "animal planet syndrome". Mér fannst samt fyndnast að sjá hvað hún var með langa tungu. Og hvað hún var æst þegar hún var að borða sykurinn sem við gáfum henni.
laugardagur, apríl 24, 2004
Randaflugur
Ég er komin með nýtt "gælu"dýr. Eða þar að segja... ég gæli nú ekki mikið við þetta dýr. Ég var inni í stofu að lesa í hádeginu þegar ég heyri þetta líka svakalega suð í glugganum. Kisa lætur sér fátt um finnast og situr bara áfram í glugganum og horfir út. Þegar lætin aukast fer kisa aðeins að ókyrrast og flýr úr glugganum..... hvernig er það ..veiða kettir ekki flugur... ja mér er bara spurn. En allavega þá bjargaði Sissi málunum og veiddi suðvaldinn..... stóra randaflugu... í flösku. Og gaf mér. Svo þegar ég bannaði honum að vera vondur við flugugreyið þá hellti hann sykri ofan í flöskuna. Og nú er flugan búin að vera að borða og borða og borða sykur. Það eru því miklar líkur á því að hún verði ofvirk á eftir.... spurning hvort að flaskan haldi henni nokkur.... púff ég er ekki alveg tilbúin fyrir það að hún sleppi úr flöskunni.
Nammi namm
Langþráð stund rann upp í gærkvöldi. Við grilluðum!!!!! Við Linda, vinkona og vinnufélagi, vorum slefandi í vinnunni í gær yfir tilhugsuninni um grillveislur. Sumarfílingurinn er greinilega kominn yfir mann og því fylgir löngunin í grillmat. Ekki það að ég væri nú alveg til í að borða grillmat allan ársins hring. En á sumrin er það ómissandi. Það er búin að vera gilllykt í lofti undanfarna daga og greinilegt að fleiri en við erum komin í grillham.
Ég fór og keypti kryddleginn svínahnakka, hvítlaukssósu og hrásalat á meðan Sissi kláraði að þrífa grillið. Svo grillaði Sissi (hann sér alltaf um það á þessu heimili....hehehehe... ekki kvarta ég) á meðan ég lagði á borðið og gerði klárt.
Þegar við vorum orðin södd.... án þess þó að klára matinn.... fór Sissi aftur á verkstæðið og ég skrapp til Sigurlínu vinkonu. Súlí er núna á kafi í prófaundirbúningi eins og sennilega flestir háskólanemar. Og því hef ég lítið viljað trufla hana að undanförnu. En hún er búin að vera í vandræðum með msnið sitt.... og ég, msn-sjúklingurinn, kom og reddaði málunum (vonandi!!!). En auðvitað endaði heimsókn mín með kjafti (eins og venjulega) fram yfir miðnætti. Mér finnst bara verst að nú fer að líða að því að Súlí fari aftur heim í sveit...... og ég sit eftir hér aftur ALEIN... snökt snökt snökt. Mér finnst svo notalegt að hafa hana hérna fyrir sunnan. Ég var búin að venjast því að það væri svona langt á milli okkar... en svo kom hún suður í skóla.... Og nú er ég orðin svo háð því að hún sé hérna hjá mér. Hún verður svo ekki nema eina önn hérna næsta vetur og þá þarf ég að fara að venjast því aftur að við séum á sitthvoru landshorninu. En svona er lífið.... ég er búin að skapa mér líf hér og hennar líf er fyrir norðan og við verðum bara að gera það besta úr því :o)
fimmtudagur, apríl 22, 2004
Grillið komið heim
Sissi náði í grillið okkar í dag. Það var nú sennilega kominn tími til. Það stóð nefnilega ennþá fyrir utan Bakkaselið.... þar sem við fengum að geyma það, þó að við værum flutt. Við erum nú búin að ætla okkur lengi að ná í grillið. En bíllinn, sem við þurftum að nota til að ná í það, var bilaður og því vorum við alveg strand. Ég er búin að vera að deyja úr grilllöngun í a.m.k. mánuð. Var að reyna að þrífa grindurnar áðan og svo þurfum við að kaupa nýja steina. Þannig að ef að veður leyfir þá verður kannski bara grillað á morgun. Ég ætla því að vona að veðurguðirnir vorkenni mér og hafi gott veður svo að ég geti grillað (eða svo að Sissi geti grillað þ.a.s.....hehehehe).
Gleðilegt sumar!!!
Það er komið sumar, sól í heiði skín. Sumarið er runnið upp..... svona allavega almanakslega séð. Og ekki get ég kvartað undan veðrinu eins og það er núna. Ég er nú ekki alveg viss um að hitamælirinn okkar sé á góðum stað því að hann sýnir um 40 stiga hita. Af einhverjum ástæðum trúi ég honum ekki alveg... en hver veit, kannski er bara svona heitt á Íslandi í apríl.... einmitt!!!!!!
Það var voðalega þægilegt að vakna í morgun vitandi það að ég gæti haldið áfram að kúra uppi í rúmi. Að sjálfsögðu gat ég nú samt ekki sofið svo að ég tók mér bók í hönd og las fram að hádegi. Hver veit nema ég lesi eitthvað meira í dag. Sissi er nefnilega á verkstæðinu eins og alla aðra frídaga og því hef ég ekkert þarfara að gera. Ég er að vísu búin að þrífa inni á baði svo að ég get, líka samviskunnar vegna, gert ekki neitt meira í dag. Og það er heldur enginn þvottur til að þvo, þar sem ég þvoði svo mikinn þvott í gær. Það er að vísu svoltið ruslaralegt inni í stofu.... ennþá snakk og glös á sófaborðinu síðan í gærkvöldi. Sissi bauð Hjalta, vini sínum, og Höllu, kærustunni hans, í videokvöld. Ég gaf Sissa nefnilega 2 dvd myndir í snemmbúna sumargjöf. Og reyndar bætti ég einu bílablaði við í gjöfina hans. Það er svo langt síðan að hann hefur fengið nýtt bílablað. Hann er næstum því búinn að lesa gat á gömlu blöðin sín. Og David Attneborough bókin, sem ég gaf honum í jólagjöf, er aðeins of þung til að fara með hana á klósettið....hehehe... ekki vil ég að hann hafi ekkert til að stytta sér stundirnar meðan hann situr á klósettinu ;o)
miðvikudagur, apríl 21, 2004
Vorgleði
Það er vorgleði hjá Símanum í dag. Allir voða sumarlegir og brosandi. Ég meira að segja mætti í stuttu pilsi (og það er nú ekki oft sem ég fer í svoleiðis). Veit samt ekki hvort ég hitti fólkið í kvöld. Er nefnilega að nudda til kl. 19/19:30 í kvöld. Þannig að ef ég er í miklu stuði þá fer ég kannski annars ekki. Ef ég er alveg búin á því..... þá er nú voðalega þægilegt að liggja heima í leti.
mánudagur, apríl 19, 2004
Barnapían Gulla
Þessi síðastliðna helgi var frekar frábrugðin "venjulegum" helgum hjá mér. Þar sem ég tók að mér að passa Fanney Björg Magnúsdóttur (frænku hans Sissa). Föstudagskvöldið tókum við í það að kynna okkur fyrir dömunni. Hún hefur nefnilega ekki hitt okkur síðan síðasta sumar. Þannig að við höfum nú sennilega ekki verið henni í fersku minni, þar sem hún er tæplega 3ja ára. Okkur var sem sagt boðið í mat í Vogana. Mjög góður matur, mikið borðað og mikið spjallað. Á laugardaginn kom svo stúlkan til mín og við dunduðum okkur saman þangað til Sissi kom heim. Sissi var nefnilega í Smáralindinni á þessari sumarsýningu sem var þar. Hann var þar ásamt fleirum úr Smábílaklúbbnum að reyna að kynna fjarstýrðu bílana betur fyrir þeim sem áhuga sýndu. Eftir að Sissi kom heim renndum við í verslun og keyptum okkur kjúkling í matinn. Sissi fór niður í geymslu og gerði sig og bílinn sinn klára fyrir keppnina á sunnudaginn. En við Fanney skelltum mynd í spilarann eftir að vera búnar að hátta og tannbursta okkur. Mér tókst nú ekki alveg strax að láta hana fara að sofa, ekki furða að hún væri uppspennt á ókunnugum stað með næstum því ókunnugu fólki. En hún fór að sofa þegar ég lofaði henni að liggja í Sissa bóli við hliðina á mér. Svo bara færði ég hana yfir í "hennar" ból eftir að hún var sofnuð.
Ég sá alveg hvernig Sissi kemur til með að vera þegar við eignum börn...hehehe smá spaug ... hann var fljótur að pikka í mig og láta mig hugga Fanney þegar hún vaknaði um nóttina. Og þegar hún var búin að vakna nokkrum sinnum endaði með því að ég tók hana bara uppí til okkar.... og svaf ég nú reyndar ekki mikið eftir það .... ég er nefnilega ekkert vön því að hafa barn sofandi í bólinum hjá mér.
Sunnudaginn tókum við svo snemma. Við stelpurnar vorum meira að segja farnar á fætur á undan Sissa ... þó svo að Sissi þyrfti að fara snemma á fætur til að fara að keppa. Þegar vekjaraklukkan hans Sissa hringdi svo um kl 8:30 þá vorum við löngu farnar á fætur og orðnar mjög ferskar......hehehe... einmitt!!!!
Maggi og Elsa (foreldrar Fanneyjar) komu svo um kl 13:30 og náðu í skottið sitt og ég var allavega ekki verri en það að aðspurð sagðist hún alveg vilja koma til mín aftur...... þetta sagði hún allavega þegar ég heyrði til svo er bara spurningin hvað hún sagði eftir að ég var horfin úr augsýn..hehehehe.
miðvikudagur, apríl 14, 2004
Ég vond????... NEI!!!
I could go either way. I have sinned quite a bit but I still have a bit of room for error. My life is a tug of war between good and evil.
Are you evil? find out at Hilowitz.com
Hversdagsleikinn tekinn við
Þá er hið undursamlega páskafrí á enda runnið. Maður er farinn að vinna aftur eins og ekkert hafi í skortist og sama rútínan tekin við aftur. Þó er nú hentugt hvað þessi vika og næsta eru stuttar. Vinnum bara í 4 daga núna og svo er komin helgi. Því næst vinnum við í 3 daga... einn dag frí... einn dag í vinnu og svo helgi. Verst finnst mér þó að 1. maí skuli lenda á laugardegi. Þannig að það er ekkert aukafrí þann daginn.... sem þýðir einnig að þá er hann á sunnudegi á næsta ári og ekkert frí þá heldur. En þessi tími er samt ágætur.... fínt að fá svona aukafrídaga þegar sólin er aðeins að hækka á lofti og von til að maður geti notið þess að vera úti í góðaveðrinu. Í stað þess að sitja alltaf inni og vinna þegar það er gott veður.
Það er frekar lítið að gera hjá mér í nuddinu núna. Kannski ágætt eftir lætin sem eru búin að vera. Það er kannski allt í lagi að fá að slaka smá á núna en svo má það gjarnan aftur rjúka upp.
sunnudagur, apríl 11, 2004
Gleðilega páska!
Páskafríið er búið að vera alltof fljótt að líða. Bara einn dagur eftir :o( Ég er búin að lesa, ég veit ekki hvað margar bækur í fríinu. Enga samt gáfulega. Kláraði reyndar að lesa Dís. Freyja systir kom með haldapoka fullan af ástarsögum og er ég langt komin með þær.... segi það nú kannski ekki alveg, bara búin með nokkrar. Maður getur verið svo heilalaus þegar maður er að lesa svona ástarsögur. Þarf ekki að hugsa bara les. Það er það sem kallast leti og slökun....hehehehehe. Svo erum við reyndar búin að vera að mála líka. Sissi er ekkert heima á daginn, kemur yfirleitt ekki heim fyrr en í kvöldmat. Svo sitjum við smá stund í leti eftir matinn. Þegar við loksins náum að standa á fætur, eftir þessar svaka máltíðir sem ég er búin að vera að galdra fram, þá förum við að mála. Byrjum yfirleitt að mála svona um kl. 23 á kvöldin og erum því að mála til svona 3- hálf 4. Málum alltaf bara eina umferð á hverju kvöldi. Litirnir sem við erum að reyna að mála yfir eru svo dökkir að þeir skína alltaf í gegn. Í gær fórum við svo að kaupa viðbót við málninguna því það sem við áttum var ekki nóg. Við reyndar vorum svo svakalega löt í gærkvöldi að við nenntum ekki að mála neitt þá.... sem þýddi að við urðum að mála síðustu umferðina í dag. Sú umferð er núna að þorna, nema Sissi ákvað að geyma að mála meðfram loftinu þangað til hann kæmi heim aftur, hann semsagt þurfti að skreppa aðeins á verkstæðið aftur eftir matinn.
Deginum í dag eyddi ég að vísu ekki yfir bókum, eins og síðustu dögum, heldur kom hann Jói vinur minn og tók mig með sér á rúntinn. Byrjuðum við auðvitað á því að fá okkur ís, sem er mjög gott. Svo bara keyrðum við út um allt og spjölluðum heilmikið. Það er orðið frekar langt síðan við höfum haft tíma (bæði í einu) til að hanga svona saman. Alveg synd hvað maður er alltaf upptekinn..... Jói reyndar meira en ég. Mætti halda að maður væri orðinn fullorðinn og þyrfti að vinna eins og skepna til að eiga í sig og á.
Morgundeginum verður mjög líklega eytt í að ganga aftur frá hlutunum á sinn stað eftir málningarvinnuna. Það var nefnilega meirihlutinn af dótinum, úr báðum herbergunum sem við vorum að mála, sett inn í stofu. Sem þýðir að stofan er gjörsamlega á kafi í drasli. Ekki mjög páskalegt allavega. Sé svo til hvort að ég nenni að renna með rakri tusku yfir gólfin... ekki veitir af eftir þessa sprengingu. Við eigum samt eftir að mála líka inni á klósetti... það er því spurning hvort að við reynum að ná því á morgun og að ég skúri frekar einhvern annan dag.... því það kemur nú dagur eftir þennan dag eins og einhver snillingurinn hefur áður bent á.
En núna er best að fara að drífa sig að ráðast betur á páskaeggið. Ekki gengur að það standi að mestu óétið frá því í morgun. Málshátturinn minn er: Skynsamir menn skipta um skoðun, fíflin aldrei. Og málshátturinn hans Sissa er: Ekki gerir einn þröstur vor.
fimmtudagur, apríl 08, 2004
Páskafrí
Hið langþráða páskafrí er loksins hafið. Var að nudda til tæplega sjö í gærkvöldi. Sem þýðir að þá var ég komin í páskafrí.
Í morgun er ég hins vegar búin að njóta þess að vera í fríi. Vaknaði reyndar frekar snemma en hélt áfram að kúra uppi í rúmi. Tók mér bara bók í hönd og fór að lesa. Var að því til rúmlega 2 í dag. Bara lúksus á mér.... hehehe. Það er ekki á hverjum degi sem maður bara liggur og lætur sér líða vel. En ég var semsagt orðin það svöng að ég varð að drífa mig að fá mér eitthvað í svanginn. Sissi var farinn á verkstæðið rétt upp úr hádegi og ég á ekkert von á honum heim fyrr en kvöldar.
Meðan ég fékk mér svo smá í svanginn kveiti ég á Hallmark og horfði á næstum því heila mynd.... hún var aðeins byrjuð. Að því búnu ákvað ég að gott væri að leggjast í heitt bað.... strandaði samt aðeins og fór af einhverjum ástæðum að sinna þvotti og þrífa inni á baði... ég veit ekki alveg hvaðan þetta kom en það kom samt. Þá loksins skellti ég mér í sturtu og sit núna fyrir framan tölvuna ennþá með handklæðið á hausnum.
Ég er búin að vera í einhverju basli með póstforritið mitt..... það vill ekki tékka á póstinum fyrir mig. Ég get alveg sent póst ekkert mál en ekki náð í minn. Það er í lagi á Sissa svæði og sameiginlega svæðinu okkar en ekki á mínu svæði.... og enginn sem ég er búinn að tala við veit hvað getur verið að. Ég er búin að reyna að setja forritið upp aftur og aftur og restarta tölvunni þúsund sinnum en ekkert gengur. Þannig að ef að það er einhver sem að hefur einhverja hugmynd um það hvað þetta gæti verið. Endilega hafðu samband við mig, ég yrði mjög þakklát.
En jæja best að fara að þurrka á sér hárið.... áður en það verður óviðráðanlegt.
Og gleðilegt páskafrí til allra sem það fá. :o)
mánudagur, apríl 05, 2004
Mánudagur til mæðu
Þessi mánudagur er aðeins öðruvísi en flestir aðrir mánudagar. Hann er ekki til eins mikillar mæðu og venjulegur mánudagur. Það er nefnilega svo stutt í næsta frí. Hehe ekki það að það er ágætt í vinnunni, manni finnst bara alltaf svo gott að vera í fríi. Var nú reyndar bara að nudda til kl. 17:30 í dag. Nuddið kl 18 féll niður. Ég ákvað því að skella mér bara í ljós. Ég á ekki nema 18 tíma eftir af ljósakortinu mínu sem ég keypti í desember.... ég er alveg ferleg. Ég keypti mér svona tilboðs ljósakort hjá Lindarsól .... 20 tíma 6 mánaða kort. Og er semsagt búin að fara í 2 ljósatíma síðan í desember.... og sá seinni var núna í kvöld. Verð að fara að drífa í að nota mér kortið áður en það rennur út. Ætla nú samt að draga Sissa með mér líka. Hann hefur gott af því að koma með mér í ljós nokkrum sinnum. Það er ekki hægt að hafa hann alveg hundaskítshvítan þegar ég verð orðin brún og fín...hehehe einmitt, læk ðats gonna happen.
En allavega þá er ég strax farin að hlakka til fimmtudagsins sem er Skírdagur. Þá kemur aftur frí, frí, frí.
sunnudagur, apríl 04, 2004
Partý
Fór í partý hjá Lindu í gærkvöldi. Hún var að halda upp á afmælið sitt sem var 25. mars. Fjörið hófst um leið og ég kom (ég var nefnilega fyrst) og stóð fram á nótt. Við vorum allar (bara stelpur í partýinu) eins og við erum skemmtilegastar (eins og alltaf) og skemmtum okkur sjálfum og öðrum. Ég fékk svo Sissa til að ná í mig, þegar djammararnir voru að fara að síga í bæinn. Ég er nefnilega orðin svo gömul og ráðsett......hehehe.
Við Sissi fórum reyndar í gær á mótorhjólasýningu Sniglanna. Hún er haldin hjá Toyota á Nýbýlaveginum. Það var fullt af flottum hjólum... meira að segja ég sá það.... og Sissi gekk slefandi um allan salinn. Og ég held að hann hafi langað í lang flest hjólin. Svo þegar við vorum búin að skoða fórum við á American style og fengum okkur að borða.
föstudagur, apríl 02, 2004
1. apríl
Ég veit að 1. apríl er búinn... en hann er samt bara rétt búinn og ég má alveg skrifa um hann. Bíllinn minn var nefnilega með smá 1. aprílgabb. Eða ég ætla allavega rétt að vona að þetta hafi verið 1. aprílgabb hjá honum. Hann fékk allavega mig, Sissa, mömmu og Bóa öll til að hlaupa smá fyrir sig. Hann nefnilega ákvað að deyja á einum gatnamótunum á leiðinni, með mömmu, til Möggu (systir mömmu). Við vorum þar strand svona nokkur græn ljós..... okkur EKKI til mikillar gleði. Ég hringdi í Sissa og fékk hann til að koma og redda málunum. Og ég lét mömmu hringja í Möggu til að segja henni að sér seinkaði. Magga sendi þá Bóa (manninn sinn) til að redda okkur líka. Bói skutlaðist svo og náði í starttæki til að koma bílnum í gang. Hann gekk svo .... næstum því alla leiðina á verkstæðið. Dó bara eftir að ég keyrði í stóra pollinn í síðustu beygjunni. Sissa tókst að koma bílnum aftur í gang en hélt að "nýja" vélin væri kannski eitthvað að gefa sig. En svo er ég aðeins búin að vera á rúntinum síðan og (að vísu reynt að sneiða fram hjá stærstu pollunum... sem er frekar erfitt þar sem þeir eru allsstaðar) hann drap ekkert á sér 7-9-13.
