mánudagur, maí 31, 2004
 
Norðurferð
Föstudagurinn byrjaði ekki gjæfulega. Var virkilega farin að hafa áhyggjur af því að ég þyrfti að fresta norðurferðinni. Mér var nefnilega svo illt í maganum og hausnum um morguninn að ég fór ekki í vinnuna. Þetta reddaðist þó þegar líða tók á morguninn. Ég lagði svo af stað keyrandi norður upp úr kl. 14. Var ég ein á ferð á Coltinum. Sissi kom ekki norður fyrr en seinnipartinn á laugardag.... keyrandi á bílnum hennar Sigurlínu vinkonu. Ferðin norður gekk ljómandi. Ég var nú eitthvað búin að mikla þetta fyrir mér. Ég hafði nefnilega aldrei keyrt sjálf alla leið norður. Og ekki nóg með það heldur hafði ég bara einu sinni keyrt Coltinn. En bíllinn vandist fljótt og það var svo gott veður að það það var ekki undan neinu að kvarta. Að sjálfsögðu var tónlistin stillt hátt og sungið með....hehehe.
Þegar ég var komin til Akureyrar, 4,5 klst síðar, ákvað ég að kíkja á tengdamömmu áður en ég brunaði í sveitina. Andri, bróðir Sissa, kom til dyra og hakan ætlaði bara niður í gólf þegar hann sá mig. Móna kallaði þá innan úr herbergi hver væri komin og þegar ég svo birtist í stofunni var hún alveg jafn undrandi. Þá hafði Sissi bara ekkert verið að hafa fyrir því að láta vita að það væri von á okkur....hehehe. Hann er nú meiri prakkarinn.
Ég brunaði svo heim í sveit og beint í kvöldmatinn. Ekki slæmt þar sem ég hafði ekkert borðað nema eina samloku áður en ég lagði af stað (sökum óstöðugs maga). Sauðburðurinn er ennþá í fullum gangi í sveitinni og því nóg að gera. Mamma er líka búin að vera á fullu að vinna og því hjálpaði ég henni aðeins innandyra.
Afmælisveislan hennar ömmu Góu var svo haldin á laugardagskvöldinu í Sólgarði í Eyjafjarðarsveit. Fínn matur þónokkrar ræður og mikil gleði. Ég hélt að ég myndi sleppa við fyrirhugað skemmtiatriði en svo var ekki. Ég tók því nokkur lög með pabba og Þuru systir. Og auðvitað voru þetta lögin hans pabba. Pabbi spilaði á gítar og söng ásamt okkur systrunum. Þetta var allt óæft og því mis-vel heppnað. Það var reyndar ekki nema eitt lag sem var nú varla klappsins virði en fólk tók viljann fyrir verkið.
Hvítasunnudagur fór í mikið át. Mamma hafði veislumat í hádeginu. Svo skelli hún köku á borðið í kaffinu. Ekki nóg með það heldur var okkur boðið í veislumat til tengdamömmu um kvöldi.... sannkallaður matardagur.
Við notuðum svo mánudaginn í smá afslöppun rúntuðum smá á Akureyri, fengum okkur að borða á Greifanum og lögðum svo af stað suður aftur. Ferðin gekk vel. Við skiptumst á að keyra þar sem Sissi var eitthvað hálf þreyttur. Svo hresstist hann og tók aftur við akstrinum í Borgarnesi. Og við meira að segja ákváðum að renna upp á Akranes því það var svo gott veður og við óvenju snemma á ferðinni.
Nú erum við komin heim. Búin að fara í sturtu og ætlum að fara að horfa á eina mynd eða svo.
fimmtudagur, maí 27, 2004
 
Áhugaleysi
Ótrúlegt hvað nuddarar geta verið lélegir við að gera eitthvað fyrir fagfélagið sitt. Ég sem sagt var að koma heim af BIG-þinginu. Við áttum að vera 4 frá F.Í.H.N. en við vorum bara 2 mættar. Ekki nóg með það heldur voru líka 4 varamenn ef að einhver af þessum 4 kæmist ekki. Og samt vorum við bara 2 sem mættum. Þetta er það sama og gerist þegar boðað er til aðalfundar hjá félaginu. Það mæta 15 úr yfir 200 manna félagi. Mér finnst bara skömm af þessu.
Ég verð nú samt að viðurkenna að ég ætla að gefa BIG séns. Eftir að hafa tekið þátt í þessu þingi er ég margs fróðari um þetta bandalag. Og í fyrsta skipti, frá því að þetta bandalag var stofnað, var mér sagt eitthvað sem gæti mögulega réttlætt aðild að bandalaginu. Og hversu þver sem ég get verið þá hef ég samt alltaf verið opin fyrir þeim möguleika... að skipta um skoðun. Ég er ekki alveg orðin sannfærð en ætla að gefa þessu séns.
 
BIG-þing
Ég er að fara á ársþing Bandalags íslenskra græðara á eftir. Það byrjar kl. 17. Er varla að nenna að fara en...... ég var búin að taka þetta að mér og það er eins gott að standa við það. Ég fer heldur ekki ein svo að þetta hlýtur að reddast. Við erum 4 sem förum fyrir hönd F.Í.H.N. (nuddfélagsins). Og Lissý ætlar að taka mig með sér.
Ég skil nú samt ekki alveg hvernig nokkrum manni datt í hug að senda mig. Ég veit að vísu að ég er ein af fáum sem hafa nennt að gera eitthvað fyrir félagið... en það hlýtur samt að hafa verið einhver annar hæfari í þetta en ég. Ég vil meira að segja helst ekki vera í þessu bandalagi. En mín orð mega sín lítils á móti öllum hinum. Enginn hlustar á mig...snökt, snökt...hehehehehe.
miðvikudagur, maí 26, 2004
 
Gestabók
Ég skil ekki hvað þetta er með að skrifa í gestabókina. Það virðist ekkert ganga að fá fólk til að skrifa. Hún Linda mín er sú eina sem er að standa sig í þessum málum. Enda er hún næstum því önnurhver kvittun....hehehe. Ætli fólk þori kannski ekki að viðurkenna að það hafi verið að lesa þetta bull...hehehehe. Og ótrúlegt en satt þá eru fleiri en ég sem fara inn á þessa síðu mína... ég veit það. Það er nefnilega svoltið sem kallast teljari á síðunni minni. En ég er samt ekkert fúl... bara svoltið sár. Er búin að hafa fyrir því að setja þessa gestabók inn á síðuna hjá mér og enginn skrifar svo í hana.

Og svo annað mál á dagskrá. Ég vil hér með auglýsa eftir einhverjum sem er tilbúinn að gera svaka flott myndaalbúm fyrir mig. Ég er löngu búin að fylla í kvótann á þessu sem ég er með... þess vegna hafa ekki komið neinar nýjar myndir inn á síðuna mína í háa herrans tíð.... Það væri líka í lagi ef einhver væri tilbúinn til að hjálpa mér að gera svona drop down takka.... þá get ég bara bætt við fleiri svona myndaalbúmum eins og ég er með. Það var nefnilega einn vinur minn sem ætlaði að hjálpa mér með þetta.... en viti menn.... hann stakk af til Ísafjarðar. Mér finnst frekar langt að skreppa til hans til að fá hann til að standa við loforðið sitt um að hjálpa mér.
 
Afmælisbörn dagsins



Hún amma Góa á afmæli í dag. Og ekki nóg með það heldur á hún stórafmæli í dag. Hún er nefnilega 70 ára konan. Ég er auðvitað búin að óska henni til hamingju með daginn. En vildi líka skella smá kveðju hér inn. Hún ætlar að halda upp á afmælið sitt á laugardaginn næsta. Þá verður stórveisla í Eyjafirðinum. Og get ég nú alveg trúað því að þá verði nú glatt á hjalla. Þetta er nefnilega frekar glaðvært fólk í samkvæmum se, er af þessari ætt. Já amma mín, Innilega til hamingju með daginn. Njóttu heil.

Svo er það hún Írena Þula. Hún á líka afmæli í dag. En hún er ekki nálægt henni ömmu minni í aldri því að hún er bara 4ra ára í dag. Tíminn líður svo hratt. Mér finnst endilega að það séu mestalagi 2 ár síðan hún fæddist en það var árið 2000. Írena Þula er dóttir Sigrúnar og Begga, vinafólks okkar. En allavega Írena mín innilega til hamingju með afmælið.
mánudagur, maí 24, 2004
 
Sveitastelpan



Ég held að ég geti ekkert neitað sveitastelpunni í mér. Ekki það að ég hafi neitt verið að reyna það. En á þessum árstíma blómstrar hún hreinlega. Það er þetta með lyktina af nýslegnu grasi. Ég gjörsamlega dýrka þessa lykt. Og í mínum huga er ekki komið sumar fyrr en graslyktin fyllir vitin....hehehe. Eins og t.d. þegar ég fór út í morgun. Þá var sól og blíða og allt angaði af nýslegnu grasi. I LOVE IT!!!!!!! Þannig að nú get ég sagt..... það er komið sumar.
sunnudagur, maí 23, 2004
 
Brúðkaupsafmæli


Við Sissi eigum 6 ára brúðkaupsafmæli í dag. Já ótrúlegt en satt. Við giftum okkur 1998, á útskriftardagin minn. Þannig að ég á líka 6 ára stúdentsafmæli í dag. Við ætlum samt ekki að gera neitt í tilefni dagsins. Við kannski gerum bara eitthvað almennilegt þegar við verðum búin að vera gift í 10 ár. Ég trúi því nú samt varla að það séu komin 6 ár. Tíminn er svo fljótur að líða.
 
Fullbókaður dagur
Dagurinn í dag..... eða þar að segja í gær... var alveg fullbókaður hjá mér. Ég reyndar var að kúra.... reyna að sofa..... fram undir 11 í morgun. Gafst þá upp og ákvað að skella mér í góða sturtu. Var svo rétt að klára að gera mig "sæta" eftir sturtuna þegar ég fékk gesti. Það voru þau Sigrún vinkona og Ísak Elí sonur hennar. Þau voru hérna hjá mér alveg þangað til ég lagði af stað í útskriftina hans Jóa.
Eftir útskriftina rétt skutlaðist ég heim og fór svo með Sissa á sportbílasýninguna í Laugardalshöllinni. Mér fannst sú sýning reynar hálf léleg miðað við verðið inn. Þurftum að borga kr. 1000,- á mann.
Fórum á Pítuna og fengum okkur að borða. Og beint af Pítunni í partýið til Berglindar. Hjá Berglindi og Halla var hörku stuð. Fullt af skemmtilegu fólki sem var, undir lokin, orðið mjög mis-ölvað. Sissi reyndar skildi mig eftir í partýinu og var að enda við að ná í mig núna. Ég ákvað nefnilega að fara bara heim þegar hitt liðið var að fara niður í bæ. Ég er orðin of gömul fyrir svoleiðis...hehehehe. Gamla konan ég...hehe. Jæja best að fara að skríða upp í bólið til Sissa, sem þegar er lagstur til hvílu. Kominn tími til að fara að slaka á.
föstudagur, maí 21, 2004
 
Ekki alveg svona saklaus
Varð að taka þetta test. En ég verð þó að viðurkenna að ég trúi þessum niðurstöðum ekki alveg. Þó að ég hafi stundum sagst vera saklaus sveitamær..... þá er ég nú ekki alveg svona saklaus og góð...hmmmmm.... eða ég veit ekki! Það er kannski erfitt fyrir mig að dæma....

Sandy
Sandy!


Which Grease Character Are You?
brought to you by Quizilla

 
Helgarfrí
Jæja þá er komið helgarfrí. Mikið var þetta nú samt indæl vika. Bara vinna 3 daga frí 1 dag og svo vinna aftur bara 1 dag. Vildi að það væru fleiri svona vikur...hehehe. Ekki það að það fer nú fljótlega að líða að sumarfríi... tek nefnilega 1 viku um miðjan júní. Mikið hlakka ég til. Ekki það að mér finnist neitt leiðinlegt í vinnunni, ég er bara komin í þörf fyrir smá frí.


Þessi helgi verður örugglega fín. Fer í stúdentsveislu hjá Jóa Dan á laugardaginn... fer reyndar ein þar sem Sissi er að keppa (í Reykjanesbæ). Og svo förum við í innflutningspartý til Berglindar á laugardagskvöldið. Efast um að ég fari nokkuð í bæinn á eftir... enda er ég mun meiri partýgrís en skemmtistaðabröltari.
Svo eigum við Sissi 6 ára brúðkaupsafmæli á sunnudaginn. Já það eru komin 6 ár. Ég trúi því nú varla sjálf. Það getur nefnilega varla verið að ég sé orðin svona gömul....hehe. Ég veit nú ekki hvort að við gerum neitt til að halda upp á það. En það er þó allavega tilefni ef okkur langar svo til að gera eitthvað.
 
Mótorhjólakappar
Ætli margir mótorhjólakappar hafi byrjað svona???
fimmtudagur, maí 20, 2004
 
Afmælisbarn


Hann Jói minn á afmæli í dag. Jóhann Daníelsson nuddari með meiru....hehehe. Pilturinn er 24 ára en segist ekki ætla að halda upp á daginn. Hann er meira að segja að vinna í dag, þó að þetta sé almennur frídagur. Ég vona samt að hann eigi góðan dag og notalegt kvöld. Til hamingju Jói minn.... Knús og kossar
 
SonyEricsson kynning
Fór á Sony Ericsson kynningu í gærkvöldi. Svaka fjör. Fengum að vita af fullt af nýju og flottu dóti sem er að koma frá þeim. Bara að maður ætti nóg af peningum til að kaupa það sem mann langar í....púff... og það er sko hellingur....hehehe.
Jói, Simmi, Sveppi og Auddi sáu um veislustjórn. Það voru nú misfyndir brandararnir þeirra... en þeir stóðu sig nú samt ágætlega. Góður matur og nóg að drekka.... ég var nú samt bara í kókinu... þar sem ég er svo drykkvönd..hehehehe.
Land og synir spiluðu svo þegar að kynningunni lauk. Fólk var nú orðið mis drukkið en ég var í góðum hóp skemmtilegs fólks og var því mjög ánægð með kvöldið. Hringdi í Sissa rétt um kl. 23 og fékk hann til að ná í mig. Lagðist þá bara fyrir framan sjónvarpið og fór að glápa á dvd.
miðvikudagur, maí 19, 2004
 
Góður
Ég er kannski skrítin en mér finnst þessi góður.
mánudagur, maí 17, 2004
 
Sissi sigurvegari
Sissi stóð sig eins og hetja í keppninni í gær. Vann Super Touring flokkinn (lengra komnir). Ég var nú líka búin að hugsa það að hann yrði að vinna til að bæta fyrir það að vera keppa á afmælinu mínu..hehehehehe.

Einu afmælisgestirnir mínir voru Berglind og Linda.... þær voru svo miklar rúsínur að gefa mér ilmvatn í afmælisgjöf.
Einar og Ása létu svo Sissa færa mér gjöf frá þeim.... pening svo að ég geti keypt mér bara eitthvað sjálf.

Sissi kom svo bara ótrúlega snemma heim af keppninni. Og bauð konunni sinni (mér ;o) ) út að borða á Asíu. Fengum okkur þríréttaða máltíð. Í forrétt höfðum við vorrúllur með grænmeti og súrsætri sósu. Í aðalrétt fékk ég mér Mongólskt naut og Sissi fékk sér kraumandi sjávarrétt. Þetta voru svo stórir skammtar að það var ekki séns fyrir mig að klára. Svo var ég reyndar svo góð að reyna að borða með prjónum.... Sissi var nú samt eitthvað að röfla um það að hann yrði ekkert hissa þó að hann fengi matinn í sig...hmmmm.. ég held að hann hafi ekki trú á mér. Að lokum fengum við okkur ís með djúpsteiktum banana í eftirrétt. Ég var svo södd að það lá við að ég gæti ekki staðið á fætur þegar við vorum loksins búin að borða eftir rúmlega 2 tíma.
Fórum svo og leigðum okkur dvd mynd og horfðum á hana þangað til ég átti ekki afmæli lengur....hehehehe


sunnudagur, maí 16, 2004
 
Afmælisbarn dagsins


Afmælisbarn dagsins er hún Gulla nuddari...hehehehe.. já ég á afmæli í dag. Ég held að ég sé bara 18 ára. Ég skil samt ekki alveg að litla systir mín, sem er 11,5 árum yngri en ég, sé 15,5 ára...hmmmm.... ég er kannski ekki eins góð í stærðfræði og ég hélt.
Sissi minn gaf mér nýjan T610 síma.... ég reyndar keypti hann sjálf á mánudaginn. Mig er búið að langa þónokkuð lengi í svona síma. Og svo ætlar hann að bjóða mér út að borða á Asíu í kvöld... :o)
Súlí vinkona, sem ekki gat verið með mér í dag, gaf mér nýja hliðartösku (veski), í afmælisgjöf, á föstudaginn.

Sissi er að keppa í dag svo að það verður engin veisla... en einhverjar kökur verða á borðum fyrir þá sem vilja kíkja við. Og auðvitað eru allir velkomnir. Ekki vil ég vera einmanna á afmælinu mínu.... hint hint ;o)



Það endaði á því í gærkvöldi að ég hlunkaðist í partýið til Sveinlaugar og Magga. Sissi þurfti nefnilega að fara aftur á verkstæðið, eftir matinn. Ég fór samt ekki fyrr en ég var búin að hlusta á öll lögin. Jónsi stóð sig mjög vel... það var bara lagið sem mér fannst ekki alveg eiga heima í svona keppni. Ég hefði nú sennilega kíkt líka í partýið til hennar Auðar ef ég hefði ekki farið svona seint til Sveinlaugar og Magga. Og vona ég að krúslan hún Auður erfi þetta ekki við mig.
Það var ennþá alveg hörku stuð þegar ég fór heim... rétt fyrir kl 1 í nótt. Verið að spila á gítar og syngja. Ég nennti samt ekki að vera að eyða afmælisdeginum mínu í þreytu svo að ég ákvað að fara samt heim.


laugardagur, maí 15, 2004
 
Gulla dugnaðarforkur



Ég er búin að vera svo dugleg í dag. Byrjaði á því að skrautskrifa inn í eina bók, fyrir fyrrverandi leigusalann minn. Skrapp svo í ljós. Og nú er ég búin að sópa og skúra. Geri aðrir betur. Og klukkan ekki nema rétt rúmlega tvö.
Svo er auðvitað söngvakeppnin í kvöld. Ég reikna nú fastlega með því að vera bara heima í kvöld. Okkur er nú samt boðið í tvö partý og svo mat á þriðja staðnum. En hver veit hvað við gerum .... fer allt eftir stemningunni hjá okkur.

 
Afmælisbörn gærdagsins


Var svo upptekin í gær að ég setti ekkert inn um afmælisbörnin. En það voru þær Anna Sigrún (vinkona og nuddari) og Guðrún (systir Sigurlínu vinkonu) sem áttu afmæli í gær. Það eru nokkur ár á milli þeirra en báðar jafn sprækar. Vonandi hafa þær báðar átt yndislegan dag. Óska ég þeim innilega til hamingju.
miðvikudagur, maí 12, 2004
 
Getraun
Fann mynd af 10. bekk Stórutjarnaskóla, þar sem hún Þura systir er. Þau voru að klára samræmduprófin. Til hamingju með það Þura mín. En endilega ....þeir sem þora... geta upp á því hver þeirra er systir mín...hehehe.
 
Tíminn líður
Rosalega er tíminn fljótur að líða. Við Bryndís Eva skruppum í gærkvöldi í heimsókn til Önnu Sigrúnar. Vorum að kíkja á hann Viktor Örn. Mér finnst vera svo stutt síðan hann fæddist. En viti menn!!! hann er bara orðinn þvílíkt stór... rúmlega 3ja mánaða. Ég fékk meira að segja að halda á honum. Ég held jafnvel að ég hafi verið smá mömmuleg í mér. En það er alltaf voðalega þægilegt að geta skilað börnunum aftur þegar þau hætta að brosa...hehehe.

Sissi er þegar búinn að gefa mér afmælisgjöfina mína. Þó að ég eigi ekki afmæli fyrr en á sunnudaginn. Hann er svo góður við konuna sína. Gaf mér nýjan gsm síma. Mig er búið að langa í þennan síma í langan tíma. Hef ekki tímt að kaupa mér hann þar sem minn sími er í góðu lagi. Ég fór að vísu sjálf og keypti gripinn. Fékk meira að segja smá Símaafslátt. Hann Sissi minn er nefnilega alltaf svo upptekinn. Hefur ekki tíma til að fara í einhverja svona leiðangra. Hann var nú samt búinn að safna fyrir símanum (voða duglegur). Mér finnst hann allavega voða sætur í sér að gefa Gullunni sinni það sem hana langar í. Nú þarf ég bara að fara að læra á nýja símann. Búin að prenta mér íslenskar leiðbeiningar... það fylgdu nefnilega bara útlenskar með.... og þá á ég ekki við enskar.
Ætli pabbi og mamma fái ekki gamla símann minn. Mamma fékk 1. símann minn þegar ég keypti mér þennan sem ég er að leggja á hilluna núna. Hver veit nema að pabbi fái sér líka gsm númer..... það er alveg ómögulegt að hann sé alltaf bara með nmt.... það er miklu dýrara fyrir mig að hringa í nmt en gsm.... á maður ekki alltaf að hugsa um sjálfan sig..hehehehe
sunnudagur, maí 09, 2004
 
Íslenskt próf
Samkvæmt kaffiprófinu er ég
Svart te!
.. þótt það hljómi furðulega.
Hvernig kaffi ert þú eiginlega?


Ekkert skrítið kannski þar sem ég drekk ekki kaffi...hmmmmm

laugardagur, maí 08, 2004
 
Gulla duglega


Ég er ekkert smá stolt af mér..... ágætt að einhver sé það allavega ;o). Fór reyndar með Freyju og Snorra í Kringluna. Freyju vantaði eitthvað til að vera í í 50 ára afmæli í kvöld. Við redduðum því eins og ekkert væri. Fór svo á verkstæðið til Sissa. Það kom nefnilega svo mikil olíulykt af bílnum mínum.... svo að ég bað Sissa aðeins að kíkja á hann fyrir mig. Þetta var ekkert alvarlegt og Sissi ætlar bara að laga það þegar hann fer í að gera almennilega við bílinn minn. Svo skellti hann sumardekkjunum undir bílinn fyrir mig. Kominn tími til..... ekki viss um að löggan yrði neitt voðalega ánægð ef að hún næði mér. Ekki það að það voru nú ekki margir naglar eftir þannig að það skiptir nú varla miklu máli.... en ekki víst að löggan liti á það sömu augum.
En svo kemur það sem ég er svo stolt af mér fyrir. Ég lagaði til í bílnum mínum. Fyrst ég var á verkstæðinu, á annað borð, ákvað ég að þurrka líka innan úr bílnum líka, því að á verkstæðinu eru allskonar sniðug efni til að nota. Þannig að nú er búið að tæma ruslið úr gólfinu, þurrka af inni í bílnum og setja sumardekkin undir. Ég meira að segja fann kúluna af lokknum hans Sissa.... sem hann er með í vörinni. Kúlan datt nefnilega af lokknum hjá honum um síðustu helgi.... þegar við vorum að rúnta á bílnum mínum. Sissi nennti ekki að leita að kúlunni og setti bara brodd á í staðinn. En núna er kúlan komin í leitirnar og vonandi setur Sissi hana aftur á um leið og hann er búinn að hafa tíma til að þrífa hana. Mér finnst nefnilega ekki flott að hafa broddinn...... þá er kúlan mun skárri. Ég er kannski bara svona hallærisleg en þetta er allaveg mín skoðun.
föstudagur, maí 07, 2004
 
Frunsufár
Ég var ekki glöð þegar ég vaknaði í morgun. Er komin með frunsu. Þoli ekki frunsur. Get þó með sanni sagt að þetta sé veðrinu að kenna. Það er samt orðið langt síðan ég fékk frunsu síðast svo að sennilega á ég ekki að vera að kvarta. Hins vegar fékk ég alltaf frunsu tvisvar á ári þegar ég var yngri. Alltaf á vorin og haustin.... í hitabreytingum.
Þar sem það er svo langt síðan ég fékk frunsu síðast, þá átti ég að sjálfsögðu ekkert til að bera á hana (sem ekki var útrunnið). Berglind vinkona var reyndar svo góð að gefa mér smá áburð í vinnunni í dag. En annars komst ég ekki í apótek til að kaupa áburð fyrr en ég var búin að vinna. Og fékk því frunsan mín ágætis tíma til að grassera í morgun.


Þegar ég kom heim áðan, eftir vinnu, þá var póstur í póstkassanum. Ekkert undarlegt við það nema....... það var bréf frá Þýskalandi. Bréfið var stílað á okkur Sissa, bæði, og límmiði aftaná með nafni og heimilisfangi sendanda. Ég bara starði á nafnið og kannaðist ekkert við það. Þegar ég svo opna bréfið er þetta áróður gegn hvalveiðum á Íslandi. Bréfið er meira að segja á Íslensku. Sent frá Greenpeace samtökunum hér á landi til Greenpeace samtakanna úti í Þýskalandi. Þar eru svo einstaklingar sem senda bréfið svo aftur hingað til hins almenna borgara.
Neðst í bréfinu stendur svo: "Nafn þitt og heimilisfang var á lista sem fenginn var frá Þjóðskrá Íslands".
Ég er bara svo hneiksluð á þessu að ég á varla til orð. Ég hef ekki áhuga á að einhver John Doe úti í heimi geti fengið nafnið mitt og heimilisfang og sent mér áróðursbréf..... bara svona af því að þeim datt það í hug.
fimmtudagur, maí 06, 2004
 
Þreytudagar
Ég skil ekki alveg hvað er að koma yfir mig núna. Ég er bara alltaf þreytt. Þetta hlýtur að hafa eitthvað með veðrið að gera... og kannski líka það að ég fer of seint að sofa og sef frekar illa....hmmmmm. Allavega þá skammaðist ég mín eiginlega í dag, þegar ég var að nudda. Það lá við að ég sofnaði á meðan ég nuddaði..... það boðar ekki gott. Ég er ekki viss um að ég sé góður nuddari þegar ég er sofandi. En þetta reddaðist samt allt saman og mér tókst að halda mér vakandi. Ég ætla að reyna að kenna Sissa um þetta allt saman. Hann fékk mig til að horfa á video í gærkvöldi. Byrjuðum að horfa rétt um kl 23:30....ekki beint gáfulegasti tíminn til að byrja að horfa.... Ég ætlaði bara að sofna yfir myndinni. En nei!!!! það er nú ekki gott að sofna yfir "Darkness falls". Ég var alltaf að hrökkva við og Sissi bara gerði grín af mér. Og ég lét hann passa mig í nótt..... fyrir vondu draugunum..... þetta var samt bara svona trikk til að láta hann halda utan um mig...hehehehe ..... en hann veit ekkert um það ;o)
þriðjudagur, maí 04, 2004
 
Tölvuvírus
Við vorum svo óheppin að fá þennan helv.... vírus/orm sem er að skríða út um allt núna. Tölvan alltaf að restarta sér. Þvílíka böggið. Vona að mér hafi tekist að hreinsa hana núna í kvöld..... er búin að eyða öllu kvöldinu í að skanna og update-a tölvuna mína. Skellti svo upp firewall. Vona að þetta skili tilætluðum árangri. Tölvan hefur allavega ekki slökkt á sér ennþá..... sem er nýtt met miðað við síðastliðna daga.
Þessi vírus er skýringin á því að ég hef ekki mikið verið á netinu að undanförnu. Nenni ekki að vera alltaf að logga mig inn aftur og aftur og aftur. Kannski fer ég að bögga alla aftur á msn núna.... ef að meðferðin mín á tölvunni hefur tekist sem skyldi.
 
Afsal
Fórum í gær á fasteignasöluna sem sá um söluna á íbúðinni okkar .... vorum að borga seinni helminginn af útborguninni og kvitta fyrir afsalinu frá seljendunum. Þetta tók bara ca 15 mín. Ég var búin að búa mig undir amk klukkutíma prógramm.
Var reyndar ekki jafn heppin þegar ég fór í bankann til að taka út peninginn fyrir útborguninni. Þegar ég fór í bankann voru EINUNGIS ca 40 manns að bíða á undan mér. Og ég beið og ég beið og ég beið og ég beið.....og ég beið og ég beið og ég beið og ég beið.... osfrv.
En núna erum við allavega búin að borga alla útborgunina og eigum íbúðina OKKAR..... jei jei.

Til að halda upp á þetta skellti ég mér í ljós í gærkvöldi. Og var að vonast til að geta verið með góðan kvöldmat..... en Sissi kom ekki heim fyrr en milli 10 og hálf 11 og þá var ég orðin svo svöng, fúl og pirruð að ég gat ekki verið glöð. Og lét Sissa sjá um að elda. Og hann fékk smá svona sælent trítment fyrir að koma svona seint heim og láta mig ekkert vita...... kannski er ég bara svona vond kona.... mér fannst ég samt alveg í rétti ;o)
sunnudagur, maí 02, 2004
 
Partýkvöld
Fór í innflutningspartý til Önnu Guðnýjar, vinnufélaga. Ætlaði bara rétt að kíkja. Hélt að ég myndi ekki þekkja neinn. Ég mætti, næstfyrst, á svæðið alveg eldhress. Fór fyrr um daginn með Lindu, vinkonu og vinnufélaga, að kaupa gjöfina handa gellunni. Keyptum hnífapör... vitandi það að Önnu vantaði slíkt.... og eina skrautseríu ásamt blómum. Það mættu svo ekki nema örfáir í partýið og ég þekkti alla. Þannig að það endaði með því að ég, sem ætlaði bara rétt að kíkja, fór síðust. Kíkti að vísu líka á vinafólk mitt sem býr í sama húsi og endaði á kjaftatörn úti .... sem stóð í klukkutíma.

Sissi átti að vera að keppa í dag..... en vegna einhvers klúðurs var keppninni fresta. Ég er ekkert voðalega ánægð með það.... því að hún verður á afmælisdaginn minn í staðinn. Ekki nema bara bögg. Þetta leiddi þó til þess að ég fékk að hafa Sissa örlítið lengur hjá mér í dag, heldur en til stóð. Skruppum í Nettó að versla og nú er Sissi rokinn á verkstæðið.

Powered by Blogger