mánudagur, júní 28, 2004
laugardagur, júní 26, 2004
Fyndið
Það er alveg ótrúlegt hvað vindurinn getur gert fólki. Við Sissi fórum áðan í Snælandsvideo til að kaupa okkur ís. Við ákváðum að borða ísana okkar á staðnum. Þegar við svo sitjum þarna í sakleysi okkar kemur inn fullorðinn maður. Ég sný baki í hann en það kemur þvílíki svipurinn á Sissa. Hann segir mér svo að kíkja á manninn sem var að koma inn. Ég reyni að laumast, eins og ég get, til að kíkja. Ó mæ god!!! Vindurinn var sem sagt búinn að hanna nýja hárgreiðslu. Og maðurinn var greinilega, fyrir vindgreiðslu, frekar sérvitringslegur. Þannig að saman varð þetta eiginlega svona Einstein lúkk. Kallinn kemur svo og stendur við hliðina á okkur og horfir út um gluggann. Við Sissi reynum að vera eðlileg og halda áfram að tala um það sem við vorum að tala um. En það var frekar erfitt og á endanum spryng ég úr hlátri. Ég var búin að halda niðri í mér hlátrinum svo lengi að ég var farin að tárast áður en ég sprakk. Og við það, að ég spryng, spryngur Sissi líka úr hlátri. (Þetta er nú sennilega ekkert fyndið fyrir þá sem ekki voru á staðnum og sáu kallinn). En ég gat ekki hamið mig og labbaði því út, alveg að deyja úr hlátri. Ég vona bara greyið mannsins vegna að hann hafi ekki áttað sig á því að við vorum að hlægja að honum. Ég er ekki vön að dæma fólk eftir útlitinu eða gera grín að fólki sem er kannski ekki alveg eins og fólk er flest. En vá!!!! hárið á honum var stóð beint út í loftið þó að hann væri kominn inn úr vindinum. Mig langaði til að taka mynd af kallinum en ég kunni ekki við það. Það hefði sennilega verið aðeins of áberandi.
Það er langt síðan ég hef fengið svona hláturskast og Sissi sagði að honum hefði orðið ill í maganum, hann hló svo mikið.
föstudagur, júní 25, 2004
Ekkert smá dúllulegt
Þura systir sendi mér slóð á geggjað dúllulega síðu. Og það verður að vera kveikt á hátölurnum. Kíkið hér.
fimmtudagur, júní 24, 2004
Gulla tattoo!!!!
Hef nú ekki mikið verið að spá í það hvernig fólk talar um mig í vinnunni. Eða þar að segja hvernig það lýsir mér. Lenti svo í rosalega fyndnu í dag í vinnunni. Þetta er náttúrulega stór vinnustaður og það þekkja ekkert allir alla. Svo er ég bara í kaffi í rólegheitunum og þá labbar einn vinnufélaginn framhjá mér og segir:"Ert þú ekki nuddarinn?" Auðvitað játa ég því. Þá hafði hún ekkert vitað hver ég var og var henni þá sagt að ég væri með tattoo á öxlinni. Þegar hún svo sá mig í kaffinu og sá tattoo-in á mér, mundi hún eftir þessu. Þannig að ef einhver er að velta því fyrir sér hver nuddarinn er þá er það greinilega þessi með tattoo-in. Hehehe.... mér fannst þetta allavega doltið fyndið. En það er sjálfsagt ekkert betra að lýsa mér á einhvern annan hátt. Og þar sem ég er yfirleitt berhandleggjuð í vinnunni (mér er nefnilega alltaf svo heitt) þá sést nú alveg ágætlega að ég sé með tattoo. Hehehehe...... Gulla tattoo....hehehehe.... það er ég!
miðvikudagur, júní 23, 2004
Pabbinn og mamman í gistingu
Gamla settið kom í borgina áðan. Og ætlar að gista hjá mér fyrri hluta næturinnar. Þau eru nefnilega á leiðinni í útlöndin. Nánar tiltekið til Danmerkur. Þau þurfa að vera mætt á völlinn milli 5 og 6 í nótt. Þau eru svo klár líka að þau ætla að gista hjá mér og fá Freyju systir til að skutla sér. Með því móti tekst þeim að vekja okkur báðar í nótt áður en þau fara...hehehehe. Þokkalega klár, hjónin.
Ég var að reyna að kenna þeim á gsm-símann hennar mömmu. Svona svo að þau geti valið sér símafyrirtæki úti. Þeim finnst stundum voða gott að eiga dóttir sem vinnur hjá Símanum...hehehe. Svo prentaði ég út fyrir þau reiki-verðin í Danmörku þannig að þau geta bara verið með allar upplýsingar meðferðis..... Það væri svo dýrt fyrir þau ef þau þyrftu alltaf að hringja í mig til að spyrja mig hvaða fyrirtæki þau ættu að hafa símann stilltan á....hehehehe.
Það fer nú að líða að því að ég neyðist til að skreppa til Danmerkur. Þegar öll familían verður búin að fara nema ég. Freyja systir og Snorri eru búin að fara. Þura systir fór í skólaferðalag til Danmerkur. Og nú eru pabbi og mamma að fara þangað. Þannig að ég er að verða sú eina í fjölskyldunni sem ekki hef komið til Danmerkur. Og það er að sjálfsögðu ekki nógu gott.....hehehehe.... segi bara svona.
Þura systir situr ein heima og gæta bús og dýra. Mér finnst nú líklegt að það verði stöðugt partý allan tímann...hehehe. Er það ekki alltaf svoleiðis þegar foreldrar unglinga eru ekki heima?????
Kisa talar upp úr svefni
Ég er orðin nokkuð viss um það að hún kisa talar upp úr svefni. Ég hef oft heyrt eitthvað svona smá í henni þegar hún er sofandi. En núna um daginn þá mjálmaði hún hátt og skýrt.... og það oftar ee einu sinni. Og ég var alltaf að líta á hana og hélt að hún væri að mjálma á eitthvað. En nei.... hún var steinsofandi í stólnum. Það hefði nú verið svoltið gaman að skilja kisumál þarna. Þá hefði ég getað strítt henni á þessu..hehehehehehe.
sunnudagur, júní 20, 2004
Afmælisbarn dagsins
Það er hann Andri Freyr, sem er afmælisbarn dagsins. Hann er 13 ára drengurinn. Við getum því miður ekki heimsótt hann í dag. En við gáfum honum afmælisgjöfina og óskuðum honum til hamingju á föstudaginn (áður en við brunuðum til Reykjavíkur). Vonum við að Andri eigin góðan dag. Til hamingju með daginn Andri!!!!!
laugardagur, júní 19, 2004
Komin suður aftur
Jæja þá er þessi stutti skreppitúr okkar búinn. Fórum norður á þriðjudagskvöldið. Vorum komin til Akureyrar rétt fyrir tíu. Gistum hjá tengdamömmu. Fjölskyldan mín var í bænum. Freyja systir var nefnilega líka að koma norður.... hún kom með flugi... og voru pabbi og mamma að ná í hana. Að sjálfsögðu var Þura gella með þeim.
Miðvikudagurinn fór í allskonar þvæling. Pabbi og mamma komu aftur til Ak. Voru að skutla Freyju. Hún var nefnilega að halda upp á 10 ára stúdentinn.
Ég fór svo með pabba og mömmu heim í sveit. Sissi varð eftir á Ak. til að hjálpa til við að koma upp keppnisaðstöðunni fyrir framan Icehobby. Ég var svo heppin að ég fékk fiskiréttinn hennar mömmu í kvöldmatinn.
Sissi kom svo og sótti mig og við fórum í 3x30 ára afmæli í Kiðagili. Það voru þeir Maggi frá Úlfsbæ (kærastinn hennar Sigurlínu vinkonu), Erlingur á Hlíðarenda (bróðir Ellu vinkonu), og Siggi á Ingjaldsstöðum sem voru að halda upp á afmælin sín. Þetta var svaka fín veisla. Boðið upp á veitingar og skemmtiatriði. Að borðhaldi loknu var það Johnny King sem hélt uppi fjörinu. Og var dansað og kjaftað fram á nótt. Ég skemmti mér alveg konunglega.
Um nóttina brunuðum við Sissi aftur til Akureyrar. Sissi var svo að keppa á 17. júní. Hann var í 4.sæti í keyrslunni en vann stökkkeppnina. Fékk því bikar. Tilþrifaverðlaun....hehehehe. Reyndar endaði bíllinn bara með 3 hjól....hehehehe.... það er allt lagt í sölurnar.
Auðvitað kíktum við á bílasýningu Bílaklúbbs Akureyrar. Sýningin var óvenju stór þetta árið.... enda er Bílaklúbburinn 30 ára. Við hittum tengdapabba meira að segja á sýningunni. Hann breytti merki Bílaklúbbsins, sem hann einnig teiknaði upphaflega, í tilefni 30 ára afmælisins.
Tengdamamma bauð okkur í lambalæri í kvöldmatinn. Þegar við vorum svo búin að gúffa í okkur öllum kræsingunum (meira að segja grillaður banani með súkkulaði og ís í eftirrétt) var haldið út aftur. Nú var það Burn-out keppnin sem við fórum að sjá. Hún tókst ágætlega..... við lyktuðum nú samt eins og brennt gúmmí á eftir. Og vorum verulega svört í framan. Vorum reyndar á frekar óheppilegum stað á keppninni.... lentum í öllum reiknum og ógeðinu.
Þegar burn-out keppninni lauk drifum við okkur til tengdó, strukum af okkur mestu óhreinindin og héldum aftur í Bárðardalinn. Það var nefnilega komið að framhaldspartýi í Kiðagili. Að þessu sinni var það bara yngri kynslóðin sem var mætt á svæðið. Ekki var minna gaman í framhaldspartýinu en fyrra teitinu. Og það var ekki fyrr en klukkan langt gengin í 5 um morguninn sem við vorum að skreiðast í bólið (þá komin til Ak).
Gærdagurinn fór að mestu í leti. Það var búið að vera svo stíft prógramm hjá okkur allan tímann að þreyta var aðeins farin að gera vart við sig. Það var svo ekki fyrr en um kl. 7 í gærkvöldi sem við lögðum af stað suður. Stoppuðum á ættarmóti rétt hjá Varmahlíð. Ættin hans pabba þar að koma saman. Hjálpaði fjölskyldunni minni við að tjalda. Fékk að borða af nestinu þeirra og svo héldum við Sissi áfram för okkur. Þetta stopp hefur verið rétt í kringum klukkutíma. Á Blönduósi rákumst við á húsbílinn þeirra Einars og Ásu. Við ákvaðum að heilsa upp á þau.... við vorum hvort eð er svo sent á ferðinni að það bíttaði ekki öllu. Stoppuðum þar í hálftíma. Við vorum því þegar búin að vera 3 tíma þegar við fórum frá Blönduósi. Ég held að við höfum sjaldan verið svona lengi á leiðinni......hehehehe.
Eftir þetta var bara keyrt beina leið (smá pissustopp í Brú) til Reykjavíkur. Kisa varð mjög glöð að sjá okkur. Og þetta er í fyrsta skipti sem hún var búin með matinn sem við gefum henni.... gefum henni samt alltaf sama skammtinn. Gáfum kisu því að borða og drekka..... settum tímatökubúnað SBKÍ í hleðslu og drifum okkur út aftur. Maður má nú ekki vera of lengi heima í einu ;o) Þegar við komum heim aftur vorum við með pizzu meðferðis...hehehe...kannski ekki það hollasta að borða um miðja nótt. Skelltum síðustu LOTR myndinni í spilarann og sofnuðum yfir henni.
Sissi var svo farinn á fætur fyrir allar aldir til að gera sig klárann fyrir keppnina í dag. Og er nú í Njarðvík að keppa í Íslandsmeistaramótinu í onroad.
mánudagur, júní 14, 2004
Metallica-tónleikar
Það styttist í Metallica-tónleikana sem við Sissi eigum miða á. Við erum reyndar ekki ennþá búin að fá miðana í hendurnar, en það er búið að kaupa þá. Við sjálf borguðum samt ekki krónu fyrir þá. Einar var svo mikill ljúflingur að gefa okkur miða. Ég er nú samt viss um að Sissi sé spenntari heldur en ég, fyrir þessum tónleikum. Þó að ég hlakki alveg til. Ég hef ekkert verið að halda uppá eina sérstaka hljómsveit... hlusta frekar bara á það sem mér finnst skemmtilegt. Og þar á meðal hlustaði ég helling á Metallica. En Sissi aftur á móti á þónokkra Metallica diska. Ég verð þó að viðurkenna að nýjasti Metallica diskurinn er ekkert í neinu sérstöku uppáhaldi hjá mér. Finnst eldri tónlistin þeirra skemmtilegri.
Ætli þessi verði á tónleikunum???
sunnudagur, júní 13, 2004
Sissi keppnismaður
Jæja það kom að því.... Sissi er farinn að keppa í Off-road líka. Honum nægir ekki lengur að keppa í on-road.... nei nei segi bara svona. Tómstundahúsið lánaði Sissa bíl.... til að auglýsa bílinn.... og þessvegna er hann farinn að keppa líka í off-road. Hann tók eina svoleiðis keppni í fyrra en fannst svo leiðinlegt vegna þess að hann hafði enga samkeppni. Ekkert gaman að vera langt á undan öllum öðrum.
En ég ætla að kíkja á kallinn á eftir. Einar og Ása ætla að skreppa á húsbílnum til Njarðvíkur og kíkja á keppnina. Og þau voru svo indæl að bjóða mér með. Ég hef ekkert nennt að fara með honum til Njarðvíkur þar sem flestar keppnirnar eru núna. Nenni ekki að hanga þar frá því kl. 9 og fram til 6.... og hafa ekkert að gera nema horfa á bílana keyra hring eftir hring eftir hring.....
Endilega þeir sem hafi áhuga kíkja. Keppnin er hjá Go-kart brautinni í Njarðvík. Þar er búið að útbúa fjarstýrðubílabraut...bæði Off- og On-road. Þetta er mjög skemmtilegt sport.... nema fyrir maka þeirra sem eru að keppa..hehehehehehehe. Segi bara svona.
laugardagur, júní 12, 2004
Sumarfrí
Ég er komin í sumarfrí.... að vísu bara í viku... en sumarfrí samt. Það byrjar nú eiginlega ekki vel. Rigning og rok. En hvað get ég sagt..... ég er bara vön því. Það er alltaf rigning þegar ég er í fríi.
Fór áðan í vinnuna.... ekki til að vinna heldur til að skemmta mér. Það var nefnilega smá grill-sumar-gleði. Fengum grillaða hamborgara og pylsur og svo var farið í leiki. Ég tók þátt í boðhlaupi þar sem við áttum að negla nagla í spýtu. Mitt lið vann...hehehe.... þ.e. stelpuliðið. Það var nú samt smá maðkur í mysunni því að það var einhver járnplata í spýtunni hjá strákunum svo að naglarnir þeirra bognuðu alltaf. En við unnum samt...hehehehehe. Þetta var bara gaman þó að það væri rigning.... enginn er verri þó hann vökni.... nema hárið á mér sem fór að sjálfsögðu allt í krullur um leið að það varð rakt. Veit ekki alveg hvers vegna ég var að hafa fyrir því að slétta það þegar ég var búin í sturtunni í morgun. Vitandi það að ég var að fara út í rigninguna.... maður má alltaf láta sig dreyma. Og ég er býsna mikil draumóramanneskja þannig að ég hef afsökun...hehehe.
fimmtudagur, júní 10, 2004
Góðar svalir
Nú er ég loksins búin að prófa svalirnar mínar sem sólbaðsaðstöðu. Reyndar eru þær ekkert voðalega stórar. Tók bara einn eldhússtólinn með mér út. Og viti menn!!! það er bara þvílíki hitapotturinn á svölunum MÍNUM í svona sólskinsveðri, eins og er búið að vera. Sat smá stund úti í gær og svo aftur í dag. Og ég er meira að segja komin með aðeins brjóstahaldarafar. Það getur að vísu vel verið að það hverfi bara þegar mesti roðinn er farinn úr húðinni. Þetta er líka það góða við að vera á 3ju hæð. Maður getur setið úti á nærfötunum einum fata, án þess að trufla umferðina ;o) Ekki vil ég valda umferðaröngþveiti..hehehehe.
Ég hef samt ákveðið að taka því rólega í sólbaðsákefð minni. Held jafnvel að ég hafi lært af reynslunni í fyrra. Þá var ég að vísu ekki í sólbaði heldur var ég bara úti í sólinni. Var að horfa á Sissa keppa. Það var aðeins vindur og því það góð kæling að ég gerði mér engan veginn grein fyrir áhrifum sólarinnar. Frá þeim degin kom ég vel brunnin.....held bara að ég hafi aldrei brunnið svona illa áður. Og ég var ekki ein um að brenna þennan dag. Flestir sem voru að keppa voru einnig brunnir. Munurinn var bara sá að þeir voru að mestu bara brunnir aftan á hálsinum. En ég var í flegnum hlírabol og snéri á móti sólinni. Ég brann því á bringu og höndum.... og það ekki lítið. Er ekki frá því að það hafi verið 2. stigs bruni. Gat ekki mætt í vinnu daginn eftir sökum bjúgs á höndum...... og það er enn talað um þetta við mig í vinnunni. Ég var sú sem flestir hinir í vinnunni lærðu af síðastliðið sumar. Það vildi enginn verða eins og Gulla og því var fólk duglegt að nota sólarvörn.
þriðjudagur, júní 08, 2004
Gítarstilling
Ég var að reyna að stilla gítarinn minn..... Ég vona svo sannarlega að þetta þjálfist upp. Ég er nefnilega alveg vonlaus í því. Ég get svona þokkalega reddað mér að spila... en þegar ég reyni að stilla þá held ég að mitt tóneyra nái ekki svo langt.
Það er búið að vera eitthvað skrölt í gítarnum hjá mér. Ég nefndi það eitthvað við pabba þegar ég var fyrir norðan um daginn. Hann reiknað bara með að þetta væri af því að strengirnir væru of slakir. Hann lánaði mér því svona stilli-flautu sem hann er eiginlega hættur að nota. Og viti menn gítarinn var bara bandvitlaust stilltur...hann var alltof slakur. Og nú fór öll stillingin út um þúfur á gítarnum. Ég fékk nefnilega vin minn til að stilla gítarinn (bara svona innbyrðis) fyrir mig. Og nú er ég búin að rugla því öllu. Þetta kannski gerir ekkert til þar sem ég spila aldrei fyrir neinn nema sjálfa mig. Þannig að það er enginn nema ég sem heyrir að gítarinn hljómar kannski ekki alveg eins og best væri á kosið. En svona er þetta bara.
Ef að það kemur einhver í heimsókn til mín, sem kann eitthvað á gítar, fæ ég kannski viðkomandi til að laga þetta fyrir mig. En þangað til þá verður þetta bara að vera nógu gott....hehehehe.
sunnudagur, júní 06, 2004
Sjómannadagurinn
Yndislegur dagur. Búið að vera sól og blíða í allan dag. Svona eiga allir frídagar að vera.
Fórum niður í bæ og niður að höfn. Þurftum reyndar að leggja bílnum út á granda og labba þaðan... en það er ekkert langt samt. Ég þurfti líka að viðurkenna vankunnáttu mína í fiskafræðum..hehehe. Það voru fiskiker með fiskum og ég þekkti ekki helminginn af fiskunum. En samt gaman að skoða.
Þegar við fórum svo aftur í bílinn fórum við á baðströnd Reykvíkinga....hehehe. Þar voru reyndar alveg ótrúlega fáir. Sennilega hefur fólkið bara verið farið að tínast heim. Enda klukkan þá að verða fimm.
Vorum svo á leiðinni að kaupa okkur ís þegar við renndum í Laugadalshöllina og fórum á Fornbílasýninguna sem þar er um helgina. Mjög skemmtileg sýning. Kostaði reyndar 800 kr inn. En þetta var nú mun betri sýning heldur en sportbílasýningin um daginn svo að ég ætla ekkert að sjá eftir þessum 800 (1600 þar sem við erum 2) krónum. Fengum okkur svo ísinn eftir tæplega 2 tíma rölt á sýningunni.
Vegna þess hvað veðrið er æðislegt þá var auðvitað nauðsynlegt að grilla. Við vorum því með grillað svínakjöt, kartöflugratín, hvítlaukssósu og hrásalat í kvöldmatinn.
Ég verð bara að viðurkenna að þetta er með betri sunnudögum sem ég hef upplifað nýlega. Vona að þeir verði fleiri svona í sumar.
Vorum reyndar að hlægja að því að nú væri eini góði sumardagurinn, í Reykjavík, búinn þetta sumarið. Þannig að við verðum sennilega að fara norður til að upplifa fleiri svona sólríka dag í sumar...hehehehehehe. (Eitt sinn norðlendingur ávallt norðlendingur... og fyrir norðan er alltaf gott veður!!!!!)
laugardagur, júní 05, 2004
Afmælisbarn dagsins
Hún Kristín Linda Helgadóttir vinkona mín á afmæli í dag. Það er nú farið að styttast í stórafmæli hjá stúlkunni því hún er 29 ára í dag. Vonast ég auðvitað til að mér verði boðið í veislu að ári...hehehehe.... þegar hún verður 30.
Ég vona allavega að hún góðan dag í dag og auðvitað alla daga. Innilega til hamingju Linda mín.
fimmtudagur, júní 03, 2004
Sumarið komið
Það er að vísu best að fagna ekki of snemma en..... ég held að sumarið sé komið. Það er búið að vera æðislegt veður. Þó að það sé kannski ekki alveg alltaf sól þá er búið að vera mjög hlýtt. Ég hefði að vísu viljað hafa svona Mallorka veður eins og var fyrir norðan um síðustu helgi. En ég kvarta samt ekki. Maður má nú ekki ætlast til of mikils.... þá verður maður aldrei ánægður.
Þetta er líka búin að vera stutt vika. Sem er mjög gott!!!! Bara einn vinnudagur eftir og þá er komið helgarfrí. Og auðvitað styttist í smá sumarfrí hjá mér.... hlakka ekkert smá til. Ég er alveg komin í þörf fyrir hvíld.... ekki það að ég veit nú ekki hvort að hvíldin verði mikil..... ætli maður snúi ekki bara sólarhringnum við eins og venjulega. Og mæti svo úldnari en fyrir frí í vinnuna eftir frí. Ég byrja bara á einni viku í frí.... maður má nú ekki eyða öllu fríinu strax. Tek svo 3 vikur í júlí og ágúst.... verð að vísu sennilega að nudda eitthvað í því fríi. Er samt ekki alveg búin að ákveða hvað mikið. Maður á ekkert of mikinn pening þessa dagana. Það er ekkert sumarfrí á launum frá nuddinu. Annaðhvort nudda ég og fæ pening eða nudda ekkert og fæ engan pening. Sad but true.
