laugardagur, júlí 31, 2004
 
Afmælisbarn


Hún Sigrún Ósk á afmæli í dag. Hún er 26 ára stúlkukindin. Vonum við að hún hafi átt góðan dag í dag. Innilega til hamingju Sigrún mín.
 
Auka karlmaður
Já það er rétt.... ég er að fá annan karlmann inn á heimilið. Hann Hörður, bróðir Sigurlínu, ætlar að búa hjá okkur í vetur. Mér skilst að hann byrji í skólanum 19. ágúst. Þannig að hann er alveg að fara að koma. Fínt að nýta aukaherbergið svona meðan engin börn eru komin. Það verður líka fínt fyrir mig að hafa 2 kalla til að gera hlutina fyrir mig....hehehehehe. Það er líka ágætt ef að það dregur Súlí oftar í heimsókn til mín....hint hint.... þegar hún er að heimsækja bróður sinn í leiðinni...hehehe. Slá tvær flugur í einu höggi. Ég sagði henni líka að hún mætti alveg gista á nuddbekknum eða jafnvel skríða uppí á milli okkar Sissa. Og að hún væri alltaf velkomin á mitt heimili. Allt mitt er þitt Súlí mín ;o)
föstudagur, júlí 30, 2004
 
Inniveður
Það er ekki beint búið að vera skemmtilegt veður núna í morgunsárið. Brjálað rok og mígandi rigning. Í svona veðri vill maður bara kúra undir sæng. Og af því að ég er í fríi er ég bara búin að gera það.....hehehehehe. Búin að liggja uppi í rúmi og lesa frá því kl. 8 í morgun. Ákvað samt að kíkja á fætur núna til að fá mér eitthvað í svanginn. Maður verður víst líka svangur þó að maður liggi upp í rúmi.
Þetta er nú samt ekki heppilegt veður fyrir þá sem eru að bíða eftir því að komast til eyja...hehehehehehehe. Allir fastir á flugvellinum að bíða. Þá er nú betra að liggja bara uppi í rúmi að lesa.
fimmtudagur, júlí 29, 2004
 
Sumarfrí
Nú er ég komin í algjört sumarfrí. Var að nudda síðasta nuddið áðan. Kem ekki til með að nudda neitt meira fyrr en 16. ágúst. En það er sama dag og ég byrja aftur, hjá Símanum, eftir sumarfrí. Núna eru semsagt að koma 2 letivikur...hehehe. Þura systir verður reyndar eitthvað hjá mér og svona. Ýmislegt sem ég get alveg gert hérna heimavið og svona. En nóg um það. Ég er allavega í vinnufríi :o)
miðvikudagur, júlí 28, 2004
 
Heimilisleg???
Tók daginn snemma. Svo virðist sem að ég sé svo skemmtileg að það þarf alltaf einhver að ná í mig á morgnanna. Sem verður til þess að ennþá hef ég ekki sofið frameftir í þessu fríi mínu.
Freyja systir sendi mér sms um kl. 8:30 í morgun. Og þar sem Sissi var að fara á fætur var ég rumskuð. Forvitnin náði því yfirhöndinni og ég kíkti á símann. Ég reyndi að vera morgunfúl og sagðist ætla að sofa lengur... en hálftíma seinna gafst ég upp og sagði Freyju bara að koma til mín. Reif ég mig á fætur og skellti rúnstykkjum í ofninn...... ekki gera ykkur samt of miklar vonir um að ég sé heimilisleg. Þetta voru svona tilbúin frosin sem þarf bara að baka í smá stund....hehehe. Mér fannst ég samt rosalega dugleg að nenna að ná í þau niður í kjallara í kistuna.
Við Freyja átum rúnstykkin með bestu lyst og drukkum Blöndu með. Eftir þennan ágætis morgunverð skelltum við okkur í sund. Það var nú samt hálf napurt í vindinum svo að við syntum okkur til hita. Skelltum okkur svo í nuddpottinn og soðnuðum þar. Sólin reyndi aðeins að brjótast fram úr skýjunum en varð því miður alltaf að láta í minni pokann. Ég er nú samt viss um að hún hafi bara verið hrædd við sundlaugarvörðinn!!!!!

þriðjudagur, júlí 27, 2004
 
Myndaalbúm
Er búin að vera að fikta eitthvað í myndaalbúmamálum. Náði að setja link inn á nýtt albúm. Skellti þar inn smá sýnishornum af myndum. Get vonandi farið að setja inn einhverjar skemmtilegar myndir við tækifæri.
 
Ljúft líf
Rosalega er nú ljúft að vera í fríi. Ég er að vísu ennþá að venjast því. Skrítið þegar Sissi fer í vinnuna að ég megi halda áfram að kúra. Er reyndar búin að vera frekar dugleg. Tók mig til í gær og þvoði og þvoði þvott. Skipti um á rúminu og snéri meira að segja dýnunni við..... all by my self. En það er nú ágætt að vera bara búin að þessu .... þá þarf ég ekki að vera að hafa áhyggjur af því. Svo að sjálfsögðu er ég búin að vera á fullu að nudda líka. Fer ekki í frí frá nuddinu fyrr en þessi vika er búin. Þá tekur letilífið við....hehehe. Segi bara svona. Þura systir ætlar að vera hjá mér. Ég verð þá allavega ekki ein á meðan. Ætli hún vilji ekki líka fara á eitthvað búðaráp. Hún er að fara að byrja í framhaldsskóla í haust svo að það þarf að fara að kaupa gelluföt og svona...hehehe. Hún er miklu meiri gella en ég hef nokkurntíman verið. Ég hef alltaf bara verið í því sem mér finnst þægilegt. Ekkert svona tísku-kjaftæði!!! Ég er bara sveitó... og stolt af því ;o)
mánudagur, júlí 26, 2004
 
Afmælisbarn dagsins


Fórum í gær í fertugsafmæli hjá Magga frænda hans Sissa. En Maggi á einmitt afmæli í dag. Þar sem við erum svo miklar mannafælur þá kíktum við ekki í afmælið fyrr en aðeins var liðið á daginn svo að það væru meiri líkur á að eitthvað af fólkinu væri farið.... ekki illa meint..hehehe. En þetta bragð tókst líka svona snilldarlega hjá okkur þar sem flestir voru farnir eða að fara þegar við komum. Eini gesturinn sem eftir var, þegar við komum, var Eddi, bróðir Magga og tengdamömmu. Eddi átti einmitt afmæli um daginn. Nánar tiltekið 15.júlí og varð hann 35 ára.
Eddi var í gistingu þannig að það var nú eðlilegt að hann væri þarna ennþá.
Ég notaði líka tækifærið og mátaði litla strákinn þeirra (Magga og Elsu) sem fæddist 1.júlí. Hann passaði bara alveg ágætlega...hehehe... Sissi er nú sennilega ekki á sama máli..hehehe.
En allavega Maggi minn. Innilega til hamingju með daginn. Núna getur þú loksins farið að lesa bókina sem við gáfum þér.
sunnudagur, júlí 25, 2004
 
Þrifnaður


Ég tók út dugnaði vikunnar í morgun. Þreif sameignina!!! Og miðað við það magn af ryki og óhreinindum hefur enginn þrifið svona vel síðan ég þreif síðast. Og það var Sissi sem þreif síðast þegar við vorum með sameignina. Þannig að þið getið rétt ímyndað ykkur hversu mikið ryk var á ljósunum og ruslalúgunum....hmmmmmm.
Ég er samt fegin að ég reyndi ekki að þrífa í gær. Nógu heit og sveitt varð ég í morgun. Samt var mun heitara í gær. Þannig að ég er ekki viss um að ég hefði orkað að þrífa í hitanum í gær. Það þarf eiginlega að hafa opnanlega glugga á sameigninni......en það er að sjálfsögðu ekki möguleiki þar sem stigagangurinn er inni í miðri blokkinni.... þá á ég við..íbúðir á alla kanta. Það eru reyndar gluggar á þakinu. En ég veit allavega ekki til þess að það sé hægt að opna þá.
Ég hefði nú sjálfsagt ekki nennt að vera svona dugleg, á sunnudagsmorgni, ef Sissi væri heima. En hann er í Njarðvík að keppa. Næstsíðasta umferðin í Íslandsmeistaramótinu Off-road.... held ég allavega. Vonum bara að Sissa gangi vel. Held jafnvel að hann eigi möguleika á að verða Íslandsmeistari ef hann vinnur í dag. Mig minnir að hann hafi bara sleppt einni umferð og unnið allar hinar. En annars er minnið nú farið að gefa sig þannig að ég ætla ekki að fullyrða neitt....hehehehe... gamla konan ég!!! Ég er meira að segja orðin svo gömul að ég fann grátt hár, á hausnum á mér, um daginn. Og finnst mér líklegt að það séu nú einhver fleiri. Ég er bara komin með svo mikla rót að það er farið að sjást. Sem þýðir að sjálfsögðu að ég get nú varla farið að bíða mikið lengur með að lita á mér hárið. Hef ekki litað það síðan fyrir árshátíð Símans.... sem var í mars. Og miðað við það að ég sé kvenmaður þá held ég að það sé nú frekar langur tími...hehehehehe.
föstudagur, júlí 23, 2004
 
Sumarfríið byrjað
Jæja það hlaut að koma að því.....sumarfríið mitt er byrjað. Ég var svoltið mikið farin að bíða eftir því. Reyndar byrjaði það nú ekki gæfulega. Þegar ég labbaði út úr vinnunni var byrjað að rigna. Ákvað að kíkja til Freyju systir því hún er líka í sumarfríi. Ég var ekki nema smá stund inni hjá henni en þegar við löbbum út var komin þessi líka svaka rigning. Við fórum nú samt á "Stælinn" og fengum okkur að borða. Ekki dróg úr rigningunni. Þannig að við fórum bara aftur heim til Freyju og horfðum á Shrek 2. Freyja þurfti svo að skreppa í Og Vodafone til að kvarta .... hehehe .... var að spá í að labba inn með henni, í símastakknum mínum. Gerði það nú samt ekki. Heldur fór ég heim.
Þegar þarna var komið við sögu voru göturnar orðnar svo blautar að það var svona tæplega að bíllinn minn þyldi það. Hann nefnilega er vatnsfælinn....hehehe.... þar drapst samt ekki nema 2x á honum. Og hann fór strax í gang aftur.... sem betur fer. Í fyrra skiptið var Freyja ennþá með mér í bílnum en í hitt skiptið var ég komin hérna heim á plan svo að það var ekki 100 í hættunni. Ekki eins og í vetur þegar mamma var með mér og bíllinn dó á ljósum og fór ekkert í gang aftur. Ekki fyrr en Sissi og Bói vorum komnir á svæðið með starttæki og vesen.
En þetta reddaðist allt saman. Þetta bara gerir mig ennþá ákveðnari í því að vera ekki mikið á óþarfa þvælingi þegar það er mikil rigning.... þ.e. meðan ekki er búið að komast að því hvers vegna bíllinn minn þolir ekki bleytu.
Ég ætla nú rétt að vona að þessi dagur hafi ekki verið sýnishorn á því hvernig sumarfríið mitt verður....blautt!!!!
 
Strákur fæddur


Bryndís Eva og Árni eignuðust strák í gær. Kom hann í heiminn kl. 19:05. Móður og barni heilsast vel. Óskum við þeim hjónum innilega til hamingju með soninn.
fimmtudagur, júlí 22, 2004
 
Bara gott um það að segja
Varð að taka eitt test. Hef ekki tekið nein test í langan tíma.

Earth girl
You are a true nature girl!


Which Ultimate Beautiful Woman are You?
brought to you by Quizilla
mánudagur, júlí 19, 2004
 
Styttist í sumarfríið
Jæja loksins er farið að styttast í sumarfríið..... þ.e.a.s. síðari hluta sumarfrísins.  Eftir vikur verð ég nefnilega komin í 3ja vikna sumarfrí.  Verð að vísu að nudda fyrstu vikuna af sumarfríinum mínu....ég er svo eftirsótt...hehehe.  Nei nei... ákvað bara að vera að nudda þar sem þetta er svona rétt fyrir mán.mót og maður á engan pening til að gera nokkurn skapaðan hlut hvort eð er.  En ég verð nú samt að viðurkenna að ég er svoltið farin að bíða.  En núna á ég bara eftir að vinna 4 daga og svo er ég komin í frí...jeijeijei.
Vona bara að veðrið haldist svona gott þegar ég er komin í frí.  Það er búið að vera ótrúlega gott veður nefnilega núna síðustu helgar.  Og það þó að ég sé búin að vera að taka mér nuddfrí á föstudögum.  Þannig að kannski hefur álögunum verið létt af mér.  Í fyrra var nefnilega alltaf rigning þegar ég var ekki að nudda.  Þannig að ég var farin að taka þetta svoltið persónulega.  En þetta virðist allt að vera að koma til.... 7-9-13!!!
 
Sissi er nú reynda með svoltil eftirköst eftir helgina.  Honum nægði ekki að vera úti í sólinni allan laugardaginn að keyra, heldur þurfti hann líka að vera úti allan sunnudaginn að keyra.  Nógu var hann nú brunninn eftir laugardaginn.... og þegar sunnudagurinn bættist við....púfffffff.  

(þetta er bara eftir laugardaginn)
 Er ekki frá því að hann hafi fengið sólsting.  Hann var allavega  að drepast í hausnum og augunum í gærkvöldi og ennþá í morgun.  Og fór ekkert í vinnuna í dag.  Þegar ég svo er að bíða eftir nuddþeganum mínum sit ég úti á svölum...fáklædd í 25 stiga hita(en engri sól).... þá situr Sissi inni vafinn í sæng og er kalt.   Ekki það að ég gæti nú alveg trúað að það gæti verið örlítið kaldara inni en úti þegar maður er með alla glugga opna og svalardyrnar líka.  En samt ekki svo kalt að maður sé vafinn inn í sæng og samt kalt.




laugardagur, júlí 17, 2004
 
Sumarsæla

 
Ja það er nú allaveg ekki hægt að kvarta undan veðrinu sem búið er að vera í dag.  Þvílíka blíðan :o) Maður er orðinn vel rauður aftan á hálsinum og á nefinu.  Það var ekki hjá því komist fyrst að ég stóð úti og var að horfa á Sissa keppa.   Tók nokkrar myndir á símann minn og skellti þeim inn á mbloggið mitt.   Ég var nú samt svo forsjál að ég bar á mig sólarvörn áður en ég fór að fylgjast með kallinum.  En hins vegar bar Sissi ekki á sig sólarvörn og var lengur úti en ég..... Þið getið svona rétt ímyndað ykkur hvernig hann lítur út aftan á hálsinum......púfffff.  Ég bruggaði handa honum smá nornaseyði til að slá á mesta sviðann.... m.ö.o. ég blandaði handa honum kæli/græði-krem.  Það inniheldur:  White lotion, peppermint-olíu og lavender-olíu.  Ég hef að sjálfsögðu mjög gaman af því að blanda krem úr ilmkjarnaolíum.  Og þetta er eitt af fáum kremum sem ég fæ að blanda handa Sissa.  Hann sagði meira að segja áðan, að það væri ekki vond lykt af þessu .... hehehe.  Honum finnt nefnilega ekkert alltof góð lykt af flestum ilmkjarnaolíunum mínum.  Ég er auðvitað löngu orðin ónæm fyrir því hvaða lyktir eru vondar og hvaða lyktir eru góðar.  Mér finnst þær bara misgóðar...hehehe. 
En með þessu kremabruggi mínu fær ég útrás fyrir nornaeðlið í mér......hehehehehehehe.  Þá get ég verið svona næstum því eðlileg flestum stundum. 


fimmtudagur, júlí 15, 2004
 
Bremsurnar í lagi


Ég sá það glöggt í dag, hversu mikilvægt það er að hafa bremsurnar í lagi á bílnum. Ég held nefnilega að fólk hafi tekið sig saman um það að hafa svona "Svínum á Gullu dag" í dag. Ég þurfti því að snarhemla í nokkur skipti á leiðinni heim úr vinnunni. Það voru bara allir að keyra í veg fyrir mig.... eða ætluðu sér jafnvel að koma í hliðina á mér. Og samt var ég nú, aldrei þessu vant, ekki að keyra neitt hratt. Svo að ég sé nú nákvæmari þá voru þetta 5 skipti sem ég þurfti að nauðbremsa. Og er þetta ekki nema 10 mínútna leið úr vinnunni og heim. Það kannski fer bara svona lítið fyrir mér... ég veit það ekki. Þó að ég sé ekki á neitt stórum bíl, þá er ég nú ekkert á þeim minnsta heldur. Þannig að ég veit ekki hvað það var.
miðvikudagur, júlí 14, 2004
 
Þunglyndissjúklingur



Ég er búin að komast að því að ég hljóti að vera þunglyndissjúklingur. Ég allavega skal alltaf muna eftir öllum þeim tilvikum sem ég hef orðið sjálfri mér til skammar. Og trúið mér....þau eru möööörrrrg!!! Og ég get ekki bara gleymt þessu eins og venjuleg manneskja.... nei.... ég skal rifja þetta upp regluleg og núa sjálfri mér því um nasir. Jafnvel þó að það séu mörg ár síðan þetta gerðist, þá skal mér samt takast að skammast mín fyrir það. Þó er ég nú eiginlega viss um að allir aðrir eru löngu búnir að gleyma þessu. En þegar ég er að núa mér þessu um nasir tekst mér samt að telja mér trú um að viðkomandi muni eftir þessu og séu ennþá að hlægja að mér.
Ekki það að ég held svosem að ekkert af þessu sé neitt svakalega alvarlegt. En litla viðkvæma sálin mín er stundum á öðru máli.
 
Misskilningur


Það er alveg ótrúlegt hvað hægt er að misskilja. Held t.d. að ég hafi verið að móðga eina manneskju áðan....eða kannski gefa henni magasár. Fannst það svona allavega af tilsvörunum sem ég fékk. Þetta átti bara að vera svona nett grín..... og gefa til kynna hvað ég væri æðisleg..... var bara svona að henda gaman að sjálfri mér. Sennilega kemur þessi manneskja ekki til með að tala við mig næstu árin. En well..... það verður þá bara að hafa það. Segi bara svona... no hard feelings!!! Þeir taki það til sín sem eiga það.
 
Lúlla kisa
Ég fann hérna eina góða mynd af kisu. Sissi var semsagt rétt búinn að baða hana ....hehehe.
Hún hefði kannski þurft að fara í svona sturtu eftir að hún týndist um daginn. Ég var nefnilega með opið út á svalir og skrapp smá inn í herbergi. Andri var samt í stofunni. Þegar ég kem svo fram aftur þá finn ég kisu hvergi. Og ég kalla og kalla á hana. Leita að henni út um alla íbúð og var jafnvel farin að ímynda mér að hún hefði stokkið fram af svölunum. Og því labbaði ég hringinn í kringum blokkina. En hvergi fann ég kisu. Það var svo ekki fyrr en nokkrum klukkutímum síðar að konan í íbúðinni, sem er með samliggjandi svalir við okkar, spurði hvort að við ættum ekki kött. Ég játti því og þá sagði hún að hún hefði allt í einu fundið kött inni á baði hjá sér. Ég var nú samt búin að loka gatinu sem er á veggnum á milli svalanna svo að kisa myndi ekki fara þar. En hún fór þá bara framhjá veggnum í staðinn.... alveg ótrúleg.


þriðjudagur, júlí 13, 2004
 
Tilraunastarfsemi
Er að prófa eitthvað svona nýtt myndasystem. Photobucket.com. Til að geta sett myndir hérna inn. Nú er spurningin .... virkar þetta?????
Hér á t.d. að koma mynd af okkur stelpukrílunum sem vorum með svona smá stelpukvöld í vetur. Þetta eru þær Sigrún H, Gulla, Súlí og Sigrún V.



Og hér var værðin aðeins farin að segja til sín, eftir vel útilátna máltíð.


mánudagur, júlí 12, 2004
 
Margret Gutlang
Þegar ég var 13 eða 14 ára þá skrifuðum við Súlí vinkona bréf og sendum til blaðsins Mädchen í Þýskalandi. Í þessu bréfi vorum við að óska eftir pennavinum. Við tiltókum nöfn og heimilisföng okkar beggja, áhugamál ofl. ofl. Einhvernveginn tókst blaðinu að rugla þessu allasvakalega. Þeir snéru svo svakalega út úr þessu að ég átti að heita Margret Gutlang. Einnig kom það þannig að í staðin fyrir að ég væri Steinsdóttir þá átti ég heima í Steindörtir. Og sumir tóku því þannig að Súlí héti Lyngholti Bartardal.... í staðin fyrir að ég átti heima í Lyngholti Bárðardal. Algjört klúður.
Einhvernveginn tókst póstinum samt að ráða út þessu og fengum við mörghundruð bréf... sem að sjálfsögðu komu öll til mín. Pósturinn var að koma með svona 30-60 bréf í ferð (þá kom pósturinn bara mán. mið. og föst.). Við Súlí gátum náttúrulega enganveginn svarað öllum þessum bréfum. Dreifðum þeim í skólanum til þeirra sem höfðu áhuga og þónokkuð margir fengu aldrei nein svör. Eitt og eitt bréf var að berast svo í nokkur ár á eftir.
En nú ber svo við að ég var að fá bréf stílað á Margret Gutlang Lyngholti Bartardal. Ég meina.... það eru 13 eða 14 ár liðin. Og svo eitt annað.... við skrifuðum á ensku og tókum það fram að það væri tungumálið sem við myndum skrifa á. Þetta bréf sem ég var að fá í hendurnar í dag (pabbi og mamma áframsendu það úr Bárðardalnum) er á þýsku. Ég myndi nú kannski geta klórað mig í gegnum það.... og er búin að því að einhverjum hluta..... ef það væri ekki svona hrikalega illa skrifað að það liggur við að það væri ógerningu fyrir þjóðverja að lesa það. En ég veit þó allavega að sendandinn heiti Kurt.... en það er nú ekki mikið til að byggja á.
En það er nú bara gaman að þessu..... ekki það að ég færi nú ekkert að fara að skrifast svona mikið á aftur. Pabbi og mamma voru vön að segja um mig:" Sumir safna pennum eða spilum en Gulla safnar pennavinum." Ég átti einhverja nokkra tugi pennavina. Og skrifast ekki á við nema einn þeirra í dag. Og er það komið þannig að ég skrifa á mínu móðurmáli og hún á sínu (hún er Færeyingur).
sunnudagur, júlí 11, 2004
 
Eyða peningum
Það er alltaf jafn gaman að eyða peningum. Verst bara hvað maður á lítið af þeim. Fórum í gær og keyptum gólfmottu undir borðstofuborðið. Í stíl við mottuna sem við keyptum um daginn undir sófaborðið. Fengum mottuna undir borðstofuborðið að vísu mun ódýrari en hún átti að vera.... en við förum ekkert nánara út í þá sálma hér (við borguðum samt fyrir hana). Fórum svo áðan í IKEA.... alltaf hægt að eyða peningum þar. Mig vantaði servéttur og kerti fyrir nuddið, og kaupi það í IKEA. En svo keyptum við líka 3 myndaramma og myndir til að hafa inni í svefnherbergi. Og svo keypti ég líka glerkrúsir til að setja utanyfir blómapotta. Það var nefnilega alveg kominn tími á umpottun á kaktusunum mínum. Ræturnar löngu komnar niður úr þessum litlu pottum sem við fengum þá í. Þetta kallaði náttúrulega á það að við færum í Blómaval og keyptum passlega blómapotta og mold.
Þetta var semsagt allt algjört möst.....hehehehe. Og það, að fá að eyða smá, bjargaði að sjálfsögðu deginum. Þar sem ég var búin að vera ein heima meðan strákarnir voru að keppa. En að sjálfsögðu unnu þeir.... Sissi var í 1.sæti og Andri í 2. Þeir kepptu meira að segja í sama flokk (áttu að vera í sitthvorum en það voru svo fáir mættir að flokkunum þeirra var skellt saman í einn).
 
Vinnu djamm
Það var vinnudjamm í gær...og nótt. Þá erum við að tala bara um þjónustuverið.... ekki Símann sem heild. Þjónustuverið samanstendur af djammgormum og er því stanslaust stuð þegar við erum að djamma. Í þetta skiptið leigðum við okkur bara sal niðri í bæ. Og hver kom bara með sín drykkjaföng. Sem er mjög gott.
Húsið opnaði kl. 18. Við Sissi mættum nú samt ekki fyrr en um kl. 21. Fengum okkur að borða fyrst og svona. Og svo fórum við heima eitthvað aðeins fyrir 1 í nótt. Kunnum ekki við að vera að skilja Andra eftir einan of lengi. Ekki þegar hann er í heimsókn hjá okkur og svona. Svo eru Sissi og Andri líka farnir út í Njarðvík að keppa núna. Þannig að þeir máttu nú ekki fara neitt of seint að sofa.
Megnið af kvöldinu var ég bara grenjandi úr hlátir. Þvílíka stuðið á liðinu sem ég sat hjá. Þar flugu bara brandararnir hægri vinstri.....bæði vinnubrandarar og svo einkabrandarar. Alveg ótrúlegt að augnmálningin hjá mér skyldi komast ósködduð út úr þessu hjá mér. Svo mikið grenjaði ég úr hlátri.
Svo var það nú reyndar á tímabili sem ég var bara komin í það að nudda. Það var einn, sem er að vinna með mér, sem sagði við kærustuna sína um daginn að hann yrði að fara að kíkja á Gullu. Hún varð nú eitthvað hálf hissa og spurði hver Gulla væri. Það eru nú ekkert allir sem vita hver ég er þó að ég sé best..hehehhe. En þegar þessu er bara fleygt svona fram þá kemur nú hvergi fram að það sé til að fara í nudd. Sami strákur sagði líka við mig í gær að við yrðum að fara að hittast...... Sissi stóð við hliðina á mér og nokkrar stelpur. Stelpurnar bentu þessum strák á það að maðurinn minn stæði nú þarna. Þá sagði hann..... "þetta er allt í lagi, ég borga sko". Það er nú líka hægt að misskilja þetta.... ef viljinn er fyrir hendi....hehehehehe. En bara gaman að því.
Þegar líða tók á kvöldið var fólk nú samt orðið mishresst. Enda kannski skiljanlegt þegar sumir voru búnir að vera að frá því upp úr kl. 18.
En þetta var allavega súperkvöld. Verst að það geta ekki allir unnið á svona hressum vinnustað.
föstudagur, júlí 09, 2004
 
Blessuð blíðan
Ekki getur maður kvartað yfir veðrinu eins og það er búið að vera í dag. Og ég meira að segja ekkert að nudda. Bara lúksus líf. Held samt að hitamælirinn okkar hafi aðeins verið að gera gys að mér þegar hann sýndi 44°c. Sissi vildi meina að ég hlyti að vera ölvuð. Að það væru 22°c en ég sæi þetta bara tvöfalt.

Þegar ég kom heim úr vinnunni hoppaði ég í sumarbúninginn. Og dreif Andra með mér út að kaupa ís. Og ég, góða konan, færði Sissa meira að segja ís í vinnuna. Ja, það eru nú ekki allir sem eiga svona góða konu.....hehehehehe. Svo rúntuðum við Andri aðeins. Komum við í Smáralindinni og keyptum nærbuxur á Andra.... okkur finnst frekar leiðinlegt að vera að láta piltinn mylja úr þeim sem hann kom í...hehehehe. Hann er nefnilega búinn að vera þónokkuð lengur en var ráðgert í upphafi. Og var hann því með lítið að fötum til skiptana. Ég var nú reyndar að segja honum að fara bara í sturtu í nærbuxunum. En þá vildi hann meina að þær yrðu hálf blautar á eftir þannig að það yrði óþægilegt að vera í þeim. Ég skil ekkert hvaða sérviska þetta er í drengnum. Að vilja vera í þurrum fötum...jahérna!!!!!
fimmtudagur, júlí 08, 2004
 
Viðbætur
Er búin að vera að bæta inn nýju tenglun á tenglasíðuna mína. Skellti inn bæði nýbyrjuðum, endurkomnum og nýuppgötvuðum bloggurum. Svo skellti ég inn líka nokkrum gítarsíðum. Ég fer svo oft inn á svoleiðis síður til að finna mér eitthvað nýtt að spila. Ég er nefnilega ennþá í þeim pakkanum að vera með textana með gripum fyrir framan mig þegar ég spila. Er ekki nógu örugg með mig. Enda svosem er ég ekki að spila fyrir neina nema sjálfa mig, svo að það skiptir ekki öllu (það er nú að vísu sennilega líka skortur á sjálfsáliti).



Andri litli bróðir hans Sissa er búinn að vera hjá okkur síðan á laugardaginn 3.júlí. Það er svoltið skrítið að vera með einhvern svona inná sér. Sérstaklega þegar maður er vanur að geta labbað bara nakinn út um alla íbúð. Svo held ég nú líka að Andra greyinu hljóti að leiðast. Við Sissi erum að vinna alla daga. Ég kem að vísu heim kl. 13:30 en þá tekur nuddið við. Og Sissi kemur yfirleitt ekki heim fyrr en klukkan að verða 17. Þannig að Andri er bara að leika sér í PS2 allan daginn alla daga. Sissi kemur svo og kippir honum með sér á verkstæðið. Þar sem Sissi heldur áfram að vinna.
Þetta var nú ekki beint heppilegur tími fyrir Andra að koma til að vera eitthvað hjá okkur. En hann var náttúrulega að koma á Metallica tónleikana. Þannig að tímasetningin er miðuð við það.
mánudagur, júlí 05, 2004
 
Sveittir tónleikar


Fórum á Metallica tónleikana í gær. Það var alveg hörkustuð. Við komum rétt áður en Mínus spilaði. Hefðum samt alveg getað komið seinna. Því, að mínu mati, voru þeir alveg ömurlegir. Það voru öll lögin eins..... öskur með sama taktinum. Ég allavega gat ekki greint á milli laga. Og ennsíður greint nokkurn texta við lögin. En þetta er náttúrulega bara mín skoðun.
Húsið fylltist svo alveg þegar fór að líða að því að Metallica ætti að fara að spila. Þeir reyndar byrjuðu ekki alveg á tilsettum tíma. En ég fyrirgef þeim alveg því að þeir stóðu sig svo vel. Við náðum að finna okkur stað uppi á palli.... eða í tröppum til hliðar í salnum. Og því sáum við ágætlega yfir fólkið sem stóð í salnum. Ég verð nú samt að viðurkenna að ég var orðin svoltið þreytt í fótunum þegar líða tók að miðnætti.
Hitinn og rakinn í salnum var þvílíkur að allir voru rennandi sveittir..... þó svo að þeir stæðu bara kjurrir. Og það var verið að hella vatni yfir mannskapinn til að reyna að hressa fólkið aðeins við.
En stuðið var gífurlegt og stemningin geðveik. Hljómsveitin var líka dugleg við að espa fólkið upp í fagnaðarlátum. Og auðvitað fannst þeim Íslendingar æðislegir og lofuðu að koma aftur eftir innan við 23 ár. Við eigum nú samt eftir að sjá það gerast. En ef það gerist þá förum við alveg örugglega og þá verðum við sko á A-svæðinu. Alveg upp við sviðið.....hehehehe.
Þegar tónleikarnir voru búnir röltum við bara í rólegheitunum að bílnum. En það tók okkur klukkutíma, frá því að í bílinn var komið, að komast heim. Við færðumst lengi vel um eina bíllengd á 5-7 mín. fresti. Og vorum því ekki komin heim fyrr en um kl. 01:30. Og verð ég nú að viðurkenna að ég drakk meira en líter af vatni þegar ég var komin heim. Þorstinn var þvílíkur.
En allavega þá voru þetta alveg geggjaðir tónleikar og svo sannarlega þess virði að fara á þá.
laugardagur, júlí 03, 2004
 
Breiðbandið
Jæja við erum loksins komin með breiðbandið aftur..... eða bara sjónvarpið yfir höfðu. Það er búin að vera einhver bilun hjá okkur síðan fyrir meira en mánuði síðan. Og allt þetta græudrasl okkar búið að vera í einhverju klikki. Það allavega lýsti sér þannig að við gátum ekki horft á neitt... ekki einu sinni ruv. Þannig að við höfum ekkert horft á sjónvarpið í meira en mánuð. Ekki það að ég hafi neitt fengið fráhvarfseinkenni. Við horfun nú ekki það mikið á sjónvarpið. Við líka gátum horft á dvd ef við vildum.
Sissi tók sig svo til í gærkvöldi og fór að kíka á allt þetta sýstem hjá okkur. Svo virðist vera sem að videotækið okkar sé eitthvað að gefa sig og ruglaði öllu hinu. Og núna getum við allt í einu farið að horfa á sjónvarp aftur. Það er bara stóra spurningin hvort að maður kann það nokkuð lengur. Maður er orðin svo vanur því að hafa slökkt á þessu kassa sem stendur þarna upp á skáp.
En ég lét allavega setja allan breiðbandspakkan á mig aftur og svo sjáum við bara til. Ef að við horfum ekkert þá náttúrulega hætti ég bara með þetta aftur. Það er nú ekki mikið vandamál fyrir mig, þar sem ég vinn hjá Símanum.

Núna erum við hins vegar að hita upp fyrir Metallica-tónleikana. Eru komin með miðana í hendurnar og bíðum spennt. Og að sjálfsögðu er bara hlustað á Metallica. Keyptum meira að segja Metallica tónleika á dvd. Svaka flott.

Ég þessi saklausa óreynda sveitastúlka er að fara á mína fyrstu alvöru tónleika. Einu tónleikarnir sem ég hef farið á voru með GCD þegar ég var ennþá í gagnfræðaskóla. Og þeir tónleikar geta nú varla talist til alvöru tónleika. Þannig að þetta verður upplifelsi... það get ég nú alveg sagt svona fyrirfram.
 
Meiri upplýsingar
Drengurinn þeirra Elsu og Magga fæddist kl. 07:54 og var 17 merkur og 52 cm.
fimmtudagur, júlí 01, 2004
 
Piltur fæddur


Ég fékk þær fréttir í morgun að Elsa og Maggi (bróðir Mónu) hefðu eignast son. Og mér skilst á öllu að hann hafi verið 17 merkur. Er ekki ennþá komin með nákvæma tímasetningu (en ég fékk fréttirnar kl. rúmlega 9 í morgun). Og einnig vantar mig upplýsingar um lengd drengsins.
Að sjálfsögðu óskum við nýbökuðum foreldrum til hamingju. Og Fanney til hamingju með litla bróa.

Powered by Blogger