laugardagur, ágúst 28, 2004
Ég er svaka "kroppur"
Ég ætla hér með að viðurkenna að ég er alveg svakalegur kroppur. Þá á ég ekki við í þeirri meiningu, sem ég hefði heldur kosið, að ég hafi flottan líkama. Heldur er ég haldin þeirri áráttu að þurfa alltaf að kroppa. Sem þýðir að öll mín sár eru frekar lengi að gróa því að ég kroppa alltaf ofan af þeim. Og fái ég bólur þarf ég alltaf að kroppa þær. Svo ekki sé minnst á greyið Sissa. Ef ég er að klóra honum á bakinu, sem honum finnst MJÖG gott, og finn einhverja "hnökra" þá fæ ég svona fiðring í puttana. Og að sjálfsögðu verð ég að kroppa. Ekki það að hann sér nú yfirleitt um það sjálfur, að kroppa af sínum sárum. En hann nær, að sjálfsöðu, frekar illa á bakið og því finn ég stundum eitthvað við mitt hæfi þar. Ekki það að þar sem ég er nuddari þá er ég nú aldrei með neinar neglur. En mér tekst samt að kroppa. Það er nefnilega allt hægt ef viljinn er fyrir hendi.
Jæja þá er ég loksins búin að viðurkenna það..... Ég er ekki fullkomin. Ég veit að það er erfitt að trúa þessu. En því miður þetta er satt. Ég hef mína galla eins og aðrir....hehehehehehe.
fimmtudagur, ágúst 26, 2004
Afmælisbörn dagsins
Afmælisbörnin mín að þessu sinni eru tvær ungar stúlkur..... ekki jafn ungar og ég samt...hehehe.
Það eru þær Erna og Víví. (Erna Huld Arnardótti Lillendahl og Vilborg Víf Guðmundsdóttir). Þessar snótir eru báðar 28 ára í dag.
Erna er borgarbarn mikið og kynntist ég henni þegar við unnum saman í Bókabúðinni í Mjódd. Náðum alveg ótrúlega vel saman..... kannski af því að við erum báðar svo miklar nornir í okkur.
Víví er hinsvegar flökkudýr mikið. Ég kynntist henni þegar ég var í VMA. Það var meira að segja hún sem kynnti okkur Sissa. Ég hef nú samt ekki séð hana í dágóðan tíma. Stúlkan býr nefnilega í Skotlandi núna og er þar að snyrta hunda (að ég held).
En allavega ég óska þessum elskum innilega til hamingju með afmælin. Knús og kossar.
miðvikudagur, ágúst 25, 2004
Eru geimverur til????
Þessa mynd tók Þura systir á Snæfellsnesinu í gær. Mér finnst þetta vera nokkuð góð mynd af geimveru. Sissi vildi meina að geimverur ættu alltaf að vera grænar. En ég er eiginlega viss um að þetta sé bara stelpu-geimvera.
Ég reyndar var ekki með í för þegar þessi mynd var tekin. En ég væri nú alveg til í að sjá þetta....hehehe. Ég er alveg tilbúin að viðurkenna að geimverur séu til ef ég fæ einhverja sönnun fyrir því. En ég ætla ekkert að vera að berjast við að finna þær sannanir...hehehe.
Jæja það má hver og einn dæma um hvort það hvort þessi mynd sé af geimveru eða ekki.
sunnudagur, ágúst 22, 2004
Ljúf helgi
(þessi sæta mynd er svo tekin af okkur systrunum þegar við erum að skála (í appelsínusafa) í heitapottinum)
Eyddum helginni í sumarbústað í Munaðarnesi. Ekki slæmt það. Pabbi, mamma og Þura verða þar fram á miðvikudag.....eða kannski bara þriðjudag. Held að Þura þurfi að mæta í skólann á miðvikudagsmorgun.
Allavega..... Fórum á föstudagskvöldið í bústaðinn. Vorum komin á góðum tíma í kvöldgrillið...hehehe. Að sjálfsögðu var gítarinn með í för. Og einnig gítarinn hans pabba. Þannig að við vorum að reyna að spila saman.... gekk upp og ofan. Höfum ekki mikið verið að spila saman. Þar sem ég var flutt að heiman þegar ég fékk minn gítar. En ég var að reyna að spila eftir bók sem ég var með, og þá skannski spilaði pabbi bara einhver önnur grip. Þannig að ég tók á það ráð að fylgjast bara með honum..... var því með annað augað á textanum og hitt á gítarnum hjá pabba..... ekki viss um að það hafi verið fallegt að horfa á mig..hmmmmm.
Að sjálfsögðu var potturinn notaður óspart. Eytti hálfum laugardeginum svona í og úr pottinum. Og eyddi góðum tíma í morgun líka í pottinum. Það var nú samt ekki eins hlýtt í dag og var í gær.
Renndum svo upp á Akranes til að sjá flugeldana í gærkvöldi. Fyndið að sjá þetta svona langt í burtu. Við reyndum að skapa okkar eigin stemningu. Vorum 10 saman að horfa.
Eina atriðið sem eitthvað dróg úr gleði helgarinnar var að það var vandamál með vatnið í bústaðnum. Eða eins og mætti orða það....HVAÐA VATN!!! Það rann svo hægt að það tók mann hálftíma að skola shampóið úr hárinu eftir pottferðina. Ekki það að það var nóg vatn í pottinum en það var frekar "náttúrulegt" svo að maður vildi skola af sér á eftir. En við létum þetta ekki slá okkur út af laginu. Og skemmtum okkur konunglega.
Það var svo um miðjan dag í dag sem við komum aftur í borgina. Þurftum að undirbúa komu Harðar inn á okkar heimili..... m.ö.o. moka út úr aukaherberginu..hehehe. Hann er semsagt hér með orðinn heimilismeðlimur hjá okkur og verður það að öllum líkindum fram á vor.
fimmtudagur, ágúst 19, 2004
Afmælisbarn dagsins
Afmælisbarn dagsins er hún Lóló. Lóló, eða Jórunn Kjartansdóttir, er 50 ára í dag. Vonum við að hún hafi átt góðan dag í dag. Innilega til hamingju!!
þriðjudagur, ágúst 17, 2004
Hrossaflugur!!!
Jamms ég á mér veikleika. Ég veit að það er erfitt að trúa því en þetta er heilagur sannleikur. Þessi svakalegi veikleiki er HROSSAFLUGUR!!! Ég bara virkilega þoli þær ekki. Ég virkilega bara fer á taugum við að vita af hrossaflugu í sama herbergi og ég. Og í dag lenti ég í því að það var hrossafluga inni í nuddherbergi á meðan ég var að nudda. Ekki gott!!!! Það var svosem allt í lagi í fyrra nuddinu. Þá var helv... hrossaflugan bara parkeruð í loftinu. En þegar ég var að nudda seinna nuddið....púff.... þá var hrossaflugan búin að færa sig. Nema hvað.... hún var á veggnum við hliðina á nuddbekknum. Ég þurfti virkilega að taka á öllu mínu til að geta nuddað. Og það erfiðasta af öllu var að láta nuddþegann ekki finna að ég var öll á nálum. Það svona lá við að ég sleppti því að nudda fæturnar bara svo að ég þyrfti ekki að standa með bakið í hrossafluguna. Og vita ekkert hvað hún var að gera. En ég lifði af. Vona bara að það komi ekki fleiri hrossaflugur inn í nuddherbergið. Sissi var svo vænn að fjarlægja þess þegar hann kom heim. Hann hlóg nú samt að mér. En málið er að mér finnst þetta ekkert fyndið. Það liggur við að ég myndi frekar vilja vera í herbergi með geitung en hrossaflugu. Og ég vil helst ekki vera í sama herbergi og geitungur. (hef einu sinni verið stungin í rassinn af geitung....ekki gott).
Alvara lífsins
Nú er alvara lífsins tekin við. Sumarfríið búið og ég byrjuð að vinna aftur. Sama gamla rútínan tekin við. Vinna, nudda og sofa. Það er að sjálfsögðu bara ágætt að vera kominn í vinnuna aftur. Engin leti á mínu heimili....hehehehe..... hefði svosem ekkert slegið hendinni á móti nokkrum frídögum í viðbót. En sumarfríið mitt var mjög indælt og því er ég mjög sátt.
Núna erum við búin að vera að breyta heima hjá okkur. Tæma allt út úr auka-herberginu. Hörður er nefnilega að fara að koma. Hélt að hann ætlaði að koma annaðkvöld en hann ákvað að fresta því fram á sunnudagskvöldið. Sem þýðir að við fáum nokkra daga í viðbót til að reyna að laga til....hehehe... ekki veitir af. Ótrúlegt hvað það var þægilegt að setja bara allt þangað inn sem við vissum ekkert hvað átti að gera við. Og nú kemur sú staða upp aftur......hvað eigum við að gera við allt þetta drasl.
Tölvan er núna komin inn í svefnherbergi. Til að það væri hægt þurfti að færa rúmið og kommóðuna. En það leiddi til þess að gítarinn minn fékk miklu betri stað.... og er hann því núna mjög ánægður...hehehe. Nuddlökin mín eru samt heimilislaus núna. Fá ekki lengur að eiga samastað inni í skápnum í aukaherberginu. Er búin að finna smá reddingu en enga lausn. Redding og lausn er nefnilega ekki alveg það sama. En lausnin kemur vonandi þegar meira verður til af peningum á þessu heimili....hvenær sem það nú verður.
Sissi vinnur hörðum höndum að því að búa til meira pláss í geymslunni. Við erum með 14 m2 geymslu og það er svo mikið drasl í henni að það er ekki þverfótað fyrir því. Skil ekki hvernig við fórum að því að ná okkur í svona mikið drasl. Hvað ætli sé í öllum þessum kössum?????? Veit að það eru allavega 3 ef ekki 4 jólaskrautskassar. En það er náttúrulega nauðsynjavara sem ekki er hægt að vera án....hehehehe. Og einn páskaskrautskassi.... líka nauðsyn.
Það er hins vega spurning með fataskápinn, eldhúsborðið og tölvuborðið sem eru niðri. Erum komin með nýtt tölvuborð og nýtt eldhúsborð. Og hvergi pláss fyrir fataskápinn. Spurning hvort að einhver hafi áhuga á að eignast APPELSÍNUGULT eldhúsborð (hringlótt) eða lítið og nett tölvuborð. Endilega látið mig vita!!!
laugardagur, ágúst 14, 2004
Þura farin
Var að skutla Þuru á flugvöllinn áðan. Hún er búin að vera hjá okkur, systrum sínum, í rúmlega viku. Gisti hjá Freyju um helgar og mér á virkum dögum. Það réðst af því að ég var í sumarfríi en Freyja átti bara frí um helgar. Við erum búnar að bralla ýmislegt. Engin lognmolla í kringum okkur. Vona ég nú innilega að Þura hafi skemmt sér vel.
Freyja var að halda upp á afmælið sitt í dag. Átti reyndar afmæli 3. ágúst en hefur ekki haft tækifæri til að halda uppá það fyrr en nú. Fengum kökur og fínerí. Fullt af fólki og mikil gleði.
Sissi var að keppa í On-road í dag. Varð í 3ja sæti. Til hamingju með það Sissi minn. Hann er samt vel brunninn á öxlunum eftir daginn. Er búinn að vera úti í sólinni frá því um kl. 9 í morgun til kl. 19 í kvöld. Og eins og veðrið er búið að vera finnst mér nú ekkert skrítið að hann hafi brunnið. Hann er reyndar að fara að keppa á Hellu á morgun. En það er eitthvað sem er alveg utan við Íslandsmeistaramótið. Ég held að þeir séu 4 sem fara héðan úr bænum.
Jæja er að fara í partý til Gulla fyrir neðan. Held að hann sé ekki eins þreyttur og hann var í partýinu um síðust helgi. Þannig að kannski verður hann ekki farinn að sofa eins snemma og þá. Hann lét partýgestina bara halda áfram að skemmta sér þó svo að hann væri farinn inn í rúm að sofa..... eftir að hafa verið sofandi í amk. klukkutíma í sófanum...hehehehe.
Við erum nefnilega búin að finna ráðið við að halda nágrönnunum góðum þó að haldin séu partý..... bjóða þeim bara líka...hehehe... eða halda partý bara á báðum hæðunum í einu og hafa opið á milli. Þá geta partýgestirnir bara flakkað á milli partýa....hehehehe. Bara gaman að því. :o)
föstudagur, ágúst 13, 2004
Stórhætta
Það er verið að vinna á þakinu á blokkinni minni. Og í dag vorum við bara í stórhættu. Við Þura þorðum allavega ekki að fara út á svalir. Við gátum bara átt vona á því að fá bárujárnsplötu í hausinni eða eitthvað. Ég reyndar varð ekki vör við nema eina bárujárnsplötu koma fljúgandi. Hún stoppaði á gervihnattadisknum á svölunum við hliðina. Ég hefði allavega ekki viljað vera á þeim svölum. Og svo eru alveg fullt af nöglum og drasli á svölunum mínum núna.
Við Þura tókum því bara rólega ... innandyra ... fram yfir hádegi. Andlitið á mér ekki alveg tilbúið til að taka við meiri sól. Brugðum svo undir okkur betri fætinum og fórum niður í miðbæ að skoða í búðir. Að sjálfsögðu fann Þura eitthvað til að kaupa. Þegar við vorum svo búnar að labba fram og til baka fórum við í bókabúðina mína í Mjóddinni. Og keypti Þura sér nýja skólatösku sem hún var búin að sjá þar. Eru á alveg einstaklega góðu verði núna töskurnar frá því í fyrra.
Ég fór svo með Þuru til Freyju eftir kvöldmatinn. En Þura ætlar að gista hjá Freyju síðust nóttina sína hérna í borginni (að þessu sinni). En hún er búin að vera hjá mér síðan á sunnudaginn. Ég kem nú samt til með að skutla henni á flugvöllinn annað kvöld. Vona bara að hún sé búin að skemmta sér ágætlega hérna hjá mér.
fimmtudagur, ágúst 12, 2004
Bara klikkun
Já það er bara klikkun hvað veðrið er gott. Ég kvarta allavega ekki undan veðrinu sem ég fæ núna í sumarfríinu mínu. Ég er allavega þokkalega bráðnuð og þannig á það að vera....hehehe.
Eftir miklar pælingar ákváðum við Þura að fara í sund í morgun. Vorum svona að spá hvort að það væri þorandi. Við vorum nefnilega báðar mjög rauðar frá því í Nauthólsvíkinni í gær. En við stóðumst ekki freistinguna. Vorum c.a. 1,5 klst í sundi. Og ekki minnkaði roðinn við það. Þannig að nú lítum við út eins og epli (allavega ég, Þura er nú kannski ögn skárri).
Freyja tók sér svo frí í vinnunni eftir hádegi. Þannig að það hentaði vel að ná í hana þegar við vorum búnar í sundi. Fórum nefnilega í Grafarvogslaugina.
Það var samt eiginlega of heitt til að gera nokkurn skapaðan hlut. Svo að við lágum eins og klessur í smá tíma (borðuðum reyndar afganginn af grillkjötinu frá því í gærkvöldi....mjög gott. Tókum okkur svo taki og röltum niður í Staldrið og keyptum okkur ís. Það var eiginlega of heitt fyrir ís því að það lá við að við þyrftum bara að drekka hann. Hann bráðnaði nefnilega svo hratt. Freyju ís fór samt verst þar sem hún fékk sér ís í brauði. Við Þura vorum svo sniðugar að fá okkur ís í boxi. Og því lak hann ekki út um allt...hehehe. Þegar við vorum búnar að tölta okkur aftur heim nenntum við ekki að fara inn. Við fundum okkur því góðan stað í brekkunni fyrir ofan blokkina. Og sátum þar góða stund og spjölluðum saman. Það var nú fín systrastund. Það er ekki oft sem að við erum allar systurnar saman að tjilla.
miðvikudagur, ágúst 11, 2004
Grillaðar systur
Við Þura, systir, fórum í Nauthólsvíkina í morgun. Ég hélt að það væri nú tiltölulega fáir komnir fyrir hádegin. En sú var ekki raunin. Það var ekki séns að fá bílastæði neinstaðar nálægt. Við létum það nú samt ekki á okkur fá. Fengum okkur bara smá göngu í leiðinni. Við vorum þarna í geggjuðu veðri í u.þ.b. 4 klst. Sem þýðir að við erum nett grillaðar báðar tvær.
Það bættist við fólk svona jafnt og þétt yfir daginn. Og þegar við vorum að fara (eitthvað um kl. 15) þá var bara allt orðið troðið (sjá mynd).
Þar sem ekki var gáfulegt að vera meira í sólinni fórum við í Kringluna. Þura keypti sér einhver föt. Gellan er nefnilega að byrja í VMA í haust. Og ekki viljum við að hún sé púkó....hehehehe.... ekki miklar líkur þar sem hún er systir mín...hehehehe.
Þegar Kringlan lokaði fórum við og keyptum svínahnakka á grillið. Og grillmeistarinn Sissi er nú að grilla af sinni alkunnu snilld. Ég er þegar komin með vatn í munninn.
mánudagur, ágúst 09, 2004
Sissi hetja
Sissi minn var að keppa í gær í Off-road. Og að sjálfsögðu vann hann. Það þýðir að hann er orðinn Íslandsmeistari í Off-road. Það er nú munur að vera gift svona klárum karli.
Hann er svo að fara að keppa á laugardaginn næsta í On-road. Hann er nú ekki eins ofarlega þar en gæti samt átt möguleika á verðlaunasæti (svona ef að hann stendur sig mjög vel). Hann er bara búinn að vera í vandræðum með bílinn sinn. Fékk nýjan bíl í vor og er búinn að vera í vandræðum með hann síðan. Það eru alltaf einhverjar truflanir í honum. Sem þýðir að þegar Sissi er að reyna að hægja á þá kannski fer bíllinn bara hraðar og beygir eitthvað..... auðvitað er þetta bara svona dæmi... Sissi veit aldrei hvað gerist næst eða hvenær það gerist.
Hann hefur vonandi einhvern tíma til að kíkja á þetta í vetur meðan lítið er um keppnir. Margir hafa samt reynt að stinga upp á því hvað þetta gæti verið en allt kemur fyrir ekki.
En engu að síður er ég mjög stolt af mínum manni. Og óska ég honum innilega til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn. :o)
sunnudagur, ágúst 08, 2004
Óvissuferð
Eyddum viku í ferðalag um Ísland. Ekkert ákveðið fyrirfram nema að við færum hringinn.
Lögðum af stað úr Reykjavík um kl. 14 laugardaginn 31.júlí. Ákváðum að byrja á suðurlandinu. Þegar við vorum komin í Selfoss ákváðum við að kaupa okkur kort af Íslandi. Enduðum á svona sniðugri Ferðakortabók frá Landmælingum. Þægilegra en að vera að reyna að lesa stórt kort í bílnum.
Fórum aðeins til baka og fórum á Geysi og Gullfoss. Komum svo Flúðaleiðina til baka á Þjóðveg nr. 1. Kortið var lesið og jafnóðum ákveðið hvert haldið skildi næst. Skoðuðum að sjálfsögðu Seljalandsfoss og Skógafoss. Og löbbuðum upp að Sólheimajökli. Einnig skoðuðum öll þorpin sem á leið okkar urðu. Um nóttina tjölduðum við í Skaftafelli. Veðurguðinn var aðeins að stríða okkur. Fyrsti dagurinn var reynda ágætur. Það rigndi aðallega á meðan við vorum í bílnum en svo stytti upp þegar við fórum að labba og skoða eitthvað. Það rigndi hins vegar að mestu annan daginn. Það var þegar við vorum að keyra alla Ausfirðina. Við létum það samt ekki aftra okkur og þræddum alla firðina. Fórum meira að segja fram og til baka leiðirnar á Eskifjörð - Neskaupstað og Seyðisfjörð. Enduðum svo í góðu veðri á Egilsstöðum og tjölduðum þar.
Við ákváðum reyndar að sleppa Borgarfirði eystri, Vopnafirði, Bakkafirði, Þórshöfn, Raufarhöfn, Kópaskeri, Ásbyrgi og Húsavík úr í þetta skiptið. (Mamma er ættuð frá Þórhöfn og Helga, systir pabba, átti heima, á tímabili, Kópaskeri og því hef ég mjög oft komið á þessa staði). Skelltum okkur í staðinn að skoða Dettifoss og Dimmuborgir. Og eins og sönnum túristum sæmir kíktum við líka á Goðafoss áður en haldið var inn í Bárðardalinn. Gistum hjá pabba og mömmu eina nótt. Skruppum reyndar um kvöldið á Hótel Kiðagil til að heilsa upp á Súlí og Magga.
Á þriðjudeginum létum við okkur nægja að fara til Akureyrar. Og gistum eina nótt hjá tengdamömmu. Eftir að hafa fengið okkur Greifapizzu (og hlustað á jólalög á meðan) í hádeginu á miðvikudag héldum við för okkar áfram. Þegar við vorum komin að Dalvíkurafleggjaranum ákvaðum við að fara þá leið. Skoðuðum Dalvík og Ólafsfjörð. Keyrðum yfir Lágheiði og skruppum á Siglufjörð. Skoðuðum að sjálfsögðu Sílarminjasafnið. Fórum einnig á Véla- og samgönguminjasafnið á Stóragerði í Skagafirði. Hofsós, Sauðárkrókur, Varmahlíð, Skagaströnd, Blönduós og Hvammstangi voru skoðuð og svo tjaldað á Borðeyri. Við tókum nefnilega þá ákvörðun að kíkja eitthvað smá að Vestfirðina líka því að við höfðum smá tíma aflögu...hehehe.
Þegar á Vestfjarðarkjálkann var komið gátum við auðvitað ekki hamið okkur og þræddum alla staðina. Slepptum reyndar Drangsnesinu úr. En kíktum á Hólmavík, keyrðum yfir Steingrímsfjarðarheiðina og niður í Ísafjörð. Í Ísafjarðaránni sáum við sel vera að flatmaga í sólinni. Hann stakk sér samt á kaf þegar við ætluðum að reyna að taka mynd af honum. Síðan keyrðum við yfir Eyrarfjallið (í staðinn fyrir að kíkja á Reykjanes) og komum niður í Mjóafirði. Keyrðum svo sem leið lá (þræddum alla firðina) alla leið til Súðavíkur. Og svo til Ísafjarðar. Á Ísafirði ákvaðum við að stoppa smá stund og löbbuðum þar um og skoðuðum. Ísafjörður var sá bær sem kom mér hvað mest á óvart. Ég var einhvernveginn búin að afskrifa Ísafjörð sem eitthvað krummaskuð en hann reyndist svo bara vera hinn fallegasti bær og mun stærri en ég hafði ímyndað mér. Eftir að hafa slakað smá á á Ísafirði héldum við för okkar áfram. Hnífsdalur, Bolungarvík, Suðureyri allt skoðað. Á Flateyri sýndi Sissi mér hvar hann hafði unnið og búið. Einnig hvar hann var vanur að skemmta sér meðan hann var þar. Þingeyri, Bíldudalur og Tálknafjörður skoðað þar á eftir og tjaldað á Patreksfirði. Og vil ég endilega koma því á framfæri að við fórum á veitngastaðinn Þorpið á Patreksfirði og fengum frábæra þjónustu. Þó að búið væri að loka grillinu og alveg verið að fara að loka, fengum við samt að borða. Það var bara kveikt á mínútugrillinu og djúpsteikingarpottinum fyrir okkur og allt með bros á vör. Mæli ég því eindregið með þessum stað... Veitingastaðurinn Þorðið á Patreksfirði!!! Þrátt fyrir hávaðarok sváfum við bara ágætlega á Patreksfirði og héldum ekki af stað fyrr en um kl. 11. Þegar við vorum svo alveg að fara að leggja í Kleifaheiðina tókum við þá skyndiákvörðun að skreppa út á Látrabjarg. Mig langaði svo að kíkja þangað. Ég hefði nú sennilega hugsað mig tvisvar um ef ég hefði vitað fyrir hvernig vegurinn var. En það var tímabil sem ég var virkilega að spá í það hvort að bíllinn myndi ekki detta í sundur....hehehe.... en að sjálfsögðu stóð bíllinn okkar þetta af sér. Tókum okkur líka góðan tíma á minjasafni á Hnjóti. Og fyrst við vorum hvort eð er á þessum slóðum kíktum við líka yfir á Rauðasand. Þegar á Barðaströndina var komið heilluðumst við alveg af fjörunni og lögðum bara bílnum. Nutum við þess í dágóða stunda að rölta bara þarna á ströndinni. Og ekki skil ég hvað Íslendingar eru að fara erlendis á sólarströnd. Það ætti bara að koma upp góðri "Baywatch" aðstöðu á Barðaströndinni og þá væri bara komin hin fínasta sólarströnd..hehehe. Við ætluðum aldrei að tíma að fara af ströndinni en þegar við loksins komum okkur af stað héldum við sem leið lá í Búðardal. Þegar þangað var komið fór að hellirigna. Við höfum sennilega verið komin of nálægt Reykjavík á þeim tímapunkti. Við geymdum Snæfellsnesið til betri tíma og ókum alla leið til Reykjavíkur með smá skoðunarferð um Borgarnes. Á þessari viku ókum við rúmlega 3000 km.
Þó að þessi ferð hafi verið alveg æðisleg og við notið hennar til fullnustu þá var nú samt ofboðslega gott að komast aftur í sitt eigið rúm.
Inn á myndasíðuna mína er ég búin að segja link á nýtt myndaalbúm sem er bara með myndum úr þessari ferð og einnig eru nokkrar myndir inni á mblogginu mínu.
föstudagur, ágúst 06, 2004
Komin heim úr langferð
Vorum að koma heim úr ferðalagi. Set inn ferðasöguna og myndir við fyrsta tækifæri.
Klikk í kerfinu
Það virðist eins og eitthvað hafi komið fyrir teljarann minn. Hann er aftur byrjaður á 1....hmmmm.
Afmælisbörn
Þar sem ég er búin að vera að heiman hef ég ekki getað sett inn afmælisbörnin. En hér koma 2 ungar stúlkur.
Afmælisbörnin eru því: Járnbrá Björg, frænka mín, sem varð 30 ára þann 1. ágúst sl. og svo hún Freygerður Jóhanna, systir mín, sem einnig varð 30 ára. Freyja átti hins vegar afmæli 3. ágúst. Óskum við þeim gellunum innilega til hamingju með afmælin sín. Vona að þær hafi átt góða afmælisdaga.
