miðvikudagur, september 29, 2004
 
Þrjár nornir hf


Ég veit ekki alveg hvernig það vildi til, en af einhverjum ástæðum rifjaðist þetta upp fyrir mér. Þrjár nornir hf. Þetta var teiknimyndasería sem var í sjónvarpinu þegar ég var lítil..... barnaskóla lítil. Og við vorum 3 vinkonurnar sem kölluðum okkur þetta alltaf. Ekki það að það á nú ágætlega við mig í dag að vera kölluð norn.... ég er nefnilega hálfgerð norn.... þá á ég samt við í góðri merkingu.
Alltaf gaman að rifja upp svona skemmtilega atburði sem gerðust í "gamla daga". Ekki það að ég hef samasem engin samskipti við aðra að þessum tveimur vinkonum mínum sem voru með mér í þessu nornafélagi. Og það er góð ástæða fyrir því, sem ég ætla samt ekki að fara að tala um hér..... vil ekki sýnast bitur kona. En hin snótin er mín besta vinkona. Og sjálfsagt er hún líka örlítil norn í sér ennþá...hehehe.
mánudagur, september 27, 2004
 
Helgin
Þessi nýliðna helgi var nú bara hin ágætasta. Hún byrjaði reyndar mjög rólega. Notaði laugardaginn til að ná mér niður eftir vikuna. Fór seint á fætur og skrapp svo í langa og heita sturtu...breytti baðherberginu semsagt í gufubað....hehehe. Dundaði mér svo við að gera mig sæta....allavega sætari. Settist eftir það bara niður með bók í hönd og tók því rólega. Klukkan 18:30....á slaginu.... vorum við svo mætt í mat til Einars og Ásu í Grafarvoginum. Þetta var svona matarboð sem var notað sem yfirskin til að fá Sissa í heimsókn. Þau vantaði nefnilega aðstoð við að tengja nýja breiðbandslykilinn sinn....hehehe. Ekki það að þetta var nú alveg ljómandi matur og borðaði ég á mig gat. Það var boðið upp á rósavín með matnum.....en drykkvanda Gulla tók einn sopa og helti svo restinni í glasið hans Sissa. Þá gat ég fengið mér kók í glasið mitt. En Sissi greyið, sem er nú ekki alveg eins drykkvandur og ég, gat ekki heldur drukkið úr glasinu sínu.
Eftir matinn brunuðum við svo heim og Sissi hoppaði í snögga sturtu og svo var það partý. Eða kannski frekar svona hitterí. Trausti er nefnilega loksins búinn að koma baðherberginu í stand. Sigrún og Gulli voru líka í bænum og því um að gera að skella á einu partýi. Ekki seinna vænna að byrja partýhöld vetrarins.
Við Sissi fórum í partýið með Herði. En Hörður ákvað að gista hjá Trausta þannig að við Sissi bara löbbuðum heim. Vorum ekki nema rétt um 40 mín....partýið var rétt hjá American style í Kópavoginum.
Á sunnudaginn var ég svo bara algjör orkubolti. Tók til við þessi föstu helgarverk heimilisins. Tók gjörsamlega allt í gegn. Og það var ekki nóg með að ég skúraði alla íbúðina heldur tók ég sameignina líka. Það var reyndar komið að Sissa að taka sameignina en þar sem ég var hvort eð er komin af stað með ryksugu, skúringargræjur og tusku munaði ekkert svo mikið um að taka sameignina með.
Þegar ég var loksins búin að taka allt í gegn var kominn tími til að huga að kvöldmatnum. Fór ég því strax að huga að honum.... steikti þessar dýrindis kjötbollur. Þær voru allavega ekki verri en svo að allir borðuðu á sig gat. Svo þegar búið var að ganga frá eftir matinn var loksins komið að því að ég settist niður. Súlí skellti svo lit í hárið á mér..... sem var nú kannski alveg orðið tímabært þar sem rótin var eiginlega varla orðin rót lengur heldur helmingurinn af hárinu.
Nú er svo ný vinnuvika hafin og eins og alltaf er lítið gert annað en vinna og nudda. Eldaði reyndar kjúklinga-snitsel í kvöldmatinn. Og það var nú bara alveg ágætt. Hef aldrei prufað svoleiðis áður og var nú bara nokkuð ánægð með útkomuna.
Súlí og Maggi kíktu svo í heimsókn. Maggi var nefnilega að koma í bæinn og var með kjöt sem þurfti að komast í frost.
föstudagur, september 24, 2004
 
Nýr prentari
Fórum í dag og keyptum okkur nýjan prentara. Þetta gekk eiginlega ekki lengur. Það voru komin svo svakalegt hljóð í greyið gamla prentarann. Maður var eiginlega farinn að vorkenna honum.... svona fyrir utan það hvað hann prentaði illa. Enda svosem fylgdi hann bara með tölvunni þegar við keyptum tölvuna okkar notaða (fyrir 1 og 1/2 ári síðan). Núna get ég því loksins prentað mér ný nafnspjöld. Að vísu var líka disklingurinn, sem var með nafnspjaldauppsetningunni minni, týndur. Þannig að ég bað Jóa Dan. að senda mér einhverja nafnspjaldauppsetningu sem ég gæti svo sett inní upplýsingarnar um mig og F.Í.H.N.-logoið.
Það var ekki orðið seinna vænna að fara að prenta nafnspjöldin. Það stendur nefnilega til að vera með einhverskonar nuddkynningu í vinnunni. Við erum 4 sem erum lærðir nuddarar sem vinnum hjá Símanum. Og núna er heilsuátak í gangi hjá Símanum og því algjör snilld að kynna nudd fyrir samstarfsfólkinu. Og auðvitað má þá ekki vanta nafnspjöldin ef að einhverjir hefðu áhuga á að skella sér í nudd.

Vikan er búin að líða svona stóráfallalaust. Sissi var orðinn "hress" strax á þriðjudaginn.....enda ekkert stórvægilegt sem læknarnir gerðu við hann. Súlí losnaði við sínar umbúðir á miðvikudaginn og er nú bara eins og hún hafi fengið vænt högg í andlitið.
Það fylgir víst haustinu að þurfa að skafa af bílunum á morgnanna og lentum við í því í gærmorgun. Ég var alveg búin að búa mig undir það að þurfa að skafa líka í morgun en það slapp. Í staðinn var komin þetta klikkaða veður....rok og úrhellis-rigning. Var ég því á nálum alla leiðina í vinnuna. Bíllinn minn er nefnilega ennþá í ólagi. Þolir ekki mikið vatn. En ég komst í vinnuna án þess að bíllinn dræpi á sér á leiðinni. Svo var orðið miklu þurrara þegar ég fór heim eftir vinnu og þurfti því ekki að hafa eins miklar áhyggjur þá.
Linda krútt var svo yndisleg að nudda mig í vinnunni í dag. Ekki veitti af. Ég þyrfti endilega að fara að koma mér í nudd. Hef ekki gefið mér tíma til að gera eitt eða neitt, fyrir sjálfa mig, upp á síðkastið.
Mér var send slóða á verðskrána hjá Laugar spa.... og púff.... ég segi nú ekki annað. Þau eru að rukka kr. 1.300,- fyrir 10 mín nudd. Væri ég ekki bara milli ef að ég rukkaði, þó ekki væri nema bara, kr. 500,- fyrir hvert 5 mín nudd sem ég nuddaði samstarfsfólkið í vinnunni. Og 10 mín..... það tekur því nú varla að leggjast á bekkinn fyrir það. Ég trúi bara ekki að nokkur kaupi þetta nudd hjá þeim. Ég býð ekki einu sinni upp á 30 mín nudd því mér finnst ekki taka því að byrja að nudda fyrir 30 mín. (auðvitað eru alltaf undantekningar á öllu og ef að ég væri grátbeðin gæti vel verið að ég tæki svona stutt nudd).
En allavega best að fara að horfa á dvd með strákunum
mánudagur, september 20, 2004
 
Hjúkrunarheimili og sjúkraflutningar Gullu
Tók að mér í dag að ferja fólk heim, til mín, frá sjúkrastofnunum. Þá á ég við að þegar ég var búin að vinna þá fór ég og náði í Súlí á Landsspítalann. Hún var að koma úr aðgerð. Það var nefnilega hætt við að láta hana sofa eina nótt þar. Og þar sem ég vildi ekki að hún yrði strax ein heima ákvað ég að taka hana með mér heim til mín. Það spjölluðum við smá og svo fór ég að nudda. Þegar ég var búin að nudda (þetta eina nudd sem ég var með í dag) fór ég niður Mjódd til að ná í Sissa sem var að koma úr magaspeglun og mátti ekki keyra heim..... þó að þetta sé stutt það var hann einfaldlega í engu ástandi til að keyra. Og nú var ég að koma frá því að skutla Súlí heim til sín svo að hún geti farið snemma að sofa. Sissi hins vegar lagði sig eftir að hann kom heim og situr núna fyrir framan sjónvarpið hálf druslulegur.....ekki illa meint.

En það er af helginni að segja að hún var bara alveg ágæt. Laugardeginum eyddum við í leti. Mjög ljúft svona til tilbreytingar. Ég reyndar var vöknuð um kl. 9 og fór þá bara að lesa. Skrapp í sturtu um kl. 14 en klæddi mig ekki fyrr en klukkan að verða 17. Sissi hins vegar fór ekki í sturtu fyrr en eftir það og var því að klæða sig ennþá seinna en ég. Það er voða ljúft að taka svona kúridag. Fórum svo að borða á American style. Og smá á rúntinn á eftir. Enduðum svo uppi í videoleigu og tókum tvær myndir á leigu. Það voru "Monster" og "Mystic river" báðar frekar svona niðurdrepandi myndir. En fínt að horfa á þær fyrir því.
Eftir svona rólegan laugardag tók ég góð heimilisþrif á sunnudaginn. Var alveg að taka mig vel út sem húsmóðir. Þvoði þvott, fór í Nettó að versla og hvaðeina. Ég held að ég geti bara verið nokkuð sátt. Ég sem sagt tók það út á sunnudeginum sem ég er vön að dreifa á bæði laugardag og sunnudag. En núna sá ég allavega að ég get þetta alveg og má því stundum eiga letidaga. Ekkert að því.
föstudagur, september 17, 2004
 
Besti vinur
Við Súlí eyddum seinni hluta dagsins í dag saman. Það er því miður ekki nógu oft sem við gefum okkur tíma til þess. En í haust eigum við einmitt 20 ára vinaafmæli..... við erum samt bara 17 ára..hehehehe. Auðvitað ætlum við að halda upp á það.... erum ekki alveg búnar að plana það út í ystu æsar ennþá.
En allavega..... fórum fyrst á smá búðabrölt. Fórum svo í barkarí og keyptum okkur sætabrauð....namminamminamm. Einnig fórum við í Nettó og keyptum okkur hráefni í kvöldmatinn. Komum svo hingað heim, skelltum sætabrauðinu á borðið ásamt mjólk og kókómjólk og horfðum á eina góða grátimynd.... Mighty Joe Young. Elduðum svo þennan dýrindis kjúkling..... sem rann mjög ljúflega niður ásamt meðlætinu. Í eftirrétt var svo súkkulaði og mjólk. Svo erum við búnar að spjalla og spjalla eins og okkur einum er lagið..... um allt og ekkert.
Ég vildi óska að allir ættu eins góðan vin og við Súlí erum hvor annari. Ég er ekki viss um að ég væri sú manneskja sem ég er í dag ef Súlí hefði ekki alltaf verið til staðar fyrir mig...... jæja nú er ég kannski farin að vera aðeins of væmin.
Altént.... ég var að koma heim núna eftir að hafa skultað Súlí heim. Því greyið stúlkan þarf að fara í einhverja skóla-vettvangsferð á morgun. Og ekki vil ég hafa það á samviskunni að hún sé þreytt og illa upplögð.
Hörður er úti að djamma með gamla bekknum sínum. Og Sissi er einhversstaðar úti að rúnta með Hjalta. En þeir fóru eitthvað til Selfoss að ná í eitthvað sem Hjalta vantaði í bílinn sinn....held ég.
Fyrst að það er svona rólegt hjá mér þá kannski fer ég bara að lesa.....skil ekkert í því að Sissi var eitthvað að kalla mig lestrarhest um daginn..... ég er ekki búin að lesa nema 3 bækur síðan á miðvikudaginn....tíhíhí.
mánudagur, september 13, 2004
 
Afmælisgella dagsins


Afmælisgella dagsins er hún tengdamamma, Mónika Björg Steingrímsdóttir. Þessi svaka afmælisgella varð 45 ára í dag. Vona ég að hún hafi átt góðan dag.
Innilega til hamingju með afmæli Móna mín. Knús og kossar úr Reykjavíkinni...
sunnudagur, september 12, 2004
 
Ágætis helgi
Þessi helgi er búin að vera alveg ágæt. Alveg passlega mikið að gerast... ekki of mikið og ekki of lítið.
Við Sissi tókum smá búðaráp í gær. Ágætt að vera búinn að koma því frá fyrir þennan mánuðinn...hehehehe. Sáum samt voða lítið merkilegt. Ástæðan fyrir þessu búðarápi var eiginlega sú að öll úrin mín, nema mesta spariúrið mitt, ákváðu að verða öll batteríslaus í einu. Og það er ekki séns að ég geti verið úrlaus. Mér líður alltaf eins og ég sé nakin ef ég er ekki með úr.... nema kannski svona rétt á meðan ég er að nudda...hehehe.
Svo skellti ég mér í klippingu. Það er nú eitthvað sem ekki hefur gerst síðan í apríl. Og þegar klippikonan fékk að vita hvernær hárið á mér var síðast litið (í mars) spurði hún mig hvort að ég hefði verið í útlegt í allt sumar...hehehe. En svona er bara forgangsröðunin hjá mér. Þetta er það sem fær að sitja á hakanum.
Í gærkvöldi eldaði ég svo þetta svakagóða læri. Maturinn var reyndar svona í seinni kantinum en við fórum hvort eð er svo seint að sofa að það skipti ekki öllu máli. Meðan lærið var í ofninum skaust ég samt til hannar Bryndísar Evu og mátaði litla strákinn hennar, hann Andra Dag. Ég er ekki frá því að ég hafi tekið mig bara þónokkuð vel út með hann í fanginu..hehehe.... það allavega klingdi mikið í eggjastokkunum á mér.
Gulli á hæðinni fyrir neðan kom svo upp og rak á eftir okkur að koma niður í partý.... kærastan hans, hún Auður, átti nefnilega 19 ára afmæli. Skellti ég í eina ilmolíublöndu (Exotic bathoil) til að gefa henni í afmælisgjöf. Þetta var alveg hörkupartý og komum við ekki upp aftur.... svona til að fara að sofa.... fyrr en um kl. 4 í nótt.
Dagurinn í dag hefur svo farið í þessi venjulegu helgarverkefni. Þrífa heimilið og þvo þvott. Er samt ekkert búin að vera neitt að ofgera mér..... hehehe... tek þessu bara svona rólega. Gríp í bók inn á milli eða gjói augunum á sjónvarpið ef eitthvað áhugavert er þar. Er samt búin að vera það dugleg að ég er búin að undibúa kvöldmatinn. Það á bara eftir að kveikja undir. Ætla nefnilega bara að hita afganginn af lærinu, síðan í gær, í brúnni sósu og hafa eitthvað meðlæti með.

Var að skoða póstinn minn áðan. Og þvílíka vitleysan sem maður fær stundum. Ég ætla hér að skella með einum póstinum sem ég fékk áðan og dæmi hver fyrir sig.... er þetta hlægilegt eða er þetta hlægilegt???? Ég ætla að taka það fram að í subjectinu stendur: Dear Guðlau Margrét

BARRISTER MICHEAL AKUE
Attorney & Counselors At Law
141 RUE DE COMMERCE
LOME-TOGO Telephone: +228-924-22-03

Private Email:barristerakue@lawyer.com

ATTN: Margrét,

I am Barrister Micheal Akue,the attorney at law to Late Mark Margrét, a national of your country, who used to work with Shell Development Company in Togo . Here in after shall be Referred to as my client. On the 21st of April 1999, my client, His wife and their three Children were involved in a car accident Along Sagbama express-road. All occupants of the vehicle Unfortunately lost their lives.Since then I have made several enquiries to your embassy to locate any of my clients extended relatives this has also proved
After these several unsuccessful attempts, I decided to track His last name over the Internet, to locate any member of his Family hence I contacted you. I have contacted you to assist in Repatriating the money and property left behind by my client before they get confiscated or declared unserviceable by the bank here. These huge deposits were lodged particularly, with the "BANQUE INTERNATIONAL POUR L'AFRIQE AU TOGO " An affiliate of Commercial Bank of Africa where the Deceased had an account valued at about $18.5 million dollars. The Bank has issued me a notice to provide the next of kin or have the account confiscated. Since I have been unsuccessful in Locating the relatives for over 2 years now I seek your consent To present you as the next of kin of the deceased since you have The same last name so that the proceeds of this account valued at $18.5 million dollars can be paid to you and then you and me can Share the money.60% to me and 40% to you I will procure all Necessary legal documents that can be used to back up any claim we may make.All I require is your honest cooperation to enable us seeing this Deal through. I guarantee that this will be executed under a legitimate arrangement that will protect you from any breach of the law. And the way we are going to achieve this is I will need the following information from you.

Your Full Name and Address,
Your Age,
Occupation and Position,
Your Telephone Mobile and Fax Number for Communication Purpose,

For privacy let's communicate withn barristerakue@lawyer.com

I await your Call ASAP

Best Regards
Barrister Micheal Akue.
Attorney & Counselors At Law


föstudagur, september 10, 2004
 
Afmælis


Hann tengdapabbi (Sigurjón Magnús Sigurjónsson) á afmæli í dag. Og er kallinn 48 ára. Vona að hann eigi góðan afmælisdag. Innilega til hamingju Maggi minn.
fimmtudagur, september 09, 2004
 
Lítið að gerast
Það er lítið að gerast þessa dagana. Sissi var að keppa í offroad Tómstundahússmótinu á laugardaginn síðasta. Keppti í böggí og var í 1. sæti og svo í rafmagns og var þar í 2. sæti. Var frekar blautur og drullugur. Moldarbraut og rigning fer ekki mjög vel saman. En allavega.... Sissi kom svo í bæinn og náði í Gulluna sína og við fórum og kíktum á Ljósanæturflugeldana. Skellti meira að segja 2 flugeldamyndum inn á mbloggið mitt. Fórum í leiðinni í "heimsókn" í húsbílinn til Einars og Ásu. En þau voru einmitt stödd í Reykjanesbæ á Ljósanótt.
Á sunnudaginn komu Ragga frænka og Gústi í heimsókn. Þau skelltu sér í helgarferð til Reykjavíkur. Alltaf gaman að fá þau mæðgin í heimsókn. Það er samt alltaf of langt á milli þess sem maður hittir þau.
Pabbi, mamma og Þura voru að smala um helgina. Ég vildi að ég hefði getað hjálpað en því var því miður ekki komið við. Ekkert far og peningar af skornum skammti. Þannig að ég SKAL komast í seinni smölun sem verður í byrjun okt.
Það sem af er þessari viku er búið að vera frekar tíðinda lítið. Víðtæk leti í gangi og lítið kíkt í tölvu eftir vinnu. Dagarnir ganga bara út á að vinna, nudda borða og sofa. Tókum reyndar smá dvd-törn. Leigðum "The whole ten yards" og "Biker boys" á sunnudagskvöldið og "Gothika" á mánudagskvöldið. Svoltið misgóðar myndir en ágætis afþreyging. Gothika meira að segja kom mér á óvart. Ég er ekki að segja að þetta hafi verið eitthvað súper myndi, en ágæt samt. Svoltið svona í anda "Stigmata" sem ég fíla alveg í tætlur. Súlí kíkti svo í heimsókn á þriðjudagskvöldinu. Að því tilefni bauð ég uppá þennan ljómandi ísrétt..... banani, súkkulaðiís og heimagerð rjómasúkkulaðiíssósa....namminamm.
Hörður snillingur eldaði svo kvöldmatinn í kvöld og bauð okkur Sissa. Alveg ljómandi gott.
fimmtudagur, september 02, 2004
 
Bíókvöld
Við (ég, Súlí og Hörður) tókum okkur til í kvöld og horfðum á stórmyndina "Legends of the Fall". Það er orðið nokkuð síðan ég fjárfesti í myndinni en var samt ekki búin að horfa á hana aftur. Þ.e. ég sá hana fyrir mörgum árum.
Herði fannst ágætt að vera búinn að ljúka því af, að horfa á þessa mynd. Og var hann nú eitthvað að hlægja á köflum yfir sorglegu atriðunum. Og ótrúlegt en satt... ég táraðist ekkert yfir myndinni. Ég sem á alveg ótrúlega erfitt með mig stundum þegar ég er að horfa á sorglegar myndir. Ég á að vísu yfirleitt erfiðara með að hemja mig þegar ég er ein að horfa. Þá virðist ég lifa mig meira inn í myndirnar. Sennilega hefur það eitthvað með utanaðkomandi truflun að gera.... eða eitthvað. Ég er samt hætt að reyna að fela það þegar ég tárast yfir myndum. Sissi tekur allavega alltaf eftir því, þó að mér finnist ég rosa dugleg að fela það og þurrka tárin í laumi.
Þetta er að sjálfsögðu mjög góð mynd þó að ekki geti hún talist mjög upplífgandi. Þar sem flestir eru nú dánir í lok myndarinnar.
En alltaf er hann Brad "minn" Pitt jafn flottur.
Var að velta því fyrir mér um daginn að flytja til Hollywood. Og gerast þar nuddari fræga fólksins. Gæti jafnvel orðið einkanuddarinn hans Brad Pitt. Það væri ekki leiðinlegt hlutskipti. Ætli ég gæti svosem ekki nuddað Jennifer líka...hehehe.
Sissi var nú á tímabili kominn með leið á því að ég væri að horfa á Brad Pitt.... og finni hver út fyrir sig af hvaða ástæðu það var...tíhíhíhí.
 
Afmælisbarn dagsins


Afmælisbarn dagsins í dag er hún Margrét Lukka Brynjarsdóttir. Magga Lukka, nuddari með meiru, er 26 ára í dag. Vona ég að hún hafi átt góðan dag í faðmi fjölskyldunnar. Innilega til hamingju!!!
miðvikudagur, september 01, 2004
 
Afmælisbarnið


Steini, bróðir Sissa, er 24 ára í dag. Steini minn, til hamingju með daginn!!

Powered by Blogger