mánudagur, nóvember 29, 2004
Laufabrauðshelgin
Þá er laugabrauðshelgin liðin þetta árið. Við Sissi vorum að koma að norðan. Fórum sér ferð norður til að skera laufabrauð....þ.e. ég skar og Sissi hafði það huggulegt.
Brunuðum norður strax eftir vinnu, hjá Sissa, á föstudaginn. Náðum í Þuru á Akureyri og renndum í sveitina. Að sjálfsögðu var farið seint að sofa því Gulla litla þurfti svo mikið að tala við pabba og mömmu. Fór samt á fætur snemma á laugardagsmorgun. Og var byrjuð að skera fyrir kl. 11. Við skárum alls 136 kökur og fór allur dagurinn í það. Kristján, kokkur á Laugum, og hans fjölskylda kíkti í heimsókn. Og þegar búið var að skera var gripið í gítar og sungið. Og var það því ekki fyrr en komið var fram yfir miðnætti sem við byrjuðum að steikja. Steikingin tók nú engan gífurlega tíma. En engu að síður var aftur farið seint að sofa. Mamma þurfti að fara að vinna fyrir hádegi í dag. Og þegar við lögðum af stað, tókum við smá krók og kíktum yfir í Laugar. Mamma sýndi okkur vinnustaðinn sinn, en svo urðum við að halda áfram. Vorum smá stund hjá tengdamömmu en vegna leiðinlegs veðurs (rigning og rok, ofan á hálku) vildum við ekki tefja lengi. Færðin var nú samt mun skárri á suður-leiðinni en norður-leiðinni. Því að mest af svellinu var bráðnað.
Nú er svo kominn sofitími því að á morgun er vinnudagur.
Var að skella inn myndum frá laufabrauðsdeginum.
miðvikudagur, nóvember 24, 2004
Röddin mín
Var í dag, í vinnunni, látin hlusta á símtal hjá sjálfri mér. Sem er í sjálfu sér mjög sniðugt. Maður getur lært mikið af því að heyra í sjálfum sér. En ég bara virkilega ætlaði ekki að þekkja röddina í sjálfri mér.
Það var semsagt bara valið símtal af handahófi (síðan í gær). Og svo var málið að finna þetta tiltekna símtal í upptökunum. Þegar svo búið var að finna símtalið (að við héldum) þá var spólað áfram þangað sem ég svaraði. Og þá fórum við að hlusta til að vera viss um að þetta væri ég..... og hvorki ég né sá sem sér um upptökurnar, vorum viss um að þetta væri ég. Þannig að við fengum þriðja aðilann til að dæma í málinu.... og viti menn!!!! þetta var ég. Og þegar ég fór að hlusta á símtalið þá mundi ég nú alveg eftir þessu símtali. En vó... hvað mér fannst röddin í mér ekkert lík röddinni í mér....hehehehehehe.
En símtalið var alls ekkert svo slæmt, ekkert mikið sem ég þarf að bæta. Spurning um að reyna að sleppa því að raula meðan ég bíð eftir því að tölvan vinni....hmmmm. Ég hafði ekki tekið eftir þessu hjá sjálfri mér. En eftir að hafa hlustað og heyrt þetta, fór ég að fylgjast með sjálfri mér. Og ég þurfti virkilega að passa mig að gera þetta ekki. Ekki það að þetta sé neitt bannað..... bara kannski frekar asnalegt. Það er kannski þess vegna sem fólk er yfirleitt ekkert voðalega fúlt við mig í símann..... það sjálfsagt er að deyja úr hlátri af því að hlusta á mig.
þriðjudagur, nóvember 23, 2004
Slabb
Það kom að því. Reykjavík er komin í sinn vanalega vetrarbúning.....slabb út um allt
. Þetta var líka of gott til að vera satt. Að snjórinn ætlaði að haldast sem snjór. Slabbið er eitt það leiðinlegasta við Reykjavík. Það er margt hérna í höfðuborginni sem ég segi um: "vont en það venst". En slabbið venst ekki. Ég held að það sé orðið nokkuð ljóst. Ég er búin að vera hér það marga vetur að ég ætti að vera búin að venjast því. Því segi ég enn einu sinni og stend við það:"Það á annaðhvort að vera almennilegur snjór, eða bara enginn snjór". Og hana nú!!!! Ég segi nú samt ekki endilega að ég vildi heldur vera í 30 stiga frostinu í Mývatnssveit
, en það er nú yfirleitt aðeins mildara veður í Bárðardalnum (nema kannski í Svartárkoti). Og þar vildi ég nú frekar vera
.
Ég hélt að ég yrði brjáluð í morgun. Það lak svo mikið af þakinu beint ofan á útiljós-skerminn fyrir neðan nuddherbergisgluggann. Og við vorum með opinn svefnherbergisgluggann við hliðina og hávaðinn....púff. Það buldi örugglega hærra í þessu en í tómri tunni. Og því varð ekki mikið um svefn hjá mér, svona í morgunsárið.
sunnudagur, nóvember 21, 2004
Jólahreingerningin
Fyrst ég var svona dugleg í gær þá ákvað ég að slá ekki heldur slöku við í dag. Skellti mér bara í restina af jólahreingerningunni. Þannig að núna er ég búin að gera hreint fyrir jólin. Auðvitað á ég eftir að þurrka meira af og skúra þegar nær dregur jólum. En stóra hreingerningin er búin. Mikið líður mér vel þegar ég er búin að vera svona dugleg.
Ég hafði kveikt á Létt 96,7 í dag og líka í gær. Og þar er verið að spila alveg helling af jólalögum. Venjulega vil ég ekki hlusta á jólalög fyrr en aðventan er byrjuð. En þetta er mjög gott til að koma manni í gírinn í jólahreingerningunni. Þannig að ég svindlaði smá núna. En ég er samt ekkert farin að spila neina jólageisladiska ennþá. Það verður ekki fyrr en um næstu helgi.
Svo er ég núna að fara að gera smá rasíu í bókhaldinu.... ekki beint það sem mér finnst skemmtilegast, en nauðsynlegt engu að síður. Ekki það, að þetta er ekkert mál þegar maður er byrjaður. En það er frekar erfitt að koma sér í að byrja. Og þegar það er frá þá held ég að það sé komið að mér að slaka á.
Sissi er búinn að vera, síðan kl. 14 (rúmlega) í dag, á Opnu húsi fyrir RC áhugamenn....með öðrum orðum smábílaklúbbsdæmi eitthvað. Og mér skilst að hann verið alveg til kl 20 í kvöld. Þannig að kvöldmaturinn verður ekki snemma í kvöld.
laugardagur, nóvember 20, 2004
Dugnaður, dugnaður, dugnaður!!!!!
Dugnaðurinn alveg að gera útaf við mig í dag. Fór í það í dag að þrífa alla gluggana og allar rimlagardínurnar í íbúðinni
. Og þegar ég segist hafa þrifið rimlargardínurnar þá virkilega þreif ég hverja rim fyrir sig, með blautri tusku. Held meira að segja að ég sé komin langleiðina í sinaskeiðabólgu með þessum dugnaði mínum. Þetta voru svo hrikalega einhæf vinnubrögð sem ég notaði.
Ég að vísu gerði ekki innreið inn í herbergið hans Harðar svo að sá gluggi og rimlagardínurnar sem eru þar eru eftir.
Þetta er eini gallinn við að vera með stóra og marga glugga. Og rimlargardínur fyrir þeim öllum. Það þarf víst að þrífa þetta líka.
En aðal áststæðan fyrir því að ég fór að þrífa gluggana núna er sú að ég vil að jólaseríurnar fari að komast í gluggana. Og að sjálfsögðu verða gluggarnir að vera hreinir þá. Mig langar til að vera búin að fá jólaseríurnar í gluggana um næstu helgi. Við þurfum nú samt sennilega að kaupa einhverjar seríur. Gluggarnir í stofunni eru svo stórir að ég held að við eigum ekki nógu langar seríur.
föstudagur, nóvember 19, 2004
Breyting á vinnutíma
Þá er það orðið ljóst að vinnutíminn minn, hjá Símanum, breytist eftir áramótin. Já, Gulla litla ákvað að auka aðeins við sig. Lagði fram þessa ósk mína í morgun og það leið ekki nema í mesta lagi 30 mín þangað til ég var búin að fá jákvætt svar. Ég hélt að þetta tæki nú aðeins lengri tíma. En þetta er fínt. Þá bara veit ég þetta strax og get farið að bóka nudd í samræmi við það. Þetta verður nefnilega til þess að ég þarf að minnka við mig í nuddinu. Fer að vinna frá kl. 9-15 í stað þess að núna er ég að vinna frá kl. 9-13. Ekki það að ég sé orðin leið á því að nudda, langt frá því. En það er Síminn sem sér mér fyrir öruggum tekjum og eins og staðan er í dag er það það sem við þurfum. Fram að þessu hefur nóvember t.d. verið alveg afleitur í nuddinu. Mikið af afpöntunum og svo er fólk líka aðeins að gleyma sér. Það voru einmitt tvö svoleiðis tilfelli í þessari viku. Bæði á þriðjudag og miðvikudag. Þannig að þá bara bíð og ég bíð og fólk lætur ekki sjá sig. Seinna tilfellið reddaðist þannig að ég fæ frítt vax fyrir jólin í sárabætur. Sú sem átti þann tíma er nefnilega snyrtifræðingur.
Ætli maður reyni svo ekki að horfa á Idol í kvöld. En ég neyðist til að horfa á það ruglað þar sem við erum ekki með stöð 2. Mamma var að segja mér að Svava væri að keppa í kvöld. Lára, mamma Svövu, var að bjóða mömmu í Idol-partý í sveitinni til að styðja stúlkuna. Ég hef reyndar ekki hitt Svövu í mörg ár en hún hefur nú alltaf haft góða söngrödd.
þriðjudagur, nóvember 16, 2004
Snjór!!!
Jú, það er satt. Það er kominn snjór í henni Reykjavík. Hann er búinn að vara að smá koma síðustu daga. En í dag var hann greinilega búinn að fá nóg af þessu dóli svo að hann alveg hellti sér yfir borgina
. Ekki það að mér finnst snjórinn bara ágætur. Nema kannski þegar ég er mjög þreytt á morgnanna og þarf að standa úti í kuldanum og moka snjóinn af bílnum. Jú og svo líka er gat á skónum mínum. Og þegar snjórinn er orðinn það djúpur að hann fer upp fyrir botninn á skónum mínum, þá verð ég blaut í tærnar. En maður lætur það nú ekkert á sig fá.
Við erum nefnilega svo heppin að vara á svona góðum bílum. Legacy og Galant eru nú ekki að láta smá snjó stoppa sig.
Hrólfur Jón Pétursson
Litli frændi var skírður í dag. Hann hlaut nafnið Hrólfur Jón. Óskum við piltinum og hans fjölskyldu innilega til hamingju með nafnið.
mánudagur, nóvember 15, 2004
Útréttingar
Þar sem ég er svo æðislega góð stelpa var ég að útrétta fyrir hana mömmu í dag. Búin að vera í þvælast í alveg fullt af búðum. Var að leita að laufabrauðsjárni(hjóli) og kökukefli. Og ekki hvernig sem er.... laufabrauðsjárnið þurfti að vera ferkar oddhvasst og kökukeflið átti að vera feitt (þykkt). Fann laufabrauðsjárnið í Byggt og búið í Kringlunni. Kostaði kr. 3.999,- Og haldiði ekki bara að hann Hreimur (Land og synir) hafi afgreitt mig. Var að spá í syngja fyrir hann og athuga hvort að ég kæmist ekki inn í hljómsveitina. En þá mundi ég að mér finnst Land og synir ekkert svakalega skemmtileg hljómsveit. Þannig að ég sleppti því. Ekki það að þeir eru fínir á böllum en þeirra tónlist er ekki alveg það sem ég nenni að hlusta á mikið af í einu. En nóg um það. Ég fann hins vegar ekki neitt kökukefli sem uppfyllir skilyrðin. Það eru bara til grönn kökukefli.... allskonar gerðir en engin feit. Það var nú í einhverri búðinni sem afgreiðslukonan fór að hlægja að því hvort að mig vantaði eitthvað nógu þungt kökukefli til að fá kallinn minn til að gera hlutina á heimilinu..hehehehehe.
Og svo eru það jólaseríurnar. Fór í Garðheima að skoða útiseríur fyrir pabba og mömmu. Fór í gær með Sissa og við keyptum okkur meira að segja eina seríu. Og þá kíkti ég fyrir pabba og mömmu en athugaði bara verðin og fjölda pera en ekki lengdina á seríunum. Svo að ég skellti mér bara aftur núna áðan og athugaði lengdina.
Mikið er ég nú góð dóttir. En núna er líka komið að því að ég slaki á.....hehehehe. Settist bara smá niður áðan til að rífa í mig hádegismatinn áður en ég brunaði af stað í þessar útréttingar. Svo að ég á hvíldina inni.
sunnudagur, nóvember 14, 2004
Afmæli,afmæli,afmæli
Jamms!!!! Við Súlí vinkona héldum upp á 20 ára vina-afmælið okkar í gær
(ekki það að afmælisdagurinn hafi verið í gær.... við urðum vinkonur sumarið áður en við byrjuðum í skóla). Það gerðum við með því að eyða alveg fullt af peningum....hehehehehehe. Fórum í Kringluna og Smáralindina og keyptum okkur föt. Ég keypti mér pils, skyrtu og topp (komin með jóladressið). Ég held að ég hafi líka sjaldan hitt svona mikið af fólki til að spjalla við (á búðarápi). Fyrst hitti ég Diddu sem var með mér í Nuddskólanum. Hún býr á Sauðárkróki en var í saumaklúbbsferð í höfðuborginni. Svo hitti ég þær Unni og Önnu Völu sem eru að vinna hjá Símanum. Þær voru að reyna að nappa fólki, sem er með símann sinn hjá Og Vodafone, yfir til Símans. Þar á eftir hittum við Geira, Árna og Kollu, Bárðdælinga og áhanganda, þau voru í skemmtiferð (partý á hverju kvöldi). Og að lokum hittum við hana Mörthu frá Bolungarvík. Hún var með okkur Súlí í "Jósep" (söngleiknum) þegar við vorum í VMA (hún bjó einmitt í O-inu og ég í A-inu á Furulundi 8). Og það fyrsta sem hún sagði var: "og þið ennþá alltaf saman"...hehehe... kom vel út þar sem við vorum að afmælast.
Þegar við fórum úr Smáralindinni lá leiðin hingað heim. Það var nefnilega komið að því að setjast niður með fæturna upp í loft. Við erum nefnilega orðnar svo gamlar að við þurftum að hvíla okkur smá eftir allt þetta labb....hehehe. Og nýttum tímann í það að ákveða hvert við færum út að borða. Enduðum á Grillhúsinu við Tryggvagötu (við vorum með smá þak á eyðslu dagsins....vorum búnar að eyða svo miklu í föt að við fórum ekkert á neitt voðalega dýran veitingastað, sluppum samt við að fara á Bæjarins bestu). Borðuðum alveg á okkur gat. Keyptum nautasteik með grænpiparsósu. Með steikinni fylgdi svo súpa í forrétt, en við ákváðum samt að fá okkur líka poppers í eftir-forrétt. Og þegar aðallrétturinn var búinn var ég svo södd að við slepptum eftirréttinum.
Komum aftur hingað heim og skelltum einni góðri stelpumynd í tækið. Fyrir valinu varð "Practical Magic". Þegar við vorum búnar að horfa á myndina skelltum við okkur svo í partý til Trausta
. Þar var "Bárðdælingafélagið" saman komið. Þar var svaka stuð og húllumhæ. Og náðum við því að halda upp á afmælið okkar með alveg eindæmum vel.
Nú er bara orðin spurningin hvort að við verðum ekki að fara að stytta aðeins á milli þess sem við höldum upp á vinaafmælin okkar. Höfum haldið það núna á 10 ára fresti. En þetta er svo fínt tilefni til að gera eitthvað svona sérstakt saman, bara við tvær. Fara saman út að borða, án kallanna. Að það er kannski bara sniðugt að við færum að gera þetta á 5 ára fresti. Halda næst upp á 25 ára vinaafmælið okkar 2009. Ekki veitir líka af þar sem Súlí ætlar að klára skólann á Akureyri og fer því alfarin norður núna fyrir jólin
.föstudagur, nóvember 12, 2004
Bókatíðindin
Skellti mér í það í dag að lesa Bókatíðindin 2004. Las reyndar ekki alveg frá orði til orðs. Fann þarna amk 8 bækur sem ég væri alveg til í að eignast. Það er þá að vísu fyrir utan bækurnar sem maður lætur sig bara dreyma um.....t.d. Íslensku spendýrin. En af þessum bókum langar mig mest í "Óþekkta konan" e. Birgittu Halldórsd. Mér finnst nefnilega mjög gaman að lesa bækurnar hennar Birgittu. Var alveg miður mín í fyrra þegar það kom engin bók eftir hana. Þessi er alveg tilvalin sem jólabókin mín .... hint hint
Hinar bækurnar eru svo:
"Öruggt athvarf" e. Danielle Steel, "Allt hold er hey" e. Þorgrím Þráinsson, "Smaladrengurinn" e. Vigfús Björnsson, "Sigur í hörðum heimi" e. Guðmund Sesar, "Draumar, að muna þá og skilja", "Betra bak" og "Læknum með höndunum".
Þessar tvær síðustu falla kannski meira svona undir það að vera bækur sem "Gulla nuddari" vill eiga.
fimmtudagur, nóvember 11, 2004
Haustþing BÍG
Var að koma heim af haustþingi BÍG (Bandalag íslenskra græðara). Hélt að þetta yrði bara stutt. Það var nefnilega bara verið að samþykka lög félagsins, eftir miklar endurbætur. Lögin samanstanda af 12 greinum. Og því hélt ég að þetta yrði ekki mikið mál.... en NEI!!!!!!!! Var frá kl. 19:30 til 23:30. Ég hélt á tímabili að ég yrði ekki eldri en hafði það nú samt af. Og það voru ótrúlegustu atriði sem var hægt að eyða þvílíkum tíma í að "rökræða" um.
Eftir þingslit keyrði ég svo Guðbrand, formann FÍHN (Félag íslenskra heilsunuddara), heim. Og á leiðinni var hann alveg á fullu að reyna að telja mig á að ganga í stjórn nuddfélagsins. Ég held að mér hafi tekist að neita..... en hann er ótrúlega þrjóskur. En það er nú bara í þessu félagi eins og svo mörgum öðrum, að það er ákveðinn kjarni sem er virkur. Og þar sem ég hef sýnt félaginu örlítinn lit þá er alltaf verið að biðja um meira. Ég er búin að vinna á skrifstofu félagsins. Var þar að koma reglu á þá óreglu sem hafði verið meðan ákveðinn aðili (sem var btw rekinn úr félaginu) hélt utan um mál félagsins. Svo var ég í ritnefndinni og þegar ég sagði mig úr henni var ég sett sem þingfulltrúi á BÍG-þing. Og núna þegar ég er búin að skila af mér því hlutverki þá átti að skella mér í stjórn. Æi nei, ég held að ég vilji smá pásu núna.
Mér fannst ég nú samt rosalega góð að rata í fyrstu tilraun á þingstaðinn. Miðaði mig bara út frá nokkrum hringtorgum. Og svo á heimleiðinni miðaði ég bara út frá því að þegar ég finndi Marg smátt - húsnæðið þá rataði ég þaðan. Ekki merkilegt en gekk upp. En þetta þýðir að ég hef samt ekki hugmynd um hvað göturnar heita sem ég keyrði....veit upphafs og endastöðvar og það nægir.
Svona er það þegar litla sveitastelpan er að keyra í höfuðborginni.
miðvikudagur, nóvember 10, 2004
Fólk með Sirrý
Ég sat í kvöld með breiðbandsfjarstýringuna í hendinni og var að flakka á milli stöðva. Lendi þar meðal annars inn á Skjá 1. Og er þá verið að sýna þáttinn "Fólk með Sirrý". Og er þá verið að tala við hann Guðmund Sesar, sem var í sveit hjá systkinum hans afa þegar hann var ungur. Þar sem ég "þekki" manninn fór ég að sjálfsögðu að horfa. Þá er hann að gefa út bók um baráttu sína við fíkniefnaheiminn eftir að Krista, dóttir hans, leiðist úr í fíkniefni. Ég man þegar hann fyrst byrjaði á þessari baráttu sinni. Þá kom viðtal við hann í Ísland í bítið á Stöð 2. Þá var mér rosalega brugðið því að ég man eftir henni Kristu lítilli. Og svo líka vegna þess að þær Þura systir eru jafngamlar og var ég því að sjá Þuru fyrir mér í sömu sporum.
Ég man nú samt eftir því þegar ég hitti Guðmund og hans fjölskyldu fyrst. Það hefur sennilega verið fyrir 10 eða 11 árum síðan. Þá var ég að vinna á Fosshóli, kaupfélagsútibúinu heima í sveit, og var einnig svoltið fyrir að djamma um helgar. Hafði ég þá einu sinni sem oftar farið, nánast beint úr vinnunni, á Ýdalaball. Eftir ballið hafði ég svo farið í partý á Húsavík, hjá þáverandi kærastanum mínum. Stóð partýið fram undir morgun og þegar allir voru að fara að sofa voru ekki nema tæpir 2 tímar þangað til ég átti að mæta í vinnu. Ákvað ég því að sleppa því bara alveg að sofa því að ég vissi að ég myndi ekki geta vaknað eftir klukkutímann til að leggja af stað heim. Ég næ svo rétt að koma við heima áður en ég bruna beint í vinnuna. Og var ég svo heppin að vera á kassavakt sem var frá kl. 9 - 19. Var ég nokkrum sinnum alveg að líða útaf í vinnunni en náði samt að halda mér vakandi. Þegar ég er svo búin og farin að bíða eftir því að pabbið eða mamma komin að ná í mig, kemur til mín kona, sem ég kannast ekkert við, og segist vera að ná í mig. Ég horfi bara á hana eins og hún sé eitthvað skrítin. En þá er kallað á mig í símann. Var það þá mamma að biðja mig að kaupa eitthvað og segja mér að það komi eitthvað "skrítið" fólk að ná í mig. Ég læt til leiðast og fer með þessari konu út í bíl. Þá snýr bílstjórinn sér við og segir "Guðmundur Sesar heiti ég". Þá vissi ég að sjálfsögðu hvaða fólk þetta var. Því að ég hafði oft heyrt talað um Guðmund Sesar (sem er nú kannski ekkert algengast nafnið hér á landi). Guðmundur hafði þá ekkert samband haft heim í sveit í mörg ár. Þeir pabbi voru nú samt á svipuðum aldri og ágætis félagar, að ég held, meðan Guðmundur var á Kálfborgará. En eftir að hann fór úr vistinni hjá Siggu, Betu og Guðna, lenti hann í einhverju rugli og sleit öllu sambandi. En þarna var hann búinn að ná sér upp úr því og kominn með konu og börn.
sunnudagur, nóvember 07, 2004
Laugardagsstuð
Renndum í heimsókn á Litla-Hraun
. Heimsóknina sem við ætluðum að fara um síðustu helgi. Ekkert smá leiðinlegt veður á leiðinni þangað. Brjálað rok og klikkuð rigning
. Ég virkilega hélt á tímabili að við myndum fjúka útaf. Og svo varð maður alveg ótrúlega mikið blautur bara af því að labba frá bílnum og inn á Litla-Hraun. Og ekkert hafði rigningin minnkað þegar við héldum heim aftur.
Fórum svo, ásamt Súlí og Magga, Óla og Elvu og Sigga Atla, á American style
. Og að áti loknu komu allir, nema Elva, hingað í mikla gleði
. Byrjuðum við á því að spila Leonardo & co. Fínt spil...allir geta unnið. Þetta er ekki bara fyrir fólk sem kann mikið og veit mikið. Því að ef maður er heppinn gæti maður farið í gegnum spilið án þess að svara einni einustu spurningu. Svo fyrir utan það, þá voru erfiðustu spurningarnar (spurningaflokkur 3...þegar styttist í endareit) svo erfiðar að það vissi eignlega enginn neitt. Svo að flestir voru bara að gíska (það eru sko valmöguleikar við allar spurningarnar A, B og C). Óli fór svo heim þegar við vorum búin að spila þetta spil. By the way.. Óli vann, ég var í öðru sæti og Siggi Atla held ég að hafi verið í þriðja sæti.
Þegar Súlí koma aftur, frá því að skutla Óla heim, var tekið til við að spila Uno. Mikið stuð og gífurleg stemning
. Þetta var í fyrsta skipti sem ég spila Uno. Og ætli það hafi ekki verið byrjenda heppni sem gerði það að verkum að ég var í öðru sæti þar. Súlí vann, en Sissi er svo gífurlega heppinn í ástum
að hann var lang-síðastur með rúmlega 100 refsistigum meira en næstsíðasti aðilinn. Þegar þarna var komið við sögu var komið vel fram yfir miðnætti og gestirnir yfirgáfu svæðið. Þá skelltum við bara einni mynd (Bruce almighty) í tækið og sofnaði ég yfir henni. Er hvort eð er búin að sjá hana nokkrum sinnum. föstudagur, nóvember 05, 2004
Þurrkari
Núna eigum við loksins þurrkara. Okkur var nefnilega gefinn þurrkari. Mig er búið að langa í þurrkara....ég veit ekki hvað lengi. En hann var samt ekki kominn efst á kaupi listann. Ekki alveg talinn það nauðsynlegasta. Þessi þurrkari er eitthvað um 5 ára gamall.... að ég held.... en ekkert að honum. Hjónin sem áttu hann voru bara að fá sér nýjan (barkalausann, þessi er með barka). Það hefði nú sennilega hentað betur fyrir okkur að vera með barkalausan þurrkara en við ætlum að sjá hvort að þetta gangi ekki alveg. Ég er að sjálfsögðu búin að testa hann og útkoman bara mjög góð. Algjör lúksus að geta bara skellt nuddlökunum í þurrkara í staðin fyrir að nota allt fyrirliggjandi snúrupláss undir þau. Þannig að það eru líkur á því að ég geti farið að þvo eitthvað meira en bara nuddlökin mín í miðri viku. Og þurfi þá kannski ekki að eyða öllum helgum í þvottastúss.
Það er búið að vera að hreinsa loftræstinguna hérna í blokkinni. Þvílíkur hávaði búinn að vera hér í mest allan dag. Og komu hingað inn akkúrat þegar við vorum að borða. Mér finnst ekkert voðalega spennandi að hafa einhverja ókunnuga menn á þvælingi um íbúðina á meðan ég er að borða. En ég gat svosem ekkert verið að hanga yfir þeim heldur. Og þeir rusluðu ekkert mikið til.....ég var nefnilega rétt búin að laga aðeins til (sópa og ryksuga og svona).
miðvikudagur, nóvember 03, 2004
Biluð umferð
Ég fékk hálfgert áfall þegar ég var rétt lögð af stað í vinnuna í morgun. Það var alveg klikkuð umferð. Nú er ég alltaf á ferðinni á svipuðum tíma á morgnanna svo að það var ekki það sem að munaði. En ég virkilega hélt að mér yrði ekki hleypt á milli akreina. Og ég bara man ekki eftir því að það hafi nokkurn tíma verið svona mikil umferð, síðan ég fór að keyra þessa leið í vinnuna. Og þá erum við að tala um rúmt ár. En þetta gekk nú allt á endanum og ég var mætt í vinnuna á réttum tíma... kannski ívið seinni en venjulega. En ég er alltaf svo tímalega á ferðinni.
mánudagur, nóvember 01, 2004
Mánuðamót
Það er alltaf gaman þegar það eru mánuðamót. Því að þá á maður pening í ca 1 dag. Ég var nú reyndar ekki komin alveg á núllið í október en það vantaði nú ekki marga þúsundkallana upp á það. En núna er mun léttara yfir minni. Búin að fá útborgað aftur.... og viti menn, ég fékk launahækkun. Ég er nefnilega búin að vinna í rúmlega 19 mánuði hjá Símanum. Þannig að ég í rauninni fékk launahækkun strax eftir síðustu útborgun, sem að sjálfsögðu kemur fram á launaseðlinum núna. Fékk semsagt síðast launahækkun fyrir ári síðan þegar ég var búin að vinna í 6 mánuði. Við erum reyndar að reyna að berjast fyrir hærri launum. Launasamningarnir okkar eru semsagt "lausir" núna. Og verið að setja fram kröfur fyrir okkar hönd.
Jæja núna verður maður að fara að hugsa upp hvað mann langar í, í jólagjöf. Þetta er vandamál fyrir hver einustu jól. Því að ég veit aldrei hvað mig langar í. Það er að segja.... allt sem mig vanta er svo dýrt að mér dettur ekki einu sinni í hug að nefna það. Ekki það að ég er svo mikil glingurrófa að mig langar alltaf í skartgripi. En þar sem ég geng bara með gull, þá er það líka dýrt. Ég á fullar hirslur af silfur-skartgripum sem ég geng aldrei með. Sumt er reyndar gamalt eitthvað sem ég gekk með þegar ég var yngri. En svo er sumt sem ég hef aldrei sett upp nema bara til að máta. Þura systir er nú reyndar búin að fá flest armböndin og eyrnalokkana....allt þetta stóra sem var í tísku þegar ég var gelgja og tugir armbanda sem maður var alltaf með öll í einu...hehehehehe....Madonnu tískan. Ég er orðin svo pen í þessu í dag. Bara með litla hringi í eyrunum (að vísu eru þeir nokkrir, en ekki stórir) og einnig bara með mjög pena hringi á fingrunum og ég á ekki nógu marga til að vera með á hverjum fingri, svo að þeim hefur einnig fækkað.
Þetta verður fínt þegar ég eignast stelpu, þá á ég nóg af glingri til að gera hana að glingurrófu.....hehehehe. Ekki það að Sissi er nú alveg jafn mikil glingurrófa og ég svo hvernig verða börnin okkar.....púff.
