sunnudagur, desember 26, 2004
 
Gleðileg jól


Já nú eru jólin komin. Gott er að eyða góðum stundum með fjölskyldunni. Fullt af gjöfum og vil ég nú gjarnan þakka öllum fyrir góðar gjafir og jólakort.
Ætla ekki að eyða miklum tíma í tölvunni... vil frekar vera með fólkinu.
Gleðileg jól allir saman!!!!!
fimmtudagur, desember 16, 2004
 
Afmælisstrákur


Það er hann pabbi sem á afmæli í dag. Já, kallinn er 50 ára . Hann hefur nú samt ekkert verið heima í dag. Skrapp á rúntinn með þeim hluta fjölskyldunnar sem er á norðurlandinu. Og afmælisgjöfina sína fær hann ekki fyrr en við Sissi komum norður...hehehe. Hann verður bara að vera þolinmóður litli strákurinn. En allavega, Innilega til hamingju með afmælið pabbi minn. Knús og kossar úr höfðuborginni
þriðjudagur, desember 14, 2004
 
Gulla tölvunörd????
Nei!!!! Ég allavega verð ekki tölvunörd með þessu áframhaldi. Það er orðin undantekning ef ég fer í tölvuna hérna heima hjá mér. Eina ástæðan fyrir því að ég fór í tölvuna núna var sú að ég varð að kíkja á tölvupóstinn minn. Nuddþeginn minn sem er búinn að vera í tölvusambandi við mig mætti ekki. Og viti menn hann var búinn að tilkynna forföllin í tölvupósti, sem ég bara var ekki búin að lesa . Þannig að þetta voru mín mistök að vera ekki búin að kíkja í tölvuna fyrr . Annars er búið að vera alveg geggjað að gera í vinnunni. Og ég er búin að vera að vinna lengur næstum því á hverjum degi . Það er nefnilega búið að vera mikið um veikindi í minni vinnu eins og annarsstaðar. Spurning hvort að maður eigi að fara í hjúkkuleik .
Annars er ég búin að vera svo dugleg. Búin að skreyta allt fyrir jólin....líka jólatréð .

Nú er Hörður kominn í jólafrí og stunginn af úr borginni. Það er spurning hvort að við kunnum að vera tvö ein...hehehe. Allavega er það spurning hvort að ég kunni lengur að elda bara fyrir tvo. En það hlýtur samt að koma aftur. Ég á þá allavega afganga til að hita upp í hádeginu.
föstudagur, desember 10, 2004
 
Afmælisbörnin
Ég hef augljóslega ekki verið að standa mig í þessu bloggi. Ég hef ekki farið í tölvuna í viku. Þá er nú fyrst að nefna þau sem hafa átt afmæli á þessu tímabili.

3.des

Snorri Krisjánsson, kærastinn hennar Freyju, varð 31 árs. Til hamingju með það Snorri minn.
Ég fór svo í afmæliskaffi til hans á sunnudaginn (5. des)

6.des

Dúllurassin hún Þuríður Jóna, systir mín, varð 16 ára. Hún er að verða fullorðin þessi elska. Afmælisdagurinn hennar varð nú samt ekki sá skemmtilegasti því að hún frétti af andláti eins af bestu vinum sínum (sem lést 5. des, tæplega 15 ára gamall). Vil ég nú samt óska henni innilega til hamingju með afmælið. Sextán ár er alltaf stór áfangi.

Við Sissi skelltum okkur á laugardaginn síðasta í jólagjafaleiðangur. Og keyptum allar jólagjafirnar...ekkert stress og ekkert vesen. Og nú er ég meira að segja að verða búin að pakka öllu inn og skrifa öll jólakortin. Ætli það sé þá ekki bara að fara að koma að því að baka Sörurnar fyrir hana móður mína. Mér liggur samt ekkert á og ætla ekkert að vera að stressa mig á þessu.


fimmtudagur, desember 02, 2004
 
Óheppinn putti
Það má segja að óheppnin elti baugfingur hægri handar. Greyið er bæði brenndur og skorinn. Byrjaði á því að brenna hann á annari hliðinni (litla putta megin) í gær . Var að taka kvöldmatinn af ofngrindinni (beint úr ofninum) og lagði puttann svona fagmannlega á grindina. Ekki beint þægilegt....ég öskraði samt bara smá . Svo í dag þá náði ég að skera sama puttann á blaði. Skurðurinn er ofan á puttanum rétt hjá brennda svæðinu.


Sissi kom ljósarofamálunum okkar loksins í lag í kvöld . Ekki það að þetta var löngu hætt að bögga mig. En Sissi var ekki ennþá búinn að læra á ljósarofana. Þannig að hann fór í það að þræða einn enn vír í stoðina við eldhúsið. Svo að nú er rofinn fyrir ljósið, sem er fyrir ofan eldhúsborðið, við hliðina á eldhúsljósarofunum en ekki hjá stofuljósinu. Og svo snéri hann líka tökkunum þannig að takkinn sem er hægra megin, á við ljósið sem er lengst til hægri osfrv.
En núna þarf ég náttúrulega að læra á alla rofana upp á nýtt. Því ég var löngu orðin vön því að hafa þetta eins og það var.

Jæja ætli það sé samt ekki best að fara að koma sér frá tölvunni áður en ég breytist í tölvunörd...hehehehe....

Powered by Blogger