laugardagur, janúar 29, 2005
 
Vikan
Þessi vika er búin að vera eitthvað hálf þreytt. Ætli þetta sé ekki bara janúarþreyta. Maður er búinn að taka niður öll jólaljósin og snjórinn að fara svo að það er frekar dimmt og drungalegt. Svo er ég líka farin að taka svo mikið eftir því að Súlí er ekki lengur hérna fyrir sunnan. Hún hringdi reyndar í mig um daginn og það var nú voðalega notalegt að heyra í henni röddina. Það var einmitt stórt atriði í því að mig langaði norður á þorrablótið... það var til að hitta Súlí. En það verður bara að bíða betri tíma.
Það var mjög mikið að gera í vinnunni fyrri hluta vikunnar. Svo í gær og í dag var frekar rólegt... miðað við hvernig það er búið að vera. Ekki það að ég hafði alveg nóg að gera og enginn tími til að vera neitt að hangsa. Að vísu fór ég á tveggja tíma fund í gær í vinnunni, en það gerði ekkert til. Ég náði samt að klára allt í dag sem var komið inn. Var reyndar að vinna hálftíma lengur til að geta hreinsað allt upp og hlakka ég því til að mæta í vinnuna á mánudaginn og hafa ekkert gamalt og uppsafnað.
Við erum ennþá bara á einum bíl. Sissi er búinn að vera svo slappur að hann hefur ekkert komist í það að reyna að koma hinum bílunum í gagnið. Þar að segja hann ætlaði að reyna að koma Coltinum í gang svo að hann gæti verið á honum meðan verið er að gera við Galantinn.
Síðan ég minnkaði við mig í nuddinu er ég búin að vera í vandræðum með bókanir. Þá meina ég að ég á, núna, ekki lausan tíma fyrr en 8. mars. Sem þýðir að þeir sem hringja í mig og vantar nudd, þurfa að bíða í rúman mánuð. Ég er svo bara með lista yfir þá sem vilja komast að ef að það dettur úr tími. Það reyndar datt úr einn tími í þessari viku (nuddþeginn mætti ekki), en þá var klukkan orðin svo margt að það var ekki hægt að vera að leita að einhverjum til að hlaupa í skarðið. Ég nefnilega bókaði þennan nuddþega seinna heldur en ég vil vera að bóka nudd.
Ég er eiginlega alveg hætt að nenna að fara í tölvuna þegar ég kem heim.... sem þýðir að ég blogga ekkert á meðan. Ég finn alveg mun á því hvað ég nenni að fara í tölvuna núna, miðað við það hvernig það var fyrir áramót þegar ég var bara að vinna til kl. 13 hjá Símanum. Maður er náttúrulega alveg bundinn við tölvuna í vinnunni og þá finnst manni ágætt að sleppa því þegar maður kemur heim. Reyni samt að kíkja á tölvupóstinn minn öðru hvoru. Það slæðist alltaf einhver póstur með sem maður má ekki bíða of lengi með að lesa. T.d. þegar fólk er að panta tíma í nudd og svona.

Haldið þið að ég hafi ekki bara farið á Tupperwere kynningu á sunnudagskvöldið síðasta. Hún Bryndís Eva, vinkona mín, bauð mér. Ég hef ekki farið á svona kynningu í mörg ár. Ég hélt eiginlega bara að þetta væri hætt. En það var víst algjör vitleysa hjá mér. Ég keypti mér nú samt ekki mikið... varð samt að kaupa smá.

Var að hugsa um það í dag hvað ég ætti að gera 5.febrúar eftir 2 ár. Ég á nefnilega tvær vinkonur, þær Bryndísi Evu og Sigurlínu, sem eru alveg jafn gamlar...upp á dag. Þær, hins vegar, þekkja ekki hvor aðra (vita bara af hinni en þekkjast ekki neitt). Bryndís Eva býr hérna fyrir sunnan en Súlí fyrir norðan. Og hvað á ég svo að gera þegar þær eiga stórafmæli og halda kannski báðar upp á það í einu.....hmmmmm. Ég verð kannski bara að fara að tala við hann Kára og athuga hvort að hann geti ekki klónað mig. En þetta voru bara svona má vangaveltur.... svo er ekkert víst að þær haldi upp á afmælin sín... eða bjóði mér, ef þær halda uppá daginn.
sunnudagur, janúar 23, 2005
 
Fróðlegt???




In 1977 (the year you were born)


Jimmy Carter becomes president of the US


Most of the 10,000 Vietnam War draft evaders are pardoned by President Carter


Singer Anita Bryant starts her "Save Our Children" crusade against gay rights


Elvis Presley dies in his Graceland bathroom


Congress creates a Department of Energy


Anwar Sadat flies to Jerusalem in a dramatic gesture of willingness to discuss peace


Orlando Bloom, Shakira, Sarah Michelle Gellar, Liv Tyler, and Ludacris are born


New York Yankees win the World Series


Oakland Raiders win Superbowl XI


Montreal Canadiens win the Stanley Cup


Swedish music group ABBA passes The Beatles as having most records sold


Star Wars is the top grossing film


The Shining by Stephen King is published


"You Light Up My Life" by Debby Boone spends the most time at the top of the US charts


Three's Company premieres



What Happened the Year You Were Born?


More cool things for your blog at
Blogthings


laugardagur, janúar 22, 2005
 
Ætli það??????




You Are a Visionary Soul





You are a curious person, always in a state of awareness.
Connected to all things spiritual, you are very connect to your soul.
You are wise and bright: able to reason and be reasonable.
Occasionally, you get quite depressed and have dark feelings.

You have great vision and can be very insightful.
In fact, you are often profound in a way that surprises yourself.
Visionary souls like you can be the best type of friend.
You are intuitive, understanding, sympathetic, and a good healer.

Souls you are most compatible with: Old Soul and Peacemaker Soul



What Kind of Soul Are You?








You Have A Type A- Personality



A-





You are one of the most balanced people around
Motivated and focused, you are good at getting what you want
You rule at success, but success doesn't rule you.

When it's playtime, you really know how to kick back
Whether it's hanging out with friends or doing something you love!
You live life to the fullest - encorporating the best of both worlds



Do You Have a Type A Personality?






Your Dominant Intelligence is Linguistic Intelligence



You are excellent with words and language. You explain yourself well.
An elegant speaker, you can converse well with anyone on the fly.
You are also good at remembering information and convicing someone of your point of view.
A master of creative phrasing and unique words, you enjoy expanding your vocabulary.

You would make a fantastic poet, journalist, writer, teacher, lawyer, politician, or translator.



What Kind of Intelligence Do You Have?






You Are 29 Years Old



29





Under 12: You are a kid at heart. You still have an optimistic life view - and you look at the world with awe.

13-19: You are a teenager at heart. You question authority and are still trying to find your place in this world.

20-29: You are a twentysomething at heart. You feel excited about what's to come... love, work, and new experiences.

30-39: You are a thirtysomething at heart. You've had a taste of success and true love, but you want more!

40+: You are a mature adult. You've been through most of the ups and downs of life already. Now you get to sit back and relax.



What Age Do You Act?







How Your Attitude Ranks


Your Attitude is Better than 70% of the Population


If you scored...

80-100: You've got a winner attitude. You're always optimistic and cheery. Your personality will get you far in life.

60-79: You have a good attitude. While a realist, you do see the positive side of most things. People love to be around you.

40 - 59: You have a positive attitude... somtimes. You prefer to see the world through clear glasses, not rose colored ones.

20 - 39: You have an average attitude. You take the good and bad in life as they come. Though sometimes you could use a little more good.

0-19: You have a negative attitude. You tend to see the dark side of every situation. Free ice cream? No thanks, it will just make you fat!




How's Your Attitude?







Your Element Is Air



You dislike conflict, and you've been able to rise above the angst of the world.
And when things don't go your way, you know they'll blow over quickly.

Easygoing, you tend to find joy from the simple things in life.
You roll with the punches, and as a result, your life is light and cheerful.

You find it easy to adapt to most situations, and you're an open person.
With you, what you see is what you get... and people love that!



What's Your Element?




miðvikudagur, janúar 19, 2005
 
Einbíla
Galantinn er eitthvað að stríða okkur núna. Einhver svaka óhljóð í honum svo að Sissi þorir ekki að vera að keyra hann. Við erum því bara á einum bíl núna. Við Sissi urðum því samferða í vinnuna í morgun og svo kom Sissi og náði í mig kl. 15 þegar ég var búin að vinna.
Sissi tók sér frí það sem eftir var dagsins og þar sem ég var ekki að fara að nudda fyrr en kl. 17 þá ákvaðum við að gera eitthvað saman. Byrjuðum á því að fara í Ikea. Keyptum okkur rusladall til að hafa inni í svefnherbergi hjá tölvunni. Vorum hátt í klukkutíma í Ikea að skoða allskonar hluti. Þá var nú eiginlega kominn tími á mig að koma mér heim og undirbúa nuddið. Komum samt við í Húsasmiðjunni Skútuvogi til að kaupa stóra dyramottu. En hún var ekki til (sá litur sem við vildum) í þessari Húsasmiðju svo Sissi skutlaði mér bara heim. Svo fór Sissi bara einn í Húsasmiðjuna í Smáratorgi og keypti mottuna þar. Settum við svo mottuna sem var við útidyrnar (dyrnar fram á stigagang) við svalardyrnar. Við vorum nefnilega ekki búin að fá okkur neina mottu til að hafa þar.
Það er búið að vera endalaust vesen að reyna að halda parketinu þurru núna í öllum þessum snjó. Þannig að það var eiginlega "möst" að kaupa stærri mottu.

Ég fer víst ekki á þorrablót þetta árið. Mig langar samt alveg geðveikt. Fór ekki heldur í fyrra. Pabbi er í nefndinni og allt. En ég verð bara að vera dugleg stelpa og reyna að gráta ekki mikið. Sissi er að keppa um helgina og kemst því ekki. Og svo er enginn, sem ég þekki, að fara keyrandi á þeim tíma sem ég kemst. Því mér finnst nú full gróft að fara að taka mér frí úr vinnunni til að fara norður á þorrablót. Freyja systir var nú líka eitthvað að tala um það að veðurspáin væri nú ekkert svakalega spennandi heldur svo að það væri nú kannski ekkert gáfulegt að taka sénsinn.
Ég hefði nú samt verið geggjað kúl á þorrablótinu með hatt og sólgleraugu....

....eða kannski ekki????
þriðjudagur, janúar 18, 2005
 
Afmælisbarn dagsins
Það eru víst fleiri sem eiga afmæli í janúar.
Afmælisbarn dagsins í dag er Maggi, kærastinn hennar Sigurlínu vinkonu. Maggi er 31 árs í dag. Ég var nú að hlægja að því um daginn að ég væri búin að þekkja Magga lengur en Súlí. Og samt vorum við Súlí að halda upp á 20 ára vinaafmælið okkar núna í haust. Hulda, Maggi og Ásta á Úlfsbæ voru hins vegar eiginlega einu krakkarnir sem við þekktum (heima í sveit) áður en við byrjuðum í skóla.
En allavega Maggi minn, innilega til hamingju með daginn.
mánudagur, janúar 17, 2005
 
Afmælisbarn dagsins
Enn fleiri afmæli. Eva, konan hans tengdapabba, á afmæli í dag. Hún er 31 árs. Og þau hjónakornin eiga einnig 1 árs brúðkaupsafmæli í dag. Já já tíminn líður. En allavega innilega til hamingju með afmælin. Vona að þið eigið góðan dag.
laugardagur, janúar 15, 2005
 
Afmælisbörn


Ég er búin að fá skammir í hattinn, því ég hef gleymt að setja inn öll afmælisbörnin undanfarna daga.

Fyrstan ber þar að nefna Helga Stefán, frænda hans Sissa. Hann varð 29 ára þann 8. janúar.
Næstur kom Jón Ingi, maðurinn hennar tengdamömmu. Hann varð 45 ára þann 11. janúar.
Þar á eftir koma þær Karen Ýr, systir Sissa og Edith, amma Sissa. Karen varð 12 ára og Edith 79 ára. Báðar áttu þær afmæli 12. janúar.

Og svo er það afmælisbarn dagsins í dag. Það er hann Sissi minn. Hann er 28 ára í dag. Það styttist alla svakalega í fertugsaldurinn hjá kappanum. Ég gaf honum Indiana Jones safnið á dvd og Rokkland geisladiskinn.

Óska ég öllum þessum afmælisbörnum innilega til hamingju með afmælið.
miðvikudagur, janúar 12, 2005
 
Hóst
Já hún Gulla litla er búin að vera hóstandi í rúma viku, núna. Er nú samt öll að koma til. Meira að segja farin að sofa smá á nóttunni....ég hafði nefnilega ekki tíma til þess ég hóstaði svo mikið.
Lokaði mig bara að mestu inni um helgina (skrapp smá í Nettó) og reyndi að láta mér batna. Náði varla andanum þegar ég mætti í vinnuna á mánudaginn...en í vinnuna fór ég samt. En nóg um það.

Það á að vera örlítið húllumhæ í vinnunni á föstudaginn. Það eru nefnilega smá skipulagsbreytingar í gangi. Og á föstudaginn eigum við öll að vera búin að fá að vita hvernig allt verður. Spennandi það.
Á laugardaginn verður svo símasöfnunin v/hamfaranna á annan dag jóla. Sent verður beint úr þjónustuverinu í þætti Gísla Marteins. Ég tek samt ekki þátt þar sem hann Sissi minn á afmæli á laugardaginn og stefnum við á það að fara út að borða.
laugardagur, janúar 08, 2005
 
Jól og áramót


Jæja loksins er heilsan að skána svo að nú get ég farið að segja frá jólunum. Ég var nefnilega varla fyrr mætt í vinnuna á nýju ári en ég var orðin veik. Nóg um það, snúum okkur að skemmtilegra efni. Jól og áramót!!!

Að sjálfsögðu fórum við norður til að eyða hátíðinni í faðmi fjölskylunnar. Brunuðum norður eftir vinnu og skötu á Þorláksmessu. Ferðin gekk vel þrátt fyrir hálku. Ætluðum svo að skreppa í möndlugrautinn í sveitinni í hádeginu á aðfangadag. En okkur varð sko ekki kápan úr því klæðinu....það var bara brjálað verður og allt ófært. Aðfangadagskvöld var svo bara mjög rólegt. Góður matur, fullt af pökkum og byrjað á jólabókinni (Birgitta Halldórs - fékk hana frá mömmu og pabba). Á jóladag ætluðum við svo að gera aðra tilraun til að komast heim í sveit... en nei nei!!! ennþá brjálað veður og Víkurskarðið lokað. Það var því ekki fyrr en á Annan í jólum sem við komumst heim í sveit. Þá var að sjálfsögðu hið árlega fjölskyldurhitterí hjá systkinum mömmu. Náðum að eiga nokkra rólega og góða daga í Bárðardalnum. Það var nú aðeins um gestakomur og mjög gaman hjá okkur. Við skruppum svo aftur til Akureyrar, reyndum að eyða smá pening sem við fengum í jólagjöf en tókst það ekki (keyptum okkur skrifborðsstól í IKEA þegar við vorum komin suður aftur). Gamlárskvöldið var svo haldið hátíðlegt heima í sveit hjá pabba, mömmu og Þuru. Allt gekk að óskum þar til við vorum að horfa á Skaupið..þá brast á bilað veður og því gátum við ekki sprengt áramótin..... engir flugeldar fyrir mig. Ekki það að það er búið að vera stanslaus skothríð (flugelda) hér í nágrenninu eftir að við komum aftur suður. Svo að ég missti nú ekki alveg af flugeldunum þetta árið.
Vegna þess hversu veðurspáin var slæm ætluðum við að drífa okkur til Akureyrar um kaffileitið á nýársdag. En þegar við vorum búin að keyra langleiðina að Vaglaskógi, með ekkert skyggni, hringdi mamma í mig og sagði að Víkurskarðið væri orðið lokað. Við snérum því við og keyrðum heim aftur. Kom það svo í fréttunum um kvöldið að fólk sem var á ferðinni á sama tíma og við sat fast upp á Víkurskarði. Björgunarsveitin á Akureyri hjálpaði þeim svo niður um kl. 21 um kvöldið. Þau voru því búin að sitja föst í 4 til 5 tíma. Og við hefðum sennilega verið það líka hefðum við ekki snúið við.
Klukkan c.a. 10, daginn eftir, ætluðum við að fara að koma okkur af stað aftur, vitandi það að Víkurskarðið var opnað um morguninn. En okkur varð ekki að ósk okkar í það skiptið heldur. Víkurskarðið var orðið lokað aftur.... stórhríð og rok. Við vorum nú farin að hafa smá áhyggjur því við áttum að mæta í vinnuna morguninn eftir. Víkurskarðið var svo opnað laust fyrir hádegi og dótið tínt út í bíl....en þá var kisa týnd. Það fóru einir 2 tímar í að leita að kisu áður en við gáfumst upp og fórum til Akureyrar, án kisu. Þegar við vorum búin að tína dótið okkar, sem var á Akureyri, út í bíl og svona við það að leggja af stað suður, hringir Þura systir og segir að kisa sé fundin. Við keyrum því á móti pabba og mömmu til að ná í kisu. Þvílíka vesenið gert út af einum ketti.
Við vorum því frekar sein að leggja af stað suður, en allt gekk vel og við náðum til Reykjavíkur áður en veðrið skall á um kvöldið. Tókst okkur því að mæta í vinnu á réttum tíma eftir jólafríið.

Ég er búin að skella inn myndum frá jólunum endilega kíkið á það!!!
laugardagur, janúar 01, 2005
 
Gleðilegt ár 2005


Árið 2005 hélt innreið sína á miðnætti. Það var reyndar svo brjálað veður hérna að það var ekki möguleiki á að skjóta upp flugeldum.
Vil ég samt óska öllum gleðilegs árs og þakka fyrir það gamla.

Powered by Blogger