sunnudagur, febrúar 27, 2005
Vaðið úr einu í annað
Ég er alveg ótrúleg þegar ég tek mig til og ætla að fara að gera eitthvað
. T.d. í gær þá var ég að fara að hengja upp þvott. Ákvað að setja snúrurnar inn í nuddherbergi. En þar sem ég var að fara að sópa og skúra þá nátturulega varð ég að gera þar fyrst (annað væri vitleysa)
. En þegar ég var að sópa
nuddherbergið lít ég í skápinn með nuddolíunum og sé hvað olíubrúsarnir mínir eru ólíuklístraðir. Þannig að ég tek þá og fer að reyna að þrífa þá. Það var nú ekki auðvelt og var ég komin með pottasvamp og hníf til að reyna að ná olíunni utan af brúsunum. Þegar ég er svo loksins búin að þrífa 4 olíubrúsa og 2 glerkrukkur (sem voru nú auðveldari viðureignar) geng ég frá brúsunum inn í skápinn. Tek ég þá eftir að lítersbrúsinn minn (sem ég nota til að fylla á litlu brúsana) er næstum því tómur. Þannig að fyrst að ég er byrjuð þá verð ég að fylla á lítersbrúsann úr 5 lítra brúsanum. Eftir þetta get ég loksins klárað að sópa nuddherbergið. Og tókst mér meira að segja að skúra
án þess að fara að gera eitthvað annað í millitíðinni. Þá loksins gat ég hengt upp þvottinn. Og sett aftur í þvottavélina
.Fór ég svo og ætlaði að sópa stofuna og eldhúsið. Þá byrjuðu tómu kókflöskurnar á eldhúsbekknum að pirra mig
. Ég krem þær og set í poka. Fer svo með flöskurnar og fleira niður í geymslu. Ætla ég svo að fara að halda áfram að sópa en rek þá augun í blaðagrindina sem er orðin yfirfull. Að sjálfsögðu verð ég að tæma hana líka. Fer svo inn í stofu og er að fara að ganga frá nokkrum dvd myndum sem voru ekki alveg á sínum stað. Fatta þá að það á eftir að skrá þær og merkja.....geng að sjálfsögðu í það verk. Dreg svo Sissa á fætur og læt hann taka bílasprautudótið sem var í stofunni. Eftir þetta gat ég loksins sópað stofun og eldhúsið. Ryksuga ég allar motturnar án vandræða
og skúra. Þar sem ég var búin að erfiða svo mikið í þessari tiltekt minni ákvað ég að skreppa í sturtu. Fer inn á bað og byrja að gera klárt sé ég þá allan kattasandin sem kisa er búin að krafsa upp úr kattasandsdallinum. Að sjálfsögðu get ég ekki látið þar við sitja heldur verð ég að sópa það núna. Og fyrst ég er á annað borð byrjuð að laga til inni á baði færi ég allt til og umraða hlutunum þannig að betur fari.
Eftir þetta tókst mér nú samt að koma mér í sturtu og vera stolt af því hvað mér tókst að koma miklu í verk þennan daginn
. (Og ég sem ætlaði bara að sópa og skúra!!!)föstudagur, febrúar 25, 2005
Stjörnuspáin mín.
Þetta er stjörnuspáin mín fyrir árið 2005. Tekið af Spámaður.is.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Undir kuldalegu og fálátu yfirborði þínu hefur þú heilt vopnabúr til að heilla alla sem verða á vegi þínum og árið framundan virðist þú leyfa þeim sem þú virðir og elskar að njóta nærveru þinnar. Þegar þú ákveður og notar hugmyndirnar sem þú færð, ertu mun betur sett/ur en sá sem les sér til um hundruð hugmyndir en gerir ekkert við þær og mundu í árslok 2005.
Bjart
Það er nú æðislegt hvað það er farið að verða bjart á morgnanna. Það er næstum því orðið bjart þegar ég fer í vinnuna. Sem er bara frábært. Svo er heldur alveg orðið dimmt þegar ég er búin að nudda. Þetta sýnir að það styttist í sumarið.
Ég held nú líka að það sé kominn vorfílingur í krakkana sem búa hérna í götunni. Maður er farinn að heyra urgið í hjólabrettunum og hlaupahjólunum.
Ég er nú ekki ennþá búin að gleyma hvað mér fannst þessi blessuð hjólabretti leiðinleg þegar ég var að vinna í Bókabúð Jónasar. Á sumrin var alltaf þvílíkur hávaði frá hjólabrettakrökkunum sem voru að renna sér allan daginn, alla góðviðrisdaga.
fimmtudagur, febrúar 24, 2005
Ekki slæmt!!!
Aðalfundur Símans var haldinn í gær kl. 17:00. Á fundinum tilkynnti Rannveig Rist, stjórnarformaður Símans, frá þeirri ákvörðun stjórnar félagsins að starfsmönnum félagsins verði greiddur kaupauki, þann 1.mars næstkomandi.
Sama upphæð er á sérhvern starfsmann en þeir fá greitt hlutfallslega miðað við starfstíma og starfshlutfall á síðasta ári og að þeir séu í starfi nú í dag, 23. febrúar. Fyrir þessari ákvörðun liggja nokkrar ástæður. Má nefna að afkoma félagsins hefur verið góð síðustu ár. Þá hafa starfsmenn sýnt að þeir eru samheldinn hópur sem er tilbúinn að takast á við nýja hluti með opnum hug og líta á breytingar sem tækifæri. Með þessari ákvörðun vill stjórn félagsins sýna í verki þakklæti sitt til starfsmanna Símans.
þriðjudagur, febrúar 22, 2005
Kjarasamningar samþykktir
Kjarasamningarnir okkar voru samþykktir í gær
. Þannig að það er kannski líkur á að ég hækki aðeins í launum núna. Samningarnir gilda aftur til 1. des 2004 þannig að við fáum leiðréttinguna sennilega núna um næstu mán.mót. 
Ég hef þá vonandi efni á að senda Sissa minn til læknis í byrjun mars. Og kannski get ég gert tilraun til að gera mig sæta fyrir árshátíðina
.mánudagur, febrúar 21, 2005
Konudagurinn í gær
Já ég átti nú bara ágætis konudag í gær. Reyndar var ég nú frekar einmana aðfaranótt sunnudagsins. Sissi nefnilega kom ekkert í bólið..... við vorum ekki að rífast. Hann var að sprauta fjarstýrðubílabody fyrir keppnina sem var á sunnudaginn. Einnig var hann eitthvað að skrúfa í bílnum sínum. Svo var hann farinn að keppa snemma um morguninn. Ég reyndar fór fram til hans eitthvað uppúr kl. 7 um morguninn. Svo skreið ég aftur uppí rúm... en gat ekkert sofið meira svo að ég var bara að lesa. Þangað til ég ákvað að kíkja í Nettó og svo á Sissa að keppa. Keypti langlokur og kók og færði Sissa í hádegismat. Þeir voru nú að tala um það strákarnir hvað Sissi væri heppinn að eiga svona góða konu.... og það á konudaginn (þegar Sissi ætti að vera góður við mig).
Þegar Sissi kom svo heim....búinn að taka við verðlaununum fyrir 3ja sætið.... þá færði hann mér blóm og bauð mér út að borða. Við fórum á T.G.I. Friday og fengum okkur Jack Daniels steik..... namm namm. Ég verð nú samt að segja að mér fannst starfsfólkið þarna eitthvað hálf dauft. Ég hélt að það ætti alltaf að vera gaman á Fridays, en það hefur sennilega verið einhver misskilningur hjá mér.
Á heimleiðinni, þegar við vorum búin að borða, kíktum við á myndbandaleigu (Allt í einu) og tókum eina dvd til að horfa á. Fyrir valinu varð "Along came Polly". Ágætis mynd. Held reyndar að mér hafi fundist hún skemmtilegri en strákunum....en soooo... það var nú einu sinni konudagurinn.
laugardagur, febrúar 19, 2005
Spámaður.is

XIV - Jafnvægi
Þér er ráðlagt að finna jafnvægið innra með þér og ekki hika við að hugleiða ef það eitt ýtir undir þína jákvæðu eiginleika. Þú ert fær um að takast á við erfiðar aðstæður með atferli þínu og aga. Hér er verið að minna þig á kosti þína ef erfið staða kemur upp í lífi þínu eða jafnvel starfi.
Um þessar mundir stendur þú jafnvel í sporum þar sem þú ættir að huga vel að jafnvægi þínu og fara varlega í einu og öllu.
Finndu takt þinn ef upp kemur verkefni sem krefst vitsmuna þinna og aðhalds af þinni hálfu.
Þú getur komist í snertingu við hið eilífa andartak.
Veittu andardrætti þínum eftirtekt og taktu eftir hvernig hann flæðir.
© 2005 Spámaður
Göngutúr
Var að koma heim frá Bryndísi Evu. Við skelltum okkur í göngutúr með Andra Dag í vagninum. Vorum alveg tvo tíma á röltinu og fórum svo heim til Bryndísar og fengum okkur súkkulaðiköku
.Löbbuðum hringinn í Bökkunum og svo yfir í Elliðaárdalinn. Spjölluðum og spjölluðum. Það er búið að vera alveg æðislegt veður til að vera úti að labba. Svo var ég örugglega aðra tvo tíma (eða rúmlega það) í heimsókn hjá Bryndísi. Var að leika við Andra Dag og að sjálfsögðu spjalla meira við Bryndísi..
Það er ótrúlegt hvað við Bryndís hittumst sjaldan miðað við það að við búum eiginlega hlið við hlið. Það er ekki nema 2 mín ganga á milli okkar. En þegar við hittumst þá líka tekur það tíma....hehehehe...... við þurfum að spjalla svo mikið.
miðvikudagur, febrúar 16, 2005
Drykkjuvandamál
Já, ég á við drykkjuvandamál að stríða. Ég drekk svo mikið af vatni að það er orðið vandamál. Ég nefnilega var að lesa það um daginn að maður má ekki drekka nema 2 lítra af vatni á dag. Maður getur fengið vatnseitrun (þá þynnist blóðið of mikið af völdum vatnsins), fyrir utan það að sjálfsögðu hvað þetta getur verið mikið álag á nýrun. Ég hinsvegar er oftast búin að drekka 1,5 lítra af vatni fyrir hádegi, í vinnunni, og svo drekk ég líka vatn eftir hádegi og þamba oft vatn á kvöldin.
Núna síðustu daga er ég búin að vera að reyna að halda í við mig. En það bara gengur ekkert. Í gær var ég t.d. búin með 1,5 lítra af vatni um kl. 11 og drakk svo helling með samlokunni minni í hádeginu. Ég hef örugglega verið búin með meira en 2 lítra áður en ég fór úr vinnunni kl. 15. Og þá á eftir að telja það sem ég drakk um kvöldið.
Ekki það að maður veit nú aldrei hverju maður á að trúa. Einu sinni var alltaf talað um það að maður ætti að drekka lágmark 2 lítra af vatni á dag. Og svo hlýtur þetta nú að fara eitthvað eftir því hvað manneskjan er stór. Það getur ekki verið að það sama gildi um konu sem er 156 cm og karlmann sem er 190 cm. Eða ég get allavega ekki trúað því.
laugardagur, febrúar 12, 2005
Klipping
Ég fór í klippingu í morgun
. Það var nú kominn tími til. Ég var ekki búin að fara í klippingu síðan í september. Ég var búin að taka eftir því hvað hárið á mér var orðið svakalega sítt (svona fyrir manneskju sem ekki er að safna)
. Ákvað ég þá að þetta gengi ekki lengur og pantaði mér tíma. Það var nú reyndar svo mikið að gera á hárgreiðslustofunni að ég þurfti að bíða í hálftíma, frá því að tíminn minn átti að byrja, þangað til farið var að klippa mig. En ég var svosem ekki í neinni tímaþröng svo að þetta var allt í lagi
. Hitti, á hárgreiðslustofunni, systir hennar Möggu Lukku. Það er alveg ótrúlegt hvað þær eru líkar
. Þegar verið var að klippa mig heyrði ég alltaf röddina og hláturinn í henni, sem er alveg nákvæmlega eins og í Möggu Lukku. Þegar búið var að klippa mig ákvað ég því að kíkja á þessa manneskju og þá eru þær líka alveg svakalega líkar í útliti. Ég spurði hana því hvort að hún væri systir Möggu Lukku og hún játaði því. Hún sagði að ég væri önnur manneskjan á stuttum tíma sem spyrði hana. Og hin manneskjan var hún Jóhanna sem var með okkur Möggu Lukku í Nuddskólanum. Gaman að því!!! 
Fór í dag með Sissa í Kringluna til að láta hann velja sér gallabuxur. Ég ákvað nefnilega að gefa kallinum gallabuxur í Valentínusargjöf
. Eða allavega ákvað ég að gefa Sissa gallabuxur og fannst Valentínusardagurinn ágætis afsökun. Við höfum nú yfirleitt ekki verið neitt að gera eitthvað úr Valentínusardeginum. En það er ágætt að hafa hann sem átyllu ef að mann vantar einhverja
.fimmtudagur, febrúar 10, 2005
Afmæliskonan

Það er sú yndislega kona, móðir mín, sem á afmæli í dag. Hún heitir Sigríður Sveinbjörnsdóttir og er 46 ára í dag. Að sjálfsögðu bara kornung ennþá konan. Hún er nú eitthvað búin að vera að þvælast á Húsavík frá því í morgun. Þegar ég heyrði í henni var hún að versla (í matinn að ég held). Mér skilst nú samt að það ætli einhverjir að kíkja á konuna í kvöld og verði hún með einhverjar veitingar í boði. Ekki veit ég samt nákvæmlega hvað það verður.
En allavega .... Eigðu nú góðan dag, mamma mín. TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!!!!

sunnudagur, febrúar 06, 2005
Þorrablót og vinnupartý
Það var nóg að gera hjá okkur Sissa í gærkvöldi. Fórum á Þorrablót heima hjá Einari og Ásu. Þar var saman komin hluti af fjölskyldunni hans Einars. Og eins og hann kynnti okkur fyrir fólkinu þá vorum við fóstursonurinn og fósturdóttirin. Þar fengum við fullt að borða... bæði af skemmdum og óskemmdum mat. Seinna um kvöldið...eða svona ca kl. 10:30... mættum við á Ölver, þar sem haldið var þjónustuverspartý. Fullt af fólki að syngja í "karókí"
(ég reynar sleppti því) og var söngurinn nú mis gæfulegur. Það fór alveg endanna á milli.... sumir sungu mjög vel og aðrir alveg hræðilega illa. En það er nú bara gaman. Ég myndi nú samt ekki vilja vera að vinna þarna og þurfa að hlusta á svona "alltaf".
Við Sissi fórum svo heim milli hálf tvö og tvö og skelltum einni dvd í tækið. Og ég meira að segja vakti yfir henni allri.
laugardagur, febrúar 05, 2005
Afmælispíur
Já, það eru tvær ungar snótir sem eiga afmæli í dag. Það eru þær Sigurlína Tryggvadóttir og Bryndís Eva Sverrisdóttir, mjög góðar vinkonur mínar. Þær eru báðar 28 ára í dag. Þær eru alveg ótrúlegar líkir karakterar þó að þær þekkist ekki neitt. Ágætt að hafa tvær svona yndislegar stúlkur fyrir vinkonur. Þó hef ég þekkt Súlí í þónokkur fleiri ár en Bryndísi. Súlí kynntist ég sumarið áður en við byrjuðum í Barnaskólanum. En Bryndísi kynntist ég fyrst þegar ég var í Heilbrigðisskólanum að taka bóklega hlutann af nuddnáminu. Og svo enn betur þegar við vorum saman í Nuddskólanum.
Ég er búin að heyra í þeim báðum og hljóðið var bara gott. Vona ég nú að þær eigi góðan dag það sem eftir er dagsins. Innilega til hamingju stelpur mína.
Knús og kossar snúllurnar mína.
föstudagur, febrúar 04, 2005
Aftur kalt
Þá er veturinn kominn aftur
. Þurfti að skafa í gærmorgun, en ekkert voðalega mikið. Það var hins vegar verra að ég þurfti að moka af bílnum þegar ég var að fara heim eftir vinnu í gær. Svo var mér frekar kalt í morgun þegar ég þurfti aftur að skafa af bílnum. En þá verður maður bara að reyna að gera eitthvað hlýlegt heima....eða að heiman. Ég bauð Sissa á "stælinn". Gerði nefnilega ekkert fyrir hann á bóndadaginn og svo langaði mig bara að vera góð við hann
.
Ég get ekki kvartað undan því að ég hafi ekki nóg að gera. Var að vinna lengur í dag eins og síðustu föstudaga
. Og svo á ég ekki lausan tíma í nudd fyrr en eftir páska
. Vinnufélagarnir berjast um tímana. Þegar þeir heyra hvaða daga ég er að bóka þá hlaupa þau til að bóka fleiri tíma. miðvikudagur, febrúar 02, 2005
Nýr mánuður
Já það er bara kominn febrúar. Janúar endaði með stæl.... ég fékk ávísunina góðu frá FÍS, ásamt boðskorti í 90 ára afmæliskaffið. Ég efa það nú reyndar að ég skelli mér í þetta kaffi, en hver veit??? Svo kom líka árshátíðarboðskortið. Já Síminn ætlar að bjóða mér (og fleirum) á árshátíðina í ár. Og það kostar ekki nema kr. 2.500,- fyrir maka. Ég hefði nú farið á árshátíðina þó að ég hefði þurft að borga aðeins meira (ekki segja Brynjólfi).... en þetta er sannkallaður bónus. Það verður þá sennilega enginn launabónus í ár. En maður má nú ekki vera of frekur. Ég er allavega ánægð með að fá það sem ég fæ.
Galantinn er kominn á götuna aftur. Það var nú ekki eins mikið að honum og við vorum hrædd um. Mesti hávaðinn var í brotinni legu sem var búin að dreifa legukúlunum út um allt. Það slapp því við að vélin væri ónýt. Ekki það að það á ennþá eftir að gera meira við bílinn en hann er allavega í ökuhæfu ástandi.
