þriðjudagur, mars 29, 2005
 
Kominn tími til að blogga smá
Já, það er orðið alltof langt síðan ég bloggaði síðast. Ekki það að ég hef nú voðalega lítið farið í tölvuna á þessum tíma.



Það var mjög ljúft að hafa svona stutta viku, í síðustu viku. Við hjónakornin ákváðum að eyða páskunum í höfuðborginni. Já það var sko ekkert mömmufæði þessa páskana. Ég sá alveg sjálf um páskamatinn. Tókst meira að segja að gera brúninguna (í 1. tilraun). Ég er ekki frá því að það séu komin 5 ár síðan ég gerði brúningu síðast (það var um aldamótin). Þannig að mér fannst ég bara standa mig nokkuð vel. Brúningin var svo með svaka ljúffengu lambalæri. Ég var með smá villibráðastemningu... ferskur hvítlaukur og villibráðakrydd. Bara mjög góð blanda það.
Magnið var hinsvegar svo mikið að það var meira en nóg til að hafa líka í matinn á annan í páskum. Við vorum reyndar búin að belgja okkur út af sætindum. Tengdapabbi og konan hans komu nefnilega í heimsókn og ég bauð uppá smá sykursjokk (marens, kókosbollur, mars, rjómi blandað saman). Til að vera ekki bara í sykrinum var ég með tortillakökusamlokur, smurðar með blaðlauksosti. Með tortillakökunum fylgdi svo salsasósa (algjört nammi).
Við fengum tvö páskaegg . Síminn gaf starfsfólki sínu páskaegg nr. 4. Og Sissi kom heim með páskaegg nr. 6 eitt kvöldið þegar hann kom heim af verkstæðinu. Það er nú meirihlutinn ennþá eftir en það þokast smá í rétta átt.

Á föstudaginn langa átti hún Linda mín, vinnufélagi og vinkona, 25 ára afmæli. Til hamingju með það, snúllan mín. Við fórum að sjálfsögðu til hennar í dúndurteiti. Þetta var svona næstum því vinnupartý. Þarna var svaka stuð og margar krassandi sögur sagðar. Við Sissi fórum reyndar bara heim þegar hitt fólkið fór að huga að skemmtistaðarápi.

Sissi var á verkstæðinu næstum því allt fríið. Ég fékk reyndar að eiga laugardaginn og annan í páskum.
Það er svaka gott að geta verið svona að gera ekki neitt og slaka bara á. Að sjálfsögðu lagaði ég aðeins til og þreif... og við Sissi vorum aðeins að breyta í stofunni líka. En það er bara svona temmilegt og ekkert farið út í öfgar.

En nú er fríið búið og bara harkan sex framundan. Ég verð nefnilega á námskeiði, í vinnunni, næstu þrjá daga...eða réttara sagt næstu þrjá morgna frá 9-12.
Núna er Hörður líka kominn að norðan og því ekkert hægt að slæpast frammi án fata....tíhíhí.... er svosem ekkert mikið búin að vera að því í fríinu en eitthvað þó.
sunnudagur, mars 20, 2005
 
Stjörnumerkin
Ég hef alltaf haft gaman af stjörnuspám og því hvernig stjörnumerkin passa saman. Lenti fyrir tilviljun inn á síðu þar sem fjallað er um slíkt.
Og svona pössum við Sissi saman:

I am Taurus, My Lover is Capricorn

Can a Goat and a Bull find happiness? You bet! This relationship should hit the very top of the charts! Both of you are earthsigns, which means you understand one another intuitively.

First and foremost, your Capricorn lover inspires you. The Goat will never be content to graze in the valley. Capricorns' ambition leads them to trek right up to the top of the mountain, and only at the top does the Goat feel peace. This is where he or she is meant to be. Capricorns are very hard workers, determined to succeed and willing to undergo considerable hardships to get to the top. Like Taurus, they are excellent at finances, reliable, steadfast and true. Both of you need social approval, and neither of you is likely to become a radical insurgent and embarrass the other. Life together will be unusually harmonious.


Kíkið hér til að sjá alla greinina.

Svona lítur þetta svo út ef að Sissi hefði verið að skoða.
 
Skattaskýrsluskil
Já hún Gulla litla dugnaðarforkur gerði skattaskýrslu þeirra hjóna í dag. Ég var reyndar nærri því búin að gleyma að ég þyrfti að gera skattaskýrsluna í dag. Ekki hef ég tíma til þess á morgun og þá er síðasti skiladagur.
Ég mikla þetta alltaf svo mikið fyrir mér. En þegar ég svo byrja þá tekur þetta ekkert voða langan tíma. Helmingurinn af skýrslunni er forskráður og maður þarf bara að tékka á því hvort að það stemmi ekki. Þurfti aðeins að klóra mér í hausnum í sambandi við íbúðarlánin en ég held að þetta hafi verið rétt hjá mér.....við vonum það allavega í lengstu lög.
Svo að ég er núna komin með kvittun í hendurnar þar sem stendur:
Skattaframtali var skilað 20. mars 2005 kl. 17:03

Annars er helgin búin að vera ágæt. Tók helgarþrifin með áhlaupi á föstudaginn. Kom beint heim úr vinnunni og kláraði helgarþrifin á innan við 2 klst. Sissi var nefnilega að fara í viðtal við Mannlíf kl. 17:30. Fór viðtalið fram hérna heima...ljósmyndari og allar græjur.
Pabbi kom svo til höfuðborgarinnar á laugardagsmorgun um kl. 11 og eyddum við systur smá tíma með honum þar til hann þurfti að mæta annað....fyrir kl. 15.
Hann var nefnilega að syngja í Langholtskirkju með Söngfélaginu Sálubót. Og að sjálfsögðu fórum við Freyja á tónleikana sem hófust kl. 17.
Gulli, vinur okkar, og Anna, kærastan hans, voru svo komin hingað í pizzukvöld rétt áður en ég kom heim. Anna þurfti svo að fara tiltölulega snemma þar sem hún var að fara að skemmta sér með vinkonum sínum. En Gulli var lengur og horfði á 3 myndir með okkur.....ég reyndar gafst upp þegar þriðja myndin var rétt byrjuð.

Kvefið og hálsbólgan er enn á sínum stað en fer þó ögn skánandi.
Hörður er farinn norður í páskafrí og erum við hjónakornin því orðin ein í kotinu. Held að Hörður komi aftur suður að kvöldi 29. mars.
miðvikudagur, mars 16, 2005
 
Árshátíð Símans
Já ég fór sko á árshátíðina og dróg hann Sissa minn með mér. Það var svaka fjör. Gísli Marteinn og Sveppi voru veislustjórar. Ég hefði nú ekki kosið Gísla Martein ef ég hefði fengið að ráða... en hann stóð sig nú samt allt í lagi. Maturinn var mjög góður, hefði mátt vera betur útilátinn. Ekki það að ég fékk alveg nóg, en Sissi minn þarf meira til að fá magafylli.
Í svörtum fötum lék fyrir dansi í aðalsalnum en svo var hægt að dansa á efrihæðinni við eitthvað salsaband og það var diskó í hliðarsalnum.
Við Sissi fórum svo heim eitthvað uppúr kl. 2... komum við á Domino's og keyptum okkur pizzu.

Sissi var svo að keppa á sunnudaginn. Lenti reyndar í 4. sæti (þeir voru tveir jafnir eftir keppnina en þá réð tímatakan úrslitum og kom Sissi verr út þar). Hann er nú samt ennþá í 3. sæti í mótaröðinni og ekki nema ein keppni eftir.
fimmtudagur, mars 10, 2005
 
Sissi dúlla
Já hann Sissi minn var líka algjört krútt þegar hann var lítill....það er nú af sem áður var...hehehehehe. Smá grín. Hann Sissi getur ennþá verið krútt. En ég var sem sagt ennþá að fikta í skannanum. Ég er samt ekki ennþá búin að læra neitt að ráði á hann. Það er ýmislegt sem ég hélt að ætti að vera hægt en ég bara virðist ekki geta fundið hvar ég á að gera það. Ég held samt að ég hafi aðeins náð að breyta einhverjum stillingum. Skönnunin ætti því að vera í aðeins meiri gæðum hjá mér núna en í gær. Hvað haldið þið???

Image hosted by Photobucket.com
miðvikudagur, mars 09, 2005
 
Gulla fiktaraskítur
Mér finnst gaman að fikta. Núna er ég að fikta mig áfram við að skanna myndir. Og útúrstækka myndir og svoleiðis. Var t.d. að skanna inn þessa hér.... einu sinni var ég lítil sæt stelpa...hehehe.

Image hosted by Photobucket.com
þriðjudagur, mars 08, 2005
 
Helgarsamantekt
Helgin var alveg frábær. Byrjaði helgina á því að taka nuddherbergið í gegn. Þegar ég var búin að færa öll nuddlökin yfir í nýju kommóðuna fór ég í allsherjar tiltekt í nuddherberginu. Fór í gegnum fullt af drasli. Henti því sem var ónýtt (hafði geymt þónokkuð af ónýtum lökum...gatslitnum). Og er því nuddherbergið sem nýtt núna...hehehe... eða næstum því. Fór ekki að sofa fyrr en kl. 4 aðfaranótt laugardags. Fór svo á fætur kl. 9 á laugardagsmorgun til að taka mig til í búðaráp. Þær Sigurlína, Heiðrún og Sigrún Vésteins voru nefnilega komnar í bæinn í eyðsluferð. Og að sjálfsögðu tók ég þátt í eyðslunni með þeim. Eyddum megninu af laugardeginum í Kringlunni. Þegar við vorum búnar að þræða flestar búðirnar í þar skruppum við í Zik zak tískuhús. Sáum samt ekkert þar sem við vildum eyða peningum í. Eftir þetta fór ég bara heim en stúlkurnar fóru í Ikea (ákvað að sitja hjá þar sem ég fór í Ikea á föstudaginn). Þegar ég var komin heim settist ég smá stund niður með tærnar upp í loft. En svo var kominn tími til að taka sig til fyrir kvölið. Hann Hörður, leigjandinn okkar, átti nefnilega afmæli. Og var stefnan tekin á Austur Indía fjelagið til að fagna með piltinum. Vorum við fimm saman að borða þar.... ég, Sissi, Hörður, Súlí og Heiðrún. Fengum mjög góðan mat, þurftum reyndar að drekka svoltið mikið af vatni með matnum. Eftir matinn fórum við svo í íbúðina sem stelpurnar leigðu yfir helgina og eyddum kvöldinu þar í mikilli gleði. Þegar Súlí, Sigrún og Hörður fóru niður í bæ þá fórum við Sissi heim að horfa á dvd. Ég reyndar sofnaði fljótlega .
Fór á fætur kl. 9:30 á sunnudagsmorgun. Fékk mér að borða og var farin að hitta stelpurnar fljótlega upp úr kl. 11. Skruppum á hádegisverðarhlaðborð á Asíu. Það var alveg frábært. Eftir matinn hélt búðarápið áfram. Nú var það Smáralindin sem var þrædd. Fórum við Sissi einnig í Nettó að versla þar sem ísskápurinn var orðinn alveg tómur. Tókum kvöldið í smá rólegheit og slökun. Sem sagt mjög góð helgi .
föstudagur, mars 04, 2005
 
Það kom að því!!!


Ég var að eyða smá peningum í dag. Það er nefnilega búið að standa til, frá því að við fluttum hingað inn, að kaupa kommóðu í nuddherbergið. Og viti menn, rúmlega ári síðar varð það að veruleika. Ég fór í Ikea og keypti þessa líka fínu kommóðu. Ég vildi frekar borga aðeins meira fyrir kommóðuna og fá þá almennilega kommóðu, heldur en að fara í Rúmfatalagerinn og kaupa eina fyrir slikk. Þetta er ekki illa meint, en mín reynsla af Rúmfatalagerskommóðum er ekki góð. Sissi, þessi elska, skrúfaði skrúfur og negldi nagla og nú er kommóðan klár.
Ég er að vísu ekki búin að raða í hana ennþá en fer í það um leið og ég hætti að slæpast í tölvunni .

Powered by Blogger