miðvikudagur, apríl 27, 2005
Gramsi-Gulla
Ég hef alltaf haft svakalega gaman af því að gramsa. Pabbi og mamma kölluðu mig oft Gramsi-Gullu. Ef eitthvað fannst ekki strax þá var Gulla spurð "hún hefur örugglega séð þetta einhversstaðar".
En allavega... ég var að gramsa í gömlum myndum um daginn. Og mikið hef ég nú breyst á "örfáum" árum. Sumar breytingarnar eru til hins betra en aðrar til hins verra. En hér koma nokkur sýnishorn:
Hér erum við Þura svaka sætar saman '92....og sjáið gleraugun mín!!

Þetta held að þessi mynd hafi verið tekin jólin '93

Og svona vorum við Sissi þegar við vorum tiltölulega nýbyrjuð saman '95

Og svona vorum við Sissi þegar við vorum nýgift '98

En nóg um það. Hún Þura mín sæta ætlar að skella sér í höfuðborgina. Hún ætlar að koma hinga fimmtudaginn 05.05.05. Skemmtileg dagsetning það. Stúlkan ætlar að dvelja hér á milli prófatarna. Og lendir það á okkur eldri systrum hennar að fylgjast með því að hún gleymi ekki að læra fyrir þau próf sem eftir eru. Það verður samt indælt að fá að hafa þessa elsku í nokkra daga.
sunnudagur, apríl 24, 2005
Fyrsta grillmáltíð sumarsins

Við grilluðum í gær..... jibbí jei.
Fórum með Gulla Bergmann og Auði út í búð og keyptum í matinn. Komum svo öll hingað og grilluðum og útbjuggum þessa svakalega góðu máltíð.
Að matnum loknum skelltum við spólu í tækið og létum fara vel um okkur uppi í sófa. Gulli entist lengur er Auður... en hún var líka að fara að vinna kl. 7.

Sissi var að keppa í gær. Og hann vann....duglegi strákurinn minn. Þetta var fyrsta keppnin í Tómstundahússmótinu. Það verða einnig keppnir næstu tvær helgar. Allar fara þær fram á planinu fyrir utan Tómstundahúsið.
Sissi var að taka mynd af okkur í morgun..... hehehehe... hann er svo sniðugur strákur.

fimmtudagur, apríl 21, 2005
Gleðilegt sumar!!!!
Það er komið sumar, sól í heiði skín....næstum því allavega. Það er allavega kominn sumardagurinn fyrsti. Þannig að það er byrjað að vora. Var að horfa út um gluggann áðan og sá að lóðin hérna fyrir utan er aðeins að byrja að fá á sig grænan blæ. Og ég er komin á sumardekkin. Fékk að vita hvenær ég fer í sumarfrí. Fékk óskina sem ég lagði fram um daginn eftir að upprunalegu óskinni minni var hafnað. Ekki alveg það sem ég hefði viljað en sumarfrí engu að síður.
Það var vorgleiði í vinnunni í gær. Og við vorum með hippaþema. Ég gróf upp gamalt munstrað pils sem ég gekk mikið í þegar ég var svona 16-18 ára. Og tók einnig fram gamla eyrnalokka sem ég gekk með um svipað leiti.
Það var rosalega skrítið að vera allt í einu með svona lafandi eyrnalokka... hef ekki gegnið með svoleiðis í mörg ár. Er alltaf bara með hringi í eyrunum.
Ég fann mér svo einhverja litla slæðuómynd og gat notað hana sem hippaband.
Ég er ekki viss um að ég myndi vilja sjá mig í þessu "átfitti" en það vakti samt lukku í vinnunni.
Við fengum svo glæsilegar veitingar í kaffinu. Tertur og snittur... ekki megrun hjá neinum i dag. Ekki það að ég hafi neitt verið í megrun, en það eru alltaf einhverjir í þjónustuverinu í megrun.
Sissi var að sprauta eitt body fyrir Eirík "óákveðna" og kom Eiríkur svo hingað til að klippa það út og líma límmiðana á.
Ég nennti því ekki að hanga frammi með þeim og er nú búin að spila af mér puttana og góla röddina í burtu. Kannski ýki ég aðeins.... ég er bara svoltið aum í puttunum og ætli ég þurfi ekki bara að fá mér eitthvað smá að drekka og þá væri röddin orðin fín aftur.
þriðjudagur, apríl 19, 2005
sunnudagur, apríl 17, 2005
Helgarfílingur
Þetta er búin að vera alveg ágætis helgi.
Tók föstudagskvöldið í rólegheit. Horfði á fyrsta þáttinn af Djúpu lauginni...varð reyndar fyrir smá vonbrigðum. Horfði svo á Ungfrú Reykjavík. Og að sjálfsögðu vann sú sem ég hélt með (af þessum 5 sem voru kallaðar fram á sviðið)
..... ég hef svo gott auga fyrir fegurð....hehehehehe... eða þannig.Laugardaginn notaði ég til að vera góð við sjálfa mig. Fór í langa sturtu og bar á mig allskonar krem og fínerí.
Sissi ákvað að vera með humar í matinn
. Ég hjálpaði honum að hreinsa hann en Sissi sá alfarið um steikinguna. Bárum svo humarinn fram með ristuðu brauði (sem snillingurinn ég ristaði) og graflas og skelfisksósu. Þetta var alveg rosalega gott hjá honum Sissa mínum. Þetta var meira að segja í fyrsta skipti sem Hörður smakkaði humar.Eftir matinn fór ég svo í afmælispartýið hennar Auddu (Auður Elísabet) vinnufélaga og vinkonu. Hún varð nefnilega 23 ára þann 12. apríl
. Þetta var hörku partý sem að sjálfsögðu var að stórum hluta skipað þjónustuversliði (sem eru algjörir stuðboltar). Beta gella skutlaði mér svo heim þegar djammararnir fóru að huga að skemmtistaða brölti. Ég er ekki frá því að við Beta höfum setið úti í bíl í næstum því klukkutíma og spjallað (næstum því trúnó). Það er nú ekki slæmt að eiga svona góða vinnufélaga
. Ég var svo að koma inn heima hjá mér (eftir að hafa setið í bílnum úti á plani) eitthvað rétt um kl. 4 í nótt. Og Sissi minn sæti var meira að segja vakandi þegar ég kom heim. Mikið var nú gott að geta kúrt hjá honum uppi í rúmi.... því ég var bara alls ekkert þreytt þegar ég kom heim.Dagurinn í dag byrjaði ekki hjá mér fyrr en um kl. 11 í morgun. Ætlaði að fara að gera mig sæta svona í rólegheitunum en fór þá að einhverjum ástæðum að taka smá til og sinna þvottamálum. Endaði því með því að ég var eiginlega að flýta mér að setja upp andlitið rétt fyrir kl. 13. Eftir það rölti ég yfir til Bryndísar Evu og urðum við samferða til Jóa Vil. Það var nefnilega smá Nuddskóla hitterí.... fjölskylduvænt. Það mættu nú ekki allir en góður hópur samt. Ég hef nú hitt þessa einstaklinga mjög misoft frá því við kláruðum Nuddskólann. Egil held ég að ég hafi ekki hitt síða við vorum síðast með svona hitterí fyrir tveimur árum. Vonandi líða ekki önnur tvö ár þangað til við hittum næst. Það er ekki eins og þetta sé svo stór hópur að það sé eitthvað mikið mál að halda svona.
þriðjudagur, apríl 12, 2005
Sissi duglegur
Sissi stóð sig nú bara vel í keppninni á sunnudaginn. Varð í þriðja sæti og heldur því þriðja sætinu í mótaröðinni.
Núna á að fara að undirbúa nýja mótaröð, skilst mér. Tómstundahúsið var að biðja Sissa að redda því. Held að þetta eigi að vera fjórar keppnir. Og sú fyrsta að vera helgina 23-24 apríl. Og vera alveg fjórar helgar í röð (held að ég sé ekki að ljúga neinu).
Þannig að það verður nóg að gera hjá honum Sissa mínum.... en það er svosem ekkert nýtt.
Erum búin að vera einbíla síðan á laugardaginn. Galantinn bilaði enn einu sinni. Sissi náði samt að gera við hann í dag. Þannig að ég verð aftur komin á Súbbann á morgun.
Fórum í dag í viðtal í Landsbankann. Þeir eru eitthvað að reyna að bæta þjónustuna sína. Bjóða viðskiptavinunum ráðgjöf. Mjög sniðugt.... ef að kallinn sem við vorum að hitta hefði ekki verið búinn að gleyma okkur.
En við þurftum samt ekkert að bíða lengi... konan í afgreiðslunni hringdi í hann og hann kom eiginlega strax.
Hann ráðlagði okkur smá og nú ætlum við að fara að kanna smá hvort að við getum lækkað okkar mánaðarlegu útgjöld. En það á bara eftir að koma í ljós.
laugardagur, apríl 09, 2005
Frægur, frægari, frægastur!
Já hann Sissi minn er alltaf að verða frægari og frægari. Núna er viðtal við hann í nýjasta Mannlíf. Ég nefndi það örugglega, hér á blogginu, þegar viðtalið var tekið við Sissa. En viðtalið er í aukablaðinu sem fylgir með. Og ekki nóg með það heldur var líka símaviðtal við hann á fm 957 fyrir hádegi í gær. Ég meira að segja var svo heppin að ég heyrði viðtalið (svona að mestu allavega).
Það hefur voðalega lítið spennandi gerst þessa síðustu viku. Það er bara búið að vera brjálað að gera í vinnunni og svo hef ég verið að nudda frekar seint á kvöldin. Og ekki nóg með það heldur er ég búin að vera að bóka alvega grimmt og á núna ekki lausan tíma fyrr en 21. júní.
Fékk að vita það í gær að ég fær ekki sumarfrí á þeim tíma sem ég var að vona. Og þeir tímar sem ég fæ að velja um eru eiginlega alveg vonlausir, henta mér allavega engan veginn. En svona er það... maður fær ekki alltaf það sem maður vill. Ætli ég verði ekki bara að skipta fríinu í fleiri parta... sem kannski er ekki heldur mjög sniðugt því að mér finnst maður þurfa alveg 3 vikur, samfellt, í frí til að koma endurnærður til baka. En þar sem ég hef ekki áhuga á að klára sumarfríið mitt í júní, né á að vera bara í fríi í lok ágúst og byrjun september, þá eiginlega verð ég að slíta það í sundur. En þetta kemur allt í ljós í næstu viku.
Núna er Sissi að sprauta á fullu. Þarf að klára þrjú body fyrir keppnina á morgun. Það á nefnilega að vera sýning líka. Það er búið að vera að auglýsa og auglýsa þessa keppni. Þetta er fjórða og síðasta keppnin í þessari mótaröð. Og styrktaraðilarnir (Tómstundahúsið, Icehobby og Módel Express) verða allir að sýna eitthvað af þeim vörum sem þeir eru að selja.
Keppnin verður haldin í íþróttahúsinu í Mosfellsbæ. Það eru allir velkomnir og frítt inn. Keppnin byrjar kl. 10 en mesta fjörið byrjar samt ekki fyrr en um hádegi (þannig hefur þar allavega verið hingað til). En allt um þetta á sbki.is
laugardagur, apríl 02, 2005
Veturinn ekki alveg búinn

Þessa mynd tók ég rétt áðan. En í gær var autt.
Það er nokkuð ljóst að veturinn er ekki alveg búinn ennþá. Ég er reyndar næstum því viss um að það voru Súlí og Maggi sem komu með snjóinn með sér. En ég fyrirgef þeim alveg því mér finnst svo gaman að sjá þau.
föstudagur, apríl 01, 2005
Jibbí
Súlí og Maggi voru að koma suður. Og þau verða í gistingu hjá mér
. Súlí sendi mér sms í dag til að spyrja hvort að þau mættu gista. Og að sjálfsögðu sagði ég já. Það er nú ekki á hverjum degi sem ég fæ að hafa þau hjá mér. Og þau verða hjá mér ALLA helgina.
Þessi vika er búin að vera alveg ágæt. Ég reyndar þurfti að virkja lærdóms-sellurnar í heilanum á mér. En námskeiðið gekk samt alveg ágætlega. Ég held að ég reddi mér alveg. Fengum reyndar alveg forljót skyggni/eyrnabönd þegar við kláruðum námskeiðið. Og að sjálfsögðu var þetta merkt Símanum. En maður verður að taka viljann fyrir verkið. Síminn ætlaði bara að vera góður við okkur.
Ég var svo að vinna lengur í dag til að reyna að vinna eitthvað upp af því sem hefur dregist afturúr meðan ég var á námskeiðinu. En núna ætla ég að njóta helgarinnar.

