fimmtudagur, júní 30, 2005
 
Ferðasaga
Image hosted by Photobucket.com

Fórum, föstudaginn 24. júní, eftir vinnu á Snæfellsnesið. Nánar til tekið á Hótel Hellnar. Okkur var nefnilega boðið þar í gistingu í tvær nætur.
Vorum ekkert að flýta okkur á leiðinni þar sem við höfðum nógan tíma. Áttum bara að vera mætt fyrir kl. 21:30. En þá áttum við að fá að borða.
Það var tekið mjög vel á móti okkur og okkur strax úthlutað herbergi sem við gátum komið okkur fyrir í.
Eftir mat var svo spallað og farið í sauna. Eftir saunað var svo haldið áfram að spjalla og haft skemmtilegt fram á nótt. Okkur var svo sagt að vera ekkert að flýta okkur því að hádegismaturinn okkar yrði í seinna fallinu (þegar stór ferðamannahópur væri búinn að borða).
Gulli og Auður tóku svo að sér að sýna okkur nágrennið.
Við skoðuðum Lóndranga, Malarrif, Djúpalónssand, Hólahóla, Skarðsvík og Öndverðarnes svo eitthvað sé nefnt. Veðrið var nú samt frekar blautt og var það blautur hópur sem kom til baka í kvöldmat. Seinna kvöldið var ekki síðra en það fyrra þó svo að ég verði að viðurkenna að ég fór örlítið fyrr að sofa.
Á sunnudaginn pökkuðum við svo saman og héldum ferð okkar áfram. Frá Hellnum fórum við í Sönghellinn og keyrðum upp að Snæfellsjökli. Við á okkar fjallabíl ókum svo bara áfram yfir heiðina, þegar við vorum búin að taka myndir af Snæfellsjökli, og komum niður rétt hjá Ólafsvík. Þar sem við erum að skoða landið okkar fórum við út á Hellissand og Rif, aftur til baka til Ólafsvíkur. Á Ólafsvík skrupppum við í sjoppu og fengum okkur frostpinna. Sissi tók meira að segja mynd af Gullu litlu með græna tungu.
Næst fórum við á Grundarfjörð og Stykkishólm. Frá Stykkishólmi fórum við í Búðardal og fengum okkur að borða þar. Ekki get ég nú mælt með sjoppunni/búðinni sem við fórum í. Bæði var þjónustan með eindæmum léleg og maturinn langt frá því að vera góður. Vorum að spá í að tjalda í Búðardal en hættum við og ákváðum að keyra lengra. Keyrðum Fellsströnd og Skarðsströnd og enduðum á Reykhólum. Þar skelltum við upp tjaldi og gistum um nóttina. Á mánudaginn var svo stefnan tekin á Barðaströndina. Við lentum nefnilega í svo æðislegu veðri þar í fyrrasumar að okkur langaði að fara þangað aftur og gefa okkur meiri tíma. En veðrið var ekki eins hliðhollt okkur núna og var ausandi rigning þegar á Barðaströndina var komið. Keyrðum við því á Patreksfjörð og fengum okkur að borða á Þorpinu. Veðrið vildi ekkert skána svo að við skelltum okkur bara á Ísafjörð þegar við fréttum að þar væri fínt veður. Það stóð heima við fengum ágætis veður þar og ákváðum því að halda kyrru fyrir þar yfir nóttina. Tjölduðum við hliðina á golfvellinum, grilluðum okkur pylsur (eftir langa leit að pylsubrauðum). Það rigndi um nóttina en var aftur komið gott verður þegar við fórum á fætur. Tókum létt labb í miðbæ Ísafjarðar, kíktum í nokkrar búðir og heilsuðum upp á Símann á Ísafirði.
Nú var svo kominn tími til að halda aftur heimleiðis því Sissi þurfti að mæta í vinnu á miðvikudaginn. Á heimleiðinni stoppuðum við smá á Hólmavík og fórum á Galdrasafnið....eitthvað fyrir Gullu norn. Vorum svo komin til Reykjavíkur um kl. 19.
Hér verður svo hægt að skoða myndir úr ferðinni.
mánudagur, júní 20, 2005
 
Norðurlandið heimsótt


Brunuðum norður þegar Sissi var búinn að vinna á fimmtudaginn (ég var í sumarfríi þann dag). Fyrsti áfangastaður var Varmahlíð. Þar voru nefnilega saman komin þónokkuð mörg mótorhjól. Tímasetningarnar hjá okkur voru miðaðar við að vera í Varmahlíð milli hálf tíu, tíu um kvöldið. Til að sjá hópinn leggja af stað frá Varmahlíð í áttina að Sauðárkróki.
Næst var brunað til tengdó... rétt sögðum hæ og héldum svo áfram heim í sveit. Þar gistum við svo fyrstu nóttina. Við pabbi vorum svo dugleg að við skárum niður rabbabara í sultu. Og að sjálfsögðu tókst mér að skera mig.... það var nú ekki við öðru að búast. Vísifingur af við öxl.
Fórum svo til Akureyrar aftur. Fórum á bílasýninguna.... 1000 kall inn á manninn... þetta er nú ekki fyndið lengur hvað bílaklúbburinn er farinn að rukka mikið inn á alla svona viðburði. Það er bara 25% hækkun á milli ára. Fórum svo til tengdó í grill. Átum á okkur gat og fórum svo á Burn-out keppnina. Lásí keppni þetta árið.... rukkað 500 kall inn og ekki nema 4 bílar að keppa. Púum á það.
Slökuðum á smá stund eftir burn-outið. Röltum svo niður í bæ. Horfðum á Grýlurnar syngja og nýstúdentana dansa. Og svo var bara partý fram á nótt hjá tengdó. Langt síðan ég hef dugað lengur en Sissi. En sú var raunin í þetta skiptið.
Sissi var svo að keppa á laugardaginn og var ég hjá Lindu vinkonu á meðan. Hún átti nefnilega 30 ára afmæli um daginn og ég komst ekki í veisluna hennar. Sissi náði svo í mig þegar hann var búinn að keppa og horfa á spyrnuna.
Þá hentumst við heim í sveit aftur.... þar var holugrillað læri í kvöldmatinn... og aftur var borðað á sig gat. Eftir matinn fórum við í Svartárkot. Fengum að skoða hvernig Súlí gengur að koma sér fyrir í húsnæðinu sínu. Einnig fengum við að skoða nýja húsið hjá Guðrúnu og Hlina. Guðrún og Hlini voru reyndar ekki heima en við gerðum okkur bara heimakomin og vorum þar ennþá þegar þau komu heim....hehehehe.
Ákváðum að gista ekki í sveitinni þessa nóttina og vorum komin til Akureyrar um hálf þrjú, þrjú um nóttina. Lögðumst strax til hvílu og kúrðum fram að hádegi...Sissi eitthvað aðeins lengur.
Héldum svo suður í gærkvöldi. Ferðin gekk vel og vorum við ekkert voðalega seint komin heim.

Gulli og kærastan eru að fara að flytja inn í aukaherbergið hjá okkur. Þau verða hjá okkur í nokkrar vikur. Eða þangað til þau fá íbúðina sem þau eru að fara að leigja.

Andri bróðir Sissa er 14 ára í dag. Og óskum við honum til hamingju með daginn. Vonum að hann hafi átt góðan dag.
föstudagur, júní 10, 2005
 
Ekki mikið að gerast
Það er nú eitthvað voðalega tíðinda lítið hér. Við vinnum bara og vinnum og svo er Sissi að keppa næstum því alla sunnudaga.
Linda vinkona átti 30 ára afmæli 5. júní s.l. Vil ég óska henni innilega til hamingju. Ég ætla að reyna að kíkja á hana næst þegar ég fer norður.
Það virðist alltaf vera nóg að gera í vinnunni og var ég að vinna til kl. 17 í dag. Og ég á ekki lausan tíma í nudd fyrr en í september.
Súlí hringdi í mig áðan og bað mig að hitta sig í Kringlunni. Að sjálfsögðu sló ég ekki hendinni á móti því. Það er nú ekki það oft sem við getum verið saman, svona þegar við búum á sitthvorum landshlutanum.
Við náðum að eyða smá peningum. Enda erum við góðar þegar við tökum og til og förum saman að versla. Ég kláraði að kaupa mér afmælisgjöfina frá Sissa. Keypti mér þrjá boli. Ég er algjör bolasjúklingur. Ég er nú reyndar frekar heitfeng og þarf alltaf að vera frekar léttklædd í vinnunni. Ef ég er í peysu í vinnunni líður mér illa af hita. Reyndar bætti ég örlitlum pening við upphæðina sem Sissi gaf mér, en það getur þá bara verið restin af gjöfinni frá tengdó.

Powered by Blogger