laugardagur, júlí 16, 2005
 
Ættarmót
Image hosted by Photobucket.com

Hef ekki skrifað hér lengi. Er búin að vera með einhverja leiðinlega magapest alla vikuna. Og því ekki verið nógu vel upplögð.
Fór á ættarmót um síðustu helgi. Ættarmótið var haldið heima í sveit, hjá pabba og mömmu. Það voru móðuramma mín og hennar afkomendur (og makar) sem voru að hittast. Gleðin hófst á föstudagskvöld og stóð fram á sunnudag. Það var sungið, spjallað, farið í gönguferðir og kveiktur varðeldur.
Veðrið var ágætt, en var þó örlítið að skemmta sér á okkar kostnað. Það var frekar mikill vindur á laugardag og sunnudag. Sólin sýndi sig, mest allan tíman, en þó kom rigning öðru hvoru á laugardeginum. Rigningin var þó ekki meiri en svo að jörðin hélst þurr.
Ég fór bara ein á þetta ættarmót því að Sissi var að keppa á sunnudaginn. Ég tók því bara flug og var náð í mig á flugvöllinn og svo skutlað þangað aftur. Freyja og Snorri fóru líka og því var ekki bara verið að ná í mig og skutla.
Sissi stóð sig eins og hetja í keppninni og ég er ekki frá því bara að hann hafi sagt að hann hafi unnið. Það er ekki að spyrja að því .... hann er bestastur.
mánudagur, júlí 04, 2005
 
Vestmannaeyjar
Image hosted by Photobucket.com
Skruppum til Vestmannaeyja föstudaginn 1. júlí og gistum tvær nætur. Þetta var eiginlega svona meira skyndiákvörðun. Móna hringdi í okkur á þriðjudagskvöldið og spurði hvort að við ætluðum ekki að skella okkur á goslokahátíðina, sem við héldum að hefði verið helgina á undan. Sissi bókaði okkur svo bara í Herjólf með seinni ferðinni á föstudaginn og til baka með seinni ferðinni á sunnudaginn. Bíllinn komst reyndar ekki með, en þar sem tengdó og fjölskylda voru líka í Eyjum þá fengum við að rúnta með þeim og einnig afnot af þeirra bíl, sem komst með þeim til Eyja.
Fengum við nú ekkert mjög skemmtilega sjóferð til Eyja en stóðum okkur eins og hetjur þó að helmingur farþega væri ælandi.
Við fengum að gista hjá Helgu og Dóra (vinafólk Mónu) og Anna dóttir þeirra kom að taka á móti okkur. Hún keyrði okkur svo til foreldra sinna.
Fyrra kvöldið var tekið fremur rólega, miðað við fólkið sem var með okkur, og var farið að sofa um kl. 2. Laugardagsmorguninn var tekinn snemma og rölt yfir götuna til að skoða uppgröftinn.
Image hosted by Photobucket.com
Eftir það rölt hófst svo skoðunarferðin. Ég, sem hafði aldrei komið til Eyja, varð að sjá allt á einum degin. Hafði reyndar ágætis guide þar sem Móna og Sissi bjuggu í Eyjum í nokkur ár. Fórum á Fiskasafnið og Byggðasafnið og rúntuðum út um allt. Við Sissi tókum einnig smá rölt í bænum, meðan náð var í Andra, þar sem við vorum of mörg í bílinn. Eftir fjölskyldurúntinn fengum við Sissi bílinn og rúntuðum aðeins meira, bara við tvö. Kíktum svo á Kúta, bróðir tengdapabba, og konuna hans. Held jafnvel að þau hafi verið ánægð að sjá okkur.
Helga og Dóri buðu okkur svo í kvöldmat kl. 19. Þetta var svaka góður matur, skötuselsréttur og hangikjöt. Eftir matinn var svo byrjað að huga að djammi kvöldsins. Byrjað var á partýi heima hjá Helgu og Dóra og svo upp úr miðnætti röltum við niður í Skvísusund. Þar var svo stuðið fram undir morgun.
Image hosted by Photobucket.com
Við Sissi, gömlu hjónin, vorum reyndar komin "heim" um kl. 4. Skildum Mónu og Jón Inga eftir í bænum. Mér skilst reyndar, á þeim, að þau hafi rölt heim fljótlega á eftir okkur.
Sunnudagurinn var í blautari kantinum og héldum við okkur innan dyra þar til kom að heimferð. Heimferðin var skárri en ferðin til Eyja og minna um ælandi farþega (við stóðum okkur jafn vel á heimleiðinni og leiðinni til Eyja). Ég svaf þó meiri hluta leiðarinnar. Spenna helgarinna og brölt langt fram á nætur (og fara snemma á fætur á eftir) tekur sinn toll.
Ég vil þakka kærlega fyrir góðan aðbúnað og skemmtilega helgi.

Powered by Blogger