fimmtudagur, ágúst 25, 2005
 
Gulla alltaf að fikta
Mér tókst loksins í gær að laga bloggið mitt. Var búin að vera svo pirruð á því hvernig það birtist á síðunni. Kom alltaf langt bil milli fyrirsagnarinnar og textans. Það er hlut af ástæðunni fyrir því að ég hef ekki nennt að blogga. Kom alltaf út eins og það væri bara fyrirsögn nema ef fólk skrollaði niður.
En allavega ég tók mig til í gær og fiktaði og fiktaði í stillingunum á síðunni og tókst á endanum að fá þetta til að koma rétt út.

Fórum til Freyju og Snorra í gær. Borðuðum pizzu, kjöftuðum og horfðum á einhverjar videoklippur. Þetta var bara voða rólegt og þægilegt.

Svo vil ég óska afmælisbörnum mánaðarins til hamingju. Hef víst ekki sett inn neitt um þau.

Það er hún Járnbrá, frænka mín, sem átti afmæli 1. ágúst. Hún varð 31.
Svo er það hún Freyja, systir, hún átti afmæli 3. ágúst og varð einnig 31.
Berglind Beinteinsd. átti afmæli 11. ágúst. Hún er nú orðin 29 ára.
Og svo er það hún Lóló, fyrrverandi konan hans tengdapabba, hún átti afmæli 19. ágúst. Konan sú er á besta aldri eða 51 árs.
Vona að ég sé ekki að gleyma neinum. Og vona að ég hafi ekki móðgað neinn með því að vera ekki búin að skrifa þetta fyrr.
miðvikudagur, ágúst 24, 2005
 
Sumarfrí
Er í sumarfríi núna.... bara ég ekki Sissi.
Pabbi, mamma og Þura komu suður þann 13. ágúst og fóru aftur norður 16. ágúst. Það var mjög gaman að fá þau í heimsókn. Við buðum þeim út að borða á American style. Fórum aðeins með þeim í búðir... mér tókst meira að segja að kaupa mér buxur og skó þegar ég var að skoða með mömmu.
Veðrið hefur nú ekkert verið voðalega skemmtilegt við mig í sumarfríinu mínu. Alltaf rigning...eitthvað á hverjum degi. Þannig að ég fór og keypti mér 5 tíma ljósakort til að bæta upp að ég get ekkert verið í sólbaði....hehehe. Er samt bara búin að fara í tvo tíma.
Við erum að fara til London. Það er allt orðið klárt og styttist óðum í ferðina. Við verðum í fjóra daga. Og ætlum við sko að leika okkur þann tíma. Erum ekki að fara til að versla, þó að það geti vel verið að við kaupum eitthvað. Ég vil frekar fara í skoðunarferðir og sjá sem mest af borginni.
Fór áðan að kaupa flugveikitöflur...svona til öryggis... og var þá spurð hvort að ég væri ekki alveg örugglega orðin 18. Það er nú ekki slæmt að vera svona unglegur að fólk haldi jafnvel að maður sé 10 árum yngri en maður er....hehehehe.
Freyja, systir, og Snorri eru að flytja til Bretlands. Fara út 31. ágúst. Þau ætla að vera þar í ár. Þannig að við ætlum að hitta þau í kvöld til að kveðja þau. Það getur nú samt vel verið að við hittum þau aftur áður en þau fara en þetta verður svona kveðjukvöldið þeirra.
miðvikudagur, ágúst 10, 2005
 
Þreyta og andleysi
Þreyta og andleysi hafa einkennt undanfarnar vikur. Skriftarandinn hefur ekki komið yfir mig. Og ekkert spennandi gerst.
Fórum reyndar í bíó...tvisvar með stuttu millibili... sem hefur ekki gerst mjööööög lengi. Held að það sé komið meira en ár síðan við fórum síðast í bíó þar á undan. Og svo er videoleigan Allt í einu búin að græða alveg helling á okkur. Vorum nefnilega farin að dragast afturúr með að horfa á myndir en erum að verða búin að ná í rassinn á okkur með það.
Buðum Gulla og Auði í mat í kvöld. Mér datt nefnilega í hug að grilla hakk. Það héldu allir að ég væri eitthvað skrítin þegar ég nefndi þetta... en viti menn... þetta varð bara alveg ljómandi máltíð.
Nú fer að líða að því að ég fari að komast í meira sumarfrí. Það verður nú gott. Og ætla ég að reyna að nota það til að hressa mig við. Pabbi, mamma og Þura koma strax um næstu helgi og dvelja í einhverja daga og svo er ég að reyna að plana helgarferð til London (fyrir okkur Sissa). Á samt eftir að fá svar um það hvort að Sissi fái frí í tvo daga. Ef hann fær frí (ég trúi nú ekki öðru, þar sem flestir aðrir verða komnir til baka úr sínum fríum á þessum tíma) þá er bara að bóka flug og gistingu og byrja að hlakka til. En þetta á eftir að koma betur í ljós.

Powered by Blogger