þriðjudagur, september 27, 2005
 
Gulla upptekna
Já ég er nú bara frekar upptekin þessa dagana. Þann 9. sept átti hún Auður mín Kvaran afmæli og að sjálfsögðu kíkti ég á stúlkuna. Hún átti nefnilega stórafmæli...varð 20 ára. Ekki var nú mjög langt fyrir mig að fara þar sem hún býr bara á hæðinni fyrir neðan mig.
Helgina 16. - 18. sept fór ég í sumarbústað með nokkrum hressum stúlkum úr vinnunni. Það var nú alveg glæsileg ferð...frekar blaut samt.... þá á ég að sjálfsögðu við að það var mikið setið í heita pottinum...tíhíhí.
Ég verð nú samt að viðurkenna að það var eitt sem ég var ekki alveg sátt við í bústaðnum.... og það voru hrossaflugurnar. Þeir sem þekkja mig vita að mér er frekar illa við hrossaflugur. En HALLÓ!!!! þetta voru einhver stökkbreytt fyrirbæri því þessar voru margfalt stærri en þær eru venjulega... og þá á ég við feitari. Læt fylgja hér með mynd... vona að það sjáist. Mér fannst ég ekkert smá hetja að vera að taka mynd svona nálægt.
Image hosted by Photobucket.com
Svo er ég byrjuð í Línudansi. Búin að mæta í tvö skipti. Einnig er ég í gönguhóp, þar eru líka komin tvö skipti. 22. sept fór ég svo á aukaþing BIG. Stóð mig alveg eins og hetja og var boðið á NSK ráðstefnuna sem verður í október. Þar erum við að tala um mat og ball.
Ég er ekki að grínast þegar ég segi að 4 næstu helgar séu bókaðar hjá mér. Og þá er það annaðhvort föstudagur eða laugardagur sem er frátekinn.
Síðan er það Danmerkurferðin í nóvember. Við ætlum að skella okkur 4 sætar stúlkur. Það verður nú fjör. Hver veit nema að myndirnar sem teknar verða þar verði jafn mikið leyndó og flestar myndirnar sem teknar voru í sumarbústaðnum.
sunnudagur, september 04, 2005
 
London
Image hosted by Photobucket.com

Skruppum til London 26. - 29. ágúst. Flugum út kl. 7:30 á föstudagsmorgni. Lentum á Stansted flugvellinum og tókum rútuna til London. Vissum í rauninni ekkert hvar hótelið okkar var staðsett svo að við spurðum bara hvar væri best fyrir okkur að fara úr rútunni. Tókum svo leigubíl á hótelið. Þetta var nú ekkert lúxushótel en ágætt samt. Það er ekki eins og maður sé voðalega mikið á hótelinu. Það voru engar pöddur og við fengum hreint á rúmið og hrein handklæði.
Fórum strax að skoða okkur um, um leið og við vorum búin að koma okkur fyrir á hótelinu. Keyptum okkur miða í undergroundið og brunuðum eitthvað í áttina að miðbænum. Löbbuðum svo og löbbuðum langt fram á kvöld. Fengum okkur að sjálfsögðu að borða og svona. Image hosted by Photobucket.com Svo þegar klukkan var orðin margt og komið myrkur fórum við að leita okkur að underground stöð svo að við gætum farið að síga í áttina að hótelinu okkar (það var undergroundstöð, Earl's Court, næstum því við hliðina á hótelinu okkar).
Laugardagsmorgun tókum við snemma. Fórum í morgunmat á hótelinu og svo út að halda áfram að skoða undur Lúndúnaborgar. Fórum sem leið lá á Victoria og fundum þar Sightseeing bus. Keyptum miða sem gildir í sólarhring og lögðum af stað. Image hosted by Photobucket.com Kvöldið áður vorum við búin að merkja við á korti hvað við vildum skoða (möst) og fundum okkur leið út frá því. Byrjuðum á að fara fram hjá Buckingham Palace, en þar löbbuðum við einnig á föstudeginum svo að við fórum ekkert úr þar. Og það fyndna var að við löbbuðum næstum því helminginn af sightseeing leiðinni á föstudeginum. Þannig að fyrsti staðurinn sem við fórum úr rútunni var hjá The London Dungeon. Fórum þar inn og vorum alveg í einn og hálfan tíma... ef ekki lengur. Héldum svo áfram að rúnta með rútunni og taka fullt af myndum. Fórum einnig á Madame Tussauds safnið og tók það svipaðan tíma og hitt safnið. Fórum reyndar ekki í bátsferðina sem var innifalin í Sightseeing túrnum en þegar við hættum í túrnum um kvöldið tókum við göngu meðfram Thames. Og svo löbbuðum við og löbbuðum og löbbuðum...o.s.frv. langt fram á kvöld.
Sunnudagsmorgun fór í smá leti. Sváfum fram eftir morgni og vorum ekki lögð af stað í leiðangur fyrr en upp úr hádegi. Þá var það Oxford street. Löbbuðum það endanna á milli (fram og til baka). Og tók það einhverja 5 tíma (með búðarkíkkeríi, átstoppi og kaffihúspásu). Keyptum einn hatt og einn geisladisk... það eru nú ekki margir sem fara til London og koma ekki heim með meira en þetta.
Þegar þarna var komið við sögu ákváðum við að fara í Notting Hill að skoða. En viti menn... vil lentum í þessu svaka carnivali Image hosted by Photobucket.com... og það var sko menningarnótt + gaypride hvað. Það voru um 2 milljónir manna saman komin á "smá" svæði. Við að sjálfsögðu tókum bara þátt og vorum þarna langt fram á kvöld. Held að klukkan hafi verið eitthvað um 11 þegar við vorum að staulast af stað heim á hótel Image hosted by Photobucket.com.
Mánudagsmorgun gengum við frá, tékkuðum okkur út af hótelinu og fórum að athuga hvernig við kæmumst út á flugvöll. Tókum svo góða göngu út frá Liverpool Street. Það var hinsvegar svo gott veður (29 stig á mæli og glampandi sól) að við ákváðum að fara bara í Green Park og fara í sólbað. Gátum að sjálfsögðu ekki legið kjurr mjög lengi en röltum þá aðeins um garðinn. Image hosted by Photobucket.com Svo var bara kominn tími til ná í farangurinn á hótelið og koma sér út á flugvöll. Heim vorum við svo komin milli kl. 1 og 2 aðfaranótt þriðjudags.

Powered by Blogger