sunnudagur, október 09, 2005
 
Bloggafmæli
Gleymdi einu smá hérna áðan. Haldið þið ekki bara að ég hafi átt afmæli í gær..... blogg afmæli. Í gær voru tvö ár síðan ég braust inn í bloggheima. Já viti menn þetta get ég. Ég viðurkenni þó fúslega að síðustu mánuðir hafa nú ekki verið til að hrópa húrra fyrir. Bæði vegna anna og smá svona lægðar í skriftarandanum. Vona að ég fari að verða upprifnari en ég er ekki ennþá farin að sjá fram úr önnunum. Geri ekki annað en að bæta á mig vinnu og frístundaiðju. Þyrfti eiginlega að lengja sólarhringinn aðeins svo að ég geti fengið nægan svefn. Er ekki viss um að það gangi til lengdar að sofa svona lítið. En þetta er sjálfsagt bara tímabil....og svo venst það...hehehe.
 
Sár botn
Fór í hestaferð í gær. Svaka dugleg. Hef ekki farið á hestbak í mörg mörg ár. Ekki síðan við hættum að vera með hesta heima í sveit.
Brá mér, næstum því, lipurlega á bak. Og fór í hraða hópinn. Ferðinni var semsagt skipt í tvennt, hraðan- og hægan hóp. Stoppuðum á miðri leið og stigum af baka smá stund. Og þá brá ég mér, alveg, lipurlega á bak aftur. Ég verð þó að viðurkenna að brjóstahaldarinn minn fær ekki góða einkunn sem hestaferðabrjóstahaldari. Gerði ekki mikið gagn. Hann verður allavega ekki notaður ef ég fer aftur á hestbak.
Eftir hestaferðina dönsuðum við smá línudans. Nú kom sér vel að vera á línudansnámskeiði. Gerði mig ekki að fífli. Og svo var komið að matnum.
Ég fékk reyndar verðlaun fyrir flottan kúrekaútbúnað....kom með kúrekahatt.....svaka gella.
Eftir matinn fór fólk að tínast heim. Ég var búin að vera að spá í að fara á djammið en var svo ekki í stuði. Það voru heldur ekkert margir, sem ég þekkti, að fara að djamma svo að ég var bara heima að dunda mér.
Nenni samt engan veginn að fara að þrífa sameignina núna. En illu er best af lokið svo að ég læt þetta gott heita í þetta skiptið.
mánudagur, október 03, 2005
 
Aum læri
Já það er ekki frá því að ég sé eftir mig í lærunum. Hversvegna skildi það vera. Varla vegna þess að ég dansaði svo mikið á laugardagskvöldið....hmmmmm... jú sennilega.... ég nefnilega stoppaði ekki allt kvöldið.

En helgin var alveg ágæt. Ekki það að hún hafi byrjað neitt svakalega vel... ég var nefnilega að vinna til rúmlega hálf tólf á föstudagskvöldinu. Ekkert smá dugleg pía. En laugardagurinn bætti föstudagskvöldið upp.
Það var sko starfsdagur hjá vinnunni. Ætli það hafi ekki verið um eða yfir 600 manns mættir í Egilshöllina. Herlegheitin byrjuðu kl. 12 og stóðu til kl rúmlega 19. Við fengum þessar fínu flíspeysur (sem er alveg ágætt því gamla flíspeysan mín var orðin frekar víð á mig). Að sjálfsögðu voru nokkrar ræður. En við vorum látin mynda umræðuhópa og fengum tvær spurningar sem við áttum að koma með svör við..... og þá helst fleiri en eitt svar. Svo kepptum við (ég var í bleika liðinu) og meira að segja Brynjólfur tók þátt í keppninni. Hann var reyndar ekki í mínu liði, en það gerði ekkert til því hans lið vann ekki heldur.
Að sjálfsögðu fengum við þennan ágæta mat... meira að segja mat, ekki bara snittur eða pinnamat. Þegar allir voru búnir að borða og búið að tilkynna úrslitin úr keppninni var boðið upp á rútuferðir beint á Players. Við Inga vorum reyndar saman á bíl og tókum þær Möggu og Jónínu með okkur til baka. Ég kom svo við heima hjá mér, fór í sturtu og hoppaði í gellufötin. Tók svo bara málningardótið mitt með til Ingu og setti andlitið upp þar. Þegar ég mætti þangað voru Hilmar, Steini og Eggert búnir að bætast í hópinn. Þetta var nú bara svo heimilislegt að þeir komu bara inn á klósett og pissuðu þó að ég væri þar inni að mála mig. Ég sagði þeim reyndar að ég sæi ekkert því ég væri gleraugnalaus....þeir vildu þó ekki samþykkja að þeir væru með stærri en það að ég ætti nú samt að geta séð...hehehe....alltaf gott að láta sig dreyma.
Image hosted by Photobucket.com
Tókum svo taxa á Players og máluðum staðinn rauðan. Ég veit reyndar ekki hvað það var við rassinn á mér þetta kvöld....en hann fékk ekki að vera í friði. Og þá meina ég að það voru einhverjir ókunnugir kallar sem flengdu mig bara svona í leiðinni þegar þeir voru að labba framhjá. Ég veit að ég er með æðislegan rass....en ég meina....ég á hann og hann er ekki alveg fyrir almenning að snerta.
Sunnudagurinn var svo bara rólegur. Ég nennti ekki mikið að gera... skrapp reyndar í Smáralindina og keypti mér dvd-myndir. Komst að því á leiðinni niður tröppurnar, þegar ég var að leggja af stað út, að lærin voru ekki alveg upp á sitt besta. Klöngraðist þó áfram og út. Það sem verra var að lærin voru ekkert mikið skárri í morgun þegar ég var að fara út. Og ekki nóg með það, heldur var trúnaðramannanámskeiðið sem ég var á í dag (og heldur áfram á morgun) haldið á efri hæðinni í gamla stýrimannaskólanum. Og við erum að tala um frekar brattan stiga....það er ekkert mál að komast upp, en ég þarf samt alltaf að fara niður aftur ef ég fer upp. Ég gat þó allavega huggað mig við það að Birna var ekkert skárri en ég.
Þrátt fyrir aum læri fór ég á Línudansnámskeiðið í kvöld og tók bæði þátt í byrjenda- og framhaldsnámskeiðinu. Svo að ég var ekkert smá dugleg. Vona bara að ég hafi ekki gert illt verra í sambandi við lærin.

Jæja ætli það sé ekki best að fara að koma sér í háttinn. Verð að fara að venja mig við að fara fyrr að sofa þar sem ég er að byrja að mæta í vinnuna kl. 8 á morgnanna. Og svo í nóvember bæti ég öðrum klukkutíma aftan á vinnudaginn og verð þá til kl. 16. Er samt ekkert að fara að minnka við mig í nuddinu...nema kannski að ég hætti að geta bætt öðru nuddi á kvöldið. Það er held ég aðeins of mikið að vera að vinna frá 8 - 22 (svona þegar vinnan byggir á því að gefa mikið af sér).

Powered by Blogger