mánudagur, nóvember 28, 2005
 
Köben
Jæja best að setja inn stutta útgáfu af ferðasögunni...hehehe.
Lögðum af stað mjög snemma á þriðjudagsmorgun á flugvöllinn. Fórum að mínum eðalsúbba. Og vorum alls ekkert með svo mikinn farangur.
Fengum okkur morgunverð í Leifsstöð áður en við kíktum í búðirnar. Vorum jafnvel frekar rólegar á því. Flugið var kl. 7:30 og vorum við því komnar fyrir hádegi til Kastrup. Byrjuðum við á því að fara á Gistiheimili Halldóru.
Image hosted by Photobucket.com
Þar bjuggum við og höfðum húsið alveg útaf fyrir okkur. Halldóra lét okkur fá góðar leiðbeiningar um hvaða lestir við tækum hvert og benti á góða staði í nágrenninu.
Við fórum svo á lestarstöðina í nágrenninu og byrjuðum að læra á þennan ferðamáta.
Image hosted by Photobucket.com
Fyrsta daginn tókum við í að skoða "fiskitorfuna" (smá íslenskun) verslunarmiðstöð og náðum að sjálfsögðu að eyða nokkrum krónum þar.
Á degi tvö byrjuðum við á því að fara í siglingu frá Nyhavn
Image hosted by Photobucket.com
Siglingin tók c.a. 45 mín. Svo voru búðirnar á Stikinu teknar skipulega. Byrjuðum strax að eyða í fyrstu búðunum sem við fórum inní. Reyndar byrjaði ég bara í annari búðinni...hehehe. Náðum ekki að klára Stikið þennan dag, áður en búðunum var lokað. Þá hittum við Ellu Siggu og hún mælti með veitingastað sem við borðuðum á... að sjálfsögðu borðaði hún með okkur þar.
Image hosted by Photobucket.com
Dagur þrjú byrjaði á tívolíferð. Keyptum okkur dagspassa þannig að við gátum farið í öll tækin án þess að þurfa að borga í hvert og eitt.
Image hosted by Photobucket.com
Fórum í þónokkur tæki, tókum reyndar smá pásu til að hlýja okkur inni á ítölskum veitingastað í tívolíinu. Þar fengum við okkur heitt súkkulaði með "flödeskum". Héldum áfram í tækjunum og fengum okkur svo hádegismat á kínverskum veitingastað í tívolíinu.
Eftir hádegismatinn fórum við og skoðuðum restina af búðunum á Stikinu og komum svo aftur í tívolíið. Það var ekkert smá flott að sjá jólaljósin þegar það var komið myrkur.
Image hosted by Photobucket.com
Gulla litla alveg missti sig í að taka myndir af jólaljósunum...hehehe.
Image hosted by Photobucket.com
Kvöldmatinn borðuðum við á sama ítalska veitingastaðnum og við fengum okkur heita súkkulaðið á um morguninn. Og haldiði að starfsfólkið hafi ekki bara munað eftir okkur og spallaði helling við okkur þegar við vorum að fara.
Image hosted by Photobucket.com
Mæli eindregið með þessum stað.
Föstudagurinn var svo planaður í Field's. En þegar við vorum lagðar af stað með lestinni frá Köbenhavn H stöðinni þá datt okkur skyndilega í hug að við þyrftum bara að fara örlítið lengra og þá gætum við tekið lest yfir til Malmö.
Image hosted by Photobucket.com
Freistingin var of mikil til að við stæðumst hana. Og var alveg yndislegt að koma til Malmö. Það var eitthvað svo kósí að vera þar. Allt starfsfólk eitthvað svo almennilegt og glaðlegt (eitthvað annað en danir... ekki illa meint... en okkur fannst þetta). Sáum meira að segja alveg stórfurðulega hunda þarna.
Image hosted by Photobucket.com
Á bakaleiðinni frá Malmö þá lentum við í því skemmtilega atviki að lestin stoppaði þegar hún var farin undir sjóinn eftir að hún var komin yfir brúna. Það var einhver rafmagnstruflun og lest sem var á teinunum var stopp...biluð. Og var því bara hægt að nota eina teina þannig að lestirnar gátu ekki mæst. Þetta gerði c.a. hálftíma töf á okkar lest. En það breytti ekki þeirri ákvörðun okkar að skella okkur í Field's. Gátum að sjálfsögðu eytt aðeins peningum þar sem og í Malmö.
Föstudagskvöldið var svo frekar rólegt og vorum við þónokkurn tíma að pakka niður öllu því sem við höfðum keypt. Ótrúlegt að við skyldum ekki þurfa að borga yfirvigt af öllum farangrinum sem við fórum með til baka. En tímann í fríhöfninni í Köben nýttum við vel og náðum að eyða mestu af tax free peningnum.
Image hosted by Photobucket.com
Stóri station bíllinn minn var alveg troðinn á leiðinni í bæinn. Og vorum við komnar hinga heim til mín um kl. 17 að staðartíma. Allar held ég að við höfum verið mjög sáttar við ferðina og ákveðnar í að fara aftur saman út... hvort sem það verður Köben eða einhver annar staður sem verður fyrir valinu.
sunnudagur, nóvember 20, 2005
 
Gulla bara dugleg
Já þetta get ég. Ég þreif alla gluggana í gær. Skotgekk alveg. Byrjað reyndar á því að fara í Húsasmiðjuna og kaupa mér almennilegar gluggaþvottagræjur. Kom að sjálfsögðu við í Blómavali en gat stillt mig um að kaupa nokkuð þar. Það var reyndar búið að segja mér að það væru svona loftskrautslengjur, eins og mig "vantar", til í Blómavali en ég gat ekki fundið þær. Ég skoða það kannski bara í Köben. Púff... það er orðið svo margt sem ég ætla að gera í Köben að ég held að það sé ekki séns að ég komist yfir það allt. Þetta eru nú bara fjórir dagar. Og ég hef aldrei komið þangað áður og því er margt að skoða.
Kannski maður drífi í því að útbúa jólagjafalista. Þ.e. lista yfir þá sem ég kaupi jólagjafir handa. Ekki það að það er nú ólíklegt að ég kaupi jólagjöfina handa Súlí úti í DK. Þar sem hún verður með mér og ég efast um að við förum mikið að skipta liði.
Æi já.... ég er ekki byrjuð að rifja upp dönskuna.... þannig að aumingja danirnir þurfa að tala við mig á ensku...eða íslensku.
Já og ekki má gleyma afmælisgjöfunum. Ég á víst litla systir sem á afmæli í desember og svo líka einn pabba eða svo. Veit ekki hvort að Snorri, mágur minn, fái nokkuð frá útlandinu, í afmælisgjöf... það er ekki eins skemmtilegt þegar viðkomandi býr ekki hérna heima. Hann reyndar býr ekki í sama útlandi en útlandi engu að síður. En þetta kemur bara allt í ljós. Ég ætla ekki að vera að stressa mig á því að þurfa að kaupa eitt eða neitt. Því að sjálfsögðu er það ég sem sit fyrir..... mig langar í svo margt. Keypti mér nefnilega geggjað flottan topp á fimmtudaginn og vantar eitthvað til að vera í við hann (svona spari eitthvað). Og svo vantar mig að sjálfsögðu kúrekastígvel...eða skó... til að vera í í línudansinum. Ef ég finn svoleiðis, ekki mjög dýrt, þá væri ég sko alveg til í að splæsa á mig.
laugardagur, nóvember 19, 2005
 
Trúnaðarmannaráðstefna
Já, hún Gulla litla fór á trúnaðarmannaráðstefnu sem haldin var á Selfossi 17. - 18. nóv....semsagt byrjaði í fyrradag og var búin í gær. Ráðstefnan var haldin á Hótel Selfossi og gistum við þar líka. Ég var alveg undir það búin að við Birna Gränz yrðum saman á herbergi...en nei... það fengu allir sér herbergi. Og við erum ekki að tala um einhverjar kompur, heldur voru þetta bara fínustu herbergi með tvíbreiðu rúmi og alles.... það fór sko ekki illa um mig. Fór reyndar ekki neitt voðalega snemma að sofa.....nema maður tali um að ég fór snemma að sofa á föstudagsmorgun...og ekkert að sofa á fimmtudagskvöldinu..tíhíhí. En að sjálfsögðu fór allt fram í fyllsta trúnaði svo að ég get ekki sagt neitt meira um þessa ferð.

Núna er ég svo að fara að huga að jólaþrifum. Jamms... ekki seinna vænna að fara að byrja. Verð að fara að gera gluggana tilbúna fyrir aðventuljós og jólaseríur. Aðventan byrjar um næstu helgi og þá verð ég sko að fá jólaljósin í gang. Það eru að vísu einhverjir þegar búnir að setja upp jólaseríur, en ég miða mig alltaf við aðventuna.
Var að bóka mig í flug norður.... ekki jólaflug heldur til að fara norður í laufabrauð. Það er fastur liður á hverju ári. Ég er alveg snillingur í að skera laufabrauð.... það segir mamma mín allavega og ég trúi henni bara....hehehe.
Er ekki alveg búin að ákveða hvernig ég hef jólin. Mamma vill að sjálfsögðu hafa mig hjá sér....henni þykir nefnilega svo vænt um hana Gullu sína. Ég geri samt ráð fyrir að vera í höfuðborginni yfir áramótin. Ég er með tvo staði til að vera á, á gamlárskvöld. Auður Kvaran bauð mér að vera með sér og hennar fjölskyldu. Og svo vorum við Birna að spá í að vera saman á gamlárskvöld. Birna verður nefnilega ein líka, þar sem dóttir hennar verður hjá pabba sínum. En það er ekkert orðið alveg ákveðið ennþá....verð samt að fara að ákveða mig svo að ég geti beðið um frí í vinnunni ef ég ætla það og einnig uppá að panta mér flug.
mánudagur, nóvember 14, 2005
 
Þessi tími
Ég veit ekki hvað það er við þennan tíma ársins, en nuddþegarnir mínir virðast taka upp á því að "beila" á mig. Þetta er nákvæmlega sami tími og í fyrra. Þá gerðist þetta að það voru bara þónokkrir í röð sem ekki mættu í tímana sína, létu mig ekki vita og ekki neitt. Núna er þetta að gerast aftur. Þetta er þriðja nuddið í röð sem nuddþeginn minn kemur ekki og lætur ekkert í sér heyra.
Þetta er akkurat sá tími sem mig vantar mest að hafa nóg að gera í nuddinu....safna fyrir jólagjöfunum og svona. En þær sem áttu að vera hjá mér í síðustu viku lofuðu að borga tímana sína. Hef ekki ennþá heyrt frá þeirri sem átti að vera hjá mér núna. Ég er búin að reyna að ná í hana en hún svarar mér ekki.

Nú styttist skemmtilega í Danmerkurferðina. Ég fór um helgina og keypti mér ferðatöskur. Fattaði allt í einu að ég hafði ekki aðgang að útlanda-ferðatöskunni minni lengur. Svo að ég skellti mér bara í Rúmfatalagerinn og keypti þriggja tösku sett á tæpan fimmþúsundkall. Þessar töskur líta bara mjög vel út og ég kem til með að geta notað þær eitthvað áfram. Ég er nefnilega að láta mig dreyma um að heimsækja hana Freyju mína... og Snorra að sjálfsögðu líka...einhverntíman eftir áramótin. Og hver veit nema ég kíki aftur á þau ef að pabbi og mamma skella sér í sumarfrí til þeirra...kannski ég plati þau til að taka mig með...hehehehe.

Núna sit ég bara og bíð eftir henni Súlí minni. Jabbs... hún ætlar að gista hjá mérí nótt. Hún er nefnilega að fara að vinna í nokkra daga á Gunnarsholti og vantaði gistingu í nótt. Það kom sér bara mjög vel fyrir mig, því það er orðið svo langt síðan ég sá hana.
fimmtudagur, nóvember 10, 2005
 
smá myndasýning
Já það náðust þónokkrar myndir af mér á djamminu á föstudaginn síðasta. Alveg ótrúlegt hvað mér tókst að troða mér inn á margar myndir þó svo að ég hafi verið farin heim tiltölulega snemma. Ég var allavega ekki síðust út eins og nokkrar ungar snótir sem ég er að vinna náið með...tíhíhí.
Ég veit nú samt ekki hvaða mynd var verst. Held samt að það hafi verið önnurhvor þessara mynda sem má fara í verstu mynda hópinn.





Ég er nú sem betur fer ekki alveg jafn nálægt á seinni myndinni og þeirri fyrri. Ætli ljósmyndarinn hafi tekið eftir því hvað ég var að gera á þessari mynd?????

Þessi mynd af mér og Betu er nú ekki heldur til að hrópa húrra fyrir.... ég er eiginlega bara búin að komast að því hvað ég er ómyndarleg.... kem svo svakalega illa út á þessum myndum eitthvað...ætli ég sé svona dags daglega..púffff



Að sjálfsögðu náðist svo mynd af mér að nudda. Þarna er það hún Inga mín sem fær að finna fyrir því....hvort ætli henni þyki þetta gott eða vont???



Svo náðust amk tvær myndir af mér í bakföllum af hlátir...ég er þó ekki viss um að allir fatti að það sé ég sem er þarna í einhverjum fettum. En ég ætla allavega ekki að láta þær fylgja hér með.
Svo var ég nú að finna líka myndir úr hestaferðinni, sem ég fór í, í byrjun okt. Þær myndir voru svo hræðilegar að ég ætla ekki einu sinni að setja þær með í ömurlegu mynda hópinn.
Ég hef hingað til gerað verið stolt af því hvað það hafa náðst fáar myndir af mér á vinnudjömmum en svo er víst ekki lengur.
Jæja best að fara að hætta þessu bulli og fara að horfa á piparsveininn. Hún Auður mín Kvaran hlýtur að fara að koma upp... við eigum alltaf deit á fimmtudagskvöldum til að horfa á piparsveininn og ástarfleyið....tíhíhí.
mánudagur, nóvember 07, 2005
 
Gullan ekki að standa sig
Já það er víst ekki nóg að fagna bloggafmæli og blogga svo ekki neitt. Ástæðan fyrir þessu er nú samt frekar einföld.... ég fer eiginlega ekki neitt í tölvuna, heima hjá mér, nú orðið. Ég er farin að vinna svo mikið... komin í 100% starf hjá Símanum og það er fyrir utan nuddið. Hef nefnilega ekki minnkað nuddið neitt á móti því sem ég jók vinnuna hjá Símanum. Og að sjálfsögðu hef ég ekki heldur dregið neitt úr félagslífinu.
Ég var meira að segja að djamma núna um helgina, bæði föstudag og laugardag, og er þetta áttunda helgin í röð. Hef ekki djammað svona mikið síðan ég veit ekki hvenær...held að ég sé búin að djamma meira núna síðustu tvo mánuði en síðustu fjögur ár þar á undan.
Næsta helgi er reyndar ekki neitt plönuð ennþá...en hver veit. Og svo er ég að fara á trúnaðarmannaráðstefnu og að sjálfsögðu styttist í danmerkurferðina. Spennan er gífurleg, ég get eiginlega ekki beðið eftir þeirri ferð. Tíminn verður samt örugglega fljótur að líða... allavega var síðasta vika búin áður en hún byrjaði.

Ég verð nú að segja fyrir mig að mér hefur fundist heldur kalt upp á síðkastið. Þetta er orðið svo mikið að maður þarf að dúða sig áður en maður labbar yfir í mötuneytið í hádeginu. Og þá tekur allan hádegismatartímann að klæða sig úr til að geta borðað og klæða sig svo í aftur til að geta labbað til baka....þá er enginn tími eftir til að borða. Þar fyrir utan þá var ég meira að segja farin að mæta í peysu í vinnuna í síðustu viku. Og ég sem er yfirleitt í hlýrabolum því mér er alltaf svo heitt.... já og ekki nóg með það heldur var ég farin að þamba heitt kakó til að fá smá hita í kroppinn. Það gæti kannski spilað inní að ég er örlítið farin að þreytast eftir allt þetta djamm og þennan "bissí" tíma. Tengdamamma var meira að segja að skamma mig....eða skamma og ekki skamma.... og sagði að ég yrði að hvíla mig eitthvað áður en ég færi út. Ég er ekki ennþá búin að finna annan tíma til þess en í fluginu á leiðinni út. Gæti meira að segja farið svo að ég "beili" á matarklúbbinn sem er á mánudagskvöldinu áður en ég fer út....stelpan verður að fara snemma að sofa.... og verði bara á byrjendanámskeiðinu í línudansinum (hef nefnilega yfirleitt verið líka á framhaldsnámskeiðinu sem er strax á eftir). En þetta á allt eftir að koma betur í ljós þegar nær dregur.

Ég var búin að ákveða að kaupa mér engin meiri föt áður en ég færi út. En ég stóð ekki við það og keypti mér svartar buxur á laugardaginn. Fannst ég verða að eiga einar buxur, sem ég passa í, sem eru ekki gallabuxur. Maður verður nú að geta verið aðeins fínlegur líka. Fann alveg ágætis buxur í Hagkaup sem kostuðu ekki mikið og pössuðu fínt á mig. Þetta er eini ókosturinn við að vera búin að leggja aðeins af....það er að maður hættir að passa í fötin sín. Ég reyndar á mikið af teygjanlegum toppum svo að það reddast alveg en ég er búin að þurfa að endurnýja alveg á neðri helminginn.
En jæja ég verð að drífa mig í háttinn svo að ég verði ekki mjög úldin á morgun. Vinna frá kl 8 - 16 hjá Símanum og fara svo beint heima að nudda. Hef svo ekki einu sinni tíma til að borða áður en ég fer á dansnámskeiðið.... m.ö.o. langur dagur framundan.

Powered by Blogger