föstudagur, desember 30, 2005
 
Gleðileg jól, allir saman
Já krúttin mín, ég vil byrja á að óska öllum gleðilegrar hátíðar. Vona að allir hafi nú átt góðar stundir það sem af er hátíðinni. Og einnig vona ég að allir eigi eftir að eiga góðar stundir það sem eftir er hátíðarinnar.
Ég fór að sjálfsögðu heim í heiðardalinn. Fékk hana Ingu mína til að skutla mér á flugvöllinn strax eftir vinnu þann 22. des. Átti að vera mætt kl. 16:30 þar sem flugið var kl. 17:00. Og eins og umferðin var á þessum tíma þá var nú eins gott að drífa sig strax af stað (sem við reyndar gerður ekki alveg en náðum samt næstum því á réttum tíma).
Pabbinn, mamman og Þuran komu og náðu í mig á flugvöllinn. Ég var agaleg gella með hatt og alles (vakti jafnvel örlitla athygli... en það er nú bara gaman að því). Byrjuðum á að fá okkur smá í svanginn og svo var haldið í göngugötuna. Við Þura stukkum út út bílnum og redduðum síðustu gjöfunum sem Þura ætlaði að gefa. Og það var smá útréttað svona eins og þarf fyrir jólin. Voðalega var nú ljúft að komast svo í sveitina.
Ég var að sjálfsögðu sett í að skreyta örlítið .... ég er sennilega svona skreytuleg ..tíhíhí.... og held ég nú bara að það hafi tekist svona þokkalega hjá mér. Gríma vildi nú samt hjálpa held ég:
Image hosted by Photobucket.com
Jólin komu svo að sjálfsögðu á sínum tíma (létu ekkert bíða eftir sér) og vorum við að sjálfsögðu komin í fínu fötin:
Image hosted by Photobucket.com
Image hosted by Photobucket.com
Image hosted by Photobucket.com
Og pakkarnir komnir á sinn stað (ja svona flestir allavega)og vil ég nota tækifærið og þakka kærlega fyrir mig:
Image hosted by Photobucket.com
Við borðuðum að sjálfsögðu jólalæri og hlaup í eftirrétt.
Image hosted by Photobucket.com
Veit samt ekki alveg hversvegna við Þura vorum svona svakalega hugsi...hmmmm... kannski vorum við bara að fara með borðbæn???
Sólarhringnum var að sjálfsögðu snúið við strax á fyrstu dögum jólafrísins. En hún Gríma var fljót að læra að það var fljótlegra að vekja Gullu en Þuru. Og þegar pabbi færði mér skinkuhorn í bólið, þá vildi hún líka fá:
Image hosted by Photobucket.com
Dagarnir liðu allt of fljótt. Næturnar nægðu varla undir allt spjallið okkar Þuru en það var sama hvað við sváfum lítið alltaf vorum við nú jafn sætar:
Image hosted by Photobucket.com
Snotra hafði það líka gott:
Image hosted by Photobucket.com
Einn morguninn náði ég að sjá sólarupprásina og varð að sjálfsögðu að taka nokkrar myndir:
Image hosted by Photobucket.com
Image hosted by Photobucket.com
Jólaboðin voru á sínum stað. Annar í jólum er ávallt helgaður mömmu fjölskyldu. Það er bara orðið að hefð að allur hópurinn komi heim í kaffi. Og pabba fjölskylda ákvað að koma saman strax daginn eftir. Held að þau hafi viljað ná hópnum saman áður en ég færi suður. En ég tók flugið suður það kvöld. Það varð reyndar um 1,5 tíma seinkun vegna veðurs. Ég komst þó á leiðarenda og mætti "eldhress" í vinnu á miðvikudagsmorgun.
Nú er svo bara alveg að koma að áramótum. Enn eitt árið að kveðja og nýtt að hefjast. Var að lesa stjörnuspána mína fyrir nýja árið (sem kom í Birtu) og það er nú bara skuggalegt hvað hún passar vel við mig:
NAUT 20. apríl - 20. maí
Heimilið, öryggið og staðfestan verða í miðpunkti hjá þér á þessu ári. Þú þarft að gera hreint fyrir þínum dyrum, líklegast í bókstaflegri merkingu því þetta ár er heppilegt til alls konar endurbóta og löngu tímabærra lagfæringa á heimilinu. Þér gæti fundist erfitt að umgangast fólk utan innsta kjarna fyrri hluta ársins en reyndu samt að drífa þig út öðru hverju, það gerir þér gott og víkkar sjóndeildarhringinn. Náin sambönd eru hins vegar sérstaklega sterk og þú átt eftir að njóta þín vel í faðmi fjölskyldunnar og nánustu vina. Þú ert einstaklega aðlaðandi í september og október, bæði fyrir fólk og tækifæri, og þá verðurðu líka tilbúið að njóta þess. Þú hefur verið áttavillt um nokkurt skeið, kæra naut, en nú ertu líkast til búið að finna út hvert þú vilt fara og það er ekkert sem stöðvar naut sem veit hvað það vill.

En við eigum nú eftir að sjá hvor hitt, sem ég get ekki vitað, rætist.

Ég tók líka nokkrar jólamyndir á nýja fína símann minn. Og hér getið þið séð þær.
föstudagur, desember 16, 2005
 
Þarf að vera eins og hinir
Comentaðu nafninu þínu og..

1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig

2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig

3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig

4 Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér

5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á

6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig

7. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt


Og pabbi til hamingju með daginn í dag. Knús og kossar.
þriðjudagur, desember 13, 2005
 
Laufabrauð var það heillin
Image hosted by Photobucket.com

Já laufabrauðshelgin nýafstaðin. Skrapp norður í sveitasæluna mína í þeim tilgangi að skera laufabrauð. Það er eitt af því sem er "must" fyrir jólin. Maður kemst nú bara ekki í jólastuð fyrr en maður er búinn að skera laufabrauð. Ég var farin að halda að ég færi ekkert í jólastuð þetta árið...þeir sem þekkja til vita ástæðuna...en viti menn ég er ekki fyrr komin að norðan en ég fer og næ í jólaskrautið og byrja að skreyta...jólaandinn bara kominn.
Fór með flugi norður strax eftir vinnu á föstudaginn. Eitthvað var nú leiðinlegt að koma niður í Eyjafjörðinn en mín komst nú samt á leiðarenda án þess að verða flugveik. Pabbinn kom að sjálfsögðu að sækja hana Gullu sína. Ég var nú samt hálf sár við Þuru...hún vildi frekar fá sér að borða en að koma og sækja systur sína á flugvöllinn, manni getur nú bara sárnað (sérstaklega þar sem ég var alveg hrikalega svöng..hehehehe). Fórum aðeins að versla áður en haldið var í sveitina.
Image hosted by Photobucket.com
Laufabrauðsskurðurinn byrjaði svo fyrir hádegi á laugardag. Við fengum gesti sem vildu endilega koma og læra, af mér og pabba, að skera laufabrauð. Og við pabbi erum svo góðir kennarar að við úrskrifuðum bara þónokkuð góða laufabrauðs-skerara. Það var að sjálfsögðu borðað MIKIÐ nammi, held að ég hafi tekið skammtinn fyrir síðustu mánuði (hef eiginlega ekki borðað neitt nammi í marga mánuði).
Hún Súlí mín kom meira að segja til að hitta mig. Vorum jafnvel að spá í að skella okkur í Sjallan en þá hefði mig vantað far til Akureyrar og svona. Og svo var þetta svo stuttur tími sem ég var fyrir norðan núna að það væri leiðinlegt að eyða svona stórum hluta þess tima inná Akureyri á djamminu. Tek það kannski frekar út um jólin...hehehehehe.
Sunnudagurinn var frekar rólegur bara. Og svo fórum við öll saman til Akureyrar, kíktum á ömmu Góu og svo var mér skutlað til tengdó. Mamma, pabbi og Þura voru nefnilega á leiðinni á aðventukvöld í Þorgeirskirkju og höfðu ekki tíma til að bíða með mér á flugvellinum. Ég fékk því að kynnast nýja gæludýrinu hennar Karenar. Ég féll nú alveg fyrir greyinu, en myndi samt ekki vilja fá mér hund. Hann var líka alveg límdur við mig meðan ég stoppaði í Oddagötunni. Tengdó skutlaði mér svo á flugvöllinn og kom Karen (krúttið mitt) með okkur.
Flugið var ágætt nema að komast upp úr Eyjafirðinum. Og komst ég heil á húfi aftur í höfuðborgina.
Ég var ekkert smá svekkt í gær þegar ég fattaði að það var enginn dans. En notaði tímann, sem ég fékk þar aukalega, til að skrifa nokkur jólakort.
sunnudagur, desember 04, 2005
 
Bráðum koma jólin
Já nú styttust óðum í jólin. Ég er að sjálfsögðu byrjuð örlítið að skreyta. Maður má nú ekki geyma það of lengi. Byrjaði í gær að setja jólaseríur í gluggana. Tókst að setja í stofugluggana en komst svo að því að allar hinar seríurnar, sem ég ætlaði að nota, voru bilaðar.... það allavega kviknaði ekki á þeim og ég nennti sko ekki að fara að kanna hverja einustu peru. Ég fór því í dag og keypti mér þrjár nýjar seríur. Núna á ég bara eftir að setja eina í glugga.... ákvað að taka mér smá pásu. Ég er orðin frekar aum í puttunum eftir teiknibólurnar.
Og svona fyrst að ég var á ferðinni þá fór ég að athuga með jólagjafir. Og viti menn, mér tókst bara að kaupa þær lang flestar. Núna á ég því bara eftir að kaupa 4 jólagjafir. Ég er nú bara mjög sátt við það. Einnig keypti ég nokkur jólakort. Var eiginlega búin að ákveða að föndra þau eitthvað sjálf, en ég sé ekki fram á að hafa tíma til þess svo að ég á þá hugmynd bara til góða fyrir næstu jól.

Image hosted by Photobucket.com
Þessi helgi er búin að vera svoltið þéttskipuð djammi. Fór á jólaglöggina hjá Símanum (á Gauknum) á föstudagskvöldið. Ég reyndar mætti ekki fyrr en rúmlega átta (húsið opnaði kl. sjö) og var komin heim aftur kl. fjögur. Svo var partý hjá mér í gærkvöldi. Við vorum nefnilega nokkur úr vinnunni sem fórum saman á Sálina á Nasa. Partýið byrjaði rétt um níu. Það var farið niður í bæ rétt fyrr eitt og tróðum við okkur í gegnum mannþröngina á Nasa. Það var nefnilega alveg geggjað mikið af fólki. Síðast þegar Sálin var að spila á Nasa þá var mikið af fólki...en vá!!!!! það voru fleiri núna. Það voru meira að segja slagsmál og læti beint fyrir aftan okkur. Við vorum nú reyndar ekki með þeim síðustu út en það var nú samt aðeins síðan hljómsveitin hætti að spila þegar við komum okkur út.
Hitti svo Jóa og Dan á Glaumbar...eða þar að segja... Jói kom og náði í mig fyrir utan Hlöllabáta. Dansaði með þeim þar til kl. sex. Þá löbbuðum við á Njálsgötuna og ég skoðaði íbúðina sem þeir eru að leigja. Var nefnilega veit þegar þeir voru með innflutningspartý og hef ekkert kíkt til þeirra. Var bara smá stund hjá þeim og var komin heim og upp í rúm um kl. sjö í morgun. Vá hvað það er langt síðan ég hef farið að sofa á þessum tíma.
Eitt verð ég þó að segja....rosalega finnst mér Guðmundur í Sálinni alltaf sexy... ég veit ekki hvað það er en það er eitthvað....hmmm.
En þetta var allavega mjög gaman. Og næstu helgi verðu sko ekkert djamm á minni...hehehe.

Powered by Blogger