þriðjudagur, janúar 31, 2006
Er ég snillingur eða er ég snillingur???
Mér tókst að breyta heimasíðunni hjá mér í HEIMASÍÐA GULLU... búið að standa til í þónokkurn tíma. Lagði loksins í að breyta þessu núna í kvöld. Og mér tókst það með fikti. Hefði reyndar mátt taka aðeins styttri tíma en þar sem ég hafði enga hjálp þá tók þetta örlítið lengri tíma en ella. Það stendur samt til að breyta henni eitthvað meira en þetta er þó allavega redding þangað til ég fæ smá leiðbeiningar til að gera stærri breytingar.
Ég er ennþá hóstandi eins og asni og virðist bara hreinlega ekki ná þessu úr mér. Fer bráðum að fara til læknis ef að þetta fer ekki að skána eitthvað. En ég þoli ekki pensilín svo að ég yrði að fá einhver önnur sýklalyf við þessu....alltaf er ég til jafnmikilla vandræða. Það er spurning með að leggjast bara í dvala. Þetta myndi kannski lagast á meðan....það er hugmynd.
Ég fer að verða góðkunningi sýslumannsins. Fór í gær og þarf að fara aftur á morgun að kíkja smá á hann. Ég vona að ég þurfi ekki að bíða eins lengi á morgun og ég þurfti að gera í gær. Þó þurfti ég ekki að bíða eins lengi og Birna lenti í að gera í haust. Hún beið í einn og hálfan tíma. Ég allavega vona bara það besta.
laugardagur, janúar 28, 2006
Hóst hóst
Það eina sem virðist heyrast frá mér þessa dagana er hóst. Ég bara geri ekki annað en hósta. Búin að vera veik síðan á mánudagskvöld. Lá veik heima í þrjá daga en gat þá ekki meira og mætti í vinnuna á föstudaginn. Það var reyndar ekki langt liðið á daginn þegar ég var farin að efast um heilbrigða skynsemi hjá mér... að hafa mætt í vinnu... en það er ótrúlegt hvað maður getur blekkt sjálfa sig og aðra með verkjatöflu, hálsmolum, hóstasaft, nefúða og andlitsförðun. Ég trúði því svona næstum að ég væri orðin frísk. Var í vinnunni allan daginn... reyndar hóstandi. Það fór allavega ekki milli mála að ég var mætt í vinnuna. Og ekki minnkaði hóstinn þegar leið á kvöldið. Ég meir að segja hósta svo mikið að það fara að leka niður tár á meðan....púff... og þá á ég ekki við að ég sé farin að grenja.... þetta er bara svo mikil áreynsla að tárin streyma niður.
Jæja ég er kannski að ýkja aðeins þegar ég segi að það heyrist bara hóst. Það kemur nefnilega einstaka hnerri inn á milli og svo að sjálfsögðu þarf að sjúga upp í nefið. Það er ekki eins og áhrifin af nefúðanum endist endalaust.
Hef ég því ákveðið að vera góð stelpa í dag og vera inni. Var eiginlega búin að ákveða að fara í Smárann. Þarf nefnilega bæði að fara í Rúmfatalagerinn og Elko. En það verður að bíða til morguns. Nú verður ekki stigið fæti út fyrir hús í dag.... og hana nú.
þriðjudagur, janúar 24, 2006
Ekki þorrablótsferð
Fór norður um síðustu helgi. Það átti að vera þorrablót en svo var því frestað. Ég hinsvegar gat ekki frestað fluginu mínu svo að ég fór bara í skemmtiferð norður. Tók mér frí á föstudaginn og var komin norður rétt fyrir hádegi. Byrjaði á að fá mér tvö göt, til viðbótar, í eyrun (eitt í hvort eyra)...já pabbi ég veit að þú ert að gretta þig núna. Fór með mömmu að skoða föt á hana en endaði með því að kaupa mér sjálf einn bol.
Á laugardagskvöld fékk ég nú samt smá þorramat... þá á ég samt ekki við þetta súra þar sem ég er ekkert fyrir það. Fór svo eftir matinn suður í Svartárkot þar sem við Danmerkurstúlkur héldum "ríjúníon". Skoðuðum myndirnar úr ferðinni, borðuðum snakk og hlógum mikið...eins og okkur einum er lagið, ja allavega mér...hmmmm. Við byrjuðum að sjálfsögðu að plana næstu ferð. Sem sökum fjárskorts verður að öllum líkindum innanlands. Ekki það að við vorum búnar að ákveða að næsta ferð yrði ekki verslunarferð heldur skoðunarferð og það er að sjálfsögðu um að gera að byrja hér heima. Gisti svo í koti þessa nótt.
Það var svo að sjálfsögðu seinkun á fluginu mínu suður. En það var bara gaman af því þar sem ég hitti hana Dídu mína á vellinum. Hún var að bíða eftir Gunnari, syni sínum, sem hafði verið hjá pabba sínum. Við Dída höfðum um nóg að spjalla þar sem við höfðum ekki hist í nokkur ár ... ja, þónokkur ár.
Fyrir algjöra tilviljun sat ég svo við hliðina á Þresti Gestssyni, sem var í sveit á Eyjardalsá þegar við vorum yngri. Við spjölluðum alla leiðina suður og hefur ferðin sjaldan tekið svona stuttan tíma..þ.e virst taka svona stuttan tíma.
laugardagur, janúar 14, 2006
Lögfræðingur
Ég ætti kannski að verða lögfræðingur. Það er kannski leiðin til að verða ríkur. Verst hvað ég held að þetta sé ógurlega leiðinlegt starf.
Ég nefnilega fékk mér lögfræðing um daginn. Vildi vera með allt á hreinu í sambandi við skilnaðinn. Hitti hana í hálftíma og svo útbjó hún tvö skjöl fyrir mig, eða í rauninni fyrir okkur Sissa. Annarsvegar er það "yfirlýsing vegna skilnaðar" og hinsvegar "samningur um fjárskipti vegna skilnaðar". Þó að það þurfi að setja þetta upp með okkar nöfnum og okkar upphæðum, þá er þetta örugglega að mestu bara form sem fyllt er inní. Hún sendi mér drögin að skjalinu, sem ég fór yfir og leiðrétti (þónokkrar vitleysur) og sendi mér það svo aftur til yfirferðar. Þegar ég svo var búin að samþykkja þetta þá var þetta prentað út og ég náði í það ásamt reikningnum. Og vá!!! ég var alveg búin að gera mér grein fyrir því að þetta myndi kosta slatta...en VÁ!!! Ég myndi alveg vilja vera með þetta tímakaup. Þetta allavega gerir það að verkum að ég mun allavega hugsa mig tvisvar um (ef ekki oftar) áður en ég fæ mér lögfræðing aftur. Þetta var nefnilega ekki bara hendin af... heldur allur búkurinn af og jafnvel hluti af höfðinu líka.
Ja ef ég gifti mig einhverntíman aftur og lendi svo í því að þurfa að skilja... þá veit ég allavega hvað þarf að gera og mun redda því á einhvern annan hátt en með aðstoð lögfræðings. Ég meina.... auðvitað er gott að þetta sé allt rétt og svoleiðis.... en að vera að borga svona svakalega upphæð fyrir ekki meiri vinnu. Ja miðað við þá upphæð sem ég hef heyrt að lögfræðingar taki á tímann, þá er ég rukkuð fyrir ca 10 tíma. Og þið skuluð ekki reyna að telja mér trú um að þetta hafi tekið það langan tíma.
En ég er samt búin að borga reikninginn og mun lifa MJÖG sparlega það sem eftir er mánaðarins.... guði sé lof fyrir mötuneytið í vinnunni. Ekki það að ég svosem hef nuddið til að redda mér út mánuðinn. Og er ég því mjög fegin. Það eru sko ekki allir sem eru svo heppnir, enda hefði ég svosem reynt að fá að skipta greiðslunni eitthvað hefði ég ekki haft nuddið.
Og nú er ég bara að bíða eftir svari frá bankanum í sambandi við greiðslumatið. Ég vona svo innilega að ég fái lánið og þá loksins get ég farið að slaka á.... þ.e. ég verð kannski að vinna aðeins meira, en það verður tilfinningalega slakað á.
Vona að ég verði búin að fá jákvætt svar fyrir þorrablót. Og þá mun ég sko halda uppá það þá. Eða ef ég fæ neikvætt svar þá mun ég nota þorrablótið til að reyna að lyfta mér upp eftir þá sorg. Hehehe ég ætla allavega að skemmta mér á þorrablótinu. Fór nefnilega ekki í fyrra og er alveg komin í þörf fyrir gott þorrablót. Nú er ég að setja smá pressu á nefndina. Eins gott að það er enginn úr nefndinni sem les þetta...hehehehe.
Ég er þegar búin að panta flugið norður fyrir þorrablótið. Og passaði mig að hafa tíma til að fara í smá bæjarleiðangur á Akureyri (á opnunartíma verslana). Þarf nefnilega að láta stytta ólina á úrinu sem ég fékk í jólagjöf frá pabba og mömmu. Og svo, því að ég er svo mikill töffari, ætla ég að fá mér fleiri göt í eyrun. Pabbi er nú ekkert voðalega glaður yfir því... en viðurkennir samt að ég sé víst orðin aðeins of gömul til að hann geti eitthvað verið að reyna að stjórna því. Ég er einmitt líka búin að segja að ég ætli að fá mér nýtt tattoo. Pabbi og mamma voru ennþá minna hrifin af því. Mér fannst samt gott að segja Sissa frá því, því að honum finnst það bara flott...hehehe... og er einmitt sjálfur á leiðinni að fá sér nýtt tattoo.... hver veit nema að hann láti nýtt tattoo yfir nafnið mitt. Ja, mér finnst nú samt að nafnið mitt eigi að fá að vera þarna áfram...hehehe...ég á nú aðeins í honum ennþá. Held samt að ég geti verið nokkuð örugg um það að hann sé ekki á leiðinni að setja neitt annað nafn á sig...búinn að læra af reynslunni. Og ég verð að segja að ég er nú hálf fegin að ég lét aldrei stetja samsvarandi tattoo á mig (eins og stóð til).
Jæja... ég ætla að skella mér í sturtu núna svo að ég verði orðin sæt og fín þegar Súlí og Maggi eru búin að skoða gólfefni. Þá ætlum við nefnilega kannski að fara í Kringluna á smá útsölur. Ég leyfi mér kannski að kaupa mér eitthvað smá því að það er nú ekki alltaf sem maður getur keypt sér föt á útsölum.
sunnudagur, janúar 08, 2006
Spilið mitt á Spámaður.is

6 bikarar
Þú ert fær um að nálgast líðan þína og annarra með réttu hugarfari og skilja nægtaflæði tilverunnar. Um þessar mundir lætur þú undan með fagran glampa í augum og ert heillandi vissulega samhliða sex bikurum.
Þér tekst að vera nógu bjargarlaus til að einhver manneskja sem tengist þér sjái um þig. Ástin hjálpar þér að sigrast á hlédrægu raunsæi þínu og þú virðist tileinka þér að opna þig meira en ella næstu misseri. Sú manneskja sem kann að særa þig á slíkri stundu öðlast aldrei traust þitt aftur en hér stendur þú jafnvel frammi fyrir afdrifaríkri ákvörðun því fyrir þér þýðir ástin heilög sameining.
Þú gefur þig á vald ástinni og er mest umhugað að upplifa traust og heiðarlegt samband.
laugardagur, janúar 07, 2006
Feng Shui stjörnuspá
Hello Guðlaug Margrét!
Your soul is relaxed and you are laid back. You have a lot of love and friendships in your life. You will have a strong love relationship that will not last long but the memories will last forever. Your life will take on a different direction, it will seem hard at time but will be the best thing for you, you will be glad for the change.
Sigurlína is your Best friend. "16", This is how many close friends you have in your lifetime.
You like adventure. You are loyal to your friends and your lover and are very reversed.
Nýja árið
Jæja nú er stóra spurningin... hvernig leggst nýja árið í fólkið??? Það byrjar svona upp og ofan hjá mér. Byrja svona skemmtilega á því að vera veik...og er víst ekki ein um það. En ég horfi fram á bjartari tíma, ja allavega svona miðað við undanfarna mánuði. Vona að það taki mig ekki of langan tíma að "moka út".
Var að enda við að taka niður jólaskrautið...allt nema seríurnar, sem ég ætla að leyfa að vera aðeins lengur. Og rosalega finnst mér eitthvað tómlegt. Ég reyndar set nú yfirleitt líka slatta af jólaskrauti. Og svo á eftir að verða ennþá tómlegra þegar Sissi er búinn að taka það sem hann kemur til með að taka....þá verð ég bara að fara og kaupa mér eitthvað í staðinn...hehehehe...myndi alveg þiggja einn stóran lottóvinning eða svo..... vil ekkert vera frek samt, tvær milljónir myndu alveg bjarga mér

mánudagur, janúar 02, 2006
Gleðilegt ár

Vil byrja á að óska öllum til hamingju með nýja árið. Vona að það færi ykkur gleði.
Áramótunum eyddi ég með Gulla Bergmann, Auði Kvaran og fjölskyldunni hennar Auðar. Það var mjög notalegt og vil ég þakka kærlega fyrir mig. Ég tók nokkrar myndir á símann minn sem ég sendi beint á mbloggið mitt. Þar fyrir utan var Gulli með myndavél og á ég eftir að fá myndir hjá þeim. Það var svolítið skrítið að eyða áramótunum með fólki sem er í rauninni ekkert tengt mér. En þau tóku mér opnum örmum eins og ég væri ein úr fjölskyldunni og fannst mér ég passa alveg ótrúlega vel inní hópinn. Við Auður og Gulli skruppum svo í partý til vinafólks þeirra, sem ég hef oft verið í partýi með (svo að ég kannaðist nú við flesta). Þar var að sjálfsögðu glatt á hjalla. Ég var þó skriðin upp í rúm um kl. 5.
Borðaði svo með Birnu á Nýársdag. Og kom ég með hlaup í eftirrétt. Ég varð að sjálfsögðu að fá hlaup þessi áramót eins og öll önnur. Ég er svo svakalega mikið fyrir að halda í hefðina. Þess fyrir utan þá er hlaupið svo ógurlega gott...hehehe.
Ég verð þó að viðurkenna að ég var ekkert voðalega fersk í morgun þegar ég mætti í vinnuna. Var þó búin að ákveða að nudda ekkert í dag og er ég mjög fegin þeirri ákvörðun. Þegar ég kom heim úr vinnunni undirbjó ég bara bað handa mér. Fór í jólabombubað....fjólublátt með stjörnum. Og lá í því í a.m.k. tvær klst. Rosalega var það nú þægilegt...nema þegar ég vaknaði, því að þá var vatnið orðið kalt.
Held að það sé réttast fyrir mig samt núna að fara að slaka á svo að ég verði hressari á morgun. Ekki gott að byrja árið svona þreyttur eitthvað.
