þriðjudagur, febrúar 28, 2006
Ruglurófa
Ég komst að því í gær að ég er ennþá meiri ruglurófa en ég hélt...hmmm... og var nú ekki á það bætandi. Átti að vera að nudda kl. 18 og fara svo í línudansinn kl. 20. Jújú, ég bruna heim eftir vinnu. Var reyndar að vinna til aðeins rúmlega 16. Fannst ég verða að klára smá áður en ég færi heim. Fór nefnilega upp í starfsmannahald um kl. 15:30 til að láta taka nýja mynd af mér fyrir starfsmannaskrána (eftir fjölda áskorana)...fólk nefnilega þekkti mig ekki á þeirri mynd sem var þar. Skil ekkert í því.. ég meina.. þó ég hafi aðeins breyst þá er ég nú ennþá bara ég.
Allavega.. þegar ég er komin heim, geri ég allt klárt fyrir nuddið. Þegar klukkuna vantaði korter í sex, hringir nuddþeginn minn í mig. Dóttir hennar var komin með hátt í 40 stiga hita. Ekkert hægt að segja í svoleiðis stöðu og ég geng bara frá aftur. Of seint að reyna að fá einhvern annan í tímann því að ég var að fara í línudansinn á eftir.
Þar sem ég er svo klikkuð, hringdi ég bara í yfirmanninn minn og fékk að mæta í vinnuna aftur. Það er búið að vera frekar mikið að gera hjá mér þar. Og mín bara aftur í vinnuna. Var þar til klukkan að verða átta og fór þá bara beint úr vinnunni í dansinn.
Þegar ég hugsa um þetta eftirá... Af hverju var ég ekki bara heima að slaka á?... ætli ég sé ekki bara hætt að kunna það. Ég er alveg ótrúleg. Það þarf nú mikið til að maður hneyksli sjálfan sig. En mér tókst það í þetta skiptið.
laugardagur, febrúar 25, 2006
Myndir
Fann nokkrar myndir af mér á netinu. Þ.e. fann þær á myndasíðu Símamanna. Þetta eru myndir sem teknar voru á úrslitakvöldi keilumóts Símans. Ég fór bara sem klapplið sko... en lenti svo einhvern veginn í því að nudda. Tek það fram að þetta eru skárstu myndirnar sem teknar voru af mér þetta kvöld. Þær eru fleiri þarna inni, sem ég myndi frekar vilja að yrðu teknar út. En ég ræð víst engu um það.
Fyrsta myndin er nú bara tekin frekar snemma. Og er ég bara nokkuð lík sjálfi mér. Mynd númer tvö er uppstilling. Jón vildi endilega að það væru einhverjar krassandi myndir. Það sést þó ágætlega, á þessari mynd, hvernig strípurnar mínar eru núna. Á síðustu myndinni er ég svo að nudda Jón því að hann vildi líka fá nudd eins og stelpurnar sem sátu við hliðina á honum. Hann vildi þó frekar fá að liggja á borðinu og hafa olíu, en ég bauð ekki upp á slíkt þarna...hehehe. Ég man samt ekki alveg á hvað við erum að horfa...því að keppendurnir voru ekki í þessa átt.



Typpatal
Fór á "Typpatal með Audda" í gærkvöldi. Og ég verð nú að segja að ég hló nú alveg slatta sko. Og meira að segja karlmennirnir, sem þarna voru, hlógu líka. Var reyndar búin að sjá hluta af sýningunni, þegar ég fór á konukvöld létt. En það var samt fullt eftir sem ég gat hlegið að.
Síminn borgaði niður miðaverðið fyrir sitt starfsfólk, á þessa sýningu. Fannst mér nú samt frekar léleg mæting. Þ.e. það var léleg mæting frá öllum deildum nema úr "verinu". Við erum nú líka svo skemmtana-glatt fólk...hehehe. Flestir sem eru búnir að vinna þarna í smá tíma, segja að þeir hafi aldrei djammað eins mikið og eftir að þeir byrjuðu að vinna þarna. En það er nú bara gaman að því.
Ég fór heim eiginlega strax eftir sýninguna og vaknað því eiturhress í morgun. Stökk í sturtu og brunaði svo í smá búðaleiðangur. Fór reyndar bara á lítið svæði... Ikea, Rúmfatalagerinn og Húsasmiðjan/Blómaval. Það voru reyndar ákveðnir hlutir sem ég var að fara að kaupa og gerði ég það, með bara pínulitum útúrdúr.
Lét loksins verða af því að kaupa sturtuhengið sem ég var búin að sjá í Húsasmiðjunni. Það er í stíl við nýju baðmotturnar mínar. Keypti samt ekki alveg nákvæmlega það hengi sem mig langaði mest í... en sama lit. Það sem ég keypti var hinsvegar ekki eins vandað. Hitt kaupi ég bara þegar ég verð rík...hehehe.
Keypti mér flotkerti í Ikea og svo reyndar sá ég blá flotkerti í Blómavali og varð því að kaupa þau líka... já, ég veit ég er klikkuð.
Keypti eina innflutningsgjöf, eiginlega bara svona í gamni. Og er stærsti hlutinn af gjöfinni bara smá spaug....sem örugglega enginn skilur nema ég og sá einstaklingur sem fær hana.
Kom svo við í Nettó á heimleiðinni og verslaði smá að borða. Ég get ekki sleppt því alveg, þó að ég borði nú yfirleitt ekki mjög mikið heima hjá mér.
Ég er búin að komast að einum stórgalla við að vera einstæð. Það er þegar ég fer að versla. Þá hef ég engan til að bera pokana með mér upp. Ég versla reyndar oftast frekar lítið í einu, en í dag keypti ég óvenju mikið. Og til viðbótar við það var ég náttúrulega með pokana úr hinum búðunum sem ég var búin að fara í. Þannig að ég átti í smá erfiðleikum með að halda á þessu öllu upp í einni ferð. Það tókst nú samt á endanum með ákveðninni í mér. Hún Gulla litla reddar sér nefnilega alveg ótrúlega.
fimmtudagur, febrúar 23, 2006
Ekki alveg jafn mikil gleði
Gat loksins látið skoða diskettuna sem Sissi fann í geymslunni... þessa sem ég var búin að leita að frá því við fluttum. Gleðin dvínaði nú heldur þegar upp komst að diskettan er orðin ónýt. Af 14 textum, sem ég var búin að pikka inn (með gítarhljómum), náðust ekki nema 3 af diskettunni. Þannig að Gulla litla þarf víst að pikka hina 11 aftur inn.
Verð að viðurkenna að mér fannst þetta ekkert voðalega skemmtileg frétt sko. En maður má nú ekki láta svona lítilræði draga sig niður. Nú er bara að herða upp hugann og byrja að pikka. Ja allavega byrja að pikka fljótlega. Er nefnilega að fara að nudda núna svo að það hentar ekki vel að fara að pikka núna.
Bakið er óðum að lagast. Fann þó til þónokkurrar þreytu í því í dag. Ég get þó glatt mig við það að verkurinn er ekki eins sár. Nuddið sem ég er að fara að nudda núna er líka síðasta nudd vikunnar. Og því bara hvíld framundan... eftir vinnu á morgun.
Ég er aðeins farin að undibúa árshátíðina. Búin að ákveða svona nokkurnveginn í hvaða fötum ég ætla að vera. Búin að panta tíma í vax og þegar búin að fara smá í ljós. Þannig að þetta er allt að koma. Geri ráð fyrir að sjá bara sjálf um förðun og greiðslu...eins og venjulega. Maður á víst ekki endalaust nóg af peningum. En ég hef nú svosem verið nokkuð sátt við mína eigin förðun... kann svona þokkalega inná mig með það. En það er aftur annað mál með hárið. Næ aldrei að gera það neitt svona flott. Mér finnst ég bara alltaf vera eins. En við sjáum bara hvað setur. Ef ég slétta á mér hárið, þá svosem lít ég sæmilega út. Er allavega ekki eins og Grýla. Er samt enn að hugsa einhverjar hárgreiðslur. Hver veit nema ég prufi mig eitthvað áfram núna um helgina.
miðvikudagur, febrúar 22, 2006
Nudd í heimsendingu
Gamla konan hún ég er búin að vera að drepast í bakinu síðan á fimmtudagskvöldið í síðustu viku. Var verst á föstudaginn en tók svo til við að éta bólgueyðandi. Laugardagurinn var nú mun skárri og ég hélt að ég væri bara að verða nokkuð þokkaleg á sunnudaginn. Fór galvösk í vinnuna á mánudaginn en þá fór nú gamanið, heldur betur, að kárna. Hélt að bakið ætlaði alveg að gera útaf við mig þegar ég var búin að sitja kjurr við tölvuna í smá stund. Var svo orðin þrefalt verri um kvöldið og svaf lítið aðfaranótt þriðjudags. Hélt áfram að éta bólgueyðandi og endaði það þannig að ég fékk nudd í heimsendingu í gærkvöldi. Hentugt að vera með tilbúna nuddstofu heima hjá sér. Þá þarf nuddarinn bara að mæta með sjálfan sig á svæðið (í þessu tilfelli kom hann reyndar með olíublöndu með sér). Mjög ljúft það. Það er nefnilega orðið óþarflega langt síðan ég fór síðast í nudd. En hann Jói minn var nú alls ekkert harðhentur við mig, þó svo að ég hafi nú alveg fundið fyrir því sem hann var að gera. Enda vil ég ekkert klappinudd, ég vil finna árangur eftir nuddið. Takk Jói minn... þú ert yndi.
Heimsenda nuddið skilaði þónokkrum árangri...svaf eins og barn síðustu nótt og er miklu betri í dag... þó að ég sé nú reyndar samt ekki orðin alveg góð. En þetta er allt að koma og ég er farin að sjá fram á að ég fari aðeins að yngjast aftur..hehehe. Hjólastóllinn fjarlægist allavega örlítið. Næ vonandi góðum svefni í nótt og verð orðin eins og unglamb í fyrramálið (það má alltaf láta sig dreyma).
sunnudagur, febrúar 19, 2006
12 hlutir sem þú vilt ekki vita!!
Rakst á þetta á netinu...púff...þeir sem þekkja mig vita hvernig ég er á svipinn núna
12 hlutir sem þú vildir ekki vita:
1) Eftir eins tíma sundferð hefur þú komist í snertingu við hálfan lítra af þvagi
2) Á meðaldegi kemst þú í óbeina snertingu við 15 typpi, t.d. við að taka í hurðarhúna.
3) Árleg neysla meðalmanneskju á skyndibitamat inniheldur 12 kynfærahár
4) Á einu ári gleypir þú 14 skordýr í svefni.
5) Á einu ári heilsar þú með handabandi 11 konum sem hafa nýlega "snert sig" og gleymt að þvo sér um hendurnar
6) Á einu ári heilsar þú með handabandi 6 körlum sem hafa nýlega "snert sig" og gleymt að þvo sér um hendurnar.
7) Flestir karlmenn þvo alls ekkert á sér hendurnar eftir að hafa verið á klósettinu. Veltu því fyrir þér næst þegar þú ert á barnum og færð þér hnetur úr skálinni á barborðinu
8) Í meðalbrúðkaupi hefur þú hundrað möguleika á að smitast af frunsu frá einum gestanna.
9) Þú andar daglega að þér hálfum lítra af endaþarmsgasi frá öðrum
10) Tannlæknar telja að tannburstar verði að vera í a.m.k. tveggja metra fjarlægð frá klósettskálinni til að sýklar í loftinu frá skálinni festist ekki á burstunum.
11) Þú eyðir sex mánuðum lífs þíns á klósettinu
12) Ef þú nagar neglurnar innbyrðirðu meira magn sýkla en ef þú sleiktir hreina klósettskál.
Gláp
Ég fékk 3 nýjar myndir, til að horfa á, fyrir helgi. Og nú er ég búin að horfa á þær allar. Ég tek svona tarnir og horfi og horfi. Horfði á eina á fimmtudagskvöldið...þ.e. hluta af einni og kláraði hana á föstudagskvöld. Það var myndir Wedding Crashers. Á föstudagskvöldið horði ég svo á Transporter 2. Er búin að vera að bíða eftir að geta horft á hana. Og ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Það er nefnilega svo oft sem að maður verður fyrir vonbrigðum með mynd númer 2, ef fyrri myndin hefur verið svaka góð. Ég einmitt varð fyrir smá vonbriðgum með The Legend of Zorro, sem ég horfði á um síðustu helgi. Mér fannst hún samt alveg fín, en fyrri myndin var nú betri.
Áðan var ég svo að horfa á The Man. Hún var nú bara alveg ágæt. Ég allavega hló slatta.
Og nú er þarf ég bara að fara að horfa á eitthvað gamalt, þar sem ég er búin með allar nýju myndirnar sem ég var búin að fá.
Djamm djamm
Var að koma heim af djamminu. Fór í eurovision/stelpu-party til Jónínu. Horfðum á Sylvíu Nótt rústa keppninni. Og milli hálf eitt og eitt var svo haldið niður í bæ. Ég tók systurnar Kötu og Eygerði með mér örlítið á undan hinum. Við byrjuðum á að kíkja á Gaukinn. Þar hittum við Önnu Völu og vinkonu hennar. Röltum svo allar saman á Nasa, þar sem Paparnir voru að spila. Við byrjuðum að sjálfsögðu strax að dansa. Restin af partý-hópnum fór svo að tínast inn smátt og smátt.
Haldið þið ekki bara að ég hafi hitt hann Jóa minn. Dan var þarna að sjálfsögðu líka og dansaði ég, að mestu, við þá það sem eftir var ballsins.
Jónína ætlaði svo að fá far með mér heim, en ég endaði svo á því að rúnta bara með henni smá hring og skilja hana eftir stutt frá Glaumbar. Brunaði svo bara ein hingað upp í Breiðholt og finnst voða notalegt að vera komin heim.
Ég held að það hafi verið sullað yfir mig í kvöld, næstum öllu sem hægt var að sulla yfir mig. Var á tímabili t.d. með rennandi blautt hár. Það var sullað yfir mig slatta af hvítvíni. Örlitlu áður var sullað framan á mig slatta af bjór. Og þetta er fyrir utan allt hitt sem ég veit ekki einu sinni hvað var. Sem betur fer slapp ég samt við rauðvínið.
Jæja, held að gamla konan ég ætti að fara að skríða í bólið og reyna að losna við þetta blessaða suð úr eyrunum.
laugardagur, febrúar 18, 2006
Gulla glöð
Ég varð ekkert smá glöð í gærkvöldi. Meira að segja svo glöð að Sissi fór að hlægja að mér...hmmm. Vorum aðeins að gramsa í geymslunni. Og viti menn, disklingurinn sem ég er búin að vera að leita að, síðan við fluttum hingað, fannst. Nú er eina vandamálið það að tölvan mín er ekki með disklingadrifi. Auglýsi ég því hér með eftir einhverjum góðhjörtuðum, sem er með disklingadrif í tölvunni sinni, og vil copera, fyrir mig, það sem er á disklingnum yfir á geisladisk.
Draumaráðningabókin mín er líka komin upp. Geri ráð fyrir að mömmu finnist það ekki slæmt...hehehe.
Lenti líka í svoltið skrítnu. Ég var að fara yfir gömul föt, sem ég pakkaði niður í kassa í Bakkaselinu, en var svo aldrei tekið upp hérna. Fann þar gömlu kápuna (frakkann, síða jakkann..veit ekki alveg hvað skal kalla þessa flík) mína, sem ég keypti eftir að ég átti. Það var sem sagt sumarið 1996 og áður en ég fór að fitna. En nei... hún var alltof stór á mig. Ég skil þetta ekki, því að ég veit fyrir víst að ég er feitari í dag en ég var þá. Ekki það að ég myndi aldrei ganga í henni aftur, en fyndið samt að máta. Svo fann ég líka broskallaaxlaböndin mín...hehehe...setti þau á mig og Sissi fór aftur að hlægja. Hann meira að segja tók mynd... spurning hvort að hann væri til í að senda mér þessa mynd svo að ég viti hversu asnaleg ég var. En ég allavega henti alveg fullt af fötum, sem eru þannig að ég myndi aldrei fara í þau aftur. Skil ekki alveg hversvegna ég henti þeim ekki bara áður en við fluttum. En það hefur sennilega verið vegna þess að á þeim tíma átti ég ekki neitt voðalega mikið af fötum. Og ég er sennilega líka búin að skipta svoltið mikið um fatastíl síðan þá. Það eina sem ég tók upp af fötum voru einar buxur (eru sennilega of stórar á mig) sem ég var rosalega mikið í þegar ég var í nuddskólanum. Og eina peysu sem Sissi gaf mér einhverntíman í afmælisgjöf og ég hef aldrei gengið í. Hún er svona þykk prjónapeysa og ég er frekar heitfeng kona þannig að tækifærin voru fá. Kannski ég fari að ganga í henni núna þar sem ég er alltaf með frost hérna inni hjá mér...hehehe.
Sissi gekk frá eigendaskiptunum á bílnum mínum í gær. Svo að núna er ég stoltur eigandi bílsins míns...hehehe... og líka á pappírum.
fimmtudagur, febrúar 16, 2006
Gulla bílagúru???
Neibb... ég held að ég geti alveg fullyrt að það er ég ekki.
Mundi loksins eftir því í dag að kíkja á olíuna á bílnum. Og komst að því... eins og mig grunaði... að það vantaði olíu. Mín fór inn í bílinn til að ná í olíuna sem ég var búin að kaupa. Svo þegar ég hélt á olíubrúsanum í hendinni þá var ég ekki alveg 100% á því hvar ég ætti að setja olíuna..ég veit, Gulla vitlaus. Hringdi í hann Sissa bílakall og spurði hvort að það væri ekki alveg örugglega guli tappinn sem væri við hliðina á pinnanum, til að mæla olíuna. Sissi þorði ekki að fullyrða þetta svona í gegnum símann og lofaði að kíkja á mig í kvöld. Er hægt að vera meiri lúði en þetta... geta ekki einu sinni sett olíu á bíl... og ég sem er úr sveit. En ég vildi bara vera viss. Læt Sissa svo bara sýna mér þetta í kvöld og þá get ég gert þetta næst.
Ekki það að það var kannski bara ágætt að ég hringdi og Sissi ákvað að koma. Því að þá getum við skrifað undir eigendaskiptin á bílnum í leiðinni. Kannski fer ég bara að fara að eiga bílinn minn sjálf.
Held að það sé kominn tími til að bíllinn minn verði minn...hehehe. Og kannski Sissi skili mér líka aukalyklinum af bílnum. Hálf asnalegt að Sissi sé með hann...hmmmm... spurning um að geyma hann bara í bílnum...hehehehehehe...oh ég er svo fyndin.
miðvikudagur, febrúar 15, 2006
Tiltekt
Það tókst loksins hjá mér að koma mér í að laga til í textablöðunum mínum. Það er orðið svo langt síðan ég ákvað að reyna að setja þau í plastvasa og í möppu að ég man ekki einu sinni hvað það er langt síðan. Ég skil samt ekki hvað hefur orðið af amk tveimur gítarbókum sem ég átti... eða ég... held ég hafi nú stolið annarri þeirra heima í sveit...tíhíhí...usss ekki segja pabba. Ætli það endi ekki með því að ég neyðist til að fara niður í geymslu og gramsa þar. Þær hljóta að hafa lent þar í flutningunum fyrir tveimur árum (held allavega að ég hafi ekki séð þær síðan).
Þetta kannski verður til þess að ég finni eitthvað fleira sem er týnt..hehe. Og kannski verður það líka til þess að ég nái í draumráðningabókina mína og eitthvað fleira sem átti að vera löngu komið upp.... framtakssemin alveg að drepa mig sko. En nú fer nú líka fyrst að fara að verða pláss kannski fyrir það dót. Hillupláss var nefnilega af skornum skammti...er reyndar ennþá, en þó hefur aðeins rýmkast um.
Ég held að ég verði að fara að ná mér í meiri pening...hehe...ég er komin með svo margar hugmyndir um það hvað mig langar til að gera hérna innanhúss hjá mér. Mig langar að breyta þessu og hinu. Skipta út þessum hlut fyrir annan og svoleiðis. Verst hvað það kostar allt marga peninga. Ég var alveg komin á flug um daginn en ákvað þá að reyna að slaka aðeins á svo að ég yrði ekki fyrir eins miklum vonbrigðum. Því að ég veit að ég get ekki gert neitt núna. En ég hef þá bara eitthvað til að hlakka til að geta gert seinna.
Ég er alveg ómöguleg í sambandi við bílinn minn. Er búin að ætla að mæla á honum smurninguna, í þónokkuð langan tíma. Búin að kaupa smurningu svona til öryggist ef að það skyldi vanta. En ég gleymi því alltaf þegar það er bjart og man svo eftir því á kvöldin þegar það er orðið dimmt. Og þá get ég náttúrulega ekki skoðað þetta. Ég held að ég hljóti að vera orðin svona gömul...man ekki neitt stundinni lengur...ja nema ef ég hef gert mig að fífli einhversstaðar eða orðið mér til skammar. Það get ég, held ég, munað þar til ég dey.
Ég mundi þó loksins eftir því að hafa samband við bankann í dag. Það er búið að standa til frá því um mánuðamótin...alveg ótrúleg sko. En ég gleymi líka alltaf að biðja einhvern að minna mig á...hehehe. En best að fara að gera það sem ég ætlaði að gera í kvöld...svona áður en ég gleymi hvað það var.
þriðjudagur, febrúar 14, 2006
Skemmtilegt lesefni
Ég hef rosalega gaman af spádómum og stjörnumerkjum og svoleiðis vitleysu. Verð þó að viðurkenna að ég lifi ekki eftir þessu. En undanfarið hefur mér samt þótt alveg skuggalegt hvað stjörnuspár og spáspilin, sem ég hef dregið, passa vel við mig. Hér kemur þó atriði sem er bara til að hafa gaman af:
Naut (20.apríl - 20.maí)
- ÁKAFT Í RÚMINU -
Nautið þarf þægilegt rúm þar sem það nær að hvíla sig þegar svefninn kallar. Þolinmóður elskhugi endurspeglar styrk þess og tilfinningalegan stöðugleika í rúminu og ímyndunarafl er alveg óþarft ef nautið er ánægt
með rúmið, sængurverið og ákafan blíðan elskhuga í svefnherberginu. Nautið er rómantískt,viðkvæmt,blítt,fálátt. Það kann að vera feimið í upphafi kynna sökum óöryggis í rúminu en þegar það nýtur sín er ekki aftur snúið og leikurinn getur hafist. Þægindi og ánægja skipta nautið miklu máli og þá eru þægilegir og mjúkir koddar mikilvægir. Staðfast og heimakært nautið kýs rúm sem kallar á það í hvert sinn sem það kemur heim eftir erfiðan dag því þegar því líður vel,er fullnægt og útsofið, gefur það sig af líkama og
sál.
Spáspilið mitt í dag
Þetta er sérstaklega sett inn fyrir Snorra!!!

6 sverð
Eitt stærsta verk þitt er að yfirstíga hræðsluna sem býr innra með þér við varnarleysi og afhjúpun. Þú ert minnt/ur hér á að þú ert ekki fær um að öðlast hamingju í sambandi fyrr en þú horfist í augu við ótta þinn gagnvart framtíðinni og jafnvel skuldbindingu.
Þú ert fær um að leiðbeina öðrum samkvæmt eigin sannfæringu og kennir náunganum að leita svara við spurningum tilverunnar en átt það til að gleyma að hlusta á eigið hjarta sem kallar hér á athygli þína því unaðsstundir bíða þín þar sem þú hlúir með ástúð að sálu þinni með því að gefa andanum innra með þér nánari gaum.
© 2006 Spámaður - Ingunn ehf.
sunnudagur, febrúar 12, 2006
Spilið mitt í dag!!

X - Hamingjuhjólið
Þú átt aðgang að allri sköpun veraldar. Hreinn sköpunarmáttur og vellíðan birtist samhliða hamingjuhjólinu hér. Gleðin og einfaldleiki tilveru þinnar kemur til þín af frjálsum vilja og býðst til að taka ofan grímu sína. Þú þarft ekkert að aðhafast því ástin er komin til að vera. Þú ættir að upplifa fúslega og þá færðu óskir þínar endurgoldnar sannarlega.
Þú ert fær um að upplifa og njóta aðstæðna og skynja þetta einstæða orkusvið sem tengir þig við þinn innri varaforða. Hér umlykur þig dulúð og töfrar þar sem þú skynjar varanlega hamingju sem færir þér stórkostlegan frið. Betri helmingur þinn er innra með þér.
© 2006 Spámaður - Ingunn ehf.
föstudagur, febrúar 10, 2006
Nóg að gera
Það er sko búið að vera nóg að gera hjá mér þessa vikuna. Ég svaf ekki neitt voðalega mikið um síðustu helgi og byrjaði því þessa viku frekar þreytt... sem þýðir að ég er þreytt alla vikuna. Þetta var þó engin hvíldarvika...síður en svo. Á mánudaginn fór ég á línudansnámskeiðið strax eftir nudd. Var meira að segja svo sein að ég var að hlaupa inn alveg á mínútunni (sem er ekki algengt með mig...er frekar tímanleg týpa sko). Á þriðjudaginn var ég svo að nudda til kl. 21:30. Á miðvikudaginn fór ég á konukvöld Létt 96,7 strax og ég var búin að nudda. Hoppaði úr nuddfötunum og í smekklegri föt, á leiðinni út um dyrnar. Á konukvöldinu fékk ég svo að syngja með kynþokkafyllsta karlmanni Íslands, honum Garðari Thor Cortes. Í gærkvöldi var ég svo aftur að nudda til kl. 21:30. Átti líka að vera með nudd í kvöld en það var hætt við...sem kom sér alveg ágætlega fyrir mig... ekki það að mann vantar alltaf peninginn... en ég held að orkan sé orðin af frekar skornum skammti hjá mér.
Júlía, vinkona og vinnufélagi, ætlar svo að koma til mín í kvöld. Við erum að spá í að horfa á einhverja skemmtilega mynd og jafnvel spjalla smá. Erum búnar að taka þá ákvörðun að fara að rækta okkur sjálfar. Okkar tími er kominn. Við ætlum svo að vera endurnærðar og sætar á árshátíðinni... sem að styttist í. Ég meira að segja byrjaði bara strax á að vera góð við sjálfa mig og fór í ljós á heimleiðinni. Keypti mér 10 tíma kort fyrir rúmum mánuði og er ekki búin að nota nema tvo tíma. Nú er því bara að fara að taka sig á.
Fékk boðskortið, á árshátíðina, í fyrradag. Matseðillinn hljómar mjög vel. Held að þetta verði bara nokkuð góð árshátíð. Við eigum nú samt eftir að fá að vita hvaða þema verður í ár. Vona að við fáum að vita það með aðeins meiri fyrirvara en í fyrra....eða var það árið þar áður sem við fengum að vita það svo seint... æi ég man það ekki. Það þarf allavega að fara að upplýsa okkur um það svo að við getum farið að redda okkur einhverju í sambandi við þemað. Ég er reyndar svona nokkuð búin að ákveða í hverju ég verð. Langar samt að kaupa mér eitthvað smá nýtt. En það má nú ekki vera mjög dýrt þar sem ég á ekki mjög mikinn pening þessa dagana. Og er meira að segja búin að ákveða að fara á Typpatal með Audda. Sýningin sem ég get farið á er 24. febrúar og er því bara að fara að spara til að eiga fyrir þessu öllu. Þá er bara að fara að borða minni....það er nú reyndar voða lítið hægt að minnka það hjá mér.. en allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi... þetta verður þá bara svona "ekkert að borða fyrir Gullu"...tíhíhí.
En þó að það sé mikið að gera hjá mér þá gleymdi ég nú ekki að hringja í hana mömmuna mína sem á afmæli í dag. Hún sagði að hún væri svona líka ungleg og hress á afmælisdaginn sinn. Og við ræddum það hvað ég væri heppin að vera með genin hennar því að þá væru nú líkur á að ég yrði líka svona ungleg og hress þegar ég væri komin á besta aldurinn...hehehe.
Talaði reyndar líka við hana Súlí mína sem átti afmæli á sunnudaginn síðasta. Er búin að reyna að ná í hana á hverjum degin núna, talið frá og með sunnudeginum. Það var nú bara alls ekki að ganga og sendi ég henni því sms. Haldið þið að stúlkan hafi ekki bara verið nokkuð fljót að hringja í mig þegar hún var búin að sjá sms-ið. Held jafnvel að henni hafi þótt gaman að heyra í Gullu ungu....tíhíhí...ég er nefnilega yngri en hún....þó ekki muni miklu þá er ég samt yngri..hehehehe.
Læt svo bara fylgja með hérna mynd sem náðist af mér á bjórkvöldinu...hún Inga mín er svo brjóstgóð að ég bara varð að halla mér að henni.

þriðjudagur, febrúar 07, 2006
Grasið grænna hinum megin???
Þetta er stóra spurningin. Langar mann ekki alltaf í eitthvað annað en maður hefur. Og þegar maður svo fær það sem maður hélt að mann langaði í, þá fer mann að langa í eitthvað annað.
Og svo þetta með að hlutirnir sem maður má ekki fá séu svo spennandi. Svo um leið og maður má fá þessa ákveðnu hluti þá eru þeir ekkert spennandi lengur.
Ætli það sé einhverntíman hægt að gera einhverjum alveg 100% til geðs??
Ég t.d. geri ekki annað en að skipta um skoðanir núna. Ég held að mig langi í eitthvað ákveðið. Svo þegar búið er að samþykkja það þá er ég ekki svo viss lengur. Og langar kannski frekar í það sem ég þarf að fórna til að fá þetta sem ég hélt að mig langaði í.... hmmmm... ég er kannski bara svona erfið?? En ég er allavega búin að hlaupa í marga hringi og með því sennilega búin að þreyta alla í kringum mig.
Eitt af nýrri dæmunum um þetta er að ég var voða mikið að djamma fyrir jól. Svo var ég komin á þá niðurstöðu að ég væri komin með nóg af djamminu í bili. Kem mér þá í þannig aðstæður að ég á frekar erfitt með að djamma mjög mikið. En þá sé ég að mig langar kannski bara að halda áfram að djamma.
En það er svona... ég get ekki fengið allt sem ég vil. Ég ætti nú að vera búin að koma mér í skilning um það.
Nú er því bara að fara að nudda eins og brjálæðingur svo að ég hafi efni á að halda gott partý. Það er ennþá alveg mánuður í árshátíðina og varla get ég farið að bíða svo lengi með að djamma næst.
Önnur pæling... hvernig ætli það færi mér að gerast "ísdrottning"? Þá á ég við að kæla mig svoltið niður tilfinningalega séð. Hætta að finna til með öðrum og svona. Og fara kannski að taka mínar langanir fram yfir langanir annarra. Ég er reyndar aðeins byrjuð á því með því að búa svona ein. Við það fór ég nú að gera meira fyrir sjálfa mig. Ég er samt alltaf að hugsa um aðra líka. Og taka tillit til þessa og hins. Ég er búin að finna góða lýsingu á þessari breytingu... leggja hjartað í ís...hmmm ég ætti kannski bara að gerast skáld?
fimmtudagur, febrúar 02, 2006
Styttist í helgina
Jæja skapið hefur nú aðeins skánað síðan í gær. Það er sennileg af því að það er farið að styttast í helgina og djamm framundan. Ekki er það nú samt þorrablótið í Bárðardalnum sem ég er að fara á. Verð bara þar í huganum. En ég er að fara á bjórkvöld með vinnunni minni. Og nú skal sko slett úr klaufunum...hehehe. Er búin að vera svo þæg núna eftir áramót að ég verð eiginlega að fara að gera eitthvað. Svona til að missa ekki alveg niður ferðina sem ég var komin á fyrir jól.
Svo er ég reyndar að fá gesti í gistingu um helgina... fjölskyldan mín úr Oddagötunni er að koma. Og Móna er búin að bjóða fram aðstoð Jóns Inga við að hengja upp myndir...tíhíhí... nú fá kannski myndirnar mínar að komast upp á vegg. Ég á reyndar eftir að kaupa eina myndina sem ég ætla að hengja upp. En það verður ekki mikið mál... skreppa bara smá í IKEA.
miðvikudagur, febrúar 01, 2006
Pirrings-dagur
Ótrúlegt hvað er ég pirruð í dag. Gæti kannski spilað svolítið inní að ég er ennþá alltof slöpp af þessum blessuðu veikindum sem ég náði mér í þarna um daginn. Það bara fer allt í taugarnar á mér núna.

Ég þoli t.d. ekki þegar fólk getur ekki verið hreinskilið.
Ef að einhver lofar að gera eitthvað og getur svo ekki staðið við það... þá fer hrikalega í pirrurnar á mér þegar það er að afsaka sig með einhverjum lygum. Segið bara afhverju þið getið ekki staðið við það sem þið lofuðuð... jafnvel þó að það sé bara af því að þið nennið því ekki eða af því að ykkur var boðið að gera eitthvað skemmtilegra. Ég er búin að lenda í aðeins of miklum lygum til að þola þær. Svo þegar maður spyr að einhverju, svarið spurningunni af hreinskilni þó að svarið sé leiðinlegt. Ekki bara sleppa því að svara. Því þá fer maður að ímynda sér eitthvað svar sem á kannski ekki við nein rök að styðjast. Og það er einmitt eitt sem ég þoli ekki heldur. Þegar fólk dregur ályktanir sem eiga við voða lítil rök að styðjast. Ákveður bara að eitthvað sé satt án þess að vera búið heyra allar hliðar málsins. Og kemur svo með einhverja dóma á saklaust fólk.
Og eitt enn... slúður. Vá hvað fólk hefur gaman af því að slúðra. Og svo eru bara búnar til einhverjar sögur þegar ekkert skemmtilegt er að gera. Ekki heldur spyrja einhvern og einhvern hvort að þetta sé svona eða svona... spyrjið bara þá sem hlut eiga að máli. Það er miklu heiðarlegar. Og þá fáið þið líka rétt svör en ekki svör sem eru dregin af einhverjum fáránlegum ályktunum.
Vá varð bara að pústa smá. Ég er nefnilega það pirruð að það að ég sé búin að eignast íbúðina ein, nær ekki að hressa mig við. Nú vona ég bara að einhver skemmtilegur og góðhjartaður reyni að lífga mig við aftur.
Mig meira að segja langar ógeðslega mikið til að elda góðan mat. En það eru allir eitthvað svo bissí að það hefur enginn tíma til að borða með mér. Og ég nenni nú ekki að fara að elda fyrir mig eina. Þá frekar sleppi ég því að borða...eða fæ mér bara brauðsneið eða drykkjarjógúrt.
MÍN íbúð
Já nú er íbúðin orðin MÍN!!! Fór til sýslumannsins í dag til að ná í þinglýst skjölin. Ég er búin að borga Sissa, og nú er íbúðin bara á mínu nafni. Sissi er að mestu búinn að ná í dótið sitt. Við eigum reyndar eftir að fara eitthvað í gegnum geymsluna. Og þjóðskrá er komin með mig sem "skilin/n að borði og sæng". Þannig að þetta er allt að verða orðið klárt. Þá er bara að fara að borga reikningana.
Þetta hlýtur að vísu að kalla á partý...hvernig væri það. Hvað ætti ég að kalla það??? "Sissi er fluttur út partý"... "Home alone party"... Ekki get ég haft það innflutningspartý, þó að þetta væri í rauninni til að fagna því að ég var að kaupa Sissa út úr íbúðinni. Allar tillögur að nafni á partýi, fyrir mig til að halda í þessu tilefni, vel þegnar.
