fimmtudagur, mars 30, 2006
 
Hver á mig?
Hef staðið í þeirri meiningu að ég ætti mig sjálf. En það hefur greinilega verið einhver misskilningur því að mér var tilkynnt það í dag hver væri eigandi minn.
Ég vona þó að eigandinn minn fari nú ekki að fara að ráðskast eitthvað með mig...hehehe...þetta er nú samt það klár einstaklingur að ég er viss um að það ríki mikill skilningur á milli okkar.

En að öðrum málum. Er búin að vera á smá námskeiðatörn. Var á námskeiði á þriðjudag. Frábært námskeið með Jóhanni Inga sálfræðingi. Þetta námskeið um Hugsun og breytingar. Hitti Súlí mína smá stund eftir vinnu, áður en hún fór í flug norður. Fór svo í sund þegar ég var búin að nudda. Dróg hana Bryndísi Evu, vinkonu mína, með mér. Þetta var voða kósí svona stelpu-stund hjá okkur.
Í gær fór ég svo aftur á námskeið. Þetta námskeið var í tengslun við trúnaðamannastarfið. Og viti menn bíllinn minn fékk að fara í bað í gær. Já það kom að því. Og það meira að segja á virkum degi. Sissi var svo elskulegur að sýna mér hvernig þvottastöðin hjá IKEA virkar. Það var nú samt orðið svo langt síðann að bíllinn minn var þveginn síðast að það þarf að tjöruþvo hann aftur fljótlega. Þetta var allt orðið svo fast á.
Ætlaði að fara snemma að sofa en lenti á spjalli á msn og fór því ekki að sofa fyrr en rúmlega eitt í nótt. Var það því frekar þreytt Gulla sem fór á fætur í morgun. En þegar ég leit í spegilinn og sá hvað ég var falleg, hresstist ég öll við...hehehehe...segi bara svona.

Það er smá svekkelsi í gangi hjá minni núna. Pabbi og mamma ætluðu að koma suður um helgina en sökum leiðinlegrar verðurspár, er eiginlega nokkuð ljóst að þau koma ekki. Og ég sem var farin að hlakka til að sjá skötuhjúin. Fyrst að þau koma ekki núna er nú ekki mjög líklegt að þau komi neitt á næstunni. Þau virðast ekki mikið vera á ferðinni svona af því bara. En þessi ferð átti að vera til að fara í fermingu sko.

Þannig að helgin hjá mér er bara alveg óplönuð. Kannski ágætt svona miðað við hversu síðasta helgi var pökkuð. Þannig að ef það verður ekki mjög kalt þá kannski verð ég bara rúsínan í heitapottinum...hehehe.
mánudagur, mars 27, 2006
 
Sundstund
Hehe...fór í sund áðan (það var enginn línudans í dag) og datt þessi gamla stund í hug "Sundstund í VMA"...hehehe. Ja það eru nú nokkur ár síðan ég fór á sundstund í VMA. Við skulum nú samt ekkert tala um hvað það eru mörg ár. Held að það hafi verið þegar ég var í 2. bekk frekar en 1. En allavega... nú er ég svo bara með lagið á heilanum, sem spilað við við myndbrotið sem tekið var á sundstundinni.

Var léleg á þvi núna, í sundinu, og synti ekki neitt. Var mest allan tímann í nuddpottinum og kíkti svo smá stund í heita - heita pottinn áður en ég fór uppúr. Ég veit að þetta er lélegt því að ég er vön að synda alltaf eitthvað þegar ég fer í sund. Geri kannski bara betur næst...hehehe.

Svo var skattaskýrslan kláruð, segi nú ekki alveg í einum hvelli en kláruð allavega. Fengum reyndar frest til 30. mars. En það er fínt að klára hana fyrr. Held að ég hafi náð að fylla endurfjármögnunina rétt inn. Það var eiginlega bara hún sem var að vefjast eitthvað fyrir mér. Sissi bara klóraði sér í hausnum á meðan ég var að reyna að reikna þetta út. Og hló svo bara að mér þegar ég var eitthvað að pirrast á þessu.
Villuprófunin kom vel út...þ.e. engin villa fannst. Þannig að nú er ég komin með kvittun fyrir móttöku skattframtalsins.
Ætli þetta verði ekki ennþá flóknara á næsta ári.... grrrrrr.... þá kemur það inn að ég keypti Sissa út úr íbúðinni og svona. Og þá þarf Sissi líka að sjá sjálfur um að fylla út hjá sér það að hann skyldi selja mér íbúðina...hehehehehehehe. Hann kann ekki að fylla út skattaskýrslu...tíhíhí... ég hef alltaf séð um það fyrir okkur *hrossahlátur*. Segi bara svona.

Og by the way, Súlí mín kom ekki til mín í gær. Hún fékk ekki flug fyrr en í morgun svo að við gátum ekki átt stelpustund í gærkvöldi. Þannig að ég var bara einmana því að ég hafði hlakkað svo mikið til að fá hana Súlí mína. Það gengur kannski bara betur næst.
sunnudagur, mars 26, 2006
 
Þreyta
Ég hef lítið nennt að vera í tölvunni undanfarið. Hmmm.. hvað er nú aftur búið að gerast síðan síðast.
Já, tókst að ná mér í kvef og hálsbólgu. En lét það ekki stoppa mig í að fara norður um síðustu helgi. Við Sissi skelltum okkur norður eftir hádegi á laugardag... vorum að skreppa í partý til elskunnar minnar hennar Sigurlínu. Stoppuðum að sjálfsögðu í Oddagötunni og í Lyngholti, áður en við héldum áfram í Svartárkot. Þetta var alveg hörku partý. Það lá mjög vel á liðinu og var vel tekið á Singstar-græjunum. Gistum í Svartárkoti og vorum komin í borgina aftur á sunnudagskvöld. Verð þó að viðurkenna að ég var frekar þreytt þegar við komum aftur til baka. Þannig að ég fór að sofa um kl. 21:30...hehehe. Aumingja mamma reyndi að hringja í mig þegar ég var farin að dotta og held ég að ég hafi nú verið frekar úrill í símann...Sorrý!!!
Svo hefur nú lífið bara gengið sinn vanagang. Var reyndar á námskeiði allan mánudaginn og svo að sjálfsögðu línudansinn um kvöldið. Skrapp í sund á þriðjudagskvöld. Miðvikudagurinn bara rólegur. Fór meira að segja óvenju snemma að sofa... er að reyna að bæta mig í því sko. Fimmtudagurinn var frekar strembinn... nudd kl. 17, nudd kl. 19, fundur kl. 21. Komin heim kl. 23... og var þá að sjálfsögðu ekki tilbúin í að kvöldið væri búið svo að ég fór frekar seint að sofa.
Á föstudaginn var partý hér hjá mér. Reikningasvörunin var með partý og bauð ég húsnæði fyrir það. Hörku stuð og náði hópurinn, sem mætti, mjög vel saman. Og ég held að allir hafi skemmt sér mjög vel.
Angela og Gulli giftu sig svo í gær og mætti ég í kirkju og veisluna á eftir. Hafði einnig skrautskrifað inn í gestabókina fyrir þau.
Linda Fr. átti líka afmæli í gær og var partý heima hjá Ingu í því tilefni. Ég mætti þangað en held að ég sé að verða full gömul til að djamma tvö kvöld í röð og var því farin heim rétt uppúr miðnætti... alveg dauðþreytt.
Mín lét þó ekki slá sig út af laginu og var mætt á körfuboltaleik á Hvolsvelli kl. 11 í morgun. Og horfði svo á annan leik kl. 14. Var í örlitlum vandræðum hvernig ég ætti að eyða tímanum á milli leikja. Fékk mér að borða og rúntaði allar göturnar á Hvolsvelli... hafði samt auka hálftíma... og það var ekki nema klukkutími á milli leikja. Ég mætti því snemma á seinni leikinn eftir að vera búin að sitja smá stund út í bíl að hlusta á tónlist.
Brunaði svo til baka aftur í höfðuborgina. Lenti reyndar í bílalest og var í henni frá Hellu og alla leið til Reykjavíkur. Var því heldur lengur á heimleiðinni en á leiðinni austur.
Held að ég taki lífinu með ró það sem eftir er dagsins. Skelli kannski mynd í spilarann og kúri yfir henni....ummmm... er meira að segja að spá í að taka sængina mína fram í sófa...hehehe. Verst að ég á enga nýja mynd til að horfa á. Það er nú eiginlega bara met hvað það er liðinn langur tími frá því að ég keypti mér síðast dvd-mynd. Kemur reyndar ekki til af góðu. En ég hef verið frekar blönk upp á síðkastið. En maður má nú ekki láta það draga sig niður. Meðan ég fæ eitthvað að borða þá er þetta fínt.
Hélt reyndar að Súlí myndi koma til mín í kvöld... en ég hef ekkert heyrt frá henni í dag svo að ég er farin að efast. En það kemur bara í ljós.
Og ætli ég fresti ekki þvottinum á bílunum mínum um eina viku í viðbót. Hef ekki tíma til að þrífa bílinn minn á virkum dögum og ætla því alltaf að gera það um helgar. En lendi svo alltaf í að gera eitthvað annað og hef ekki tíma til að hugsa um bílinn minn. Greyið brumm brumm er alltaf látinn sitja á hakanum.
miðvikudagur, mars 15, 2006
 
Dr. Phil test
Ég var að taka eitthvað svona Dr. Phil test. Og var þetta niðurstaðan um mig:

Other see you as fresh, lively, charming, amusing, practical and always interesting; someone who's constantly in the center of attention, but sufficiently well-balanced not to let it go to their head. They also see you as kind, considerate and understanding; someone who'll always cheer them up and help them out.

Nú er bara spurningin...er þetta ég???
þriðjudagur, mars 14, 2006
 
Örlítið meira af árshátíðinni
Ég er bara orðin nokkuð örugg um að það hafi ekki náðst neitt voða margar myndir af mér á árshátíðinni. Veit reyndar að það er allavega ein mynd af mér í myndavélinni hennar Ingu. En annars er ég bara búin að finna eina mynd til viðbótar af mér. Hún er af mér og Jónínu. Við sátum einmitt hlið við hlið á borðhaldinu. Við hina hliðina á mér sést í hana Möggu, systur Magga og vinkonu Lindu..hehehe.
Image hosting by Photobucket
mánudagur, mars 13, 2006
 
Árshátíð
Árshátíð Símans var haldin með stæl á laugardaginn. Og að sjálfsögðu lét ég mig ekki vanta. Fór frekar snemma á fætur á laugardagsmorgun og skellti mér í árshátíðarbaðið. Skellti mér svo í Mjóddina. Ætlaði bara rétt að skreppa... en það teygðist nú heldur á stoppi mínu þar. Tók þá skyndiákvörðun að láta hreinsa tvær hálsfestar og eitt armband. Var mér sagt að bíða í hálftíma. Ég ákvað þá að kíkja á krúttin mín í bókabúðinni. Það voru þær systur Víó og Súsí sem voru að vinna. Endaði þetta með þvílíkri kjaftatörn hjá okkur Víó. Og var ég því amk hálftíma lengur en ég hafði ætlað mér... ef ekki meira. Þá átti ég eftir að kíkja aðeins í Kringluna. Jæja mín var komin heim aftur rétt uppúr kl. 13.
Júlía hringdi í mig rétt eftir að ég var komin heim og var hún að leggja af stað til mín. Ætlaði að vísu að stoppa á einum stað á leiðinni til mín. Ég notaði því tímann vel og fór að farða mig. Júlía kom svo og greiddi mér alveg snilldarlega.
Inga kom svo þegar hún var búin í greiðslu og förðun. Skelltum við okkur þá í dressin og lögðum lokahönd á árshátíðarlúkkið. Júlía fór svo heim til sín til að klára sitt lúkk.
Þetta er nú alveg þvílíkur prósess og er bara allur dagurinn undirlagður í undirbúning og árshátíð.
Við Inga brunum svo til Sveinlaugar og Magga, þar sem var fyrir-fyrir partý. Þar var nú föngulegur hópur saman kominn.
Image hosting by Photobucket
Hópurinn hélt svo í fyrirpartý Samskiptaveranna í Egilshöllinni. Lékum þar á alls oddi þar til okkur var hleypt niður í aðalsalinn.
Ekki er hægt að segja annað en að árshátíðin hafi heppnast alveg ágætlega. Fullt að skemmtilegur fólki og allir svo fínir og flottir.
Image hosting by Photobucket
Ég var nú samt þónokkuð mikið á ferðinni að tala við hina og þessa. Held þó að Júlía hafi náð að halda mér einna mest hjá sér ;o)
Image hosting by Photobucket
Geymið stóð svo til klukkan að verða þrjú. Ég ákvað að fara bara heim þar sem ég var berfætt í opnum skóm og því ekki alveg búin til að fara í bæinn og þvælast eitthvað í snjónum. Sissi kom því og skutlaði mér heim.
Ég á vonandi eftir að finna fleiri myndir frá árshátíðinni.. ekki það að ég held að ég hafi verið það mikið á iði að það hafi verið erfitt að ná af mér myndum.. en hver veit???
miðvikudagur, mars 08, 2006
 
Leiðinlegt þema
Ég er farin að álíta að það sé ný þema í gangi í kringum mig. Það er svona "leggjum eins nálægt bílnum hennar Gullu og við getum" þema. Nema fólk haldi virkileg að ég sé svo grönn að ég komist í gegnum örlitla rifu.
Og við erum ekkert bara að tala um í dag. Heldur líka í gær og fyrradag. Það er lagt svo nálægt bílnum mínum bílstjóramegin að það liggur við að speglar bílanna snertist. Ég er búin að lenda þrisvar í virkilegum vandræðum með að komast inn í bílinn minn. Og í nokkur skipti er það svona í það þrengsta en samt þannig að ég kemst alveg án mikilla erfiðleika. Og þessi þema er í gangi fyrir utan vinnuna, hérna heima og nú síðast fyrir utan sólbaðsstofuna, þar sem ég skrapp í ljós áðan.

En ég er svo spennt yfir því að hún Súlí mín er að koma í heimsókn að þetta hefur ekki náð af mér brosinu ennþá...hehehe.
Verst að hún þarf að fara strax í fyrramálið aftur. En hún kíkir nú samt aðeins á mig aftur á föstudaginn. Og ég er strax farin að hlakka til þess...tíhíhí.

Nú er mig allsvakalega farið að vanta myndir til að horfa á. Ég er búin að horfa svo oft á myndirnar sem ég á að það er nú eiginlega hætt að vera fyndið. Sissi reyndar var að skila þremur myndum sem hann var með í láni hjá mér. En ég er þegar búin að horfa á eina þeirra aftur...og var ég þó nýbúin að horfa á hana þegar Sissi fékk þær lánaðar (ekki það að ég var nýbúin að horfa á þær allar).
mánudagur, mars 06, 2006
 
Samanburður
Set hér samanburð fyrir Freyju mína.

Fyrir:Image hosting by Photobucket Eftir:Image hosting by Photobucket
 
Ekki skánar það
Eirðarleysið hefur ekkert skánað. Og nú hefur pirringur bæst ofan á eirðarleysið. Ég er því einfaldlega búin að komast að því að mér er ekki við bjargandi.
Mér tókst þó að finna mér pils fyrir árshátíðina. Keypti meira að segja tvö pils. Annað er þó mun fínna en hitt og er það það sem ég verð í á árshátíðinni. Keypti mér reyndar einar buxur í leiðinni. Og ekki má gleyma hárskrautinu sem ég keypti mér. Er komin með svona ákveðna hugmynd um það hvernig ég ætla að greiða mér.. en svo á bara eftir að koma í ljós hvernig það tekst.

Ég er ekki ennþá búin að átta mig á því hvað það er sem er að orsaka þetta eirðarleysi og pirring. Pirringurinn gæti reyndar stafað af eirðarleysinu. Er reyndar kannski bara mest pirruð á sjálfri mér. Er alltof góð við fólk. Leyfi því að komast upp með alltof mikið. Sem mér finnst svo koma fram sem virðingarleysi gagnvart mér... en það getur vel verið að ég sé bara eitthvað að hugsa of mikið.... sem er aldrei gott. En núna ætla ég að reyna að hætta að vera ljúflingur og fara að vera sjálfselskari og hætta að vera góð við þá sem ekki eiga það skilið...hehehe. Mér skal takast það... mér skal takast það.
Ætti kannski að loka mig af í smá tíma. Vera bara í litlu kúlunni minni í nokkra daga.
Get reyndar ekki beðið eftir föstudeginum. Hún Súlí mín ætlar nefnilega að kíkja á mig í eina tvo tíma eða svo. Hef ekki hitt hana síðan 22. janúar og ekki mikið talað við hana heldur. Það er því líkur á að þessir tveir tímar verði MJÖG fljótir að líða. En tveir tímar eru alltaf tveir tíma og þetta eru alveg örugglega tveir tímar sem ég hlakka til.
sunnudagur, mars 05, 2006
 
Eirðarleysi
Ég er búin að vera í eitthvað skrítnu skapi þessa helgina. Á föstudagskvöldið var ég eitthvað eirðarlaus. Hefði sennilega farið á rúntinn ef ég hefði haft einhvern til að fara með. Sat þess í stað bara heima og horfði á sjónvarpið. Náði ekki að sofna fyrr en klukkan var langt gengin í fjögur. Var samt vöknuð og komin á ról uppúr níu í gærmorgun....ég sem hafði ætlað að sofa til, lágmark, ellefu helst hálf tólf. En jæja það gekk ekki í þetta skiptið frekar en fyrr.
Ég átti pantaðan tíma í vax klukkan eitt og dundaði mér bara í sturtu og einhverju dúlleríi fram að því. Þegar ég var svo á leiðinni í vax hringdi hann Sissi í mig... þessi elska. Ég hafði nefnilega spurt hann út í ljósin á bílnum hjá mér á föstudaginn... það var farin ein pera og mig vantaði að vita hvort að ég gæti látið skipta um hana fyrir mig á bensínstöð. Sissi sagði mér bara að tékka á því. Ég var nú samt ekki búin að koma því í verk. En þarna í gær spurði Sissi svo hvort að ég væri búin að láta kíkja á þetta...ætli hann þekki mig ekki nógu vel til að vita að það væru ekki miklar líkur á því. Var þetta yndi ekki bara búinn að kaupa perur og bauðst til að skipta um fyrir mig. Og þegar hann kom svo til að skipta um parkljósaperurnar skipti hann líka um peru í öðru númeraljósinu (hún var líka dáin en ég ekki búin að taka eftir því) og lagaði skottopnarann. Og ekki má gleyma að hann fitlaði líka aðeins við loftnetin á bílnum svo að ég geti farið með bílinn á bílaþvottastöð (hann er nefnilega orðinn all svakalega drullugur). Takk kærlega Sissi krútt.
En allavega...þegar ég var búin í vaxi var ég aftur orðin svona eirðarlaus. Fór heim og setti dvd-mynd í spilarann. Og ekki nóg með það... ég horfði á fimm myndir. Og það var ekki fyrr en eftirá að ég spáði í valið...hmmm.... kannski ég hafi verið í eitthvað skrítnu skapi því að þetta eru myndirnar sem ég horfði á:
The Fast and the Furious, 2 Fast 2 Furious, The Transporter 1 og 2 og endaði svo á að horfa á Torque. Allt eru þetta hraðaksturs-slagsmálamyndir....og ég fílaði það í tætlur.

Ég áttaði mig á því í vikunni að ég hafði ekki hugmynd um hvað ég væri búin að breytast mikið í útliti. Ég vissi alveg að ég væri eitthvað aðeins breytt en datt ekki í hug að það væri svona mikið. Þessvegna var ég líka svo hissa þegar nýju stelpurnar, í deildinni minni, þekktu mig ekki á myndinni af mér í starfsmannaskránni. En þegar nýja myndin var komin í skrána, útbjó ég nýtt blað með myndum af okkur trúnaðarmönnunum (erum með myndir af okkur hangandi uppi í vinnunni svo að fólk viti til hverra það getur leitað). Þegar ég held svo á báðum blöðunum, nýja og gamla, hlið við hlið þá sé ég muninn... og VÁ!!! nú skil ég hvað fólk var að meina. Ég skil ekki að ég hefi ekki áttað mig á þessu sjálf. En ég að vísu sé alltaf bara sjálfa mig eins og ég er og verð ónæm fyrir breytingunum. En að sjá þessar myndir hlið við hlið... teknar með þriggja ára millibili. Er maður virkilega haldinn svona miklum ranghugmyndum um sjálfan sig að maður átti sig ekki einu sinni á því þegar maður er að breytast?
Það nefndu það nokkrir við mig í vikunni að ég væri ennþá að grennast. Ekki hafði ég heldur áttað mig á því. En datt allt í einu í hug að það væri betra að máta fötin sem ég ætla að fara í á árshátíðina svona aðeins fyrirfram, ef þau skyldu nú ekki passa. Jú þetta sleppur en toppurinn er nú samt orðinn frekar víður á mig...og ég sem hef ekki notað þennan topp nema bara um jólin. Maður á greinilega ekki að vera að spara sparifötin. Allavega ekki ef þau verða bara einnota fyrir vikið. Nei nei segir bara svona. Nú er ég samt eitthvað að skipta um skoðun á því í hverju ég á að fara. Allt í einu er mig farið að langa til að vera í pilsi. Mátaði því áðan nokkur pils sem ég á... og nei.. þau passa ekki á mig frekar en nokkuð annað sem ég á. Þannig að ef ég ætla að vera í pilsi verð ég að kaupa það. Og það fer nú ekki að verða mikill tími til stefnu. Það er eiginlega bara dagurinn í dag því að ég er að sjálfsögðu upptekin alla vikuna og hef því ekki tíma í búðaráp.
Ég er ekki heldur búin að ákveða hvernig ég á að hafa hárið á mér. Er að spá í að fara á eftir og skoða eitthvað hárskraut. Kannski ég fái þá einhverjar hugmyndir. Ég krossa allavega fingur og vona það besta.

Powered by Blogger