þriðjudagur, maí 30, 2006
Enn nóg að gera
Það er ennþá nóg að gera hjá minni. Var á fundi í gær.. þegar ég var búin að nudda. Hittumst þingfulltrúar nuddfélagsins og bárum saman bækur okkar...hehehe.. eða eitthvað svoleiðis. Þetta var nú bara svona aðallega til að taka púlsinn á liðinu sko. Bralli vildi endilega sýna sig og sjá okkur. Sem er náttúrulega bara gott. Ég verð að viðurkenna að ég er ekkert voðalega mikið að halda sambandi við þau sem eru með mér í nefnd sko. Og því mjög gott að hrista liðið smá saman fyrir þingið sjálft.
BIG þingið var svo áðan.. þegar ég var búin að nudda....hehehe. Þetta er þriðja árið sem ég fer á BIG þing. Og að sjálfsögðu fer ég aftur í haust.
Það er allt á fullu í vinnslu í kringum skráningarkerfið. Núna er boltinn hjá okkur. Og verið að leggja lokahönd á kerfið sjálft. Einnig verið að semja við tryggingafélag í sambandi við þá tryggingu sem við þurfum að hafa til að fá að skrá okkur í kerfið. Reyndar á líka að nefna fleiri tryggingar en þessa allra nauðsynlegustu. Svona svo að það verði kannski möguleiki fyrir okkur að fá þetta aðeins ódýrar ef margir tryggja sömu tryggingar á sama stað... alls ekki vitlaust. Og einnig þurfa að koma til smá lagabreytingar hjá Bandalaginu. Þetta er þó allt í góðum farvegi og farið að sjást að þetta verður ekki alveg endalaust. Þegar skráningarkerfið verður svo komið í gang gæti mögulega komið að því að virðisaukaskatturinn verði felldur niður. En það er sennilega ekki alveg strax sem það gerist... og því ennþá bara draumur.... sem gæti þó orðið að veruleika síðar meir.


Var svo að sjá fyrstu myndir frá laugardagskvöldinu. Þetta er nú ekkert svo slæmt enn sem komið er. Eða hefði kannski geta verið verra.. skulum við segja. Skilst samt að myndirnar verði ekkert skárri. Jónína, partýhaldari, er bara rétt að byrja að setja myndirnar inn. Ég held þó að ég hafi sloppið nokkuð vel sko. Man ekki til þess að það hafi verið teknar margar myndir af mér. En minnið er nú svoltið farið að gefa sig svo að ég þori ekki alveg að treysta því.
Nú er ég líka bara að bíða eftir því að hún Súlí mín komi suður til mín. Jájá... hún gefst ekkert upp þó að ég hafi ekki mikið sinnt henni síðast þegar hún kom. Held alveg að hún sé búin að fyrirgefa mér sko. Ekki það að hún var nú alveg upptekin líka sko... hina dagana sem ég var ekki jafn fráhrindandi.
Og þau skötuhjúin ætla að koma og kúra í rúminu hans Harðar. Alveg snilld að vera komin með rúm í aukaherbergið sko. Þá þarf ég ekki að lána dýnuna úr mínu rúmi. Verst að ég hafi rúmið bara í sumar. Kannski Hörður verði búinn að gleyma því í haust að hann eigi rúm og kaupi sér nýtt...tíhíhí.... jæja það má alltaf láta sig dreyma.
sunnudagur, maí 28, 2006
Lítið að gerast
Síðasta vika er búin að vera frekar viðburðasnauð. Hún er aðallega búin að vera svona: vinna, nudda, ræktin. Fór meira að segja í ræktina á fimmtudaginn (svona aukalega miðað við plön) þar sem það var frí í vinnunni. Nýtti þann tíma í brennslu, en annars er ég alltaf að lyfta.
Fór svo í útskriftarveislu í gær hjá henni Hörpu frænku minni. Og svo var Símadjamm í gærkvöldi. Var það bara svona þokkaleg skemmtun. Í svörtum fötum á Nasa...já já og að sjálfsögðu partý á undan.
Var komin á fætur fyrir hádegi í dag og mætt í ræktina. Og var svo bara bissí í allan dag. Var bara að koma heim. Ætlaði bara rétt að kíkja á einn stað en endaði bara í vinnu..hehehe. Sem var í góðu lagi þar sem það var ég sem bauð mig fram.
Á svo núna eftir að þrífa sameignina. Ótrúlegt hvað mér finnst ég alltaf vera með þessa blessuðu sameign. Þetta er eina skiptið sem mér finnst að það væri betra að búa í stærri blokk.. þ.e. með fleiri íbúðum í stigaganginum.
föstudagur, maí 19, 2006
Upptekin Gulla
Ég get nú varla sagt annað en að ég sé frekar upptekin þessa dagana. Ég er alltaf að nudda á fullu og svo eftir að ræktin bættist inn í dagskrána hjá mér eykst ekkert sá tími sem ég á lausan.
Ég ákvað t.d. að nudda ekki á afmælinu mínu. Fór því bara í ræktina eftir vinnu og fékk mánaðarkort. Þegar ég var búin að taka vel á því í ræktinni fór ég út að borða með henni Ingu minni. Hún var svo mikil elska að bjóða mér út að borða. Fórum á Vegamót. Mjög góður matur og fín þjónusta. Eftir matinn skutlaði ég Ingu heim og fór sjálf á videoleigu. Tók mér tvær myndir en hafði ekki tíma til að horfa á nema aðra þeirra. Það var nefnilega alltaf verið að trufla mig... sem var samt bara gaman því að það sýndi að fólk mundi eftir afmælinu mínu..hehe.
Ekkert merkilegt gerðist á miðvikudaginn en þar sem nuddþeginn minn afboðaði sig í gær hafði ég smá lausan tíma. Fór í ræktina og hitti einkaþjálfara. Einkaþjálfarinn kenndi mér á þau tæki sem hún vill að ég noti og útbjó svo æfingaprógram handa mér. Ég fór svo beint úr ræktinni í heimsókn til Birnu til að horfa á Eurovision. Missti reyndar af fyrsta hálftímanum. Það var gífurlegt stuð hjá Birnu. Mamma hennar og dóttir voru þarna, ásamt mér og Birnu og við vorum alveg að bráðna yfir kynninum... þá á ég að sjálfsögðu við kynninum sem var karlkyns.
Frá Birnu fór ég svo beint í heimsókn til Bryndísar Evu. Það er því ekki hægt að segja annað en að gærdagurinn hafi verið frekar þétt skipulagður.
Dagurinn í dag er samt búinn að vera nokkuð rólegur bara. Fór reyndar í ræktina strax eftir vinnu en síðan er ég bara búin að slaka á. Voða þægilegt svona inn á milli að eiga eitt og eitt kvöld svona í afslöppun.
Hey já og ekki má gleyma að við hittumst nokkrar sætar gellur, hérna hjá mér, á sunnudaginn síðasta og grilluðum. Mjög gott. Borðuðum á okkur gat. En kvöldið var samt æðislegt og ekki oft sem maður grillar svona í góðum félagsskap. Mér tókst reyndar að svíða nokkur hár af höndunum á mér... en þeirra er hvort eð er ekkert saknað svo að það var allt í lagi. Ég á ennþá nóg eftir af hárum á handleggjunum...hehe.
laugardagur, maí 13, 2006
Hvað er títt??
Síðasta vika er búin að vera frekar svona leiðinleg.
Mánudagurinn var nú ekki skemmtilegasti dagurinn minn í vinnunni. Varð mjög reið... verð ekki oft reið en þegar ég verð reið þá líka verð ég reið. Og ég varð reið. Reyndi samt að láta það ekki bitna á vinnunni og Sissa tókst svo að koma mér í betra skap eftir vinnu áður en ég fór að nudda.
Þriðjudagurinn var mjög viðburðarlítill... var reyndar mætt í ræktina kl. 6 um morguninn. Það reddaði sennilega því að ég var svona þolanleg í vinnunni.
Á miðvikudaginn var ég svo veik heima. Hausinn alveg að gera útaf við mig. Sá ekki neitt því að ég var með svo miklar sjóntruflanir. Lá því í rúminu fram yfir hádegi, með dregið fyrir og hausinn undir sæng.
Á fimmtudaginn fór ég svo út að borða með FÍS stjórnar- og trúnaðarráðs-fólki. Hitti þar konu sem var með pabba í skóla. Þegar ég sagði að ég væri frá Lyngholti þá spurði hún hvort að ég væri dóttir Steins. Ég gat náttúrulega ekki annað en játað því. Og þá spurði hún.. og systir Þuríðar. Ekki gat ég heldur neitað því. Og þá kom í ljós að hún er úr Kinninni. Held meira að segja að hún hafi sagst vera frá Ystafelli, er samt ekki alveg með það á hreinu (sátum ekki hlið við hlið og því heyrði ég ekki alveg allt sem hún sagði...sorry). En allavega... maturinn var alveg ljómandi góður. Fyrsti rétturinn var sítrónulegið kengúrukjöt með chillipipar. Annar rétturinn var risahörpuskel með rækju djúpsteiktri í einhverju kartöfludæmi. Þriðji rétturinn var lambakjöt í kjúklingamúss með kartöflu og grænmeti. Og að lokum fengum við kalda vanillusúpu með berjum og koníakskrapi.
Verð að viðurkenna að síðasti rétturinn var svona það sem mér fannst einna síst. Er ekki mikil berjamanneskja og finnst koníak ekki heldur gott. En súpan sjálf var mjög góð...hehe. Gaf Birnu berin úr súpunni..hehe... og hætti að borða súpuna þegar koníakskrapið var farið að bráðna saman við hana. Steini fékk nú reyndar rækjuna mína...hehe... óþarfi að vera að skilja hana eftir.
Eftir matinn fórum við svo á barinn og var þar borið fram kaffi og líkjör. Sat ég því bara og horfði á hina sötra...hehe...og spjallaði að sjálfsögðu líka við fólkið.
Ég var með þeim síðustu heim. Byrjaði á að skutla Birnu heim og var sjálf komin heim einhvern tíman á milli hálf tólf og tólf...held ég.
Gærdagurinn var svo nokkuð góður bara. Við Birna skruppum í ljós í hádeginu....enn að jafna okkur eftir ofát fimmtudagskvöldsins. Skelltum okkur svo í ríkið á eftir og keypti ég það sem átti að fara í bolluna í partýinu mínu, sem var í gærkvöldi. Ég ákvað nefnilega að halda snemmbúið afmælispartý. Það var bara nokkuð góð mæting og bollan sló rækilega í gegn. En hún var að sjálfsögðu blá í stíl við allt annað í íbúðinni.


Spurning hvað er mest blátt: bollan, bolurinn, tungan eða sleifin?
Tók ekkert voða margar myndir þar sem ég var svoltið mikið á einkaspjöllum svoltið afsíðis. En er að reyna að setja þær sem ég tók inn í myndaalbúmið mitt.
Eftir partýið skiptist fólkið eitthvað upp. Sumir fóru niður í bæ og einhverjir ætluðu á Players. Við Sissi röltum á Players en vorum ekki komin fyrr en klukkan þrjú. Þá fórum við frítt inn og sáum enga sem við þekktum. Dönsuðum því bara við þessi þrjú lög sem voru eftir og löbbuðum svo heim aftur. Þannig að þetta var bara ágætis göngutúr.
Fannst reyndar ekkert voða gaman að koma fram í morgun og sjá hvað gólfið er klístrað. Neyðist til að skúra. Það hefur meira að segja örugglega hellst úr fullu glasi inni í nuddherbergi. En það er svosem ekki eins og ég sé að fara að halda partý aftur í bráð og ætti því að höndla það að skúra núna...hehehe. Vona bara að partýgestir hafi skemmt sér vel. Og þakka ég kærlega fyrir gjafirnar sem ég fékk.
sunnudagur, maí 07, 2006
Nautið (20.apríl - 20.maí) - Fjármál

Hér kemur fram að þú heldur huga þínum opnum og fordæmir ekki gjörðir annarra sem er svo sannarlega jákvæður eiginleiki í fari nautsins en einnig er minnst á að þú ættir að gera þér grein fyrir yfirburðasviði þínu svokölluðu ef þú kýst að ná ásættanlegum árangri þegar fjármálin eru annars vegar.
Hugaðu betur að því hvað þú gerir sérstaklega þegar þú stendur frammi fyrir ákvörðunum því þú átt það til að vera tvístígandi stundum og það tefur fyrir þér.
Þú ættir einnig að gera þér grein fyrir lykilhæfileikum þínum sem eru áberandi í fari þínu. Stjarna þín sýnir velmegun og öryggi en þú verður að vilja það sannarlega.
Leiðtogahlutverkið er áberandi þegar stjarna nautsins er tekin fyrir og greinilegt er að þú hefur sjálf/ur byggt þig upp með strangri vinnu og eljusemi.
Hér kemur að sama skapi fram að þú bæði vilt og óttast náin kynni og óttast þau án efa vegna hættunnar á að afhjúpa þig og missa jafnvel stjórnina á eigin tilfinningum en þar ættir þú að snúa við blaðinu og treysta eigin tilfinningum og snúa vörn í sókn með því að treysta á innsæi þitt og treysta náunganum því auður bíður þín ef þú hættir að flýja af hólmi þegar tækifærin birtast.
Þú ert fædd/ur leiðtogi og ef þú sættir þig við þá staðreynd verður veröldin leikvöllur þinn svo sannarlega. Einnig ert þú minnt/ur á að hika ekki við að starfa í þágu fólks af sanngirni og auðmýkt. Hógværð þín getur reynst þér vel þegar fram í sækir og er án efa heillandi eiginleiki í fari þínu.
Innra auga þitt sér og skilur að náunginn skiptir ekki ávallt mestu máli þegar stærra samhengi er skoðað. Hæfileiki þinn til að horfa til framtíðar ákvarðar án efa að mestu velgengni þína.
http://www.spamadur.is
fimmtudagur, maí 04, 2006
Bissí bissí
Það virðist alltaf vera nóg að gera hjá mér núna.
Átti góðan frí-dag á mánudaginn. Stóð í smá þvotta-stússi og öðrum heimilisstörfum en ekkert stórvægilegt samt. Kíkti svo enn einu sinni á verkstæðið. Var þar reyndar í rúma fjóra tíma held ég..hmmm.. tíminn líður alltaf svo hratt. Fór svo bara frekar snemma í bólið og ætlaði að vera fersk eftir langa helgi. En að sjálfsögðu gekk það ekki upp. Vaknaði samt í svona ljómandi góðu skapi, þó syfjuð væri, á þriðjudagsmorgun, því að veðrið var svo gott. Mætti meira að segja í pilsi og bandaskóm í vinnuna. Veðrið var mér samt ekki alveg hliðhollt þar sem það kom rigning akkúrat þegar ég var í mat. Sem þýðir að ég labbaði í rigningu yfir í mötuneytið og aftur til baka. Stytti þó upp aftur og ég var bjartsýn á að hafa gott veður á meðan ég væri að útrétta eftir vinnu. En nei, það fór nú ekki svo. Kom alveg úrhelli á meðan ég var að útrétta. Og að sjálfsögðu voru engin bílastæði nálægt búðunum sem ég þurfti að skreppa í. En enginn er verri þó hann vökni... og ég fer ekki í vont skap þó að ég sé með smá blautar tær.
Svo var það bara ræktin á þriðjudagskvöldið eftir að nuddþeginn minn var búinn að láta mig vita að hann kæmist ekki...þ.e. eftir að ég var búin að athuga með hann þegar hann mætti ekki.
Var svo tvíbókuð í nudd í gær og tvíbókuð í dag. Og því hafa þessir dagar bara verið vinna og nudd, vinna og nudd. Ætla svo að fara í ræktina á morgun strax eftir vinnu. Á stefnumót við flotta gaurinn sem ég hitti á föstudaginn síðasta. Ég er bara strax farin að hlakka til....hehehe. Fínt að hafa eitthvað svona aðlaðandi til að draga sig í ræktina. Ekki það að mér finnst þetta bara mjög gaman.... ennþá allavega...hehe. Og ég held að ég hafi bara mjög gott af þessu... efaðist reyndar aldrei um það....hafði frekar áhyggjur af því að þetta væri of heilsusamlegt fyrir mig.
Fer ekki norður um helgina. Langaði samt ógurlega. En það er nú samt svo stutt síðan að ég fór síðast og ég tími ekki að fara strax aftur. Ætla frekar að eyða peningnum í afmælisgjöf handa mér...hehe. Sendi því bara Sissa norður með tvær fermingargjafir og kveðjur til fermingarkrúttanna minna, sem fermdust hér í höfðuborginni um daginn. Veislan er nefnilega núna um helgina sko....þau hafa örugglega haldið að þau myndu ekki fá neinar fermingargjafir frá mér...tíhíhí. En að sjálfsögðu gleymi ég ekki svoleiðis.
Jæja... best að fara að ganga frá eftir nuddið. Og leggjast svo kannski bara í bað....ummmmm.
mánudagur, maí 01, 2006
Eitthvað að gerast
Ég er búin að vera eitthvað andlaus, ja svona blogg andlaus allavega, síðustu daga. Fimmtudagurinn var bara svona venjulegur dagur. Var reyndar með tvíbókað í nudd. Og skrapp svo í heimsókn til Bryndísar Evu. Þ.e. ég þurfti að skreppa út í búð og kom við hjá henni í bakaleiðinni..hehe. Og var þar til rúmlega ellefu...hmmm...hefði alveg getað verið lengur sko.. en við vorum orðnar frekar þreyttar og þurftum að fara að sofa. En við vorum samt langt frá því að vera orðnar uppiskroppa með efni til að tala um..hehe.
Á föstudaginn fór ég svo í langþráða klippingu. Er alveg mjög sátt. Sléttaði reyndar ekki á mér hárið í dag. Þannig að það sést ekki alveg í augnablikinu hvað klippingin er flott.
Fór svo í Hreyfingu strax eftir vinnu. Já undur og stórmerki gerast enn. Ég hélt að þetta myndi ekki gerast sko. En það var svo flottur gaur sem tók á móti mér að það er alveg þess virði að fara aftur sko....tíhí. Nú hef ég svo ákveðið að ég ætla að reyna að fara að stunda ræktina eitthvað og fór því og keypti mér íþróttabuxur og íþróttabrjóstahaldara. Átti nefnilega ekkert sem passaði á mig. Sissi hjálpaði mér að velja. Hann þekkir svo vel minn fatasmekk að ég get alveg treyst honum til að hjálpa mér.
Þegar ég kom heim úr Kringlunni þá var kominn tími til að huga að djamminu. Við fórum saman ég, Inga og Birna á Culiacan og fengum okkur burritos. Dúi og Gutti (fleiri vinnufélagar) komu akkúrat á sama tíma og borðuðum við því öll saman. Fórum við stelpurnar svo heim til Ingu (þar sem partýið var haldið) og gerðum okkur sætar fyrir djammið. Við erum að sjálfsögðu mjög sætar sko.. en þetta var svona til að gera okkur ennþá sætari.

Partýið heppnaðist mjög vel, eins og sést á myndinni hér fyrir ofan, og var ekki farið á Players fyrr en um hálf þrjú. Skemmtum okkur samt konunglega þennan stutta tíma sem við vorum þar. Sissi kom svo og náði í mig rétt fyrir fjögur. Við fórum þá og keyptum okkur að borða og borðuðum svo á verkstæðinu. Sissi var nefnilega að breyta bíl fyrir Tómstundahúss strákana. Klukkan var svo orðin sex, í morgun, þegar Sissi skutlaði mér heim.
Hressa gellan ég var svo mætt í ræktina uppúr kl. eitt í dag, með Birnu. Púluðum vel. En vorum reyndar alveg eins og klessur hjá Ingu, þegar við fórum þangað til að ná í dótið okkar. En það var bara af því að við vorum ekki búnar að sofa voða mikið..hehe.
Við Bryndís Eva skelltum okkur svo í ljós kl. 21. Voða notalegt. Förum sennilega tvisvar í viðbót núna í þessari törn og stefnum svo á að fara að fara út að labba.
Og af því að ég er svo mikið í hollustunni, þá var kvöldsnakkið mitt ferskir ávextir og jurtarjómi. Bauð Hjalta og Sissa með mér. Var meira að segja svo góð að ég færði þeim veitingarnar á verkstæðið. Það er nefnilega svo miklu skemmtilegra að borða svona gott með einhverjum, heldur en að borða það einn.
Ég stefni svo bara á letidag á morgun. Ja það er allavega ekkert planað fyrir morgundaginn ennþá. Þetta fer því allt eftir því hversu mikill stuðboltið ég verð þegar ég vakna. Þarf reyndar kannski smá að laga til og sinna þessum föstu heimilisstörfum. En það tekur nú svosem ekki mikinn tíma þegar maður kemur sér í það.
