mánudagur, júlí 31, 2006
 
Loksins
Nú er ég loksins aftur komin í sumarfrí. Síðasti vinnudagurinn, fyrir sumarfrí, var á föstudaginn. Reyndar var föstudagurinn aðeins frábrugðinn venjulegum vinnudögum hjá mér. Var nefnilega bara í því að nudda vinnufélagana... þ.e. þá sem eru í viðskiptaverinu. Það var bara mjög fínt og ég held að flestir hafi verið mjög ánægðir.
Ég hélt svo upp á það á föstudagskvöldið að ég var komin í sumarfrí. Fór á Jet black Joe á Players. Það var hörkustuð. Mér fannst hljómsveitin að vísu ekki standa sig neitt svakalega vel. Byrjaði ekki að spila fyrr en klukkan að verða hálf tvö. Spilaði þá bara í 40 mín og tóku þá 40 mín pásu. Páll var svo fullur að hann svona varla gat sungið. En við skemmtum okkur alveg ágætlega.
Ég reyndar var skilin eftir með fólki sem ég þekkti ekki neitt... var bara að hitta í fyrsta skipti. En við náðum samt að skemmta okkur saman. Og allir voru ánægðir.
Á laugardaginn skrapp ég smá í Kringluna og keypti mér enn einn toppinn... ég fer nú varla að geta kvartað mikið um að eiga ekkert að vera í... að ofan allavega. Fór svo í afmælisveislu til hennar Sigrúnar minnar. Hún á nefnilega afmæli á morgun (eða í dag.. miðað við dagsetninguna á þessu bloggi... til hamingju með afmælið Sigrún mín) og ákvað að halda upp á það í gær (fyrradag). Held ég hafi verið þar frá hálf fimm til átta. Og ég vona að okkur takist núna loksins að standa við það að fara að verða duglegri að gera eitthvað saman.
Í dag fór ég svo í ræktina. Tók rækilega á því í rétt tæpa tvo tíma. Reyndi svo að gera mig sæta og fór síðan í heimsókn til hennar Ingu. Inga var að baka og rétti ég henni smá hjálparhönd. Þ.e. hún sá um baksturinn en ég hjálpaði henni við að ganga frá og skreyta smá....bakkelsið var nefnilega afmælisgjöf.
Núna er ég svo búin að horfa á tvær dvd myndir en er ekki í neinu stuði til að fara að sofa. Það er rosa gott veður og mig langar þvílíkt mikið að fara út að labba... mér finnst bara eitthvað hálf hallærislegt að fara ein út að labba um miðnætti. En kannski er ég bara svona skrítin.
fimmtudagur, júlí 27, 2006
 
Gleymdist
Ég verð nú eiginlega að skella hér inn smá vísu sem varð til í útilegunni um daginn. Ég var nú eiginlega bara búin að gleyma henni... ja ef vísu skyldi kalla.
Við vorum bara eitthvað að spauga og vildi Hlini endilega að ég kæmi nú með eina vísu.. þar sem ég ætti það nú ekki langt að sækja að geta það. Ég var nú þó að reyna að koma honum í skilning um það að ég væri nú ekki mikið að því. En þegar Hlini fór svo í lækinn að ná sér í bjór, sem var þar í kælingu, skellti ég fram smá bulli... og Súlí kom með endirinn (vildi hún þó meina að hún væri ekki lagin við að ríma). Vísan var eitthvað á þessa leið:

Þar fór maður frækinn,
sem fékk þann kækinn,
að sækja í lækinn,
helvítis helling af bjór.


Og þar hafið þið það.
 
Sumarfrí á næsta leyti
Nú er ég farin að láta mig hlakka til sumarfrísins míns. Það er að vísu svosem ekkert planað. Verð bara hér í bænum og svona. En það er þó hvíldin sem ég hlakka mest til. Ekki það að ég sé búin að vera að gera eitthvað miki... nema bara vinna. Þessi vika er nú t.d. varla búin að vera neitt annað en vinna... eða...
Á sunnudaginn fór ég og þvoði bílinn.. eins og ég var búin að tala um. Byrjaði á að kaupa mér tjöruhreinsi með sápu... Sissi var búinn að láta mig fá brúsa sem ég átti að kaupa mér einsog. Úðaði vel á bílinn... og skrúbbaði hann svo og skrúbbaði. Hætti ekki að þvo bílinn fyrr en ég var orðin rennandi blaut...upp á miðja kálfa og aðeins á lærunum líka.
Vaknaði svo bara snemma á mánudagsmorgun og fór í ræktina. Þurfti að bæta það upp að ég fór ekki á sunnudaginn. Og ég man ekki til þess að ég hafi gert neitt eftir vinnu... þ.e. ég nuddaði til kl. 21 og svo held ég að ég hafi bara sest fyrir framan sjónvarpið.
Á þriðjudagskvöldið fór ég í ljós.... kjaftaði svo við Sissa alveg heillengi fyrir utan sólbaðsstofuna. Áður en við fórum í sitthvorn bílinn brunuðu hvort á sitt heimili (ég allavega fór heim til mín get kannski ekki alveg fullyrt með Sissa .. minnir samt að hann hafi ætlað í búð áður en hann færi heim). Horfði svo að sjálfsögðu á Rock star Supernova á milli eitt og tvo um nóttina.
Sissi kom svo í gærkvöldi og kíkti á dyrasímann minn. Dyrasíminn er nefnilega eitthvað búinn að vera að stríða mér. Ég heyri ekki í fólkinu sem er niðri en það heyrir samt í mér. Þannig að ég hef þurft að hleypa fólki inn án þess að vita hver er að koma. Sem er mjög leiðinlegt ef um eitthvað sölufólk er að ræða. Honum tókst þó ekki að laga símann... veit þó svona um það bil hvað er að. Ætlar samt að koma aftur í kvöld og mæla með straummæli til að vera viss. Svo var það að sjálfsögðu aftur Rock star í gærkvöldi og ræktin í morgun.
Á morgun er svo síðasti dagurinn fyrir sumarfrí. Mér finnst að það eigi að banna svona síðasti dagurinn fyrir sumarfrí vinnudaga. Það er nefnileg ekki fræðilegur að maður geti einbeitt sér. Því maður er kominn í sumarfrí í huganum. Ég er ekki alveg búin að ákveða hvort að ég fer fyrir eða eftir vinnu í ræktina. Hallast þó frekar að því að fara eftir vinnu. Þá get ég tekið meira á því... því að þá er ég ekkert tímabundin. Gæti jafnvel tekið bæði brennslu og lyft. ...hmmmm... það er nú bara nokkuð góð hugmynd hjá mér.
sunnudagur, júlí 23, 2006
 
Útilega


Haldið þið að stúlkan hafi ekki bara skellt sé í útilegu um helgina. Jújú... þetta var framhald af Danmerkurferðinni, nema í þetta skiptið tókum við dætur Heiðrúnar með okkur. Og jú, hittum fleira skemmtilegt fólk sem var búið að vera í útilegu í nokkra daga.
Tjölduðum hjá Mótel Venus í Borgarfirði. Höfðum þar aðgang að upphituðu klósetti, sturtu og heitum potti. Þannig séð mjög fín aðstaða fyrir tjaldútilegu. Skrítið samt að það sé ekki gert meira til að gera staðinn snyrtilegan.
Ég var búin að segja að við stelpurnar myndum redda okkur þegar að því kæmi að tjalda tjaldvagninum... og að sjálfsögðu gerðum við það...hehehe... við hóuðum bara í næstu karlmenn...hehehehehehe.

Á laugardaginn tókum við svo góðan rúnt á Snæfellsnesinu. Komum við á Hellnum. Stelpurnar trúðu mér ekki þegar ég sagði að það væri svaka flott þarna. Voru allavega farnar að draga það í efa svona þegar við vorum á leiðinni þangað. En svo þegar við vorum komnar á Hellnar þá samþykktu þær að það væri fallegt þarna og held að þær hafi ekki séð eftir því að taka mig trúanlega.

Eftir Hellnar fórum við upp í Sönghellinn og keyrðum svo yfir heiðina framhjá Snæfellsjökli. Mættum haug af útlendingum þarna á labbinu og þeir vinkuðu okkur þvílíkt. Held að þeim hafi kannski fundist við svona skrítnar. Fjórar kellur, með tvö börn, saman á jeppa að þvælast yfir óbyggðirnar. Það er nú kannski ekki hvar sem er sem svoleiðis sést.
Tókum góðan hring á Snæfellsnesinu og fórum svo aftur í Borgarnes. Aggi kom og náði í Aldísi og Söndru milli hálf sjö og sjö á laugardagskvöldinu. Það voru því bara við Súlí, Heiðrún og Sigrún sem grilluðum okkur ljúffenga máltíð á laugardagskvöldinu. Lágum smá stund afvelta vegna seddu en héldum svo aftur af stað á rúntinn. Í þetta skiptið var ferðinni heitið inn dalinn. Hugmyndin var fyrst að kíkja á Reykholt, sem við og gerðum. Skoðuðum okkur svoltið um þar (myndin af mér, efst, er einmitt tekin þar) en héldum svo áfram inn dalinn. Vorum svoltið í því að skoða fossa. T.d. Barnafoss.

Enduðum svo inni í Húsafelli þar sem við villtumst næstum því sökum þrengsla og fjölda fólks sem þar var saman komið.
Morguninn í morgun fór svo aðallega í örlitla leti og frágang. Lögðum snemma af stað heim þar sem allar nema ég, eiga eftir að koma sér alla leið heim í sveit. Ég var því komin heim fyrir þrjú. Búin að tæma úr bílnum og er jafnvel að velta því fyrir mér að fara að þvo bílinn. Það er nefnilega eins og það sér "örlítið" ryk á bílnum mínum eftir ferðina....hehehe.
Ég er þegar búin að skella inn slatta af myndum. Þær er að finna hér.
miðvikudagur, júlí 19, 2006
 
Styttist
Jæja nú er örlítið farið að styttast í seinni hlutann af sumarfríinu mínu. Það er semsagt orðið styttra í fríið en fríið sjálft er...hehe.
Ég verð að viðurkenna að ég er farin að bíða svoltið eftir fríinu mínu. Er búin að vera eitthvað svo þreytt undanfarið. Hef samt alveg staðið mig í að fara í ræktina og svona. Er bara að reyna að gera of mikið á of stuttum tíma held ég. Þannig að mér veitir ekki af hvíldinni.
Ég er að vísu búin að lofa mér líka í að hjálpa til í brúðkaupi, síðasta laugardaginn í fríinu mínu. En mér finnst bara æði að ég skuli hafa verið beðin. Og fá að taka þátt í svona stórum degi hjá viðkomandi. Það er hún Mæsímó mín sem er að fara að gifta sig.
Svo var hann Giuseppe minn að segja mér að hann væri sennileg að koma til Íslands í ágúst.. í nokkra daga. Ég er reyndar ekki komin með nákvæma dagsetningu á það, þar sem ég var ekki við tölvuna þegar hann var að reyna að tala við mig og hann var orðinn offline þegar ég sá þetta. Þannig að kannski verð ég eitthvað að guida hann og vin hans. Vildi nú bara helst að ég gæti laumað mér með þeim til baka til Ítalíu. En maður má nú alltaf láta sig dreyma.
Vona reyndar að veðrið haldist eitthvað eins og það var í dag. Það var alveg frábært. Naut þess að vera aðeins úti í hádeginu. Og fór svo í sund milli hálfsjö og rúmlega hálfátta í kvöld. Hefði verið lengur hefði ég ekki þurft að mæta á stigagangsfund kl. átta. Það er allavega ekki hægt að segja að ég sé óhrein eftir daginn í dag. Fór í ræktina í morgun og að sjálfsögðu í sturtu á eftir og lá svo í bleyti í sundi í rúman klukkutíma.
Verð nú samt að viðurkenna að það hefði nú alveg getað verið auðveldara að vakna í morgun. Horfði nefnilega á Rock star í nótt... milli eitt og tvö. Og vaknaði svo kl. 5:20 til að fara í ræktina. Snúsaði reyndar vekjaraklukkuna til að verða hálf sex.. þannig að ég mátti ekki vera seinni í ræktina í morgun. Sem þýddi náttúrulega að ég hefði ekki heldur mátt vera seinni til að ná að mæta á réttum tíma í vinnuna. En þetta tókst allt hjá mér. Og er ekkert búin að leggja mig ennþá. Ég ætla þó ekki að fara í ræktina í fyrramálið svo að þetta er í lagi. Fæ að sofa til að verða sjö í fyrramáli...jei jei. Ekki það að ég geti skammað neinn fyrir að ég sofi svona lítið...þ.e. nema sjálfa mig. Það er ég sem set mér að mæta í ræktina svona snemma. Og þegar ég virkilega ætla að gera eitthvað þá líka geri ég allt sem ég get til að gera það.
Púff hvað þetta er orðin mikil þvæla hjá mér...hehehe... best að fara að undibúa mig undir að horfa á Rock Star. Magni stóð sig vel í gær... svo hver veit nema hljómsveitin velji hann til að syngja aftur í kvöld. Ég er bara orðin nokkuð spennt yfir þessum þáttum. Sem sýnir sig í því að ég minnka svefninn til að horfa...hehehe.
Góða skemmtun.
sunnudagur, júlí 16, 2006
 
Nýjir skór
Við brummi minn erum bæði búin að fá nýja skó. Legacyinn er semsagt loksins kominn á sumardekkinn. Hann reyndar fékk sumardekkin sem voru undir Imprezunni sl sumar. En engu að síður eru þetta ný dekk fyrir hann.
Sissi var svo elskulegur að kíkja á bílinn fyrir mig á föstudagskvöldið. Hann lagaði framljósið... svona í bili allavega... þarf að kaupa nýtt tengi samt. Og fór aðeins yfir bílinn. Þannig að núna veit hann hvað þarf að kaupa til að bíllinn minn verði alveg í lagi. Hann sagði samt að ég ætti alveg að fá skoðun á hann eins og hann er núna.
Ég hinsvegar keypti mér nýja skó í dag... þ.e. í gær miðað við dagssetninguna. Fór í Kringluna með Jóa. Keypti samt bara það sem mig vantaði. Mig vantaði nefnilega skó til að vera í dags daglega í vinnunni og svona. Hef bara verið í fóðruðum skóm og það hentar kannski ekki alveg, svona yfir sumartímann.
Það passaði svo alveg að ég var rétt komin heim, eftir að hafa verið með Jóa í Kringlunni, þegar Sissi hringdi. Og þá fór ég með honum í Smáralindina.
Þetta var bara mjög skemmtilegt búðaráp. Venjulega finnst mér ekkert gaman að fara í búðir. En þetta fannst mér gaman og það jafnvel þó að ég færi bæði í Kringluna og Smáralindina sama dag...hehe. Ég var líka alveg komin í að máta hatta og sólgleraugu...hehehe. Ég hef eitthvað svona "thing" fyrir höttum og sólgleraugum. Er alveg farin að sjá það að ég verði að fá mér linsur svo að ég geti verið með sólgleraugu.

Hvað segið þið... hvernig tek ég mig svo út með sólgleraugu??
miðvikudagur, júlí 05, 2006
 
Of oft???
Var að velta fyrir mér hvenær maður væri farinn að fara of oft í sturtu. Þá á ég við svona meira til að hlífa húð og hári.
Einu sinni ákvað ég að fara í mesta lagi í sturtu annan hvern dag. Auðvitað koma alltaf undantekningar á svoleiðis en mér hafði að mestu tekist að halda þetta. Nema núna er ég svo kolfallin á þessari ákvörðun minni.
Meðan ég var úti fór ég í sturtu á hverjum einasta degi. Mér fannst það að sjálfsögðu réttlætanleg þar sem það var eiginlega ekki hjá því komist sökum hita. En nú hef ég haldið þessu áfram síðan ég kom heim. Ég fór nefnilega í sturtu strax á laugardagsmorgninum eftir að við komum heim. Á sunnudeginum fór ég í ræktina. Og ekki getur maður nú sleppt því að fara í sturtu eftir að hafa verið í ræktinni. Á mánudagsmorgun fór ég svo aftur í ræktina. Í gærkvöldi skrapp ég í sund og núna var ég að koma heim úr ræktinni.
Ég get heldur ekki sleppt því að þvo á mér hárið þegar ég fer í sturtu. Ef ég sleppi því lítur hárið á mér út fyrir að hafa ekki verið þvegið í viku. Og það finnst mér nú þokkalega ógeðslegt. Þannig að nú er svo komið að það fara að nálgast tvær vikur sem ég hef farið í sturtu á hverjum einasta degi.
Nú fer þetta örugglega að verða þannig að ég get ekki sleppt því að fara í sturtu einn einasta dag því að hárið á mér mun þá líta út fyrir að vera óhreint...púfff... æi veit ekki.... en mér finnst þetta þó ágætis pæling hjá mér....hehehe.
laugardagur, júlí 01, 2006
 
England heimsótt


Var að koma heim úr vikuferð til Englands. Samferðafélagar mínir voru pabbi, mamma og Þura. Tilgangur ferðarinnar var að heimsækja Freyju og Snorra.
Flugum út 23. júní og lentum í Manchester. Þar tóku þau Freyja og Snorri á móti okkur og vísuðu okkur leiðina til Leeds. Þegar þangað var komið var svona næstum því haldið beint í bólið. Að sjálfsögðu kjaftað svoltið þar sem við höfum ekki hitt Freyju og Snorra síðan í ágúst í fyrra.
Laugardagurinn var svo tekinn snemma og haldið til London kl. 7:40. Fórum í útsýnisferð í tveggja hæða "bus" til að geta séð sem mest á sem minnstum tíma. Veðrið lék við okkur og voru flestir orðnir sólbrunnir þegar útsýnisferðinni var lokið. Þá tók við labb til að skoða meira. Sáum t.d. varðaskipti við höllina og fleira skemmtilegt. Það voru svo þreyttir ferðalingar sem komu til Leeds seint á laugardagskvöld.
Sunnudagurinn var Leeds dagur. Flýttum okkur ekki eins mikið á fætur um morguninn en fórum þó ekkert sérstaklega seint á fætur heldur. Fórum aðeins í búðir og röltum svo um flotta garða í Roundhay (veit ekki alveg hvernig það er skrifað...hehe).
Á mánudeginum var byrjuð ný vinnuvika hjá Freyju og Snorri þurfti að læra. Við vorum því bara fjögur (ég, pabbi, mamma og Þura) sem fórum til York. Mánudagurinn var eiginlega kaldasti dagurinn... kannski ekki beint kalt, en kalt miðað við dagana á undan og dagana á eftir. Það var brot úr deginum sem ég fór í flíspeysuna mína utan yfir Hensonpeysuna mína. Flesta hina dagana var maður bara á hlýrabol og einstaka sinnum fór Hensonpeysan utan yfir þegar fór að kvölda.
Í York löbbuðum við svona um helsta svæðið. Skoðuðum einn garð, með rústum í. Eina stóra kirkju og sáum vel yfir svæðið þegar við löbbuðum eftir veggnum sem liggur í hring utan um aðalsvæðið.

Ég var með bakpokann minn mest alla ferðina og verð að viðurkenna að stundum var hann farinn að síga svoltið í. Það var nefnilega ýmislegt sem var geymt í þessum bakpoka.
Þriðjudagurinn var búðadagur. Eyddum deginum í búðum í Leeds. Náðum að eyða smá og "spotta" út búðir sem við vildum skoða betur. Freyja sýndi okkur svo háskólasvæðið um kvöldið. Þetta er svaka stórt svæði og hefðum við getað verið miklu lengur að skoða ef við hefðum verið fyrr á ferðinni og ekki búið að loka hluta af byggingunum (fyrir nóttina).
Á miðvikudagsmorgun héldum við svo til Manchester. Freyja reyndar þurfti að vinna og Snorri fór aftur til Leeds á undan okkur þar sem hann þurfti að hitta kennarann sinn. Í Manchester fórum við í Trafford center (gæti verið skrifað öðruvísi). Þetta er svaka flott "mall" og myndi það taka meira en einn dag ef maður ætlaði að skoða í allar búðirnar þar. Fórum svo á búðasvæðið og röltum þar um og aðeins í kring. Það hefði verið gaman að hafa meiri tíma í Manchester til að geta skoða meira en bara þetta litla svæði. En tíminn flaug frá okkur og við vildum ekki vera mjög seint á ferðinni til baka til að geta eytt meiri tíma með Freyjunni okkar.
Við vorum búin að ætla okkur að fara til Edinborgar en vorum orðin þreytt og sáum ekki fram á að hafa orku í fleiri svona dagsferðalög til annarra bæja. Lestarferð til Edinborgar tekur rúma þrjá klukkutíma og hefðu því rúmlega 6 klst farið bara í lestarferðina fram og til baka. Þá er nú ekki mikill tími eftir til að skoða sig um á staðnum.
Á fimmtudagsmorgun fórum við að þvo þvottinn okkar á þvottahúsi. Þetta var svona eins og í myndunum...hehehe...fórum með tvo bakpoka og eina ferðatösku fulla af óhreinum þvotti. Settum í nokkrar þvottavélar (röltum reyndar um hverfið á meðan við biðum eftir að þvottavélarnar kláruðu að þvo) og svo í þurrkara á eftir. Ég myndi nú ekki vilja gera þetta alltaf en það var mjög gaman að prófa þetta svona einu sinni. En þetta gera Freyja og Snorri í hverri viku þar sem þau hafa ekki þvottavél.
Freyja var svo í fríi eftir hádegi á fimmtudag og fór því með okkur á þvæling um Leeds. Fórum reyndar fyrst í búðir og keyptum það sem við vorum búin að ákveða að kaupa og svo í "Tropical" garð...eða ekki garð...safn frekar...þar sem þetta var allt innanhúss..hehe. Löbbuðum svo aðeins um hverfið á eftir... ætluðum að labba heim en fórum smá krók og enduðum á að hringja á taxa. Vissum samt alveg hvar við vorum en það var klukkutíma bið í næsta strætó sem færi í "okkar" hverfi og frekar langt fyrir sára fætur að labba heim.
Föstudagur var svo heimferðardagur. Þurftum reyndar ekki að leggja af stað út á flugvöll fyrr en svona um kl. 17. Morguninn fór samt í að pakka niður og var það undir hádegi sem Freyja og Snorri fóru með okkur í enskan morgunverð. Fórum svo niður í bæ þar sem við röltum aðeins um, skoðuðum blómagarð og fórum á kaffihús. Það náðist meira að segja systramynd..hehe.

Svo var bara komið að "home sweet home". Smá stress reyndar þegar lestunum út á Manchester flugvöll var frestað vegna rafmagnsbilunar í York. En það reddaðist allt saman og við náðum á réttum tíma á flugvöllinn. Það var reyndar káfað á mér á flugvellinum ... svona "random tékk" ... hehe. Er samt eiginlega viss um að ég hafi verið tekin vegna þess að ég er með tattoo. En veskið hennar mömmu var samt tekið í nákvæma skoðun. Allt var þó, að sjálfsögðu, í fínu lagi og við fengum að halda áfram.
Mikið var nú gott að komast í mitt eigið ból í nótt, og mína sturtu í morgun. Pabbi, mamma og Þura brunuðu svo norður í dag og er ég því aftur orðin ein í kotinu. Og tekur vanalega rútínan við á morgun. Það er því ræktin í fyrramálið og vinna á mánudaginn. Hefði nú ekki haft neitt á móti því að vera lengur í fríi. En tek seinni hlutann af sumarfríinu mínu síðar svo að ég get látið mig hlakka til þess.
Það voru "örfáar" myndir teknar í ferðinni og er ég þegar byrjuð að tína einhverjar inn á myndasíðuna mína. Endilega kíkið.

Powered by Blogger