fimmtudagur, ágúst 31, 2006
 
Jæja


Já já svona er þetta.... ekkert blogg hjá minni bara í meira en viku. Er búin að vera eitthvað svo svakalega upptekin...samt eiginlega við að gera ekki neitt...hehehe.
Hmmm hvar á ég að byrja. Já, krúttin mín að norðan komu til mín á föstudag fyrir menningarnótt. Að sjálfsögðu var þá farið í einhverjar búðir á laugardeginum. Grilluðum svo þessa líka ljómandi máltíð um kvöldið. Bæði kjöt og silungur... það var svoooo gott að fá grillaðan silung. Veit bara ekki hvað það er orðið langt síðan ég fékk grillaðan silung þar á undan.
Við Binna fórum svo á djammið um nóttina. Byrjuðum bara rólega í heimahúsi en röltum svo í bæinn og enduðum á Nasa... Sálin... ekki slæmt það. Held að klukkan hafi verið rétt um 5 þegar ég fékk leigubíl og kom mér heim. Finnst þetta nú bara nokkuð góð ending miðað við það að ég fór í ræktina kl. 9 um morguninn. Sleppti því svo að fara í ræktina á sunnudeginum. En fór svo á hverjum degi frá mánudegi til fimmtudags. Fyrri tvo dagna fór ég að morgni... Sissi beilaði á mánudagsmorgninum en kom svo á þriðjudagsmorgun..hehehe... þannig að hann er búinn að sýna að hann getur vaknað þetta snemma til að mæta.. og nú fær hann ekkert að hætta því...tíhíhí. Seinni tvo dagana tókum við svo kvöldið á þetta..hehehe. Mættum kl 20 og vorum næstum því fram að lokun..hehehe.
Ég ætlað svo að fara líka á föstudag en hugsaði svo með mér að það væri nú ekki gáfulegt þar sem ég var að fara í flúðasiglingu á laugardaginn. Varð nú að eiga smá orku eftir. Tók því föstudaginn bara rólega. Og var því rosa fersk og hress á laugardagsmorgun. Mættum á Suðurlandsbrautina kl. 13... haldið af stað kl. 13:30. Tæplega 100 manns í hópnum og farið á tveimur rútum. Það var þetta líka þvílíka stuðið í siglingunni. Og svo var grill á eftir. Klukkan var því rétt að verða 21 þegar lagt var af stað í bæinn aftur. 90 mín ferð í bæinn aftur sem þýddi að ég var ekki komin heim fyrr en um kl. 22:30 og átti þá eftir að hoppa í sturtu og gera mig sæta fyrir 30 afmælispartýið hennar Ernu minnar. Mætti þangað og skemmti mér konunglega. Dansaði og dansaði og Erna sagði að loksins væri einhver kominn sem vildi dansa..hehe... já já það er ég. Fórum svo niður í bæ. Byrjuðum á Dubliners við vorum svo bara tvær sem komumst lengra en það... ég og Heiða vinkona Ernu. Við enduðum þá bara tvær að djamma...hehehe.. svaka stuð hjá okkur. Ég fer nú bara að venjast því að vera að djamma með vinkonum vinkvenna minna...hehehehe.. semsagt fólki sem ég þekki ekki neitt. En allavega við fórum svo á Viktor, Hressó og Pravda. Þá var nú bara komið nóg og við fórum heim... þá var klukkan líka að verða 5 og ég bara nokkuð sátt við úthaldið...hehehe... svona miðað við að hafa verið á fullu allan daginn. Sunnudagurinn fór svo bara í slökun. Á mánudaginn byrjaði svo bara þessi venjulega rútína. Vinna, nudda og fara í ræktina. Jú og svo að sjálfsögðu rockstar...hehehe.. ekki má gleyma því. Það er alltaf partur af prógramminu..hehehe. Það verður sko viðbrigði að þurfa ekki að vaka svona til að horfa þegar þetta hættir. Bara tvær vikur eftir.
Ætlaði að fara norður núna um helgina en sé ekki að það takist hjá mér. Fæ ekki flug á viðráðanlegu verði á tímum sem nýtast mér. Og það virðist enginn vera að fara á bíl sem hefur pláss fyrir mig með.
Jói er svo að fara að flytja inn um helgina. Þannig að nú er einsetulífið mitt bara að hætta í bili. Það verður nú skrítið... ég verð að viðurkenna að ég kvíði því pínulítið að þurfa allt í einu að fara að taka tillit til einhvers. En þetta kannski bara hjálpar mér að losna við skuldbindingarfóbíuna mína... efast samt um það.. en aldrei að vita.
föstudagur, ágúst 18, 2006
 
vikan
Þetta er nú búin að vera meiri vikan. Nýtti allan laugardaginn í að vinna í brúðkaupinu hennar Maríu. Þetta var glæsilegt brúðkaup og gekk eiginlega bara eins og í sögu. Og við stóðum okkur að sjálfsögðu eins og hetjur í eldhúsinu...og að þjóna.
Þegar við vorum búnar að ganga frá þá var líkaminn bara eiginlega búinn á því. Andinn var í toppformi og vildi endilega fara á eitthvað skrall... en ég hefði ekki getað staðið upp á endann í 5 mínútur þó að ég hefði virkilega ætlað mér það. Það var nefnilega ekki mikið sest niður eignlega bara frá hádegi og framundir miðnætti.
Settumst niður í athöfninni og svo kannski í mestalagi í 10 mín eftir það....efast samt um að það hafi náð 10 mín.
Sunnudagurinn var svona að mestu slökun... fór að sjálfsögðu í ræktina... eins og flesta sunnudaga. En að öðru leiti bara gerði ég sára lítið.
Svo kom að því.. já já sumarfríið búið. Og það bara byrjað með trompi. Að sjálfsögðu yfirbókuð í nuddinu og var meira að segja svo mikið bókuð að ég hreinlega komst ekki í ræktina fyrr en í dag.
Og viti menn... Sissi bara kom með mér í ræktina... þetta tókst loksins. Nú verður þetta bara tekið með trukki sko. Ég reyndar tók tvöfaldan tíma í dag þar sem ég hafði ekkert mætt síðan á sunnudaginn. En nú er bara stefnan að fara aftur kl. 9 í fyrramálið og aftur á sunnudaginn.
Verð reyndar með gesti alla helgina...tíhíhí...sæta fólkið að norðan... en þau hljóta nú að geta séð af mér svona rétt á meðan ég er í ræktinni... og líka á meðan ég er að djamma...hehehehe. Maður sleppir því nú ekki að djamma á Menningarnótt. Var reynar að spá í að djamma líka í kvöld... en fólk er eitthvað að gugna á því. Og ekki nenni ég ein. Við Binna ætlum reyndar að vera í bandi og sjá til í kvöld... og svo ætlum við Binna að mála bæinn rauðann annaðkvöld...hehehe. Það er sko ekki spurning. Tvær sætar single stelpur... þetta verður geggjað.
föstudagur, ágúst 11, 2006
 
Lítið um blogg
Ég hef nú verið hálf léleg að blogga núna í sumarfríinu mínu. Finnst í rauninni voða lítið búið að vera að gerast sem er í frásögu færandi. Er reyndar búin að fá nokkra sólardaga... en óþarflega marga rigningardaga.
Ég er aðallega bara búin að vera í slökun þessar tvær vikur. Ætlaði að þrífa íbúðina en hef svo ekki gert það... ákvað að vera bara í fríi í fríinu mínu. Að sjálfsögðu er samt ekkert haugskítugt hjá mér... ég er ekki að meina það.
Ég er þó búin að vera mjög dugleg í ræktinni.. og var alveg ónýt þegar það var lokað í Hreyfingu bæði á laugardag og sunnudag um verslunarmannahelgina. Komst því ekkert í ræktina í heila tvo daga..hehe.
Ætlaði samt að fara norður en ferðafélaginn minn hætti við svo að ég nennti ekki að keyra alla leiðina ein. Ég var því bara í rólegheitunum hérna í borginni. Náði að sjálfsögðu að fara í búð og eyða smá pening...tíhíhí... en það er nú bara gaman af því.
Hitti Ernu Huld og Jóa á þriðjudaginn... fórum saman í Smáralindina og rúntuðum smá áður en þau fóru í afmæli... sem ég skutlaði þeim í.... og komst alveg sjálf út úr Mosó aftur án þess að villast.
Á miðvikudaginn var Jói Dan að byrja að flytja smá dót til mín. Kom með slatta af matvöru heiman frá sér og setti í skápana hjá mér... þannig að við fórum í gegnum þá matvöru sem ég átti fyrir og þá sem hann kom með... og vorum að henda því sem var útrunnið. Kryddin lentu í samskonar skoðun. Og það var eiginlega alveg óþarflega mikið sem fór í ruslið... liggur við að það verði bara útgjöld við að fylla á kryddhilluna aftur...hehehehe. Því við Jói ætlum að vera svo dugleg við að elda í vetur...hahahaha. Erum bæði að allan sólarhringinn... spurning hvernær eldamennskan kemst að...tíhí. En það er nú bara gaman að því.
Í gær fór Jói svo með bíl foreldra sinna á verkstæði í Skeifunni. Við tókum því bara subbara og ís á þetta í hádeginu og vorum aðeins á þvælast bara á þessu svæði þar. Bara nokkuð gaman hjá okkur.
Nú fer kannski að styttast í það að Sissi fari að koma með mér í ræktina. Og ég sem hélt að ég væri bissí... en hann er ennþá meira bissí en ég. Honum tókst að vísu að rifbeinsbrjóta sig á hjólinu sínu um daginn... en er nú allur að koma til. Hann verður nú að passa sig strákurinn.
Skil samt ekki þessa dellu í mér núna að langa til að læra á mótorhjól. Það er ekki eins og ég hafi neitt vit á þessu. Myndi sennilega þurfa að hafa Sissa í bandi til að gera við hjólið fyrir mig ef ég væri á hjóli...hehehe... ælti honum finnist ekki nóg að verða að hugsa um bílinn minn.
Það segja þó flesti sem ég nefni þetta við... go for it... þetta er sko þess virði... er samt ekki alveg viss um að pabbi og mamma verði alveg jafn spennt...hmmmm. Þeim finnst ég vera ógurleg ruglurófa þessa dagana... eða kannski bara mánuðina. En þeim finnst ég samt svo æðislega að þetta er allt í lagi... er það ekki?
Í dag er svo í rauninni síðasti sumarfrísdagurinn minn. Vildi að ég hefði nokkra daga í viðbót. Tvær vikur er eiginlega ekki nóg. En ég mun þó mæta galvösk að vanda í vinnuna á mánudagsmorgun. Ætla líka að kíkja kannski smá í vinnudjamm í kvöld. Veit samt ekki hvort að ég nenni að hitta þetta lið fyrst að ég er ennþá í sumarfrí...tíhí...nei, segi bara svona... auðvitað vil ég hitta fólkið. Og svo er það brúðkaupið hennar Mæsímó á morgun.
Ekki má gleyma afmælisbörnunum sem áttu afmæli 1. 3. 5. ágúst og í dag... (Járnbrá, Freyja, Bjarni og Berglind) allir til hamingju.
En núna held ég bara að ég fari að koma mér í ræktina..hehehe.. fínt að fara svona eftir hádegi.. oftast frekar rólegt þá. Reyndar gaman að fara líka svona um kl. 10.. þá er slökkviliðið oftast að æfa... ekki slæmt að hafa svoleiðis til að horfa á. Verst að það er bara horfa en ekki snerta. Sissi var nú eitthvað að gera grín að því um daginn að ég æfði örugglega ekki mikið... væri bara að horfa. En það er ekki satt... ég er bara óvenju lengi í teygjuherberginu... og nýt útsýnisins þaðan...tíhí.
fimmtudagur, ágúst 03, 2006
 
Þú veist að það er árið 2006 þegar....
1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.
2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.
3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er af því þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og/eða á MinnSirkus.
4. Þú leitar frekar um alla íbúð að fjarstýringunni í stað þess að ýta bara á takkann á sjónvarpinu.
6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.
7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.
8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.
9. Þú ert of upptekin(n) til að taka eftir númer fimm.
10. Þú virkilega skrollaðir til baka til að athuga hvort þar væri númer fimm.
11. Svo hlærðu að heimsku þinni.
12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar EF þú féllst fyrir þessu ... Aha ekkert svona fyrst að þú féllst fyrir þessu.
miðvikudagur, ágúst 02, 2006
 
Sólardagur
Ég fæ allavega einn sólardag í sumarfríinu mínu. Hann var í dag. Svaka blíða. Ekki ætla ég að kvarta yfir því. Nú er bara spurning hvort að sólin heldur áfram að vera góð við mig.
Ég komst þó að því í dag að það er ekki margt um manninn í ræktinni um miðjan dag... allavega ekki í svona góðu veðri. Held að það hafi verið 4 manneskjur inni í salnum þegar ég mætti uppúr kl. 14. Bættust þó einhverjir við á meðan ég var að æfa. En ég var ein í kvennaklefanum á meðan ég var í sturtu og að taka mig til á eftir. Gaf ég mér þó góðan tíma í það. Fór meira að segja í gufu og alles.
Er eiginlega á báðum áttum núna hvort að ég eigi að fara í ræktina eða í sund á morgun. Spurning hvort að ég fari ekki frekar í sund ef það verður jafn gott veður og var í dag. Það var nefnilega frekar heitt í ræktinni og ég svitnaði eins og stunginn grís... bæði þá vegna hita og vegna þess að ég var að æfa.
Eyddi svo kvöldinu í kvöld með henni Ingu minni. Það var bara grillmatur og flottheit. Og meira að segja ís í eftirrétt.
Ætluðum að leigja mynd á VOD-inu en enduðum á rúntinum. Það kviknaði nefnilega í bíl fyrir utan Brautarstöðina, beint á móti vinnunni. Og við skruppum þangað til að athuga hvort að það væri ekki allt í lagi með fólkið í vinnunni og til að láta reykræsta. Það var eiginlega ógeðslegt loftið í vinnunni þegar við komum þangað. En 20 mín síðar var það orðið miklu betra. Og því alveg starfhæft í húsinu.
Svo var að að sjálfsögðu Rockstar supernova. Maður missir nú ekki af þærri þar. Magni stóð sig frábærlega. Og ég verð nú bara að segja að mér finnst hann bara vera búinn að vera landi og þjóð til sóma.

Powered by Blogger