fimmtudagur, september 28, 2006
Tíminn flýgur
Er búin að vera í vandræðum með bloggerinn... en þetta blogg skrifaði ég 25.09.2006
Enn ein vikan liðin og farið að síga á síðari hluta september-mánaðar.
Það hefur nú svosem ekki mikið gerst síðan ég setti inn síðustu færslu. Jú... við Jói skelltum okkur í bíó á sunnudaginn síðasta. Fórum á Step up. Svaka skemmtileg mynd. Ég hef svo rosalega gaman af svona dansmyndum. Fínt að hafa Jóa til að koma með mér á svona myndir... það eru víst ekki margir karlmenn sem hefðu viljað koma með...hehehe.
Fór í ræktina alla daga þessarar viku nema á þriðjudag og í dag. Ég reyndar var búin að segja Jóa að ég ætlaði ekki í ræktina í fyrradag...hann fór svo bara að hlægja að mér þegar ég sagði honum að ég hefði farið í ræktina.
Búin að vera að nudda líka á fullu. Og á þriðjudaginn var ég meira að segja tvíbókuð... sem er ástæðan fyrir því að ég fór ekki í ræktina þann dag.
Fór reyndar til læknis líka á þriðjudaginn þar sem ég er með einhvern "skemmtilegan" hnút í náranu. Og lækna druslan gat ekkert gert nema bara gefa mér pensilín. Ég þoli ekki pensilín og er því búin að vera mjöööööög pirruð síðan ég byrjaði á kúrnum.
Skrapp smá stund á kaffihús á föstudagskvöldið en var komin heim um kl. 22. Og svo var að sjálfsögðu matarboðið hjá henni Mæsímó í fyrrakvöld. Jón, eiginmaður Mæju, kom og náði í okkur uppúr kl. 18. Maturinn var alveg svakalega góður. Og vil ég þakka kærlega fyrir mig. Við fengum fondú og steinasteikur. Það var kjúklingur, svínakjöt, pylsur, allskonar grænmeti og kartöflur. Salat og sósur að sjálfsögðu líka. Einnig djúpsteiktum við camembert. Í eftirrétt var svo frystur vanilluskyr-rjómaréttur ásamt ísbollum...namm namm. Og ekki létu þau þar við sitja því að þegar við svo færðum okkur yfir í betri sófann þá var komið með snakk og ídýfur.
Jón skutlaði okkur svo aftur heim eitthvað milli tólf og eitt... er ekki alveg með nákvæma tímasetningu á því.
Í gær fórum við Jói svo smá á rúntinn á nýja bílnum hans Jóa. Byrjuðum á því að fara í Kringluna og að sjálfsögðu tókst mér að eyða smá pening. Ekki það að hluti af því var í nauðsynjar... og restin í "nauðsynjar".
Ákváðum að kíkja á Sigrúnu og Begga.... og getið hvað... lentum við ekki bara í barnaafmæli. Þegar við sáum blöðrurnar ætluðum við að lauma okkur framhjá en vorum of sein... Beggi sá okkur..hehehe. Þannig að við bara skelltum okkur í barnaafmæli.. hver hefur ekki gaman af því. Maður er nú líka farinn að þekkja meiri hlutann af fjölskyldunum þeirra svo að við vorum ekkert mikið út úr kú þarna.
sunnudagur, september 17, 2006
Upptekin kona
Já það er nú ekki hægt að segja annað en að ég sé búin að vera frekar upptekin upp á síðkastið. Þá á ég nú ekkert sérstaklega við í félagslífinu...bara svona almennt.
Mér reyndar tókst líka að ná mér í kvef, hálsbólgu og hita. Og var það að bögga mig í alltof langan tíma. Var reyndar bara heima í tvo daga.... en það er komin rúm vika sem ég er búin að vera með þetta blessaða kvef og það þrjóskast enn við.
Ég hef því þurft að vinna upp þau nudd sem ég gat ekki nuddað á meðan ég var veik... og bætti þeim inní dagskrána þó að ég ætti í rauninni engan lausan tíma.
Svo er Jói fluttur inn og gengur sambúðin bara svona nokkuð sæmilega held ég bara. Þessi síðasta vika var nú reyndar þannig að ég sá hann á sunnudagskvöldinu, áður en hann fór að vinna, og svo ekkert aftur fyrr en á föstudagsmorgun þá svona eiginlega mættumst við í dyrunum.
Ég er enn að reyna að myndast við að fara í ræktina. Missi að vísu aðeins úr þegar ég var veik... en fór þó. Ekki kannski mjög gáfulegt... en þegar ég var búin að vera án þess að fara í ræktina í nokkra daga var ég eiginlega komin með fráhvarfseinkenni. Ég bara varð að fara. Einn vinur minn, sem er mikið í ræktinni, skammaði mig fyrir að gera þetta... ég ætti ekki að fara í ræktina þegar ég væri lasin. Því að þá yrði ég miklu lengur að ná mér. En ég var bara alveg eiturhress daginn eftir....hehehe... ég er kannski bara undantekningin sem sannar regluna í þessu...hehehe. Ég er þó búin að vera að bæta mér þetta upp í þessari viku og er búin að fara 5 sinnum. Það eru þá bara miðvikudagurinn og dagurinn í dag sem hafa dottið úr.
Ég átti þó alveg frábæran dag í gær....hehehe.... verst að maður eigi ekki fleiri svoleiðis daga. Fór í ræktina fyrir hádegi. Þegar við Sissi vorum búin í ræktinni fórum við og fengum okkur gott að borða... ekkert of fitandi en ekkert of hollt heldur. Þegar ég var svo rétt að renna í hlaðið hér heima hringir hann Jói í mig og býður mér að koma í Spa-ið í saltskrúbb.... mmmmmm hvað það var gott. Það datt nefnilega út eitt nudd hjá honum og hann var því í smá eyðu. Ég brunaði því niðureftir og skellti mér í þetta dekur. Vá hvað húðin var mjúk og fín á eftir.
Eftir þetta fór ég bara heim og lagði mig smá... var að djamma á föstudagskvöldið. Og fór svo að taka mig til fyrir djamm kvöldsins...hehehe. Matur og hitterí hjá Davíð Jó, hópstjóranum mínum í vinunni. Vorum hjá honum til að verða tvö um nóttina en þá röltum við í bæinn.
Við Binna enduðum svo einar eftir kl. 3. Og það var held ég um kl. 5 sem Sissi kom og skutlaði okkur heim, þessi elska. Þá vorum við orðnar blautar og kaldar úti í rigningunni.
En dagurinn var skemmtilegur svona í heildina litið og vona ég að það komi fleiri svona dagar fljótlega....hehehe.
Ekki það að næstu helgar eru alveg planaðar hjá mér. Næsta helgi þá er ég að fara til Maríu í kvöldverðarboð. Og eru það við dugnaðarforkarnir sem vorum að vinna í eldhúsinu í brúðkaupinu hennar sem verðum þarna. Ég hlakka bara mikið til. Helgina þar á eftir er 100 ára afmæli Símans. Hefði reyndar viljað fara norður að smala þá helgi en þar sem ég á hvort eð er engan pening til að komast þangað þá verð ég bara að sníða mér stakk eftir vexti. Ekki það að mér finnst eiginlega möst að fara í afmælið.... þó að það sé ekki skyldumæting þá er það nú samt svona eiginlega.
Spurning hvort að ég nái kannski að slaka á í október. Aldrei að vita. Þá reyndar fara að byrja námskeið hjá mér...í sambandi við trúnaðarmanninn. Og trúnaðarmannaráðstefnan í nóvember. Það er nú kannski bara eins gott að ég sé ekki með kall líka sem ég þarf að sinna...hehehehe. Þá fyrst þyrfti ég nú að fara að bæta við klukkutímum í sólarhringinn.
föstudagur, september 01, 2006
Klipping

Fór í klippingu í dag. Loksins... það er búið að standa til lengi... en varð að veruleika í dag. Nú er því bara spurningin hvernig fólki líst á..hehehe.. ekki mikil breyting en kannski smá.
