þriðjudagur, október 31, 2006
 
Kalt er það
Mér er nú farið að finnast heldur kalt hérna í höfuðborginni. Ég svona rétt slapp við það að missa puttana í morgun sökum kulda....kannski smá ýkt. En allavega það var rúmlega um -7°c í morgun. Og ég hef alltaf sagt það og segi það enn einu sinni....-7°c er mun kaldara hér á suðversturhorninu en fyrir norðan. En nóg um það.
Já hvað er ég búin að vera að gera. Aðstandendur vilja víst að ég skrifi það hér því að það er sennilega eina leiðin fyrir þá til að fylgjast með mér.....ég er víst frekar léleg við að hringja í fólk.
Og hvað á ég svo að segja....þetta er búið að vera svona same old, same old. Vinna, nudda og ræktin. Var búin að plana að fara í sund á fimmtudaginn sl en það datt uppfyrir sökum tímaleysis. Var að nudda frameftir.
Á föstudaginn missti ég mig svo smá í ræktinni. Fór í ræktina strax eftir vinnu og var að koma heim um kl. 20:30.....en þá var ég nú reyndar líka búin að slétta á mér hárið og mála mig og svona. En engu að síður þá var ég nú þónokkuð lengur en ég er vön. Var svo að sjálfsögðu búin á því eftir þetta og var bara í leti heima.
Laugardagurinn fór í búðarráp. Þurfti að sinna öllu sem að ég er búin að vera að trassa. Tókst að sjálfsögðu að eyða góðum slurk af peningum. En rosalega er nú samt gaman að eyða peningum....hehehehehe.
Þessi helgi var pabbahelgi hjá Gullu og Binnu og því var að sjálfsögðu búin að plana að fara á djammið. Ég náði í Binnu og við fórum og fengum okkur Quiznos og brunuðum svo til Gullu. Vorum þar að kjafta og hafa það kósí fram yfir miðnætti. Þá fórum við niður í bæ. Ég var nú ekkert voðalega lengi í bænum....var farin eitthvað um kl 2 aftur. Og rosalega var orðið hált þá. Ég var bara mjög fegin að það var ekki mikil umferð þar sem ég var að keyra því að í eitt skiptið sem ég ætlaði að hægja á mér þá bara hélt bíllinn áfram á sömu siglingu...en það reddaðist allt saman fyrst að ég var bara ein í heiminum.
Sissi lánaði mér FF Tokyo drift og horfði ég á hana á sunnudagsmorgun. Ég mun þó kaupa hana við tækifæri en get frestað því aðeins núna þar sem ég er búin að sjá hana. Spurning hvort að hún lækki ekki smá í verði með tímanum.
Endaði helgina svo vel með því að fara með Jóa á Rizzo og borða eldbakaða pizzu...rosalega finnst mér Rizzo pizzur alltaf góðar. Og skelltum okkur svo í bíó á myndina The Devil Wears Prada. Fór á hana alveg blanko og fannst hún bara mjög skemmtileg.
Svona til gamans þá má nú nefna það að ég hitti hana Heiðu (Álfheiði) gamla vinkonu mína, frá því á Akureyri, á Rizzo. Okkur tókst að sjálfsögðu að spjalla heilan helling...hehehe... kærastinn hennar og Jói voru nú aðeins farnir að iða fannst mér....fannst við sennilega tala svoltið mikið...hehehe... en það er nú bara gaman að því. En við urðum að sjálfsögðu að fræða hvor aðra um það hvað við hefðum verið að gera frá því við hittumst síðar og einnig segja frá sameiginlegum kunningjum...gaman að því.
Nú er svo bara venjulega rútínan byrjuð aftur. Vinnuvikan þegar hafin og það er bara vinna nudd og ræktin.
mánudagur, október 23, 2006
 
Rólegheit
Búið að vera frekar rólegt hjá mér bara núna. Lífið gengur bara sinn vanagang. Vinna nudd og ræktin. Fór reyndar í sund á þriðjudagskvöldið. Er að velta fyrir mér að reyna að fara að vera duglegri að skella mér í heitapottinn aftur. Er svona að verða búin að ná mér niður í ræktinni aftur... fer ekki nema 3-4 sinnum núna.
Fór svo í hestaferð með vinnunni á föstudagskvöldið. Þetta er nú svosem ekkert löng ferð... átti að vera klukkutími en er nú ekki frá því að hún hafi nú verið eitthvað styttri en það. Fannst samt smá galli að vera að hafa þetta svona að kvöldi þannig að maður sá ekki neitt. Þegar við vorum búin á hestbaki var línudans og skeifukast. Ég var valin best klæddi kúrekinn..hehehe.. var það reyndar líka í fyrra. En fékk þó meiri samkeppni í ár en í fyrra. Svo fengum við svaka góðan mat og allir voru kátir og glaðir.
Eftir hestaferðina og matinn fór ég í partý til hennar Ingu minnar. Ég var þó frekar þreytt þar sem ég hafði farið í ræktina fyrir vinnu, verið á skyndihjálparnámskeiði frá 9-12 unnið til 16 og svo hestaferðin kl. 18. Þannig að ég var komin heim til mín bara milli eitt og hálftvö um nóttina. Og laugardagurinn var bara rólegur. Sissi kom og hjálpaði mér að fela símasnúrurnar og svona... og ég passaði bara Mónu litlu á meðan. Við vorum nú bara nokkuð góðar saman gellurnar sko. Hún vildi nú þó helst éta á mér puttana þar sem hún er að byrja að taka tennur. En puttarnir eru þó allir heilir ennþá.
Aldrei þessu vant var ég bara heima hjá mér á laugardagskvöldi. Hefur ekki komið oft fyrir upp á síðkastið...hehehe. Borðaði reyndar niðri með Gulla, Guðrúnu (mömmu Gulla) og tveimur öðrum stelpum. Pöntuðum okkur mat frá Mekong. En svo bara leigði ég mér mynd á VOD-inu, Walk the line. Ágætis mynd. Horfði svo bara á skjáinn þar til ég sofnaði í sófanum eitthvað um kl. 3 í nótt. vaknaði svo um hálf 5 og fór inn í rúm.
Fór í Kolaportið í gær með Jóa. Hef ekki farið í Kolaportið síðan ég veit ekki hvenær. Fannst ekkert meira varið í draslið þarna núna en síðast þegar ég fór. Þannig að ég geri ekki ráð fyrir að fara aftur á næstunni... ekki illa meint.
Fór svo bara snemma að sofa í gærkvöldi þar sem ég þurfti að vakna snemma til að mæta í ræktina fyrir vinnu.
mánudagur, október 16, 2006
 
Skreppur??


Skrapp á Papaball á Eskifirði um síðustu helgi, með honum Jóa. Fólk vill samt eitthvað vera að meina að þetta hafi kannski verið eitthvað aðeins meira en bara smá skreppur...skil ekkert í því..hehe.
Þetta var samt eiginlega bara skyndiákvörðun. Vorum reyndar eitthvað búin að vera að grínast með þetta á mánudeginum áður...fékk nefnilega veftilboð í flug til Egilsstaða og þar var auglýsingin Nýttu tímann vel - Papaball á Eskifirði... En svo á fimmtudeginum segir Jói mér að pabbi hans og nokkrir vinir séu að fara í haustferð á Vattarnes og að það sé alltaf ógeðslega gaman. Þá sagði ég eitthvað í gríni hvort að við ættum ekki bara að skella okkur líka. Og það er skemmst frá því að segja að fyrir hádegi þennan sama fimmtudag vorum við búin að ákveða að skella okkur austur morguninn eftir..hehehe...geri aðrir betur.
Lögðum í'ann uppúr kl. 10 á föstudagsmorgninum og vorum komin á Vattarnes um kl. 18. Komum að sjálfsögðu öllum á óvart...hehehe... gerði þetta bara ennþá skemmtilegra. Fengum svo þennan líka veislumat um kvöldið. Vorum reyndar sjálf búin að kaupa okkur mat til að elda... en það var ekki tekið í mál annað en við borðuðum með þeim hinum...það væri nóg til. Gistum svo í Vattarnesi.
Laugardaginn tókum við snemma. Ég fékk reyndar sightseeing tour með guide um svæðið...hehehe...Danni vildi endilega sýna mér staðinn. Fékk fullt af örnefnum sem að ég get ekki nefnt...fékk svo mikið af upplýsingum að ég gat ekki móttekið það. Skelltum okkur svo á Egilsstaði í sund. Héldum reyndar að við myndum næstum því hafa staðinn útaf fyrir okkur...en það var nú aldeilis ekki svo... mættum á sama tíma og full rúta af breskum unglingum. Og ó mæ god hvað þeim fannst erfitt að þurfa að þvo sér án sundfata áður en þau færu í laugina.
Eftir sundið rúntuðum við smá um svæðið... og fengum okkur að sjálfsögðu ís....litli íssjúklingurinn ég.... fórum í sjoppuna við hliðina á Hamborgara Búllunni... man ekki hvað sjoppan heitir. Fórum svo aftur á Vattarnes til að taka okkur til fyrir ballið. Ákváðum að vera snemma í því og fá okkur eitthvað gott að borða áður en við skelltum okkur á djammið. Enduðum aftur á Egilsstöðum til að fá okkur að borða. Ætluðum að fá okkur borgara á Hamborgarabúllunni en hún var akkurat að loka þegar við komum svo að við skelltum okkur bara í næstu sjoppu...hehehe. Fórum svo á lítið og sætt kaffihús og sátum þar smá stund. Vorum að sjálfsögðu það tímanlega í því á Eskifjörð að við tókum klukkutíma rúnt...og vá hvað ég var farin að þekkja göturnar þar utanað...hehehe...ekki illa meint. Við vorum eiginlega líka farin að þekkja utanað bílana sem voru á rúntinum. Það var svo hörkustuð á ballinu, en ég komst að því að það er frekar erfitt að dansa innan um austfirðinga...hehehe... ég hélt að ég væri nokkuð ör á dansgólfinu... en NEIBB...ég er bara stillt og róleg.
Þegar við fórum svo að huga að því að koma okkur aftur til Reykjavíkur fannst okkur við alveg eins geta farið nyrðri leiðina til baka fyrst að við vorum hvort eð er komin þetta langt. Sendi mömmu sms þegar við vorum uppá Öræfum til að tékka á því hvort að hún væri í vinnunni eða ekki...tíhíhí...Gulla prakkari. Jújú mamma var í vinnunni og við bara bönkuðum uppá. Hún missti næstum því andlitið...var að reyna að hringja í mig en ég svaraði ekki...hehehe... I wonder why?? Þegar við vorum búin að stoppa smá stund á Laugum renndum við í Bárðardalinn...komum Þuru og pabba alveg jafn mikið á óvart og mömmu. Ekki nema bara snilld. Á Akureyri var það að sjálfsögðu Brynjuís...maður sleppir því nú ekki... og svo kastaði ég kveðju á tengdamömmu í Oddagötunni. Held nú bara að hún hafi verið alveg jafn hissa og allir hinir sem við kíktum á. Sissi var líka hissa, hann var hjá tengdó, hann vissi náttúrulega ekki að við myndum fara þessa leiðina til baka þó að hann vissi að ég væri að fara á Eskifjörð. Vorum svo komin til Reykjavíkur seint á sunnudagskvöld. Rosalega var nú rúmið mitt samt vinarlegt. Ég er búin að setja myndir í myndaalbúmið og eru þessar myndir undir Austfjarðarskreppur...endilega skoðið.

Vikan er svo bara búin að vera svona venjuleg. Vinna, nudd og rækt eins og gengur og gerist. Tók því bara rólega á föstudagskvöldið en tók gott djamm í fyrrakvöld með Gullu og Binnu ;)... gerðum okkur glaðan dag og dönsuðum eins og okkur væri borgað fyrir það...ja kannski ekki alveg þannig dans samt...hmmm... kannski ekki vel orðað ;)
Í gær fór ég svo og skoðaði IKEA. Þetta verður nú ekki bara skroppið í IKEA núna. Þetta er bara ferðalag. Bæði er þetta orðið staðsett einhversstaðar úti í ra...... og nú ratar maður bara ekki neitt innanhúss þar sem þetta er orðið svo stórt.
sunnudagur, október 01, 2006
 
Haust??
Ég verð nú bara að viðurkenna að mér er farið að finnast ansi haustlegt. Laufin farin að falla af trjánum og svona. Það er þó búið að vera mjög gott veður og getur maður nú ekki kvartað. Verð reyndar að segja að ég var frekar svekkt þegar ég þurfti að skafa af bílnum hjá mér um daginn. Og í nótt, þegar ég var að fara af djamminu, þá fannst mér ekkert voðalega heitt. En maður lætur það nú ekki á sig fá.

Það er nú samt allt við það sama hérna hjá mér. Held áfram að vinna eins og svín og fara í ræktina í öllum mínum frítímum. En helgin var þó tekin með trompi.
Síminn átti 100 ára afmæli á föstudaginn og var haldið upp á það með pompi og pragt....ef svo má segja. Það var bara öllu lokað kl. 15 og fengum við því tvo tíma til að koma okkur heim til að gera okkur sæt og fín fyrir veisluna miklu...hehe. Mjög flott skemmtiatriði voru í veislunni og engin ræðuhöld...þannig að þetta var bara fínt. Þaðan héldum við svo bein á Broadway til að sjá Magna og Dilönu. Meiriháttar tónleikar verð ég bara að segja. Hefði sko alls ekki viljað missa af þessu. Ég tók Jóa með mér sem maka á tónleikana..hehehe..ég meina við búum saman hann er það næsta sem kemst því að vera makinn minn um þessar mundir..hehe. Fórum við svo heim svo að ég gæti skipt um föt. Gat ekki hugsað mér að fara að djamma í fínu fötunum... hefði sennilega verið frekar þvingað. Kíktum svo í partý til Arnbjargar áður en við fórum niður í bæ. Það er nú bara orðið þónokkuð langt síðan ég hef farið í bæinn á föstudegi. Ef ég er að djamma á föstudegin þá er það alltaf eitthvað sérstakt og því ekki farið í bæinn....sem slíkt...heldur bara á ball eða í partý eða eitthvað þessháttar. Mér fannt því frekar fátt í bænum.
Laugardaginn tók ég bara rólega. Voða notalegt að eiga svona dag sem maður bara gerir nákvæmlega ekki neitt...hehehe. Það var nú kominn tími til að ég ætti svoleiðis dag. Við Binna ákváðum svo að skella okkur á Sálina. Alveg bannað að missa af því. Okkur tókst meira að segja að draga Hjört, þetta krútt, með okkur. Gátum ekki látið það spyrjast út að við færum kallalausar á djammið...hehehehe...segi svona... nei við vildum bara fá hann með okkur þar sem hann er svo skemmtilegur...og var frekar stutt með okkur á föstudagskvöldinu. Á Nasa hittum við svo Jónínu og Höllu ásamt fylgdarliði. Hitti meira að segja aftur frænku Jónínu sem ég djammaði með á Jet black Joe ballinu í sumar, sællar minningar...hehehe. Bara gaman af því.
Tók svo bara ræktina á þetta í hádeginu í dag. Var reyndar örlítið seinni en ég hafði ætlað mér og sagði Sissi mér að hann hefði haldið að ég myndi skrópa...en nei... ekki ég ... geri ekki svoleiðis...hehehe. Núna er ég svo bara búin að vera að kúra uppi í sófa og horfa á dvd. Og svo er það bara vinnan á morgun....og meira að segja stefnt að því að taka ræktina aftur á þetta í fyrramálið...bright and early.

Powered by Blogger