mánudagur, nóvember 27, 2006
 
Laufabrauðshelgin
Verð reyndar að byrja á að biðjast afsökunar. Sorry Sissi minn.... ég skal reyna að gleyma ekki aftur að segja hver hjálpar mér. Að sjálfsögðu var það Sissi krútt sem kom og hjálpaði mér að losa mig þegar ég sat föst í snjónum...hehehe. Það var reyndar einn karlmaður sem reyndi að hjálpa mér... en eins og Sissi sagði þá var það að öllum líkindum reykvíkingur og þeir kunna ekkert á snjó svo að hann gat ekki hjálpað mér.... Sissi kom því og reddaði málunum....Takk Sissi hetja...tíhíhí

En að öðrum málum. Laufabrauðshelgin var núna um síðustu helgi. Fór norður eftir hádegi á föstudaginn. Pabbi, mamma og Þura komu og náðu í mig á flugvöllinn. Fékk pabba reyndar til að koma við hjá gömlu gullsmiðunum í Brekkugötunni og fékk mér eitt gat í viðbót í hægra eyra. Algjör gella bara. Fórum svo í Glerártorg áður en við héldum í sveitina.
Ég fékk svo bílinn lánaðan hjá gamla settinu og kíkti í heimsókn til Súlíar og Magga. Var að sjálfsögðu að sjá nýja fjölskyldumeðliminn. Algjör dúlla. Fékk meira að segja að halda á henni mestan tíman sem ég var þarna... og verð nú að viðurkenna að eggjastokkarnir mínir tóku nú smá kipp...hehe. En þeir fá samt ekki að gera neitt í þessum málum. Læt mér bara nægja að vera búin að fá þarna lítið krútt til að ofdekra...hehehe.
Allur laugardagurinn fór svo í að skera laufabrauð. Kristján kokkur og fjölskylda komu með sitt laufabrauð til okkar líka og sátum við því og skárum um 250 kökur.. að ég held.
Kom svo aftur í bæinn rétt fyrir kl. 18 í gær. Set myndir inn við fyrsta tækifæri.

Sissi kíkti á rafgeyminn í bílnum mínum líka í gær.... hann er aðeins búinn að vera að stríða mér... og var rafgeymirinn því miður úrskurðaður dauðvona. Ég verð bara að taka þessu eins og hetja og sætta mig við orðinn hlut.
þriðjudagur, nóvember 21, 2006
 
hmm já
Er búin að vera frekar löt að skrifa undanfarið þar sem ég get ekki bloggað nema þegar ég er í vinnunni... og það er búið að vera brjálað að gera í vinnunni.
Hvað er ég nú búin að vera að gera undanfarið. Er búin að vera ótrúlega stillt í djamminu og bara dugleg að vinna og í ræktinni. Fór reyndar á trúnaðarmannaráðstefnu á Selfossi núna 16.-17. nóv. Samskonar ráðstefna og ég fór á í fyrra.
Gulli Bergmann átti svo afmæli 17. nóv og fór ég í partý hjá honum þegar ég kom til baka af ráðstefnunni.
Enn styttist í laufabrauðið og er ég orðin svakalega spennt.

En það er nú gaman að segja frá því að loksins er kominn snjór í Reykjavík sem er í meira en einn dag... og ekki komið bara slabb....YES!!!!
Mér reyndar tókst að festa mig fyrir utan ræktina á sunnudaginn.. en fannst það reyndar bara gaman því að það var eitthvað svo skemmtilegt veður og gaman að vera komin með snjó...hehehe.. já já .. ég veit að ég er skrítin.

Var þó að fá staðfestingu á því að ég er að einhverju leyti dís og að einhverju leyti norn..hehehe... Ekki það að ég svosem vissi það alveg að það blundaði í mér smá norn..hehehe... hér kemur niðurstaðan úr könnuninni sem ég tók

Flest kústsköft
Ef þú hefur svarað í einlægni, tilheyrir þú þeim sem eru að einhverju leyti dísir og að einhverju leyti nornir. En er þá hægt að treysta því að þú hafir verið hreinskilin í svörum þínum? Ef svo reynist vera ertu skemmtileg stelpa, en örlítið utan við þig. Allur heimurinn snýst í kringum þig en þú tekur yfirleitt ekkert eftir því. Þess vegna tekurðu ekki eftir því þegar aðrir sýna þér áhuga. Jafnvel þú lumar á galdrahæfileikum. Þegar þú notar galdrahæfileika þína getur þú komið öðrum til að halda að þú sért dís.
mánudagur, nóvember 13, 2006
 
Test
Það er nú orðið svoltið langt síðan ég tók síðast eitthvað svona test... en þetta virðist nú vera farið að verða svoltið grófara ...hehehe.... eitthvað fyrir mig semsagt..múhahahahaha


Sexy QuizAccording to experts, I am :

84% Sexy
Take the Sexy Quiz at JokesUnlimited.com


og annað


Naughty QuizAccording to experts, I am :

64% Naughty
Take the Naughty Quiz at JokesUnlimited.com


tíhí

The Underwear Quiz from JokesUnlimited.comAccording to The Underwear Quiz I am currently wearing :

A Thong

Take the Underwear Quiz at JokesUnlimited.com


Ég er nú bara ekkert svo svakalega vond kona


Evil QuizAccording to experts, I am :

33% Evil
Take the Evil Quiz at JokesUnlimited.com


ætli þetta sé ekki bara að verða gott


Purity TestAccording to experts, I am :

56% Pure
Take the Purity Test at JokesUnlimited.com

miðvikudagur, nóvember 08, 2006
 
Vetur konungur
Nú er ekki hægt að segja annað en að það sé kominn vetur. Það bara snjóar og það líka þessum sæta jólasnjó. Mér þykir eiginlega verst að ég er ennþá á sumardekkjunum. Vona að breyting verði á því fljótlega.....eiginlega bara sem allra allra fyrst.

Búin að vera bara nokkuð dugleg í ræktinni undanfarið. Og ekki mikið djammað....ótrúlegt en satt. Fór á föstudaginn síðasta og kíkti á nýja staðinn í Austurstrætinu... held að þetta sé nú ekki staður fyrir mig. Fór svo bara þaðan á Players og dansaði duglega við tónlistarflutning hljómsveitarinnar Í svörtum fötum. Vorum við bara tvær Gullurnar á þessu flandri. Vorum bara stilltar og góðar og fórum snemma heim.. eða eitthvað milli tvö og hálf þrjú.
Var svo bara heima í hvassviðrinu á laugardagskvöldið. Hætti við að fara á djammið eins og ráðgert hafði verið. Vaknaði svo bara hress og kát á sunnudag og skellti mér í ræktina á hádegi.
Framundan ef svo bissí timi hjá mér. Fer á námskeið á morgun og verð á því allan daginn, á von á gestum í gistingu um helgina, ráðstefna 16. og 17. nóv. og vinna í brúðkaupi 18. nóv. Svo styttist í laufabrauðshelgina.... mín svoltið farin að hlakka til....en það er nú sennilega af því að ég er pínulítil ruglurófa (sem er btw ættgengt...tíhíhí).
Jújú og svo er líka búið að plana verslunarleiðangur til að kaupa jólakjólinn....ekki missa andlitið, já ég er að spá í að kaupa mér kjól. Hef ekki verið í kjól á jólunum síðan ég bara veit ekki hvenær....man ekki betur en að ég hafi verið í barnaskóla síðast þegar ég átti jólakjól. Spurning er þó helst sú hvort að ég finni kjól sem ég fell fyrir. Ég er nú með ákveðinn fatasmekk og vil alls ekki hvað sem er.... þannig að það er erfitt að gera mér til hæfis. En hvort ég finni eitthvað kemur bara í ljós..ætlum nú ekki að vera að hafa áhyggjur af því núna.

Powered by Blogger