mánudagur, desember 25, 2006
Gleðileg jól
Gleðileg jól allir. Og takk fyrir jólagjafirnar.. þeir sem það á við.
Hmm hef ekki verið voða dugleg að blogga. Geðveikt að gera í vinnunni og tölvan mín heima dáin....blessuð sé hennar minning.
Já .... hvað er nú búið að gerast. Látum okkur nú sjá. Jólaglöggin hjá Símanum var 1. des. Dansaði eins og ég fengi borgað fyrir það... hmmm eða ekki alveg... sennilega hefði ég þá notað súlu..tíhíhí....og fækkað fötum. Smá grín. Jólahlaðborðið var svo 9. des. Mjög góður matur í brjáluðu veðri. Heppin að verða ekki bara veðurteppt í Grafarholtinu. Fór bara heim þegar dagskráin var búin í Gullhömrum. Svooooo góð stelpa.
Skrapp svo í sveitina með hundinn Pjakk 15. des. Var komin suður aftur 16. des. Stutt stopp það. Og svo er ég núna í sveitinni að sjálfsögðu. Var að koma heim úr skírninni hennar Katrínar Aspar. Fyrir þá sem ekki vita er það dóttir Sigurlínu og Magga. Hún fékk semsagt nafnið Katrín Ösp. Til lukku með nafið sæta stelpa ... og allir aðstandendur.
Það var þó pínu erfitt að komast norður... þ.e. ekki flogið þegar ég átti að fara. Var þó svo heppin að hitta Kidda, á Úlfsbæ, á flugvellinum og þegar fluginu var frestað þá ákvað hann bara að keyra. Og fékk ég far... ásamt Kalla í Kattholti og kærustunni hans. Ég komst því norður á réttum degi bara landleiðina í stað lofleiðarinnar og tók örlítið lengri tíma í ferðalagið en ella.
Á svo flug suður aftur 27. des. Vona bara að það gangi. Verst að ég fæ ekkert að sjá Freyju systir. Hún var að flytja aftur til landsins núna. Kom heim 22. des akkurat daginn sem ég fór norður. Og er ég því ekkert búin að hitta hana. Ég fer svo suður með síðustu vél 27. des og beint vinnu kl. 8 þann 28. des. Freyja fer hinsvegar norður fyrir hádegi 28.des. Ég sé því ekki framá að fá að hitta hana fyrr en á nýju ári þar sem þau koma ekki suður aftur fyrr en 2. des.
