mánudagur, janúar 29, 2007
Ein
Jájá nú er komið að því. Ég er aftur að fara að búa ein. Ekki það að mér líkar mjög vel að búa ein svo að ég kvíði því ekki. En hann Jói er fluttur út, skilaði lyklunum í gærkvöldi. Flutti til foreldra sinna þar sem leigan þar er víst eitthvað lægri en hjá mér ;o)
Annars hef ég varla stoppað heima hjá mér undanfarna daga. Fór í ræktina beint eftir vinnu á föstudaginn og beint úr ræktinni í mat til Freyju systir. Frá Freyju fór ég svo beint í videokvöld og var þar til kl 1 um nóttina. Var mætt í ræktina fyrir hádegi á laugardag og fór svo beint úr ræktinni í vinnuna... já já ég var að vinna á laugardegi og það frá því rétt fyrir kl. 14 til kl. 19. Og þá fór ég aftur beint til Freyju í mat. Var svo ekki að koma heim fyrr en rétt undir miðnætti. Svo var það bara aftur á fætur í gærmorgun... reyndar örlítið seinna en í gærmorgun og var komin í ræktina í hádeginu. Kom svo heim um kl. 15:30 og naut þess að vera heima. Kúrði svo bara fyrir framan sjónvarpið fram eftir kvöldi....svona eftir að ég settist loksins niður.
Var loksins að koma jólaskrautskössunum niður í geymslu... sennilega kominn tími til. Og er aðeins búin að vera að færa til ... ekkert mikið samt... þar sem að Jói átti kommóðuna sem að ég var með dvd-myndirnar í. En þetta er allt að koma hjá minni bara... verður svona minna drasl eitthvað og þrifalegra.
Er svo búin að vera að gera allskonar tilraunir með linsurnar...hehe...varð t.d. ekkert þreytt þó að ég væri með þær í augunum heilan vinnudag. Og þá á ég við náttúrulega sitjandi fyrir framan tölvuskjá. Langar þó að prufa annað merki af linsum þegar ég er búin með þær sem ég á. Þær eru eitthvað svo leiðinlegar að setja þær í augun... þ.e. þær vilja tolla betur á puttunum en í augunum. Og ein, sem er að vinna með mér, sagði mér að hún hefði líka lent í þessu með þessa tegund svo að þetta er ekki bara klaufaskapur í mér.
miðvikudagur, janúar 24, 2007
Stjörnuspá 2007
Var inn á spamadur.is að lesa stjörnuspána mína fyrir árið 2007. Hef rosalega gaman af stjörnuspám þó að ég taki svona passlega mikið mark á þeim. Ákvað að henda inn hér broti af minni stjörnuspá fyrir árið 2007:
Það er eins og eftir því sem þú þroskast þá kastar þú sumum af þeim grímum sem þú hefur notað til að fela ótta þinn í gegnum tíðina. Þú virðist byrja að sýna eðli þitt æ meir í ár.
Ef þú velur þér lífsförunaut má viðkomandi teljast mjög heppin/n því þörf þín til að næra og annast þá sem þú elskar er svakalega mikil. Þú elur af þér sterkustu öryggiskennd sem nokkur manneskja getur upplifað. Mikilvægt er að elskhugi þinn meðhöndli þig eins og viðkvæmt blóm og upplifi dýptina sem býr innra með þér.
Það er eins og þú áttir þig á þeirri staðreynd að himnaríki býr í hjarta þínu, í vitund þinni og þú getur náð til þess jafnvel á göngu þinni á þessu andartaki.
hehehe bara gaman af þessu.
sunnudagur, janúar 21, 2007
Þorrablót

Alltaf gaman á þorrablóti. Fór norður núna um helgina á þorrablót. Tók mér reyndar frí úr vinnunni á föstudaginn til að lengja helgina aðeins. En fékk þó bara flug snemma í dag til baka þannig að ég þurfti að vakna snemma eftir þorrablótið. Þetta var þó nokkuð fyndið þorrablót þar sem það virtust nú ekki mjög margir þekkja mig. Ég geri mér alveg grein fyrir því að ég hef lagt af síðan ég kom síðast á þorrablót og að ég var með linsur núna, sem ég hef ekki verið með áður. En HALLÓ... ég er samt ennþá sama Gullan. Er að setja myndir inn í albúm... endilega kíkja.
þriðjudagur, janúar 16, 2007
Veikindavesen
Kom mér loksins til læknis í gær. Búin að vera hóstandi í þrjár vikur. Hélt samt um daginn að mér væri að batna.. en svo versnaði ég bara aftur. Gafst svo upp í gærmorgun og fékk tíma hjá lækni. Og ótrúlegt en satt þá fékk ég tíma eiginlega strax.. þ.e. einum og hálfum tíma eftir að ég hringdi. Læknirinn að sjálfsögðu skammaði mig fyrir að hafa ekki komið fyrr. Og lét mig fá lyfseðil fyrir töflum sem að drepa allt held ég. Allavega fékk ég bara þrjár töflur sem ég á að taka eina á dag. Tók eina í gær og aðra í morgun og ligg bara í móki klukkutímunum saman eftir að vera búin að taka þær. Já og svo fékk ég hóstasaft sem fæst hvergi nema í Árbæjarapóteki. Þannig að ég þurfti að gera mér ferð þangað. Fór svo í vinnuna bara til að logga mig út og fór svo heima að sofa. Og hef verið sofandi meira og minna síðan þá. Vona að þetta sé allt að koma hjá mér. Stefni að því að mæta í vinnuna á morgun. Hlýt að vera orðin það mikið skárri að ég geti haldið mér vakandi þó að ég taki síðustu töfluna í vinnunni. En hver veit.
fimmtudagur, janúar 11, 2007
Þolinmæðin þrautir vinnur allar
Jamms... hef þurft að sýna smá þolinmæði núna á meðan ég var að setja inn myndirnar frá jólunum. Þær voru nú ekki margar en það tók dágóða stund að setja þær inn. En allavega.... nokkrar myndir frá jólunum í sveitinni minni komnar inn í myndaalbúmið mitt. Svo nú er bara endilega að kíkja.
Einmitt það já??

I - Töframaðurinn
Þú getur heillað og töfrað fólk og átt auðvelt með að vera flekandi ef því er að skipta. Ástalíf þitt blómstrar ef þú ein/n kýst að láta hlutina ganga upp. Þú líkist nokkuð spilltu barni, sem leyfir öðrum aðeins að njóta þinna einstöku gjafa gegn því að vera elskuð/elskaður nægilega.
Töframaðurinn sem sýnir þig og líðan þína hér hneigist til að vera stoltur, þrjóskur og verndar sig öllum stundum tilfinningalega.
Nú er komið að þér að gefa í stað þess að halda aftur af þér. Dulinn ótti þinn, efi og afbrýðisemi hylur þitt sanna sjálf og þér er ráðlagt að hindra hvorki aðgengi að hjartastöðvum þínum né útflæði.
Þér er ráðlagt að ganga í ljósinu og vera aldrei hrædd/ur við að láta ljós ástar og sannleika beina geislum sínum beint á þig.
© 2006 Spámaður - Ingunn ehf.
miðvikudagur, janúar 10, 2007
Nýja árið

Jæja nú er nýja árið örlítið byrjað. Lítið hefur þó breyst síðan á því síðasta. Freyjan mín er þó komin aftur til landsins og hef ég heimsótt hana nokkrum sinnum. tókst meira að segja að draga hana með mér í ræktina í fyrrakvöld.
Mér finnst þó allsvakalegt hvað það verða margir þrítugir á þessu ári. Skil það eiginlega ekki þar sem ég er svo ung...tíhíhí. Það eru þrítugsafmæli núna 13. jan, 15. jan og tvö þann 5. feb. og svo er eitt 24. feb. Og svo eru náttúrulega einhverjir sem ég umgengst aðeins minna. Og þetta er bara byrjunin. Geri því ráð fyrir að þetta verði svoltið bissí ár miðað við þetta.
Árið er þó ekki búið að vera neitt svakalega gott við mig þar sem ég er búin að vera hóstandi út í eitt. Og virðist bara ekkert vera að skána.
Jólasnjórinn kom líka aðeins of seint og er búinn að vera meira núna síðust daga en um jólin. Og jólastelpan ég er meira að segja búin að taka niður jólin. Sagði Sissa í gær að ég væri þegar búin að slökkva á tveimur jólaseríum og hann bara hélt að ég væri að plata. Sagði reyndar líka við mig "og þú sem vilt hafa jólaljósin fram í apríl".... held að hann þekki mig aðeins of vel.
Nú styttist líka í þorrablótið og ekki laust við að tilhlökkunin sé farin að gera vart við sig. Komst ekki á þorrablótið í fyrra þar sem því var frestað af óviðráðanlegum orsökum. Ég komst því bara norður þá helgi sem þorrablótið átti að vera en ekki þá sem það svo var. Og ég held nú jafnvel að gamla settið hlakki líka til að fá stelpuna sína aftur norður.
mánudagur, janúar 01, 2007
Gleðilegt nýtt ár 2007

Já það er bara komið nýtt ár. ótrúlegt hvað þetta síðasta ár var fljótt að líða. Ég er sennilega bara búin að halda mér svo upptekinni allt árið að það sé þessvegna sem tíminn líði svona hratt.
Árið 2006 var viðburðaríkt að mörgu leiti. Hef verið að gera hluti sem mig óraði ekki fyrir að ég myndi gera. Og djammað meira en ég hef gert mörg síðustu ár samanlagt. En maður á að hafa gaman af lífinu og það hef ég verið að reyna að gera. Byrjaði að fara í ræktina í maí og hef stundað hana af krafti síðan. Og mamma er farin að hafa áhyggjur af því að ég borði voða lítið... en það er algjör vitleysa... ég bara brenni því jafnóðum þar sem ég nýti flestan minn aukatíma í ræktina.
Heimsótti Freyjuna mína og Snorra í sumar, ásamt pabba, mömmu og Þuru. En nú eru þau flutt heim aftur. Mér hefur þó ekki tekist að hitta þau ennþá þar sem þau komu til landsins sama dag og ég fór norður fyrir jólin, og þau fóru norður morguninn eftir að ég kom suður aftur. Og ég kom suður með síðustu vél að norðan og mætti í vinnuna kl. 8 morguninn eftir.
Og svo erum bara komin áramót. Get þó ekki sagt að mér hafi fundist neitt áramótalegt við veðrið undanfarið. Frekar verið svona vor eða haustveður. En allar sprengingarnar og púðurlyktin getur ekki farið framhjá neinum. Og vá!!! hvað það er búið að sprengja mikið hérna fyrir utan. Ég hélt nú bara á tímabili að rúðurnar myndur fara úr íbúðinni hjá mér. En það virðist hafa sloppið ennþá.
Eyddi svo gamlárskvöldi með Jóa og fjölskyldunni hans í Hafnarfirðinum. Og þakka ég kærlega fyrir mig.
Vona að þetta nýja ár verði gæfuríkt og skemmtilegt fyrir alla.
