mánudagur, febrúar 26, 2007
 
Montin gella
Photobucket - Video and Image Hosting
jæja... var búin að blogga þetta svaka blogg í gær... en þá virkaði blogger ekki og færslan bara týndist... Gulla litla ekki glöð. En hér koma einhverjir punktar úr þeirri færslu.

Náði markmiði vikunnar í ræktinni. Missti 1,1 kg á einni viku. Og það þó að ég hefði borðað pizzu og ís á föstudaginn... vigtunin var á laugardaginn.
Núna eru því bara 3 kg eftir sem ég vil missa. Efast þó um að ég nái því fyrir árshátíð... þar sem nú er orðið frekar stutt í hana.... og Gulla litla var að djamma á laugardaginn... í afmælinu hennar Ingu.... og svona djamm hægir á brennslunni í ca tvær vikur.
Lét smá djamm þó ekki stoppa mig og mætti galvösk í ræktina á sunnudag kl. 12.

Fór á námskeið í síðustu viku. "Að efla framkomu" og var það Edda Björgvins sem var leiðbeinandinn. Svaka skemmtilegt og gott námskeið. Segi þó ekki að ég verði einhver ræðumaður á eftir... en fékk þó allavega smá leiðbeiningar um það hvernig ég get hjálpað mér að yfirstíga stressið og jafnvel nýtt það til að standa mig betur. ... segi bara svona.
laugardagur, febrúar 10, 2007
 
Hmm
Stóð ekki alveg við það sem ég sagði um daginn... fór nefnilega í ræktina mánudaginn 5. feb. Náði nefnilega að tala bæði við Súlí og Bryndísi Evu í kaffitímunum mínum í vinnunni. Óskaði þessum yndislegu konum til hamingju með ellina...tíhíhí. Maggi, hennar Sigurlínu, sagði nú reyndar að Súlí væri að fara að þvo af sér ungdóminn... ég verð þó að viðurkenna að ég myndi nú sennilega reyna að fresta því...hehehe.
En allavega... gerði því það sem ég ætlaði að gera eftir vinnu og fór svo í ljós og þar á eftir í ræktina. Það var nú samt allt Sissa að kenna að ég fór í ræktina...hehe... því hann er pínu krútt.
Það var því engin pása í ræktinni hjá mér fyrr en á fimmtudaginn. Fór meira að segja í bíó... hefur ekki gerst lengi... og sá þessa fínu mynd "Blood Diamond". Fór reyndar líka á fimmtudaginn og keypti mér loksins nýjar íþróttabuxur. Var ekki alveg að ganga upp að eiga ekki fleiri. Gerði ekki annað en að þvo þær sem ég átti. Núna er þetta allt í áttina. Verð bara að kaupa svona eina og eina íþróttaflík á mánuði og koma mér upp smá safni. Ef maður ætlar að fá sér almennilega íþróttaföt þá kostar það bara múltimilljón. En þetta vil ég....já já... kallaði þetta bara yfir mig sjálf. Held ég neyðist samt eiginlega til að kaupa mér nýja skó næst... og það er nú ennþá dýrara en fötin... og þá er nú mikið sagt. Spurning hvort að Karen Ýr sé ekki vaxin uppúr fleiri íþróttaskóm sem ég get fengið...hehe. Er nefnilega að nota skó sem ég fékk þegar þeir voru orðnir of litlir á hana. Minnir að það hafi verið þegar hún var 11 ára.
þriðjudagur, febrúar 06, 2007
 
???
You Are Apple Red

You're never one to take life too seriously, and because of it, you're a ton of fun.
And although you have a great sense of humor, you are never superficial.
Deep and caring, you do like to get to the core of people - to understand them well.
However, any probing you do is light hearted and fun, sometimes causing people to misjudge you.
What Color Red Are You?


You Don't Hold a Grudge

You're willing to give almost anyone a second chance, even if they've really wronged you.
Incredibly forgiving and compassionate, you understand that people sometimes change for the better.
Do You Hold a Grudge?

sunnudagur, febrúar 04, 2007
 
Áfram í stuði
Mín bara búin að vera á fullu þessa vikuna líka. Stoppa ekki. Veit nú samt ekki alveg hversu hollt þetta er. Hef ekki tekið einn frídag frá ræktinni alla þessa viku. En ætla ekki á morgun. Er að fara að gera annað á morgun.... og aldrei að vita nema ég verði smá í símanum annaðkvöld...hehehe... það eru víst tvær sætar stelpur að verða þrítugar. Gömlu konurnar... eitthvað annað en unglambið ég... á enn nokkra mánuði eftir í herlegheitin.
Fór í vinnuna í gær... annan laugardaginn í röð. Fór beint úr ræktinni og svo beint úr vinnunni í mat til hennar Freyju minnar. Hún er að hugsa svo vel um hana Gullu sína. Takk fyrir matinn krútt. Mjög góður matur.
Held að ég taki því bara rólega það sem eftir er dagsins. Geymi það eitthvað áfram að þrífa aukaherbergið. Búin að taka nóg á í dag.
Tölvan enn að stríða mér. Tolli mislengi inni. Og svo þegar hún er búin að henda mér út þá kemst ég ekki aftur inn næstu klukkutímana. Og þar sem ég er nú oftast inni bara á kvöldin... þá fer ég ekkert inn fyrr en næsta kvöld á eftir. Svoltið kvimleitt ef maður er í miðju samtali á msn. En það verður bara að hafa það.

Powered by Blogger