föstudagur, mars 30, 2007
Nýtt rúm???
Já nú er spurning hvort að ég eigi ekki að fara að leggja til hliðar fyrir nýju rúmi. Stóð í því í gærkvöldi að reyna að negla botninn í rúmið þar sem hann var langt kominn með að detta úr.
Veit ekki alveg hvað Vaskur greyið hélt um mig þegar ég lá á 4 fótum hálf undir rúminu og að reyna að negla...hmmm...
Ekki það að það hefur svosem staðið til lengi að fá mér nýtt rúm. Bara aldrei verið bráð nauðsyn og því alltaf frestað.
Ótrúlegt hvað maður fresta hlutum ef þeir eru ekki alveg bráð nauðsynlegir. En ég sem nuddari ætti ég náttúrulega að segja að það sé bráð nauðsynlegt að sofa í góðu rúmi. Fyrir utan það hversu nauðsynlegt er að fá góða hvíld (nætursvefn) þegar maður er að æfa svona mikið eins og ég hef verið að gera undanfarna mánuði.
En þá kemur reyndar hin hliðin.... þ.e. peningahliðin. Hún hefur ekki alveg verið mér voða hliðholl. En spurning hverju ég get fórnað á móti nýju rúmi??? Er nefnilega ekki alveg tilbúin að fórna einhverju af næringunni.. því að ég er alltaf svöng. Held að ég hafi bara aldrei étið svona mikið. Hvort ætli ég æfi svona mikið af því að ég borða svona mikið... eða borða svona mikið af því að ég æfi svona mikið???
miðvikudagur, mars 28, 2007
Norður skreppur
Þetta er ekki einleikið. Er búin að gera tvær tilraunir til að blogga um þetta en í bæði skiptin gengur það ekki og bloggið týnist. Geri nú eina tilraun enn.
Skruppum norður eftir vinnu á föstudag. Tók reyndar aðeins lengri tíma að koma sér af stað en áætlað var í upphafi en náðum þó að vera á ferðinni á góðum tíma. Vorum á undan öllu veseninu. Þannig að við sluppum yfir heiðarnar vandræðalaust. Vinafólk okkar sem lagð ekki af stað fyrr en seint um kvöldið var hinsvegar ekki alveg jafn heppið... þó að þau hafi komist á leiðarenda. Þau lentu hinsvegar í því að taka nokkra snúninga og lenda eiginlega útaf (hálfpartinn vógu salt á vegkantinum).
Þegar við vorum komin til Akureyrar heilsuðum við upp á Þuru systir og Allan. Gott að geta knúsað þau smá. Svo fórum við að finna okkur herbergi til að sofa í. Enduðum á Hótel Norðurland. Þá skelltum við okkur í partýfötin og renndum í sveitina. Hljóp smá inn hjá mömmu og pabba en hélt svo ferðinni áfram alla leið suður í Svartárkot. Þar var gleðskapur mikill. Og að sjálfsögðu feikna fjör. Hitti meira að segja tvær ungar hnátur sem ég hef ekki hitt lengi. Það voru þær Sigrún Vésteins og Hulda Jóns.
Við stoppuðum nú reyndar ekkert voðalega lengi þar sem Kalla fannst hann eins og illa gerður hlutur, þar sem hann þekkti engan. En við ætlum að reyna að ráða bót á því máli fljótlega. Og stefnum á að láta ekki líða of langt þangað til við skellum okkur aftur. Erum meira að segja búin að panta gistingu í Svartárkoti.
Eftir partýið renndum við aftur til Akureyrar og skelltum okkur þar í annað partý. Vorum reyndar ræst um hádegi á laugardag til að láta færa okkur á milli hótela. Hótel Norðurland er víst ekki opið nema þegar allt ef fullt á Hótel KEA. Þannig að okkur var hent þangað yfir þegar þar losnuðu herbergi.
Borðuðum á Greifanum og Bautanum.....fékk reyndar ekki Brynjuís í þessari ferð. En það er ekki séns að ég sleppi því næst...hehehehe.
Sálin var að spila í Sjallanum á laugardagskvöldinu og að sjálfsögðu skelltum við okkur þangað. Komst að því að það er sennilega svoltið langt síðan ég fór síðast í Sjallann. Búið að breyta slatta síðan.... og sennilega ekki alveg nýlega.
Það var svo bara rétt uppúr hádegi á sunnudag sem við brunuðum aftur í höfðuborgina. Fínt að vera komin snemma hingað og geta slappað smá af. Við reyndar svindluðum smá og lögðum okkur þegar við vorum komin í bæinn. En það var samt bara voða notó. Varð reyndar til þess að það var ekki farið neitt voða snemma að sofa. En maður en nú hvort eð er að verða vanur að sofa lítið.
Nú er svo bara rútínan komin í gang aftur. Vinna, nudda, ræktin, sofa.
Bimminn er kominn á verkstæði eftir smá óhapp á laugardaginn. Og fer svo beint í aðeins meiri sjæningu....filmur og fínt fínt.
Svo fer nú að styttast í páskana. Þura systir ætlar að kíkja suður í næstu viku. Þau Allan verða í gistingu hjá mér. Fínt að eiga systir með aukaherbergi.
En allavega... farin að vinna.
miðvikudagur, mars 21, 2007
Bögg
Voða lítið að frétta eitthvað þessa dagana. Var reyndar svaka dugleg og skilaði skattaskýrslunni minni viku fyrir síðasta skiladag.... ekkert smá stolt af mér.
Bý reyndar ekki alveg ein lengur. Jájá ég er komin með sambýling... hann heitir Vaskur og gengur um á fjórum fótum...hehehehe. Ég er semsagt orðin hundapía. Það var nú einn sem sagði að þetta væri ekki hundur. Vildi frekar meina að þetta væri björn.....svona miðað við stærðina...hehehe.
Við Kalli ætluðum norður um síðustu helgi. Ég fékk meira að segja að hætta fyrr í vinnunni til að geta verið á ferðinni í björtu. En nei... fengum ekki nagladekk. Hvorki undir Súbbann né BMW-inn. Urðum því að fresta ferðinni. Gulla litla var svoltið pirruð. Var búin að hlakka frekar mikið til að komast norður. Var því bara heima alla helgina fyrir utan að skreppa smá á rúntinn og í ræktina. Mesti pirringurinn var þó farinn af mér eftir að ég var búin að taka hressilega á því í ræktinni á laugardaginn.
sunnudagur, mars 11, 2007
Jájá

Nú er árshátíð Símans búin. Systir Kalla var svo góða að greiða mér....og hún er alveg snillingur.... þið getið séð árangurinn á myndinni hér fyrir ofan. Flott á leiðinni á árshátíðina..hehe.
Fórum smá stund í fyrirpartýið, sem var haldið á Nordica. Svo var það árshátíðin sjálf. Svaka flott ... ofurfeitur Steinríkur og Ástríkur mættu meira að segja á svæðið.
Maturinn var ágætur... Kalli var nú samt ekki alveg sáttur við steikinguna á steikinni minni...hehehe... og skipti henni fyrir mig.
Við fórum svo bara frekar snemma, fórum heim og skiptum um föt og skelltum okkur svo á rúntinn. Gulla litla var svo bara mætt í ræktina á hádegi og þrælaði og púlaði.
Vikan er annars bara búin að vera fljót að líða. Var á námskeiði mánudags-, þriðjudags- og fimmtudagmorgun frá 8:30 - 12.
Og nú er helgin bara búin.... veit ekki hvað varð af henni. Og ný vinnuvika að byrja í fyrramálið. Sennilega alveg jafn mikið að gera eins og síðustu vikur.
sunnudagur, mars 04, 2007
Nýr mánuður
Jamms... tíminn alveg að missa sig. Er nú eiginlega farin að hafa áhyggjur af því að það sé að fara að koma maí. Og hversvegna ætli ég hafi áhyggjur af því..hehehe... það vita þeir sem þekkja mig best.
Búið að vera alveg bilað að gera hjá mér upp á síðkastið. Reyndar ekki verið nógu dugleg í ræktinni...hehehe...segi ég. Fór ekki nema 5 sinnum í þessari viku. Sem þýðir að ég tók mér tvo frídaga í staðinn fyrir einn.
Búin líka að borða óvenjumikið sukk. Slapp þó vel... þyngdist ekki neitt... en léttist ekki heldur. *andvarp*
Kalli bannaði mér að fara í ræktina á fimmtudaginn og dróg mig á "stælinn" í staðinn. Hmm... er það nú ekki alveg sitthvor endinn á heilsunni... ræktin... skyndibiti...úff... já já... en það má alveg hafa sukk öðru hvoru. Mamma var hvort eð er farin að hafa áhyggjur af því að ég borðaði ekki neitt...hehe.
Well... ætla að finna mér eitthvað að borða og svo er það helv.... sameignin. Ótrúlegt hvað mér finnst ég alltaf vera með sameignina. Jú og svo má ekki gleyma að ég fæ nýtt hár í kvöld. Birna krútt ætlar að lita mig.. eins og venjulega.... maður verður nú að fara að gera sig sætan fyrir árshátiðina. Verst að ég veit ekki hvernig ég á að greiða mér. Ef einhver góðhjartaður vill hjálpa mér þá er það vel þegið "hint" "hint"
