föstudagur, apríl 20, 2007
Brjálað að gera
Vildi bara láta vita að ég er á lífi. Það er bara búið að vera svo geðbilað mikið að gera hjá mér... bæði í vinnunni og utan hennar að ég hef ekki haft tíma til að blogga neitt. Er byrjuð á Dale Carnegie námskeiði, svo er ég að nudda og reyna að fara í ræktina inn á milli... og þetta eiginlega bara tekur allan minn tíma. Svo að vísu er líka búinn að vera smá þvælingur vegna bílamála og trygginga og þessháttar sem hefur eiginlega fyllt upp í þann litla tíma sem ekki var skipulagður fyrir.
Var ekki búin að komsta í ræktina í nokkra daga og var því mætt um hálf tíu í gærmorgun til að bæta mér það upp... og svona reyna að losna við fráhvarfseinkennin ...hehehe. Fínt að fá svona frí inn á milli. Stefni að því að fara aftur í fyrramálið í ræktina. Held að ég ætti að hafa tíma.... var reyndar búin að ákveða að fara ekki í ræktina ef ég væri að fara að djamma sama dag.... en well... er að fara í tvöfalt afmælispartý annaðkvöld. Reyndar hjá fólki sem ég þekki voða lítið... þannig að ég þarf sennilega að hafa ennþá meira fyrir því að halda mér vakandi...ussss ekki segja!!! ... SPAUG. Spurning um að fara að nýta sér það litla sem ég er búin að læra á Dale Carnegie....
Jæja best að halda áfram að vinna...
þriðjudagur, apríl 03, 2007
Helgin
Það hefur svosem ekkert merkilegt gerst frá síðasta bloggi. Laugardagurinn týndist.... er ekki alveg viss um í hvað hann fór... en það var allavega ekki farið að sofa fyrr en undir morgun og því ekki farið á fætur fyrr en um hádegi. Þá skrapp ég í Kringluna og reddaði málum þar áður en ég fór niður House of Pain - Tattoo center. Þar sem verið var að laga eitt tattoo á Kalla. Og ótrúlegt hvað Sverrir náði að gera úr eiginlega vægast sagt misheppnuðu tattooi. Ég fekk þarna að sjálfsögðu hugmynd í sambandi við tattooið sem Sissi er að teikna fyrir mig. Og einnig hugmynd að einu einn tattooi. Fórum svo á Stylinn að borða. Ég var svo bara eitthvað að dunda mér um kvöldið horfði á sjónvarpið (aldrei þessu vant) og hafði það kósí undir teppi.
Vaknaði svo kl. 9 á sunnudagsmorgun og var ein af þeim fáu sem biðu fyrir utan ræktina kl. 10 þegar það var opnað. Var í ræktinni til hálf eitt ... þá reyndar búin að slétta á mér hárið og svona. Og þá var ég svona á síðasta séns að taka mig til fyrir fermingarveislu sem við vorum að fara í. Dó næstum því úr stressi á leiðinni í veisluna þar sem ég þekkti engan og þar var stór hluti af föðurfjölskyldunni hans Kalla saman kominn. Þetta reddaðist þó alveg og ég komst heil út úr þessu.
Núna er svo Þura sæta komin til mín ásamt honum Allan sínum. Og verða þau hér þar til á fimmtudag. Grilluðum í gærkvöldi svaka gott kjöt úr sveitinni. Þura sá um kryddlöginn og ég um grillunina. Freyja hélt okkur félagsskap og Kalli og Allan töluðu um bíla ...hehehe... bara gaman.
