föstudagur, júní 29, 2007
 
Sumarið komið???
Jæja snúlluzarnir mínir, ætli sumarið sé loksins komið???
Það er búið að vera alveg frábært veður núna síðustu daga. Tók mér sumarfrí á mánudag og þriðjudag og var bara mjög heppin með veður...ótrúlegt en satt. Þriðjudagurinn fór reyndar smá í búðaráp en ég naut sólarinnar líka. Fór í sund og svona. Svo reyndar bauð hún Hulda dúlludúskur mér í bíó á Die Hard 4.0. Alveg ágætist mynd. Allavega stóðst hún alveg mínar væntingar.
Núna eru síðustu dagar undirbúnings fyrir litla afmælispartýið mitt. Held að þetta verði nú samt bara mjög fámennt. Boðskortin fóru seint út og margir búnir að plana annað. En það verða þá bara meiri veitingar fyrir hina...hehe.
Það virðist einhvernveginn alltaf vera nóg að gera hjá mér samt. Ekki bara í nuddinu heldur líka í lífinu sjálfu. Engin hvíld fyrir Gullu litlu.
Langar nú líka svoltið að njóta þess að vera til svona meðan það er svona gott veður allavega. Búin að taka fram sumarfötin og svona... þ.e. þetta litla sem ég passa ennþá í...hmmm.... hef bara þurft að versla mér föt til að geta verið sömmerlí.
Ég er þó heppnari en hún Guðrún mágkona/vinkona mín. Hennar sumarföt eru læst niðri í geymslunni hennar... og viti menn... lykillnn týndur. Það er nú ekki gaman að lenda í því. Ég var nú samt að segja henni að brjótast bara inn í geymsluna. Þýðir ekki að bíða bara og bíða... ekki eins og lykillinn finnist....þar sem hann týndist ekki í íbúðinni (allavega mjög ólíklega).

Haldið þið ekki líka að gellan hafi bara farið og keypt sér kjól um daginn... hmmm ... reyndar tvo...hehehe. Verð í öðrum í afmælispartýinu mínu og hinum í brúðkaupinu hjá dúllurössunum þeim Sigrúnu og Begga. Eins gott að það verði gott veður báða þessa daga...hehehe.
Við Jói vorum að pakka inn brúðargjöfinni, sem við gefum saman. Og ég fékk að pakka inn... jei jei... ég er svo mikil ruglurófa að mér finnst svakalega gaman að pakka inn. Veit ekki hversvegna. Búið að finnast þetta alveg frá því að ég fór að vinna í Bókabúð Jónasar og fékk að hafa meira lausar hendur með það hvernig ég pakkaði inn. Þ.e. fleiri gerðir af pappír og borðum. Get sjálf alveg misst mig þegar ég er að kaupa borða og pappír.

Pirr pirr... verð nú smá að fá að pirrast líka.
Var svo svakalega dugleg að þrífa bílinn minn um síðustu helgi. Svo er maður varla fyrr búinn að þrífa bílinn en þessi helv.... mávar eru búnir að skíta yfir allan bílinn. Þeir byrjuðu samt bara pent... ein skella á aftari hliðarrúðuna bílstjóra megin... og svo bættu þeir um betur... allt húddið.. og núna afturrúðan líka.... arg arg.
miðvikudagur, júní 27, 2007
 
Áskorun tekið
Hef stundum spáð í þetta með bleiku fílana... hvernig ætli það hafi byrjað. Þó að ég sé nú algjör engill þá hef ég nú alveg fengið mér í glas við og við... og stundum fleiri en eitt. En ég hef aldrei upplifað þessa bleiku fíla. Ég hef frekar séð þetta fyrir mér sem græna fíla. Sá þetta vel fyrir mér um daginn. En mér til ómældrar óánægju var græni fíllinn svo í rauðum strigaskóm!!! Ætli það sé eðlilegt. Eða er sú sýn afleiðing af inntöku einhvers varasams efnis... sykurs eða einhverja litarefna kannski???
þriðjudagur, júní 19, 2007
 
17. júní helgin
Skellti mér norður um helgina. Held að ég hafi aldrei keyrt eins mikið (sjálf) á jafn stuttum tíma.
Brunaði norður eftir vinnu á föstudaginn. Jói var farþegi hjá mér en við vorum í "samfloti" með Ella og Birtu. En þau reyndar voru einum og hálfum tíma á eftir okkur. Þannig að við Jói skruppum smá í Oddagötuna en svo var það Brynjuís og rúntur. Þegar Elli og Birta voru svo komin afhenti ég þeim Jóa og skellti mér í sveitina.
Við mamma skelltum okkur svo í sund á Laugum í hádeginu á laugardag og svo að skoða bumbuna á Járnbrá. Bumban er orðin nokkuð væn en verra var að Járnbrá hafði dottið og viðbeinsbrotnað.
Þegar heim (í sveitina) var komið aftur fengum við okkur örlítið í svanginn en svo setti ég upp sumarlúkkið og renndi til Akureyrar. Ætlaði á götuspyrnuna en það var aðeins of mikið af fólki fyrir mig. Sá fram á það að ég myndi ekkert sjá og tímdi því ekki að borga mig inn. Reyndi smá að fylgjast með þessu utan girðingar en það var ekki alveg að gera sig. Renndi þá bara aftur heim í sveit, grillaði borðaði og fór í djammbúninginn. Súlí kom svo til mín og við skelltum okkur á djammið.
Það tók okkur reyndar smá stund að finna stað sem að hæfði okkar aldri... þ.e. svona ungum gellum eins og okkur....tíhíhí. Kaffi Akureyri varð fyrir valinu og vorum við þar mestan tímann. Náðum að dansa slatta...og verða fyrir smá áreiti frá karlmönnum.... ég fékk meira að segja að vita að ég er "drop dead..."... en það er náttúrulega ekkert sem ég vissi ekki fyrir...hahahaha smá spaug. Og haldið þið ekki að við höfum bara hitt hann Þorstein Húnfjörð... þ.e. Húna sem var með okkur í 10. bekk. Knúsuðum hann að sjálfsögðu (af skyldurækni...uss ekki segja að ég hafi sagt þetta) og vorum kynntar fyrir kellunni hans.
Þegar við vorum komnar með leið á Kaffi Akureyri röltum við yfir á annað kaffihús handann götunnar. Biðum í biðröð fyrir utan (hleypt var inn í hollum) en þegar inn var komið var nú hálf tómlegt og skildum við ekki alveg hversvegna fólk þurfti að bíða úti... ætli það sé til að fólk haldi að það sé alveg geggjað gaman þarna inni. Okkur fannst allavega hálf klént bara þarna inni og flýttum okkur út aftur. Þá var stefnan tekið niður í áttina að Vélsmiðjunni. Þar fyrir utan hittum við Kidda bekkjabróður. Knúsuðum hann... og gáfum honum meira að segja koss á sitthvora kinnina (báðar í einu). Hann var nú reyndar smá stund að átta sig á því hverjar við værum... vorum víst ekki með rétta háraliti... erum báðar dökkhærðar í dag en vorum það ekki í gagnfræðaskóla.
Kiddi fylgdi okkur svo inn á Vélsmiðjuna... aftur út þaðan og inn á 1929. Stoppuðum heldur ekki lengi þar. Svo var kominn tími á að sækja hana Þuru mína sem var að koma frá útlöndunum. Kiddi kom meira að segja með okkur að ná í bílinn og að ná í Þuru upp í VMA. Þá var nú kominn sveitaferðartími á okkur Súlí og skilðum við Kidda af okkur niður í miðbæ, áður en við héldum aftur í sveitina.
Ekki get ég nú sagt að mér hafi fundist þetta spennandi djamm... að öðru leiti en því að við Súlí skemmtum okkur konunglega yfir því að vera loksins saman að djamma aftur.
Á sunnudaginn var svo bara pakkað saman, rennt til Akureyrar, að sjálfsögðu farið á bílasýninguna og svo haldið til höfuðborgarinnar.
Ég var ein í bíl alla leiðina í Staðarskála en þá komu Jói og Birta yfir í bílinn til mín. Ég var nú reyndar skilin eftir ein á Akureyri og lagði ekki af stað fyrr en þrem stundarfjórðungum á eftir þeim. En þau stoppuðu smá stund í Varmahlíð til að fá sér að borða.... en ég fór á bílasýninguna á Akureyri þegar þau voru að leggja af stað.
Gulla litla var því pínu þreytt þegar hún kom heim á vel skítugum bíl. Bíllinn hefur reyndar ekki enn verið þrifinn þar sem ég skrapp til Þorlákshafnar í gærkvöldi. Skellti mér á fjórhjól og tókst að slasa mig smá... ekkert alvarlegt samt.. pínu bólgin og marin á öðrum handleggnum... en það er ekkert miðað við Elsu greyið sem velti líka hjólinu sem hún var á. Hún var þónokkuð mikið aumari en ég... og komin með heljarinnar glóðarauga strax í gærkvöldi. Raggi slasaði sig ekkert þó að hann velti og var Kalli sá eini sem ekki náði að velta sínu hjóli í þessari ferð. Þetta var þó alveg heljarinnar fjör og verður örugglega endurtekið... vonandi samt án þess að vera mikið að velta....hehe.
Well best að halda áfram að vinna. Skelli vonandi inn myndum frá bílasýningunni fljótlega... þ.e. þegar ég hef tíma.
föstudagur, júní 15, 2007
 
Lítið að frétta
Það er svo lítið að frétta ennþá að ég skelli bara inn vísum sem ég stal af síðunni hjá Huldu vinkonu.



Heit og sæt er saklaus ást,

sárt er hana að dylja,

eins og það er sælt að sjást,

sárt er líka að skilja.




fyrirgefðu að ég sé ekki nógu falleg fyrir þig

fyrirgefðu að ég sé ekki nógu skemmtileg fyrir þig

fyrirgefðu að ég sé ekki nógu fyndin fyrir þig

fyrirgefðu að ég sé ekki nógu vel vaxin fyrir þig

fyrirgefðu að ég er ekki eins og allt hitt kvennfólkið


fyrirgefðu að ég sé ekki alltaf glöð

fyrirgefðu að ég hafi stundum rangt fyrir mér!

fyrirgefðu að ég þurfi kannski meiri skilning en hinar.

fyrirgefðu að ég geti ekki alltaf elskað þig eins og þér hentar

fyrirgefðu að ég rífist stundum!

fyrirgefðu að ég hafi mína galla!

fyrirgefðu að ég sé ekki fullkomin!

ég reyni samt alltaf mitt besta!.



ég sé svo eftir orðunum sem ég sagði við þig
en ég sé samt mest eftir öllum skiptunum sem ég særði þig
mig langar að segja þér að ég eftir þessu öllu saman
en ég finn aldrei orð við hæfi
ég finn aldrei orð yfir hugsanir mínar



ég veit ég er minni en þú
ég veit að ég er aumari en þú
& ég veit að ég er yngri en þú
en þrátt fyrir það hef ég meira stolt
því ég þarf ekki að rakka þig niður til þess að líta betur út !



never say i love you
if you don't really care
never talk about feelings
if they arent really there
never hold my hand
if your going to break my heart
never say your going to
if you dont plan to start
never look into my eyes
if all you do is lie
never say hello
if you mean to say goodbye
if you really mean forever
then say you'll try
never say forever
cause forever makes me cry!



i never really knew you
you were just another friend
but when i got to know you
i let my heart unbend
i couldn't help past memories
that would only make my cry
i had to forget my first love
& give love another try
so iv'e fallen in love with you
& i will never let you go
i love you more than enyone
i just had to let you know
& if you ever wonder why
i dont know what i'll say
but i will never stop loving you
each & every day
my feelings for you will never change
just know my feelings are true
just remember one thing
i love you<3


#Ekki gráta yfir neinum sem grætur ekki yfir þér.


#Það erfiðasta sem hægt er,
er að sjá einnhvern sem þú elskar, elska einnhvern annan.



#Ekki láta e-ð slæmt úr fortíðinni halda aftur af þér
því þú ert að missa af öllu því skemmtilega sem er í nútíðinni.



#Lífið er svo stutt,
að ef þú lítur ekki í kring um þig stundum og stundum gætirðu misst af því.



#Sumir gera heiminn sérstakan bara með því að vera í honum.



#Ekki vera leiður, því þú veist aldrei hver verður ástfanginn af brosinu þínu.



#Hvað gerir þú þegar eina manneskjan sem getur hætt að láta þig gráta
er sá sem lét þig fara að gráta.



#Enginn er fullkominn þangað til þú verður ástfangin af honum.
fimmtudagur, júní 07, 2007
 
Í tómu tjóni
Jamms... ég er bara búin að vera í tómu tjóni undanfarið. Hangi hérna í lausu lofti og veit ekkert í minn haus. En það er nú bara gaman að því ... eða þannig.
Vil samt ekki vera að kvarta, ekki eins og það bjargi neinu. Best að líta bara jákvætt á þetta. Hlýtur að koma eitthvað gott útúr þessu á endanum.
Var reyndar að lesa stjörnuspána mína sem er í Smáralindarbæklingnum sem er nýkominn út.... og VÁ!!! hvað hún hittir akkurat í mark. Passar svooooo við það sem er í gangi hjá mér núna....hehehe...fyndið.

Er loksins búin að fá greitt út úr tryggingunum. Fór og skrifaði undir pappíra á föstudaginn og átti þá að fá peninginn en þurfti að sjálfsögðu að hringja aftur á þriðjudaginn og reka á eftir því. Þá loksins gekk það í gegn.
Síðustu tveir tímarnir í Dale Carnegie verða í næstu viku. Svo að líf mitt fer kannski að fara að falla aftur í eðlilegar horfur.
Langar ógeðslega mikið að fara norður 17. júní helgina en ég er orðin svo sein að panta flug að það er alltof dýrt. Spurning því að auglýsa bara hérmeð eftir ferðafélaga. Nenni nefnilega ekki að keyra ein... fyrir utan að það er ennþá ódýrara ef fleiri skipta með sér bensínkostnaði.
föstudagur, júní 01, 2007
 
Allt að gerast
Já núna er bimminn seldur. Ég kem til með að sakna hans.... þ.e. sakna þess að keyra hann. En ég mun ekki sakna afborgananna af honum. Við gengum frá sölunni núna í hádeginu. Kalli reyndar sá um það að mestu... ég bara skrifaði undir.
Er enn að bíða eftir að fá greitt frá tryggingunum vegna tjónsins á súbbanum. Hlýtur að fara að gerast. Hvað ef ég hefði verði bíllaus. Það er ekki eins og þetta hafi verið að gerast í gær. Tjónið varð 3. maí þannig að það er að verða kominn mánuður. Og þeir ekkert að flýta sér að borga mér. Er alveg að verða geðveik...segi bara svona....er bara nett pirruð.
Svo er svona ýmislegt annað í skoðun...en þó ekki komið á það stig að ég fari neitt að tala um það hér. Set þetta inn bara svona til að gera ykkur forvitin...tíhíhí... litli púkinn ég. Kemur kannski að því síðar, ef til þess kemur, að ég segi frá því.

Úff mætti í vinnuna í morgun og það var bara frost. Það var kaldara inni en úti. Þá hafði bara verið slökkt á hitanum hérna inn í gær... þar sem það var svo heitt... og ekkert spáð í að það gæti kannski kólnað aftur. Fólk var því í úlpum og lopapeysum jafnvel vafið inn í teppi hérna framundir hádegi. Þá loksins fór að hlýna smá aftur.

Já og svo vil ég minnast á það að ég vil endilega að þið skrifið í gestabókina mína. En gerið það þá undir nafni. Ekki koma með einhverjar leiðinlegar athugasemdir undir nafninu "ég" eða "einhver". Var að eyða út tveimur svoleiðis færslum. Skrifaði þó niður hjá mér IP töluna sem þetta var sent úr þannig að ég er með hana hjá mér ef mér skyldi detta í hug að láta rekja hvaðan þetta kemur.

Powered by Blogger