sunnudagur, ágúst 26, 2007

Búin að hafa nóg að gera í vinnunni sl viku. Nudda á fullu og að sjálfsögðu ræktin... sem þýðir... gamla góðar rútínan komin á sinn stað.
Hef ekki enn komist í að kaupa mér hjálm. Er ekki nógu klár í því þannig að ég þarf að hafa einhvern kláran með mér...t.d. hann Sissa minn...hehehe....hint hint.
Skrapp í sumarbústað eftir vinnu í gær og kom til baka um miðjan dag í dag. Það var hún Erna vinkona sem var að bjóða mér og fleirum. Hún er að halda upp á afmælið sitt þessa helgi. Þ.e. boðið var í þrítugsafmæli töku tvö...hehehe.. ég ætla líka að gera þetta. Héðan í frá verða bara þrítugsafmæli...hehehe fer ekki hærra.
En allavega. Við Hafrún urðum samfó í bílnum hennar..hehe.. Gulla litla slapp við að keyra. Bústaðurinn, sem við fórum í, er í Minni-Borgum í Grímsnesi. Mjög fínn og rúmgóður bústaður. Vorum komnar þangað milli sex og hálf sjö í gærkvöldi. Komum okkur þægilega fyrir og hófumst svo handa við að grilla. Tókum smá Trivial á meðan potturinn var að hitna og svo var það að sjálfsögðu potturinn. Þetta var yndisleg stund. Held að við höfum verið að fara að sofa um kl. 4 í nótt... nema ólétta konan hún Hafrún sem fór inn svoltið fyrr. Þrátt fyrir næturbrölt vorum við Erna komnar á fætur fyrir 10 í morgun. Komum okkur í gang, gerðum pottinn aftur kláran og svo var það bara sælan í pottinum þar til tími var kominn til að huga að frágangi og heimferð hjá mér. Erna ætlar þó að vera áfam í bústaðnum með honum Jóa sínum.
Er að skella inn myndum úr ferðinni.
Fór svo áðan og náði í Guggu (systir Kalla), Fannar og Atla út á flugvöll. Þau voru að koma til baka úr tveggja vikna fríi á Rhodos. Hefði nú alveg viljað vera með þeim þarna úti... ég var þó allavega samfó út á flugvöll og aftur til baka... þó að þau væru í hlýjunni úti og ég í kuldanum hér á klakanum....ekkert bitur sko...hmm..hehe...grín.
Mér leið nú samt eitthvað hálf hvítt við hliðina á þeim núna. Samt hefur fólk verið að kvarta yfir því að ég sé brún..hmmm.
Ósköp finnst mér nú samt gott að vera búin að fá þau heima aftur. Búin að sakna þeirra bara svoltið þessar síðustu tvær vikur.
laugardagur, ágúst 18, 2007
Menningarnótt

glitter-graphics.com
Úff hvað ég er lítið menningarleg...hehehe...fór reyndar á seinni hlutann af tónleikunum í gærkvöldi. Gamla settið var að koma í bæinn og dróg mig með. Lögðum bílnum bara fyrir utan hjá Freyju sys og löbbuðum þaðan. Sem var bara snilld því að við lentum ekki í neinum vandræðum með að komast í burtu eftir að tónleikarnir voru búnir.
Er samt bara búin að nota daginn í dag í að úrtrétta í staðinn fyrir að þykjast vera eitthvað menningarleg. Finnst þó líklegt að ég reyni allavega að sjá flugeldana í kvöld... annað kemur bara í ljós.
Við ætlum svo að grilla í kvöld. Pabbi og mamma komu með nesti með sér úr sveitinni og svo keyptum við kjúkling til að hafa líka.
Ég er nú samt eitthvað hálf þreytt eftir fyrstu vinnuvikuna eftir sumarfrí. Ekki nóg með að ég væri að byrja aftur eftir þriggja vikna frí heldur er líka búið að breyta starfinu mínu aðeins þannig að ég er ekki að gera alveg það sama og ég var að gera. Og það gerir mig náttúrulega ennþá þreyttari... svona að vera að reyna að standa mig í einhverju sem ég er ekki vön og hálfpartinn að læra eitthvað nýtt.
Verð þó að viðurkenna að ég hef svona aðeins verið að líta í kringum mig eftir nýrri vinnu. Ekkert þó orðið ákveðið í þeim efnunum. En endilega komið með hugmyndir ef ykkur dettur eitthvað sniðugt í hug fyrir mig að gera... hef samt ekki efni á að lækka í launum.
þriðjudagur, ágúst 14, 2007
Alveg veik núna
Núna er ég alveg orðin veik. Pétur, vinur minn, var að kaupa sér nýtt mótorhjól í gær og ég fékk að máta. Beið eftir mér þegar ég var búin í ræktinni í gær. Hjólið fór mér alveg svakalega vel...hehehe...náði meira að segja niður...held því samt alveg fyrir mig hversu vel ég náði niður..hehe.. Pétur er meira að segja búinn að lofa að ég fái að prufa dýrið við tækifæri. Sagði samt að ég ætti ekki að kaupa mér svona kraftmikið hjól til að byrja með... ekki það að ég sé alveg svo vitlaus sko....þó að ég sé ruglurófa.
Var einmitt að ræða það við Sissa í gær að ég þyrfti að fara að kaupa mér hjálm. Langar ekki að vera með hjálm sem fullt af fólki hefur verið með, þegar ég fer að læra. Geri ráð fyrir að kaupa einhvern svona ódýrari hjálm svona til að byrja með. Þeir gera alveg sitt gagn en endast bara ekki eins lengi.
Ofan á þetta var ég svo að labba yfir í mötuneytið áðan og voru þá ekki bara tvö hjól fyrir utan Símabúðina...venjulega er bara eitt sko... og ég er vön að slefa nógu mikið yfir því... en þegar þau eru orðin tvo... þá verð ég alveg óð...hehehe... ef svo má að orði komast.
mánudagur, ágúst 13, 2007
Sumarfríið búið
Já já mín bara mætt aftur í vinnu. Tíminn er alltof fljótur að líða. Er samt eiginlega ekki búin að vera að gera neitt. Bara búin að reyna að vera dugleg í ræktinni og svona. Koma mér í gang aftur.
Hef svo líka verið að njóta þessara fáu sólardaga sem búnir eru að vera síðustu vikur.
Vona svo að gamla settið fari að kíkja í heimsókn...hehehe... og taki með sér appelsínumarmelaði ala pabbi...hehehehe.
Well... best að koma sér heim
sunnudagur, ágúst 05, 2007
Sumarfrí

Jæja er búin að vera í sumarfríi undanfarnar tvær vikur. Enn er ein vika eftir en ég væri þó alveg til í að hafa þær fleiri.
Er voða lítið búin að gera nema bara hafa það rólegt. Byrjaði reyndar á því að skreppa norður. Var fyrir norðan frá föstudagskvöldi og fram á miðvikudagskvöld. Við fórum svo heim í sveit og gistum hjá pabba og mömmu. Á laugardeginum skrapp ég svo í sumarbústað og hafði það náðugt. Rosa flottur bústaður. Sunnudagurinn fór í að rúnta og skoða. Skrapp á Hofsós og Siglufjörð. Lét eins og hálfviti og skemmti mér konunglega. Jói og viðhaldið hans komu svo í heimsókn til okkar í bústaðinn á sunnudagskvöldinu...svona rétt á meðan við vorum að klára að ganga frá eftir okkur. Brunaði svo aftur í sveitasæluna hjá gamla settinu mínu....tíhí. Mamma þurfti svo að fara að vinna á mánudeginum en við hin grilluðum þessa svaka steik... eða hmm já ég sá um að "glóðarsteikja" hana...tíhíhí. En þetta var samt svakalega gott....ótrúlegt en satt. Eftir mánudagskvöldið var það bara slökun og meiri slökun. Keyrði hingað suður og er búin að vera í slökun hér líka. Reyndar búin að fara í ræktina og dúlla mér eitthvað með vinum. En mest bara búin að vera að lesa, horfa á dvd og hafa það náðugt. Fór reyndar með Guðrúnu mágkonu í Smáralindina í gær og sá skó sem ég alveg féll fyrir. Og þar sem það er nú ekki mjög oft sem ég sé skó sem ég fell fyrir ákvað ég að kaupa þá (eftir sá umhugsun)...og sé ekki eftir því.
Leyfði mér svo smá munað áðan...skutlaði Fannari fóstursyni mínum (að sögn mömmu hans er ég víst búin að ættleiða hann) í vinnuna og keypti af honum pizzu í leiðinni. Og núna er ég alveg sprungin...hehehe.. Well ætla að halda áfram að vera í fríi og gera ekki neitt...
