sunnudagur, september 30, 2007
Tími á blogg

glitter-graphics.com
Hmm já hvað á ég að segja. Er búin að fara í fjóra bifhjólatíma...og í gær var fyrsti götuaksturstíminn hjá mér. Fer sennilega í annan götuakstur á morgun. Úff hvað þetta er gaman. Gengur líka bara alveg ágætlega held ég. Er samt aðallega búin að vera á 250 hjóli en mun taka prófið á 500 hjól svo að ég verð að æfa mig á því hjóli áður en ég get farið í prófið.
Nú verð ég svo bara að fara að finna mér góðan mótorhjólagalla. Þýðir víst lítið að vera bara á gallabuxum og í gamla mótorhjólaleðurjakkanum hans Sissa...ekki það að ég tek mig svakalega vel út í honum..hehehe. Og ökukennarinn hældi mér nú hvað ég væri í góðum jakka...hehehe. Þannig að ég þurfti bara þunnt vesti í götuaksturinn en ekki vesti með brynju.
Var að skoða galla á netinu um daginn og sá einn sem mér leist mjög vel á. Hann kostar tæplega 70 þúsund og er það bara nokkuð vel sloppið með góðan galla. Hef samt ekki skoðað hann í versluninni sjálfri svo að það er nú ekki alveg að marka. Allar ábendingar um góða en ódýra galla eru vel þegnar. Held samt að ég reyni að fjárfesta í góðum hönskum sem allra fyrst. Geri ráð fyrir að kaupa gallann í smá skömmtum. Þannig að þið vitið hvað þið megið gefa mér í jólagjöf...hehehehe.
Er búin að vera hálf útkeyrð eitthvað upp á síðkastið. Hef því lítið nuddað. En fékk góðar fréttir á föstudaginn og því var allvega einum áhyggjunum færra á mínum herðum.
Ég hef þó verið að reyna að styðja við bakið á vinkonu minni sem hefur átt frekar erfitt... þó að ég hafi nú kannski ekki haft mjög mikið að gefa. En hún hefur verið að ganga í gegnum hluti sem að maður óskar engum. Vona að ég hafi sýnt henni að ég er vinkona hennar líka á erfiðum tímum.
Hef þó verið dugleg að fara í ræktina líka ... enda er maður nú eitthvað hálf druslulegur þá daga sem maður ekki fer í ræktina..hehe.. en það er kannski af því að maður er pínu háður henni.
Leigjandinn fluttur inn... svoltið skrítið að þurfa allt í einu að fara að sofa með lokað inn til sín. Og geta ekki labbað nakinn fram. En það hlýtur að venjast.
mánudagur, september 17, 2007
Bifhjólaprófið

glitter-graphics.com
Er búin að vera síðustu daga að læra undir bóklega bifhjólaprófið. Það er sama sagan núna og alltaf þegar ég er í skóla. Mér bara tekst engan veginn að halda mig að því að læra. Búin að gera næstum allt annað en að læra. Veit ekki hvað þetta er. Hélt kannski að þetta væri búið að eldast af mér.. en neibb... augljóslega ekki. Tókst þó að læra smá núna um helgina og fór svo í prófið í morgun. Og eins og prófdómarinn sagði "þetta próf er því staðið með ágætum". Þannig að ég er sátt. Hringdi svo í ökukennarann og á að heyra í honum aftur á miðvikudagsmorgun til að tékka á því hvort að við getum ekki hist þá um kvöldið. Annars er það laugardagurinn. Jájá þetta er allt að gerast. Þessi draumur er búinn að blunda í mér í mörg ár.. en sl tvö ár hefur hann verið að ágerast.
Sá það líka að ef ég léti þennan draum ekki rætast núna þá yrði það sennilega aldrei.
Þó að ég hafi verið að reyna að læra þá sleppti ég þó ekki ræktinni..hehe.. Tók vel á því um helgina líkt og síðustu helgi. Fæ útrásina mína þar...hmm...og félagsskapinn hehe.. þar sem ég hef ekki tíma til að hitta einn eða neinn fyrir utan allt það sem ég er að gera. Fór reyndar í heimsókn til Huldu vinkonu eftir ræktina einn daginn núna í vikunni. Hana vantaði smá andlegan stuðning... vildi bara að ég hefði meiri tíma til að eyða með vinum mínum. Hver veit hvað gerist.... kannski lengist sólarhringurinn...hmmm... þá hefði ég kannski meiri tíma.
Það gæti bara vel veið núna að ég sé að fara að leigja aukaherbergið út aftur. Ég er allavega búin að segja já við einstaklingi sem spurði. Nú er bara spurning hvort að viðkomandi hætti við. Þetta var meira bara svona skyndiákvörðun hjá okkur báðum um helgina þannig að ég ætla þó ekki að fullyrða að neitt verði af þessu.
Verða að viðurkenna að þetta hefur bæði kosti og galla. Kostirnir eru að ég verð þá kannski ekki alltaf ein... en ókostirnir eru að þá er ég ekki eins frjáls á mínu eigin heimili. Jæja.. það má allavega reyna. Spurning hvort að mér tekst að fá hann til að vera smá svona handyman...hehehe... er komin með smá hugmyndir í hausinn.... langar til að breyta og bæta... en treysti mér ekki alveg til þess svona ein.
Svo svona að lokum þá var ég að velta því fyrir mér hvort að einhver gæti verið svo góður að lána mér cd með Cascada og kannski líka 060606 Bubbadiskinn... 060606 diskurinn hans Kalla hefur nefnilega sennilega verið seldur með einhverjum af þessum blessuðum bílum sem búið er að selja.
föstudagur, september 14, 2007
mmmmmmmm
Your Kissing Technique Is: Perfect |
![]() Your kissing technique is amazing - and you know it. You have the confidence to make the first move. And you always seem to know what kissing style is going to work best. Sometimes you're passionate, sometimes you're a tease. And you're always amazing! |
sunnudagur, september 09, 2007
Hvernig á að fara í sturtu

glitter-graphics.com
Rakst á þetta á netinu .... hehehe .... og bara varð að setja það hérna inn:
HVERNIG Á AÐ FARA Í STURTU EINS OG KONA?
Farðu úr fötunum og raðaðu þeim í flokkaðar "óhreina-taus-körfur" Ein fyrir ljósan þvott, ein fyrir dökkan, ein fyrir hvítan, og ein fyrir sérstaklega viðkvæm efni.
Gakktu í átt að baðherberginu í síðum slopp. Ef að húsbóndinn sér til þín á leiðinni, mundu þá að hylja allt nakið hold og flýta þér inná baðherbergið.
Horfðu á sjálfan þig í speglinum, ýttu maganum fram og kvartaðu í smástund við sjálfa þig yfir því hvað þú ert að verða feit. Stígðu inn í sturtuna.
Athugaðu hvort að eftirfarandi sé ekki örugglega við hendina:
Andlits-þvottapokinn, handarkrika-þvottapokinn, fyrir-neðan-mitti-þvottapokinn, grófi nudd-þvottapokinn og siðast en ekki síst .. appelsínu-húðar-nudd-steinninn.
Þvoðu hárið einu sinni með Agúrku og Ginseng sjampóinu .. þessu sem inniheldur 83 nauðsynleg vítamín fyrir hárið.
Þvoðu hárið aftur með Agúrku og Ginseng sjampóinu .. þessu sem inniheldur 83 nauðsynleg vítamín fyrir hárið.
Notaðu Agúrgku/Ginseng næringuna .. þessari með viðbættu Burkna-olíunni og láttu standa í hárinu í 15 mínútur.
Þvoðu þér í framan með Aprikósu-skröbbinu í tíu mínútur .. eða sirka þangað til þig fer að svíða verulega.
Þvoðu restina af líkamanum með Ginger/Jaffa-Cake líkams-sápunni. Skolaðu næringuna úr hárinu í sirka 15 mínútur .. svo að örugglega öll afgangs næring hreinsist í burtu.
Ef að húsbóndinn sturtar niður, sem leiðir til þess að vatnið hjá þér hitnar í smástund, skaltu öskra brjálæðislega og kalla hann öllum illum nöfnum.
Skúfaðu fyrir sturtuna. Þurrkaðu upp alla bleytu í sturtunni. Notaðu Ajax sturtu sprey til að ná upp háglans á flísarnar. Ekki gleyma að athuga gólfið fyrir framan sturtuna og þurrka upp hvern einasta dropa.
Farðu úr sturtunni. Þurrkaðu þig með handklæði sem er á stærð við lítið Afríku ríki.
Pakkaðu hárinu inn í annað, extra rakadrægt, handklæði. Skoðaðu allan líkamann í leit að minnsta blett eða hári. Notaðu neglur eða flísatöng til að gera út af við það sem þú finnur.
Gakktu í átt að svefnherberginu í síðum slopp með handklæðið ennþá á höfðinu. Myndu að hylja allt nakið hold .. ef að húsbóndinn er nálægt.. og flýttu þér í átt að svefnherberginu. Ekki eyða undir hálftíma í að klæða þig!!!!
AÐ FARA Í STURTU EINS OG KARLMAÐUR!!!
Farðu úr fötunum, sitjandi á rúminu, og skildu þau eftir í hrúgu fyrir framan rúmið. Gakktu nakinn í átt að baðherberginu.
Skoðaðu karlmannlegt vaxtarlag þitt í speglinum og dragðu djúpt inn andann til að athuga hvort þú sért með "sixpakk" (sem þú ert ekki með.)
Farðu í sturtuna. Ekki hafa fyrir því að leita að þvottapoka ? ekki nota hann ef þú rekst á hann.
Þvoðu þér í framan, undir höndum og "vöðvann". Hlæðu kjánalega yfir því hvað það heyrist hátt þegar þú rekur við í sturtu. Notaðu sjampó í hárið en ekki nota næringu. Búði til móíkana-kamp með sjampóið í hárinu. Dragðu aðeins frá sturtuhengið til að sjá sjálfan þig í speglinum (tíhíhíhíhí).
Pissaðu (í sturtunni að sjálfsögðu). Skolaðu þig og farðu úr sturtunni. Ekki taka eftir vatninu á gólfinu (sem kom til af því að þú hafðir hengið fyrir utan sturtubotninn.)
Þurrkaðu þér lauslega. Horfðu á sjálfan þig í speglinum.
Ekki draga fyrir sturtuna, og skildu eftir blautt gólf. Ekki slökkva inná baði. Gakktu í átt að svefnherberginu með handklæðið um mittið.
Athugaðu hvort að nærbuxurnar séu blettóttar, ef ekki, farðu þá í þær. Taktu sundur sokkaparið á gólfinu. Brjóttu aðeins úr þeim, og farðu í þá. Farðu í nýjan bol, en vertu annars í sömu fötum og þú notaðir í gær.
mánudagur, september 03, 2007
Smalastelpan

glitter-graphics.com
Ég gerðist smalastelpa um helgina og skellti mér norður að smala. Geri aðrir betur. Gerði mér spes ferð bara í þessum tilgangi.
Lagði af stað, næstum því strax eftir vinnu. Þ.e. fór ekkert heim til mín í millitíðinni en þurfti smá að útrétta áður en ég lagði af stað.
Brunaði svo norður í... hmmmmm já... mígandi rigningu, vægast sagt. Hefði nú alveg verið til í örlítið betra veður. En maður lætur ekki "smá" rigningu aftra sér. Hafði reyndar meiri áhyggjur af myrkrinu þar sem ég var á eineygðum bíl. Frekar erfitt í myrkri og rigningu.
Kom við í Oddagötunni á leiðinni í Bárðardalinn. Bara svona rétt til að segja hæ samt. Maður þarf nú að vakna snemma þegar maður fer að smala.
Skelltum okkur öll í heiðina... pabbi, mamma, ég, Þura og Allan. Og ekki má nú gleyma Pjakki. Hann stóð sig eins og hetja.
Gekk reyndar frekar illa að smala í rigningu og þoku og við komum ekki með mikið af fé heim. Og það voru ekki nema þrjár ókunnugar skepnur hjá okkur sem við fórum með á réttina.
Það var svo réttað á sunnudagsmorgun. Mamma reyndar var heima þar sem hún þurfti að fara að vinna kl. 12. Þannig að við rétt náðum að hitta hana eftir réttakaffið áður en hún þurfti að fara í vinnuna. Pabbi skoðaði ljósin á bílnum mínum aðeins fyrir og komst að því að það var bara peran sem var farin.. en ekki eitthvað rafmagnsvesen eins og gaurarnir í Olís í Mjóddinni vildu halda fram. Þannig að ég kom við á Esso á Akureyri og fékk skipt um peru þar... og það tókst átakalaust.. eitthvað annað en á Olís.
Lagði svo bara snemma af stað suður aftur þar sem ég nennti ekki að vera á ferðinni í myrkri. Náði mér meira að segja í ferðafélaga á miðri leið. Og vorum við samferða alla leiðina hingað í Breiðholtið. Veit ekkert hver þetta var... bara bíll sem ég fylgdi alveg eftir... og hann var farinn að vinka í mig meira að segja...hehehe. Og þegar ég keyrði í smá hlikki (var smá að testa bílinn) þá fór hann að gera það líka... fyndið..tíhí.
Og nú er það bara ný vinnuvika. Ótrúlegt samt að það skuli vera kominn september.
Fór til læknis í morgun til að fá læknisvottorð fyrir ökuleyfið. Og skellti mér í passamynda-sjálfsala í leiðinni. OMG kom ekki vel út... en well... það er nú ekki eins og þessi mynd verði í ökuskírteininu mínu nema bara til 2047...hehe. Hún getur allavega ekki verið verri en sú sem er í núverandi ökuskírteininu mínu..hmm...það myndi örugglega enginn trúa því að þetta væri ég....

