mánudagur, maí 12, 2008
 
Gera klárt
Ég er að reyna að myndast við að gera klárt fyrir heimkomu prinsins. Það gengur nú samt frekar hægt þar sem það er nú ekki mikill tími aflögu hjá mér. Fékk kommóðu frá systkinum mömmu og þakka ég kærlega fyrir það. Settum hana saman strax og er ég búin að þrífa hana og gera klára fyrir fötin. Nú er bara að fara að setja fötin á sinn stað.
Fer á eftir og næ í vögguna til Grétars og Rögnu. Gína frænka ætlar að skutlast með mig. Hehe.. þetta er allt svaka púsl.
Er held ég að verða komin með allt sem ég nauðsynlega þarf áður en hann kemur heim. Svo er að sjálfsögðu fullt af atriðum sem mig vantar en ég get verið að redda mér smám saman eftir að gaurinn kemur heim.
Þetta er pínu farið að taka á mig. Var svo þreytt í gær að ég hélt að ég myndi líða útaf. Var komin með svima og allt... og rétt náði að taka verkjatöflu áður en ég fékk mígrenikast... var komin með fyrstu einkennin (er farin að þekkja þetta). Var sem betur fer með verkjatöflur (sem eru í lagi þó að ég sé með barn á brjósti) og náði að skella þeim í mig. Tókst að sofa vel á milli mjaltatíma í nótt. Svo að ég er mikið hressari í dag. Vona að það endist... þar sem ég verð á fullu í allan dag.. sýnist mér á öllu. Sé til hvort að ég reyni samt ekki bara að taka kvöldið fyrir mig. Well kemur í ljós bara.
Barnalandssíðan er læst en verið endilega óhrædd að óska eftir aðgangi.
miðvikudagur, maí 07, 2008
 
Barnalandssíða
Jæja nú er Steinn Hrannar kominn með síðu á barnalandi. Slóðin er http://steinnhrannar.barnaland.is/
 
Hellú


Sorry hvað það eru liðnir margir dagar síðan síðast. Deidi var vigtaður fyrir tveimur dögum og var þá orðinn 2658 gr. Þannig að hann er alveg að halda áfram að dafna vel þó að hann sé hættur á "Trölladuftinu". Hann verður þó vigtaður aftur í dag. Hann er einnig aðeins meira farinn að taka bæði brjóst og pela en það er þónokkuð í land ennþá.
Í gær fór Deidi svo í augnskoðun og komu þá í ljós einhverjar smávægilegar breytingar í augnbotnunum en það eru þó líkur á að þær breytingar eigi eftir að ganga til baka. Og þarf hann að fara í aðra skoðun eftir tvær vikur.
Það er nú ekki við því að búast að maður fái alltaf góðar fréttir, þó að það sé að sjálfsögðu það sem maður vill. Í gær kom í ljós að Deidi er kvitslitinn. Þetta er ekki mikið og er víst frekar algengt hjá fyrirburastrákum. Þetta verður lagað með smá aðgerð áður en hann útskrifast. Og er víst ekkert mikið mál... sennilega mest erfitt fyrir mömmuhjartað. Aðgerðin er víst ekki meira mál en það að hann ætti að geta farið heim strax daginn eftir aðgerðina. Þau á sjúkrahúsinu vilja því bíða með aðgerðina alveg fram undir það þegar hann er að fara að útskrifast.
Fyrir utan þetta er allt gott að frétta. Og höldum við bara áfram í okkar sömu rútínu og venjulega.
Ég þarf þó að fara að undirbúa eitthvað hérna heima því að það styttist í að Steinn Hrannar fari að koma heim. Ég á eiginlega bara eftir að gera...hmmm... ALLT
laugardagur, maí 03, 2008
 
Seinni lotan hafin


Steinn Hrannar var kominn yfir 10 merkurnar í gær (fyrradag) þegar hann var vigtaður. Hann vigtaðist 2548 grömm og mældist 46,5 cm. Hann er því hættur að fá blandaða mjólk... núna fær hann bara hreina móðurmjólkina. Og viti menn... honum tókst í fyrsta skipti í kvöld að drekka úr brjósti. Náði alveg 20 ml sem er bara nokkuð gott svona í byrjun. Full gjöf hjá honum er 57 ml á þriggja tíma fresti (miðað við síðustu vigtun). Nú er því bara að halda áfram á þessari braut og þá fer nú að styttast í seinni hlutann.
Núna fer samt sennilega að hægja aðeins á þyngdaraukningunni þar sem hann er hættur á "trölladuftinu". En ég trúi því samt að hann muni halda áfram að standa sig frábærlega.

Við viljum líka þakka allar frábæru kveðjurnar sem við höfum fengið hér inni. Hjálpar alveg ótrúlega við að halda andanum gangandi í gegnum þessa baráttu.
Knús á ykkur öll.
fimmtudagur, maí 01, 2008
 
Upplýsingaflæðið eitthvað lélegt


Gamla settið eitthvað farið að kvarta að ég sé ekki nógu dugleg að henda inn upplýsingum hér...hehe.
Kappinn vigtaðist 2466 grömm í gær. Er hann því alveg að detta inn í 10 marka markið. Gæti jafnvel hafa dottið inn í það í dag (gær þar sem þetta er skrifað eftir miðnætti) en hann verður þó ekki vigtaður fyrr en í fyrramálið. Þá er einnig baðdagur og lengd og höfuðmál tekið.
Þegar hann er kominn í 2500 grömm hættir hann að fá fæðubótaefni í mjólkina sína. Núna er hann líka að komast á það stig að hann eigi að vera fær um að drekka af brjósti. Auðvitað kemur það ekkert bara einn tveir og tíu.... hann vildi heldur ekki svara mér þegar ég var að reyna að fá hann til að samþykkja að við yrðum útskrifuð 16. maí. En er þögn ekki sama og samþykki???
Ég er þó farin að láta hann fá stærra snuð en hann hefur verið með hingað til. Hann hefur nefnilega ekki þurft að opna munninn neitt svakalega mikið til að grípa fyrirburasnuðið sem hann hefur verið með. Og því hefur hann heldur ekki verið neitt voða duglegur við að opna munninn þegar ég er að leggja hann á brjóst. Þannig að nú er bara að breyta því...mamma gamla bara þrjóskast við... hún er nú ekki naut fyrir ekki neitt.

Powered by Blogger