laugardagur, október 30, 2004
Litla-Hraun
Það er nú hægara sagt að fara í heimsókn á Litla-Hraun. Okkur hjónakornunum datt í hug að skella okkur í heimsókn til ákveðins aðila sem situr inni á Litla-Hrauni. Hringdum til að grennslast fyrir um heimsóknartíma. En þá er okkur sagt að fanginn þarf að sækja um að fá okkur í heimsókn. Við þurfum sem sagt að skilja eftir skilaboð til fangans, sem að svo hefur samband við okkur. Og svo getur hann sótt um heimsóknartíma. Eða þá að við hringjum í hann.... en það má ekki nema þrisvar í viku á milli kl. 18 og 21. Heimsóknartíminn er milli kl. 13 og 16:30, en maður þarf að vera mættur fyrir kl. 15:30 til að vera hleypt inn.
Sissi skildi reyndar eftir skilaboð. En hann ætlar samt að hringja í kvöld (fyrir kl. 21) þar sem laugardagskvöld er eitt af kvöldunum sem hægt er að hringja í fangana.
Þar sem að við fórum ekki í heimsókn á Litla-Hraun í dag (v/sjá að ofan) þá fórum við bara á bæjarþvæling. Skruppum í Kolaportið og keyptum harðfist og nammi. Tókum smá búðaráp og enduðum á Pítunni og fengum okkur að snæða.
fimmtudagur, október 28, 2004
Vinnuvikan senn á enda
Jæja nú er þessi vinnuvika að verða búin. Ekki nema einn vinnudagur eftir. Og ég er aftur komin í þessa rútínu að um leið og ein helgin er búin er ég farin að bíða eftir þeirri næstu. Það er samt alls ekki að það sé leiðinlegt í vinnunni. Það er eiginlega frekar að mér finnst ég alltaf vera þreytt. Þannig að ég bíð alltaf eftir næstu helgi svo að ég geti sofið út..... en svo sef ég aldrei nema í mesta lagi til 9 að hálf 10. Ég kannski kúri aðeins lengur en sef ekki. Það er frekar eins og ég bara virkilega geti ekki slakað nógu mikið á til að sofa þannig að ég hætti að vera þreytt. Er búin að vera að taka rautt eðalginseng. En er samt alltaf þreytt og ekki með neitt meiri orku. Ég veit samt að konur eiga frekar að taka inn hvítt eðalginseng. En ég veit bara ekkert hvort að það fæst í apótekum eða hvar maður gæti nálgast það.
Er að fá gest í mat. Súlí ætlar að borða með okkur. Svo ætla ég að reyna að kíkja á Freyju systir. Hún var nefnilega að kaupa sér skenk og vill endilega að ég komi og sjái. Til að koma skenknum fyrir þurfti að færa einhvern helling til í stofunni hjá henni. Ég vil samt ekki vera neitt voðalega seint á ferðinni. Hver veit nema að ég fái Súlí til að koma með mér. Ég veit að hún var að spá í að fá lánaðar einhverjar glósur hjá Freyju.
Það var alveg fljúgandi hálka í morgun.... ég sá hana þegar ég horfði upp í himininn...hehehe. Hefði gjarnan viljað að bíllinn væri kominn á vetrardekkin. Þó að ég hefði stoppað áður en ég keyrði út af planinu hérna fyrir utan, þá ætlaði ég varla að ná beygjunni (sem ég tók um leið og ég tók af stað aftur). Ég bara rann til. Og svo þegar ég var að keyra Skeiðarvoginn, þá var ekki búið að salta þar og frekar lítil umferð, þannig að þó að ég keyrði bara á 30 þá bara rann ég út og suður. Tókst nú samt að halda bílnum á veginum og meira að segja á réttri akrein. Þannig að allt fór nú vel. Sissi var samt heppinn að Galantinn er kominn á vetrardekkin. Held jafnvel að Sissi ætli að skella vetrardekkjunum undir Legacyinn í kvöld.
mánudagur, október 25, 2004
Drengur fæddur
Ég var að fá þær fréttir að Járnbrá og Pétur hefðu eignast son. Drengurinn fæddist þann 21. okt rétt fyrir miðnætti. Og var hann tæpar 10 merkur og 48 cm.
Óskum við fjölskyldunni allri innilega til hamingju með drenginn.
sunnudagur, október 24, 2004
Tíminn flýgur
Það er rosalegt hvað helgarnar fljúga alltaf frá manni. Maður varla tekur eftir að helgin sé byrjuð þegar hún er búin. Það sem verra er, er að þessi mánuður er alveg að verða búinn líka....og hann sem var rétt að byrja. Ekki það að það er ágætt að fá útborgað og svona. Þannig að ég er ekkert að kvarta yfir því. Svo er líka Hrekkjavakan
alveg að koma. En það sem mér finnst eiginlega verst....það er hvað það er stutt til jóla. Nú er ég alveg svakalegt jólabarn þannig að mér finnst jólin sem slíka mjög skemmtilegur tími.... en ég skil ekki hvað það er orðið stutt á milli jólanna
. Er ekki alltaf sagt að tíminn líði hraðar þegar maður er fullorðinn....ég reikna því með að ég sé fullorðin. Mér líður bara ekkert eins og ég sé fullorðin. Ég er bara litla saklausa 18 ára sveitastelpan
, svona í huganum allavega. (Fór allt í einu að spá..... ég var kannski ekkert svo saklaus þegar ég var 18 ára...hmmmmmm. Það var nefnilega þá sem ég byrjaði með Sissa. Og hann segir að ég sé hvorki saklaus né sveita lengur....nema náttúrulega að hann hafi spillt mér.....hehehehehe).laugardagur, október 23, 2004
Vinnudjamm og matarboð
Ég er búin að vera voða bissí alla vikuna. Nóg að gera í nuddinu og ótrúlegt en satt.... engin forföll. Ég bjóst alveg við því að það yrðu einhver forföll því ég var búin að fullbóka vikuna með svo miklum fyrirvara og svo er búin að vera að ganga einhver pest.
Svo var bara hörku vinnudjamm í gærkvöldi. Bjórkvöld hjá Símamönnum. Var reyndar aðeins misheppnað en ef að maður er ákveðinn í að skemmta sér þá bara skemmtir maður sér. Þannig að mér fannt allavega mjög gaman. Fékk reyndar hálfgert áfall þegar ég sá að það var Geirmundur sem var að spila......ekki kannski alveg svona það sem við "unga" fólkið hefðum helst kosið.... en ég allavega skellti mér á dansgólfið með hinum gormunum úr þjónustuverinu. Við látum ekkert aftra okkur í að hafa það skemmtilegt.
Mér finnst alveg nauðsynlegt að hafa svona vinnudjamm reglulega. Það heldur fólkinu nánu. Og svo er svo mikið af nýju fólki sem að maður kynnist ekkert almennilega fyrr en maður djammar smá með því.
Við Sissi fórum reyndar heim rétt um miðnætti.... en þá vorum við samt búin að vera í nokkra klukkutíma.
Þegar heim var komið, komum við okkur fyrir í sófanum og skelltum einni mynd í tækið....The day after tomorrow. Sissi sofnaði yfir henni, en hann var líka búinn að sjá hana.
Einar og Ása buðu okkur í humar í kvöld. Erum tiltölulega ný komin heim. Þetta var held ég í fyrsta skipti sem að ég borða humar. Hef samt borðað humarsúpu oftar en einu sinni. Þetta var bara mjög gott hjá honum Einari. Hann steikti humarinn upp úr smjöri og kryddaði með allskonar hvítlaukskryddi og svo borðuðum við ristað brauð og graflaxsósu með. Þau hin fengu sér hvítvín með matnum en drykkvanda Gulla var bara í kókinu. Það er sennilega frekar erfitt að bjóða mér í mat...hehehe....það er allavega oftast eitthvað sem ég borða ekki. Í þessu tilviki var það eftirrétturinn sem var mygluostar og vínber. Ég borða nefnilega hvorugt. Þannig að það var bara sett nammi í skál handa mér....hin fengu að sjálfsögðu líka nammi...hehehehe.... það var ekki bara handa mér þó að það hafi verið mér að kenna að það var sett á borðið.
þriðjudagur, október 19, 2004
Kuldaboli
Jæja nú get ég ekki neitað því lengur.... veturinn er kominn. Og kuldaboli, í öllu sínu veldi, er farinn að bíta mig í nefið og kinnarnar á morgnana. Það hefur samt ekki verið neitt svo svakalega kalt...svona á hitamæli séð. En blessaður vindurinn hefur svoltið sett strik í reikninginn. Það er sem ég hef alltaf sagt... 2ja stiga frost í Reykjavík er mun kaldara en 2ja siga frost í Bárðardal. Það hefur að vísu sennilega snjóað meira á norðurlandinu en hérna í höfðuborginni. En þar kemur líka annað sem ég hef alltaf sagt.... það er ekkert athugavert við snjóinn, ég bara þoli ekki þetta blessaða slabb sem alltaf kemur hérna fyrir sunnan. Það hefur sem betur fer ekki komið neitt slabb ennþá. En snjórinn kom með miklum látum á sunnudaginn. Og ég held að það hafi ekki farið framhjá neinum.
Sissi sýndi meistaratakta þegar hann eldaði fyrir okkur hrefnukjöt á laugardagskvöldið. Ég er bara ekki frá því að þetta hafi verið í fyrsta skipti sem ég bragða á slíku. Bara alveg ljómandi gott. Gæti alveg hugsað mér að borða svoleiðis aftur. Og við magnið var það mikið að við buðum Hjalta, vini hans Sissa, að koma og borða með okkur.
Ég held að ég sé svakaleg mannafæla. Við Sissi fórum í Ikea á sunnudaginn og ég var að klikkast. Það var svo mikið af fólki. Og ég bara höndla það ekki að vera í búðum þegar það er svona mikið af fólki. Ég veit ekki hvað það er.... ég bara verð pirruð og þreytt. Ekki það að ég sé mikil búðamanneskja yfir höfuð... en í svona tilfellum verð ég mjög fráhverf búðarápi. Og til að bæta okkur þetta upp skuppum við í Kolaportið og keyptum okkur harðfisk....ummmmmmm.

miðvikudagur, október 13, 2004
Kisustrákurinn farinn
Kisustrákurinn var sóttur í gær. Eigandinn sá auglýsinguna okkar og var voða happy að fá Sesar sinn aftur. Mér finnst nú samt nafnið Dúri Lúri eiga betur við hann.....hehehe.... hann er nefnilega svo svakalega forvitinn. Ég átti semsagt bók sem heitir "Dúri Lúri forvitinn köttur" þegar ég var lítil. Ég held nú jafnvel að Lúlla sakni kisustráksins svoltið. Þau voru nefnilega rétt byrjuð að leika sér saman... auðvitað heyrðist af og til smá urr en það var yfirleitt ekki nema ef að kisa nennti ekki að leika meira.
Nú fer vinnan hjá mér að verða nokkuð eðlileg aftur. Er búin að vera að nudda svo mikið í vinnunni undanfarið. Það fóru alveg 3 dagar í síðustu viku í að nudda Símastarfsmenn. Og svo vorum við að nudda í gær milli kl. 8 og 9 og svo aftur milli kl. 17 og 19. Þetta gekk bara vel hjá okkur (Kristján í Kringlunni, Anna Bogga í Rekstri og þjónustu, Berglind í Gagnadeildinni og svo ég) og höfum við fengið mjög góðar viðtökur. Létum setja smá könnun á innranetið í vinnunni og eru rúmlega 90%, þeirra sem hafa svarað, sem vilja fá nudd reglulega í vinnunni.
Svo er hellingur að gera hjá mér í nuddinu. Ég er þegar orðin fullbókuð út næstu viku....auðvitað geta alltaf orðið einhverjar breytingar.
sunnudagur, október 10, 2004
Helgarrúnturinn
Fórum sunnudagsrúntinn í gær, laugardag....hehehe... við verðum nú að vera svoltið öðruvísi en aðrir. Það var samt eiginlega meira svona skyndiákvörðun að skreppa á rúntinn. Fórum á Þorlákshöfn, Eyrarbakka og Stokkseyri. Þegar við vorum komin á Stokkseyri þá sáum við auglýsingu fyrir Draugasetrið. Og að sjálfsögðu varð drauga/hryllings-dýrkandinn hann Sissi að kíkja á það......og ég bara elti. En þetta var samt mjög gaman.
Draugasetrið var allt öðruvísi en ég bjóst við í upphafi....reyndar frekar dýrt inn. Það kostar nefnilega kr. 1.400,- á manninn. En þetta er samt alveg prógram. Þú færð ferðageislaspilara til að hlusta á 24 draugasögur samhliða því sem að þú gengur í gegnum setrið. Í setrinu eru merktir 24 staðir sem passa við sögurnar. Hefði verið allt í lagi að hafa aðeins meira af hrekkjum en þetta var samt gaman. Sumar sögurnar kannaðist maður við eins og t.d. "Djákninn á Myrká" en svo voru líka sögur sem ég hafði aldrei heyrt.
föstudagur, október 08, 2004
Fundum lítinn kisustrák
Í fyrradag fundum við Sissi lítinn kisustrák. Hann var veinandi fyrir utan blokkina okkar eitt kvöldið (það var reyndar komið fram yfir miðnætti). Það var svo kalt úti og hann var búinn að vera í svoltinn tíma þegar Sissi fór út og náði í greyið. Hann er (eins og sést á myndinni) svartur með hvítar loppur og hvítt á bringunni og sennilega eitthvað í kringum 6 mánaða. Ótrúlegt hvað hann unir sér vel hjá okkur. Lúlla kisa er nú samt ekki alveg sátt við litla dýrið. En nú er vonandi að einhver svari auglýsingunni um hann. Það hlýtur einhver að eiga greyið. Hann er greinilega ekki villiköttur.... byrjar að mala um leið og maður snertir hann. Við allavega getum ekki verið með 2 ketti... mér finnst það allavega ekki. Þó að ég sé voðalega veik fyrir svona miklum krúttum þá veit ég samt að þetta gengur ekki.
"Nýr" bíll
Keyptum okkur nýjan bíl í vikunni. Að sjálfsögðu ekki nýjan nýjan.... en hann er nýr hjá okkur. Subaru legacy station "96 (myndin er ekki af okkar bíl).
Það var eiginlega orðið nauðsynlegt fyrir okkur að kaupa bíl sem við getum treyst. Alveg ómögulegt að vera á bílum sem aldrei eru í lagi. Höfum ekki keypt almennilegan bíl síðan við keyptum Lancerinn okkar. Nú er það svo bara að gera við Galantinn og selja Coltinn. Þegar það er komið erum við í þokkalegum bílamálum.
mánudagur, október 04, 2004
Smalamennska
Fórum norður á föstudaginn. Vorum að fara í sérstaka smalaferð. Tókum Freyju með okkur. Komumst reyndar ekki af stað fyrr en langt gengin í 9 á föstudagskvöldið og vorum því mjög seint á ferðinni. Og að sjálfsögðu var farið að kjafta þegar við komum á leiðarenda og því farið mjög seint að sofa. Laugardagurinn var svo tekinn tímanlega.... ekkert of tímanlega samt þar sem flestir voru frekar úldnir eftir lítinn svefn. Brunuðum við í heiðina "með bros á vör". Við svosem reiknuðum ekkert með að heiðin væri full af fé. En það kom okkur samt á óvart að við enduðum bara í skemmtiferð. Við rúntuðum út og suður... meira að segja slóð austan við Engivatn (þar sem við veiðum silunginn okkar) sem pabbi hafði ekki einu sinni farið áður. Stoppuðum í Brenniási (tóftunum) og snæddum hluta af nestinu okkar, snúða, muffins og heitt kakó, þar í sæmilegu skjóli í hesthúsinu. Ótrúlegt hvað haustlitirnir eru svakalega rauðir þetta árið. Þá erum við sko að tala um RAUTT. Ég held að ég hafi bara aldrei séð heiðina svona svakalega rauða.
Það var svo ekki fyrr en við vorum komin innan girðingar heima að við rákum kindur. Það voru samt að sjálfsögðu nokkrar rollur sem þurftu svoltið að stríða okkur. Það eru nú heldur engar smalamennskur ef að maður þarf ekki eitthvað aðeins að reyna að hlaupa í veg fyrir einhverjar kindur. En allt gekk vel að lokum og runnu kindurnar alveg ótrúlega vel inn í húsin....ekkert vesen þar.
Það var nú gaman að skoða lömbin, og fann ég allavega eina ásetningsgimbur handa mér...hehehehe. Pabbi andvarpaði eitthvað þegar ég sagði að hún ætti að vera ásetningur en ég held að það hafi bara verið í nösunum á honum. Hann hefur gaman af því að setja á flekkóttar gimbrar sem dætur hans eiga...hehehe.
Að sjálfsögðu var ég mjög aum í hálsinum á sunnudaginn.... það fylgir nú bara smalamennskum. Mamma sagði reyndar að ég hefið ekki þagnað í klukkutíma, frá því að við Freyja byrjuðum að reka niður úr efsta hólfinu og þangað til við vorum búin að reka inn...... en ég meina... það er ekki eins og skepnurnar hlaupi af stað ef að maður labbar bara þegjandi um túnin. Svo er nú ekki eins og maður hafi alltaf afsökun fyrir því að fá útrás með því að öskra...hehehehehe.
Við brunuðum svo aftur í borgina í rokinu í gærkvöldi. Og er ég mjög ánægð með vel heppnaða helgi.
Afmælisbarn dagsins
Afmælisbarn dagsins er hún Sveinlaug. Hún er 26 ára í dag þessi elska. Ég söng....eða byrjaði allavega á afmælissöngnum fyrir hana í vinnunni í dag. Þar sem ég er frekar feimin þá þorði ég ekki að syngja meira. En hún fékk þó allavega smjörþefinn af afmælissöngnum í vinnunni.... það er fyrir öllu. Vona ég að hún hafi átt notalega kvöldstund eftir vinnu. Og vonandi ekkert voðalega slæman dag í vinnunni. Til hamingju Sveinlaug mín.
