þriðjudagur, maí 31, 2005
 
Sissi sæti
Já hann Sissi minn er stundum svoltið sætur í sér. Í gær færði hann mér blóm og bók sem heitir:"1000 ástæður hamingju og gleði". Ég er bara rétt að byrja að fletta í gegnum hana. En mér líst mjög vel á það sem ég er búin að lesa.
mánudagur, maí 30, 2005
 
Ekki að standa mig
Nú bara verð ég að segja eitthvað. Hef ekki bloggað í rétt tæpa viku.

Það er svosem ekki mikið að gerast þessa dagana. Maður bara vinnur eins og svín og nuddar fram á kvöld.
Á fimmtudagskvöldið fór ég að vísu á BIG-þing....einu sinni enn. Þetta átti bara að vera stuttur og góður fundur...en nei... fundurinn byrjaði kl. 19:30 og var ekki búinn fyrr en kl. 23:15. Geri aðrir betur. Og ekki nóg með það heldur verður aukaþing í haust. Og að sjálfsögðu þarf ég að mæta á það.
En það góða við BIG er nú samt að við, græðarar, erum búin að fá viðurkenningu. Nú er bara að koma upp skráningarkerfinu og finna tryggingafélag sem er tilbúið að búa til góða tryggingu handa okkur...á viðráðanlegu verði. Og þá erum við orðin tiltölulega sátt. Og ekki er nú verra að fá niðurfellingu á virðisaukaskattinum.

Fór í sólbað á laugardaginn. Sat bara út á svölum og sleikti sólina. Varð reyndar svoltið rauð. Sissi vildi meina að ég væri í stíl við ferskjulita bolinn minn. En ég segi að hann hafi bara verið að bulla.... ég var bara svoltið frískleg.
Svo þegar ég var orðin leið á að vera í sólbaði fór ég í hina gerðina af baði.... lá í bleyti í c.a. 90 mín. Það var voðalega þægilegt... notaði baðolíu og allt. Voða næs. Svona á maður að gera þegar maður er einn heima og vill láta sér líða vel.

Sunnudagurinn var svoltið frábrugðinn venjulegum sunnudögum hjá mér. Ég að vísu byrjaði á að sinna smá heimilisstörfum en um kl. 15:30 fór ég til hennar Ingu minnar. Var aðeins að ljá henni hendur við eldamennsku. Og svo hófst stofnfundur nýja saumaklúbbsins okkar.
Fengum þetta líka fína ostafyllta lambalæri. Og fullt af góðu meðlæti. Settumst svo í betri stofuna og spjölluðum. Ég reyndar dvaldi örlítið lengur en hinar stelpurnar og héldum við Inga áfram að spjalla fram undir háttatíma.
Þegar ég kom svo heim þá lá Sissi minn í sófanum og var að horfa á sjónvarpið. Ég settist niður hjá honum og kúrðum við okkur saman meðan við horfðum á CSI. Hefði að vísu mátt fara aðeins fyrr að sofa en það er svosem ekkert nýtt.
þriðjudagur, maí 24, 2005
 
Brúðkaupsafmæli
Við Sissi áttum 7 ára brúðkaupsafmæli í gær. Einhverstaðar las ég að það héti Kopar.
Ég fór strax eftir vinnu og keypti 4 dvd myndir til að gefa Sissa í tilefni dagsins....að sjálfsögðu keypti ég eitthvað sem ég gat notið líka...hehehehe. Fór svo í vinnuna til Sissa (Margt smátt - Bolur) og færði honum gjöfina.
Við slökuðum svo á heima í smá tíma áður en við fórum út að borða. Við ætluðum að fara á Pottinn og pönnuna en það var svo fullt að við ákváðum að fara frekar á Asíu. Þegar við svo vorum búin að finna bílastæði á Laugaveginum og vorum á leiðinni á Asíu gengum við fram hjá Sjanghæ. Tókum þá skyndiákvörðun að prufa þann stað þar sem við höfðum aldrei farið þangað áður.
Ég varð fyrir smá vonbrigðum með matinn, en ég get þó allavega sagt að ég hafi prufað þennan stað.
Eftir matinn fórum við svo í Ísbúðina í Skeifunni...það getur varla verið að Gullu litlu hafi langað í ís. Tókum ísinn með okkur heim og settum mynd í spilarann.
Þetta var mjög þægilegt og rólegt kvöld.... hefðum sennilega gert eitthvað meira hefði ekki verið virkur dagur. En ég naut allavega þess sem við gerðum.
sunnudagur, maí 22, 2005
 
Furðufugl
Ég vissi að ég væri hálfgerður furðufugl en ég áttaði mig á því í morgun að það er kannski ekki bara hálfgerður. Ég stóð mig að því í morgun að vera byrjuð að þrífa inni á baði meðan ég var ennþá bara á nærbuxunum.
Ég var bara að fara á fætur og var að fara að byrja á morgunverkunum... þvo mér í framan og svona... þá sá ég hvað vaskurinn var óhreinn. Og fyrst ég var byrjuð á vaskinum tók ég baðið og klósettið í leiðinni. Og þar sem ég bograði yfir baðinu fattaði ég að ég var ekki ennþá búin að klæða mig. Kláraði samt að þrífa inni á baði fyrst að ég var byrjuð og fór svo og klæddi mig.
Þegar ég ætlaði svo að fá mér eitthvað að borða mundi ég að það var ekkert til að borða. Labbaði því út í búð og keypti eitthvað til að fá mér. Fékk mér svo morgun-/hádegismat áður en ég missti mig alveg í því að laga til.
En ég meina... ég óhreinka ekki fötin mín ef ég er ekki í þeim þegar ég er að þrífa.
 
Afmæli
Fór í gærkvöldi í afmælis-grillpartý til Jóa Dan. Hann varð 25 ára,20. maí, litli snáðinn. Til hamingju Jói minn.
Eyddi svo deginum í dag í að þvælast í Kringlunni til að reyna að finna mér eitthvað í afmælisgjöf. Keypti tvo boli í Next fyrir hluta af gjafabréfinu frá Sissa og fór svo í Ice in a bucket og keypti mér hálsfesti fyrir hluta að peningnum frá tengdó.
Fór svo í afmælis-evróvisjónpartýið hennar Betu bestaskinn. Hún varð 30 ára stúlkan (þetta var víst í gær... miðað við dagsetningu). Hörku stuð og læti. Til hamingju með daginn dúllan mín. Verst finnst mér bara að núna anga ég eins og reykhús.
Ég var nú ekki alveg sátt við lagið sem vann, en ég ætla ekki að gráta Björn bónda.
miðvikudagur, maí 18, 2005
 
Hvítasunnan
Fórum norður um helgina. Ég var eins og litlu krakkarnir... orðin svakalega spennt... á föstudaginn og gat varla hamið mig í vinnunni. Við höfðum nefnilega ekki farið norður síðan um jólin.
Lögðum reyndar ekki af stað eins snemma og ég hafði vonað en föstudagskvöld er betra en laugardagsmorgun.
Brunuðum til Akureyrar og stoppuðum þar í nokkra tíma. Héldum svo áfram um kl. 2 um nóttina og fórum heim í sveit.
Sissi fór svo aftur til Akureyrar á laugardaginn en ég setti upp smá snyrtistofu í eldhúsinu í Lyngholti. Litaði hárið á mömmu og setti í hana strípur. Setti svo strípur í Þuru, systir, með afganginum af strípulitnum. Lét pabba reyndar um það að klippa mömmu. Litaði svo augabrúnir og augnhár á mömmu og augabrúnir á Þuru.
Meðan beðið var með lit í hári var skellt í tvær eplakökur....stóðum okkur vel mæðgurnar.
Ég sá svo um kvöldmatinn og stóð mig vel við grillið. Kartöflur, lambalundir og lambasneiðar voru, meira að segja, kryddaðar að hætti Gullu. Borðuðum á okkur gat en fengum okkur samt ís í eftirrétt.
Sunnudagurinn gladdi einnig magann. Hangikjöt í hádeginum, afmæliskaffi um miðdaginn (héldum upp á afmælið mitt á sunnudaginn þó að ég ætti ekki afmæli fyrr en á mánudaginn). Súlí kom í kaffið og var mikið gaman og mikið grín að vanda þegar við erum saman. Þegar við vorum búin að troða vel í okkur af kökum pökkuðum við saman fylgihlutunum okkar og kvöddum sveitina (næstum því með tárum). Fórum til tengdó á Akureyri og fengum þar grillaðar gæsabringur og læri. Það var sama sagan og kvöldið áður.... þó étið væri á sig gat var samt fyllt upp í með ís.
Afmælisdagurinn minn rann svo upp með sól í heiði. Sissi bauð mér út að borða á Greifanum í hádeginu. Rúntuðum svo og rúntuðum. Kíktum í jólahúsið (og komumst að því að 16. maí voru 222 dagar til jóla) ... sem er búið að breyta alveg helling síðan ég kom þar síðast... og Vín. Héldum svo áfram inn í fjörðinn og fórum yfir brúna hjá Hríshóli. Þegar við komum aftur til Akureyrar fórum við í Brynju og fengum okkur ís. Það var svo ekki fyrr en rétt fyrir kl. 21 sem við lögðum af stað til Reykjavíkur.
Í afmælisgjöf fékk ég: armband frá pabba, mömmu og Þuru, 10.000,- kr gjafabréf í Next frá Sissa, kr. 3.000,- frá tengdamömmu og fjölskyldu, Happy Bathtime gel og olíu frá Súlí og Magga og ilmolíu og kertastjaka frá Jóa Dan. (Ég vona að ég sé ekki að gleyma neinu... en ef svo er kenni ég elliglöpum um) Einnig fékk ég fullt af afmæliskveðjum (símtöl og sms) og vil ég þakka kærlega fyrir þetta allt.
Skólastjóri Framhaldsskólans á Laugum kom í heimsókn til mömmu á laugardaginn og sagði svoltið sem ég verð að taka fram hérna. Hún var að spyrja mig hvað ég væri að verða gömul (það var búið að segja að ég væri að fara að eiga afmæli). Þegar ég segi svo að ég væri að verða 28 þá var hún hissa á svipinn og sagði:" Ég hefði haldið að þú værir bara 22, þú ert svo ungleg". Ekki slæmt að fá svona í veganesti þegar maður er að byrja 29. aldursárið.
mánudagur, maí 09, 2005
 
Tilraun
Við Linda vorum að gera smá tilraun á hárinu á mér í dag. Ég er því núna aðeins búin að skipta um háralit.....ekki mikið en það er kominn annar blær.
Um að gera að breyta smá til.... taka lítil skref í einu samt. Það er þá bara hægt að lita yfir þetta ef þetta fer mér engan vegin. Það er nú ekki seinna vænna ef ég ætla að breyta eitthvað smá til áður en ég verð árinu eldri. Best að vera ekkert að nefna það hversu gömul ég verð. Þeir vita það sem þekkja mig....hehehe. Skelli niðurtalningunni minni aftur inn hérna. Kannski pabba finnist það ekki of snemmt núna að telja niður.

Ég er búin að vera frekar pirruð í vinnunni undanfarna daga. Er að reyna að rífa mig upp úr pirrinu. Ég var eitthvað að mikla fyrir mér hvað ég hafði mikið að gera. En mér leiðist þá allavega ekki á meðan. Og dagurinn er frekar fljótur að líða þegar maður er á kafi í vinnu. Þannig að það er best að horfa bara á jákvæðu hliðarnar.


sunnudagur, maí 08, 2005
 
Síðasta vika
Síðasta vika var svolítið sérstök. Mánudag og þriðjudag var ég á trúnaðarmannanámskeiði . Mjög gagnlegt námskeið. Hefði viljað að það hefði verið fyrr.... þ.e. að mér hefði boðist að fara á þetta námskeið strax eftir að ég varð trúnaðarmaður.
Var svo í vinnunni á miðvikudag. Það er MJÖG mikið að gera hjá mér í vinnunni núna . Hefði getað unnið eins lengi og ég vildi hefði ég ekki verið að fara að nudda strax eftir vinnu.
Rosalega var nú gott að eiga frí á fimmtudaginn. Fór í hádeginu og náði í Þuruna mína á flugvöllinn. Notuðum daginn í að vera bara saman.
Byrjuðum á að kíkja á Sissa sem var að keppa....stjórna keppni. Á heimleiðinni stoppuðum við í Krónunni og keyptum smá í matinn. Svo þegar við vorum búnar að ganga frá matnum og búnar að fá okkur smá næringu ákváðum við að skreppa út í góða veðrið. Löbbuðum niður í Elliðaárdal. Löbbuðum reyndar aðeins lengra en við höfðum ætlað en það var nú bara gaman. Vorum alveg tvo tíma á röltinu.
Sissa fannst við eitthvað hálf eymdarlegar þegar við komum heim......alveg búnar á því. Freyja kíkti svo á okkur og borðuðum við saman þrjár systurnar og spjölluðum saman fram eftir kvöldi. Þura reyndar fór á rúntinn með einhverju vini sínum og náði ég í hana aðeins fyrir kl. 23.
Á föstudaginn kom Þura með mér í vinnuna og var bara að læra á meðan ég var að vinna. Og ég vann rúmlega einn og hálfan tíma aukalega. Þura var nú reyndar farin að verða svolítið óþolinmóð þegar við loksins komum okkur út.
Brunuðum beint í Bónus og versluðum slatta. Ég keypti mér meira að segja skó. Úr Bónus fórum við svo í Smáralindina þar sem við eyddum u.þ.b. 1.5 klst. Þura keypti sér buxur og eitthvað fleira. Kvöldið var svo bara rólegt.
Á laugardaginn var Sissi aftur að keppa. Við Þura kíktum smá á hann en fórum svo í Kringluna, þar sem Freyja hitti okkur. Eftir góðan tíma í búðarápi yfirgaf ég þær systur mínar. Skellti mér í helgarþrifin og undirbjó fræknukvöld. Það var frekar léleg mæting í frænkukvöldið og vorum það bara Magga (systir mömmu), Karitas (ömmustelpan hennar Möggu) og Erna (dóttir Bylgju, systir mömmu) sem mættu, fyrir utan okkur systurnar þrjár. Þura fór svo heim með Freyju en ég var svaka dugleg og þvoði upp og gekk frá eftir kvöldið.
Morguninn í morgun var svo tekinn í smá afslöppun. Settist út á svalir, í sólina, með lesefni . Var nú reyndar ekki lengi úti á svölum því að það kom stórt ský og faldi sólina.
Milli kl. 14 og 15 fór ég svo í Smáralindina til að hitta Þuru, Freyju og Snorra. Rápuðum þar á milli búða þar til fengum alveg nóg og fórum þá heim til Freyju og Snorra. Þau buðu ís.... sem maður slær að sjálfsögðu ekki hendinni á móti. Slökuðum svo á í dálítinn tíma þar til tími var kominn til að fara með Þuru á flugvöllinn. Stúlkan er nefnilega að fara í próf í fyrramálið.
Fór ég svo beint, af flugvellinum, á verkstæðið til Sissa og borðuðum við þar. Sissi keypti 1944 rétti handa okkur.
Eftir matinn er ég svo búin að horfa smá á sjónvarpið, pússa neglurnar (svo að ég klóri ekki nuddþegana mína í vikunni) sinna smá þvottamálum og dunda mér í tölvunni.
Vantar samt að láta einhvern kenna mér að kópera cd sem er með kóperunarvörn. Vil nefnilega bara hafa kóperaða diska í bílnum.

Og svona að lokum ... Mamma til hamingju með mæðradaginn
sunnudagur, maí 01, 2005
 
Helgaryfirlit
Á föstudaginn vann ég lengur eins og flesta föstudaga. Þegar ég svo kom heim var ég eignlega alveg búin á því. Tók mig samt taki og reyndi að skipta yfir í djammgírinn. Þegar ég var búin að gera mig "sæta" fór ég til Thelmu þar sem hún, Auður Guðmunds og Linda Fred voru að leggja síðustu hönd á útlit kvöldsins. Brunuðum við svo á súbbanum mínum fína á Laugarveginn og skelltum okkur á Sony Ericsson kynningu. Ég verð nú að segja fyrir mig að mér fannst kynningin í fyrra betri. En að sjálfsögðu er fullt af nýju flottu dóti að koma á markaðinn frá þeim.... og að sjálfsögðu sá ég síma sem mig langar í. Ekki það að Sissi gaf mér Sony Ericsson síma í afmælisgjöf í fyrra þannig að ég er nú ekkert að fara að plata hann til að gefa mér nýjan, þetta árið.
Eftir kynninguna voru tvær rútur sem fluttu djammarana á Gaukinn. Þar sem ég var á bíl fór ég að sjálfsögðu á honum og urðu gellurnar mínar, þær Linda, Thelma og Auður, mér samferða.
Það var rosa stuð á Gauknum og bættist hún Beta í hópinn, en hún hafði verið í afmæli um kvöldið. Ég verð nú samt að viðurkenna að mér fannst svoltið mikið af "börnum" þarna. Það gæti nú samt verið út af því að mér finnst ég ekkert gömul og flesti sem eru undir 25 eru bara "börn".
Ég stoppaði nú samt ekkert svakalega lengi á Gauknum. Skutlaði reyndar einum Símamanni upp í Grafavog "í leiðinni".
Þegar ég kom heim þá var Sissi ennþá niðri í geymslu að taka sig til fyrir keppnina sem var í gær. Og þó svo að það hefði verið ég sem var að djamma en ekki hann, þá var það ég sem fór á undan að sofa.
Ég kíkti smá á keppnina hjá Sissa í gær, en það var svo kalt að ég entist ekki til að horfa á alla keppnina. Það er svona að vera með útikeppnir meðan ennþá er ekki orðið almennilega hlýtt. Sissi var í 1. sæti í sínum flokk og er því búinn að tryggja sér sigurinn í Tómstundahússmótaröðinni.
Fórum í Skífuna og keyptum nokkrar dvd myndir. Keyptum svo ís í ísbúðinni í Skeifunni og tókum bílasölurúnt meðan við vorum að borða ísinn.
Skelltum svo einni nýju myndinni í dvd-spilarann og horfðum.....eða Sissi horfði allavega ég sofnaði þegar myndin var rétt byrjuð.
Í dag er ég svo búin að vera að þrífa. Tók helgarþrifin í dag og átti einnig sameignina þannig að ég skellti mér bara í það í að þrífa hana í leiðinni. Fór meira að segja niður í ruslið og skipti um tunnu....mér finnst það nú samt vera Sissa hlutverk. En þar sem ég nennti ekki að vera ósjálfbjarga kerling, og bíða eftir að Sissi kæmi heim, sá ég bara um þetta sjálf og skilaði svo sameigninni af mér.

Powered by Blogger