miðvikudagur, apríl 26, 2006
Hvað ef...?
Var að hugsa aðeins til baka. Og er búin að vera að hugsa um hvað hlutirnir gætu verið öðruvísi ef maður hefði gert hitt í staðinn fyrir þetta. Og ef ákveðnir hlutir hefðu ekki gerst.
Ég er samt ekki að segja að hlutirnir væru neitt betri sko. Bara svona meira skrítið að hugsa til þetta að eitthvað annað hefði geta orðið. En ég held samt að ég sé bara að hugsa of mikið.
Er líka búin að vera í einhverju eirðarleysi þessa vikuna. Kannski bara skrítið að vera orðin ein aftur eftir að hafa verið með gesti alla helgina.
Ég er allavega á einhverju tímabili núna, þar sem ég get ekki beðið eftir sumarfríinu mínu. En það er nú ekki eins og maður geti kvartað með alla þessa frídaga síðustu vikur. Og svo að sjálfsögðu frí á mánudaginn næsta. Langar bara eitthvað að kúpla mig út úr þessari venjulegu rútínu. En þetta er kannski að einhverju leiti uppsöfnuð þreyta hjá mér. Hef ekki hvílt mig nógu mikið undanfarið. Og er búin að bóka mig svoltið mikið næstu vikur.... ég er allavega þokkalega fallin á streituprófinu mínu. Eins gott að námskeiðsleiðbeinendurnir á Streitu og streitustjórnunarnámskeiðinu viti ekki hvað mér hefur gengið illa að segja nei undanfarið. Held að þau yrðu ekki mjög ánægð með mig.
Ég er nú samt að gera eitthvað fyrir sjálfa mig líka. Tókst meira að segja loksins að panta mér klippingu. Hef ekki farið í klippingu síðan í september. Og er orðin talsverð þörf... eiginlega kannski meira svona... áður var þörf, nú er nauðsyn. Fer á föstudaginn sko... þegar ég verð búin að fá útborgað...hehehe. Peningabuddan er nefnilega orðin frekar létt svona á þessum tíma mánaðarins.
Ofan á þetta slen mitt er svo náttúrulega búinn að bætast þessi kuldin og snjór sem er alltaf að þykkjast ætla að koma. Eða þar að segja ... kemur en fer svo reyndar strax aftur. Ég var að vona að það væri bara komið sumar. Alveg að koma maí og svona. Kominn tími til að fá smá sumarveður sko. Eða mér finnst það allavega... og maður á alltaf að segja það sem manni finnst.
sunnudagur, apríl 23, 2006
Fermingar

Andri og Karen voru að fermast í dag. Þau ákváðu að fermast borgaralegri fermingu og voru því fermd hér í Reykjavík.
Dagurinn í dag byrjaði því snemma. Því ég hafði tekið að mér það verkefni að greiða Karen.


Um kl. 10 var svo lagt af stað í Háskólabíó, þar sem fermingin fór fram. Fermingin var svo kl. 11. Þetta er í fyrsta skipti sem ég er viðstödd borgaralega fermingu. Nokkur fermingarbarnanna spiluðu á hljóðfæri og fannst mér þau bara standa sig mjög vel.
Eftir athöfnina fórum við svo á "Stylinn" og fengum okkur að borða. Veislan verður svo síðar, fyrir norðan.
Þegar heim var komið var greinilega um aðeins spennufall að ræða. Allir frekar sloj, geyspandi og dottandi. Þegar við svo vorum búin að hrista af okkur mesta slenið skruppum við smá á rúntinn. Móna eldaði svo þennan fína kvöldmat.
Nú er ég svo rétt komin heim úr ljósum... fínt að endurnæra sig svona í ljósum.
laugardagur, apríl 22, 2006
Þolinmæðin...
...þrautir vinnur allar.
Það tókst loksins að klára að setja inn páskamyndirnar. Ég vissi að þetta tækist á endanum. Þetta hlýtur að sýna þolinmæði mína... því ekki getur það verið þrjóskan, þar sem ég á ekki til þrjósku í minni nauts-sálu.
föstudagur, apríl 21, 2006
Gleðilegt sumar

Jæja þá er sumarið komið. Skv. almanakinu allavega. Mér fannst nú reyndar ekkert sumarlegt við haglélið sem kom í dag. En það var reyndar bara smá stund.
Þetta er búin að vera hálf ruglingsleg vika eitthvað. Að sjálfsögðu frí á mánudaginn sem þýðir að mér leið eins og það væri mánudagur á þriðjudaginn. Súlí vinkona kom á þriðjudaginn, í gistingu. Á miðvikudaginn var svo Vorgleði Símans. Þá gerum við hreint, förum í búninga og skemmtum okkur saman. Ég skemmti mér mjög hratt allavega...hehehe. En Samskiptaverin fengu þó allavega 1. verðlaun fyrir búninga, og lentu í öðru sæti yfir þrifalegustu deildina.
Sumardagurinn fyrsti var að sjálfsögðu annar frídagur vikunnar. Eyddi ég honum í leti. Móna, Jón Ingi, Andri, Karen og Addi komu svo í gistingu.
Dagurinn í dag er svo búinn að vera hálf letilegur eitthvað. Fór að sjálfsögðu í vinnuna, en var orðin eitthvað hálf þreytt þegar líða fór á daginn. Og er svo bara búin að vera eitthvað hálf sloj síðan ég kom heim. Enda hálf ruglingslegt að hafa Föstudag beint á eftir frídegi... því að mér leið hálfpartinn eins og það væri mánudagur...púff.
Ég er meira að segja búin að vera það löt þessa vikuna að ég er ekki ennþá búin að taka upp úr töskunni, síðan ég kom að norðan. Og það verð ég nú að segja að er frekar ólíkt mér. Ég er vön að ganga frá strax. Helst sama dag og ég kem heim... ef ekki samdægurs þá í síðasta lagi daginn eftir. En nei, ekki núna. Og ég efast um að það verði gert í kvöld...hehehe.
Ég er ekki enn búin að ná að setja inn allar páskamyndirnar, sem ég ætlaði mér að setja inn í myndaalbúmið mitt. En þó tínast þær inn ein og ein. Kerfið virðist eitthvað vera að stríða mér... eða netið... veit ekki alveg hvort. En þetta kemur vonandi á endanum.
mánudagur, apríl 17, 2006
Páskafrí

Ég vil byrja á að óska öllum gleðilegra páska.
Ég fór norður á skírdag. Flugið mitt var kl. 14:00 og var ég því komin til Akureyrar rétt fyrir kl. 15. Flugið var bara nokkuð gott og tóku pabbi, mamma og Þura á móti mér. Byrjað var á því að fara í búðir og klárað að versla það sem versla þurfti fyrir páskana. Skruppum svo á Hjalteyri til að heimsækja ömmu Góu og Egil. En mikið var nú gott að komast heim.
Að sjálfsögðu sá ég um háralitun þegar heim var komið.

Í þetta skiptið var það bara Þura. Lituðum dökkt undir og ljóst með ennþá ljósari strípum að ofan. Ég er nú bara að verða nokkur sjóuð í háralitun held ég...hehe.
Föstudagurinn langi var svo tekinn í leti. Klæddi mig t.d. ekki fyrr en eftir kvöldmat...hehe... en þá fór ég á smá rúnt með Þuru systir. Hún þarf enn að æfa sig svolítið að keyra, þó að hún sé komin með bílpróf.
Á laugardaginn fórum við til Akureyrar í eina skírn eða svo.

Íris Ósk frænka mín var að skíra dóttur sína. Hlaut stúlkan nafnið Embla Lív.
Og svona fyrst að ég var komin til Akureyrar fór ég og kíkti á Lindu vinkonu og litla snáðann hennar. Hann er alveg glænýr...hehe... fæddist 06.04.2006.
Páskadagur var svo bara annar letidagur. Fékk páskaeggið í bólið... að gömlum sið...hehe... gerði mig svo sæta fyrir matinn. Það má ekki gleyma því að það hefur verið mikið borðað alla þessa daga. Og hefur maginn minn alveg látið mig vita að hann er ekki alveg nógu hress með allt þetta át. En hann verður bara að sætta sig við þetta.. því að maður á að borða mikið á páskum...hehehe.
Súlí vinkona kíkti svo á mig í gær. Alltaf jafn gott að hitta elskuna sína. Spjölluðum heilmikið og plönuðum aðeins fyrir hana næstu suðurferð.
Súlí stakk samt af þegar mamma fór að biðja um endurhönnun á einni blússu sem hún átti.


Ég lenti því ein í því að breyta blússunni. Tók mig alveg ótrúlega vel út í saumaskapnum..hehehe. Fékk svo að gista hjá tengdamömmu (fyrrverandi) sl nótt, þar sem veðrið var ekki mjög upplífgandi. Kom svo suður early in the morning núna í morgun og skreiddist upp í rúm og fór að lesa þegar ég var komin heim til mín. Er samt núna búin að fara út í búð til að kaupa það allra nauðsynlegasta til að endast daginn..hehehe. Það er alveg bannað að svelta á páskunum.
Ég ætla svo að reyna að setja páskamyndir inn í myndaalbúmið mitt fljótlega...það virðist eitthvað vera að stríða mér núna svo að það gengur eitthvað hálf illa.
þriðjudagur, apríl 11, 2006
Sund
Var að koma heim úr sundi. Rosalega er nú gott að fara í sund. Maður ætti að vera miklu duglegri að fara í sund. Við Birna ákváðum að skella okkur í sund þegar ég var búin að nudda og hún búin að skrúfa saman eitt borð fyrir mömmu sína.
Dugnaðarforkarnir við, brugðum undir okkur betri fætinum og syntum meira að segja... það var semsagt ekki bara leti í pottinum. Syntum nokkrar ferðir... ég sprengdi mig reyndar alveg á skriðsundinu. Þurfti að stoppa smá og ná andanum en hélt svo áfram að synda smá. Hélt mig þá bara við bringusundið. Svo var að sjálfsögðu farið aftur í pottinn og slakað á.
Rosalega líður manni nú vel eftir að hafa tekið svona smá á.
Ég reyndar er svo skrítin á höndunum, búin að vera rosa þurr, og nú er ég öll sprungin og skorin og svíður þónokkuð. En maður lætur það nú ekki stoppa sig...hehehe.
mánudagur, apríl 10, 2006
Helgin

Hmmmm... laugardagurinn einkenndist af hálfgerðri leti. Var reyndar í smá þvottaveseni... það virðist alltaf vera nógur þvottur að þvo. Skil það nú eiginlega ekki. Ég er ein í heimili og virðist vera með þvott á við heila fjölskyldu.
Sunnudaginn ætlaði ég svo líka að nota í leti en gat svo ekki setið á mér og fór að skúra. Reyndi líka að gera smá sætt inni í aukaherberginu. Var komin með leið á að vera alltaf með lokað þangað inn.
Þegar ég var búin að skúra fór ég með Júlíu á kaffihús. Byrjaði á að fá mér heitt kakó og súkkulaði köku með rjóma. Og svo þegar við vorum búnar að vera þarna lengi ákváðum við að fá okkur smá mat líka. Ég fékk mér því grillaða risahörpuskel. Svaka gott. Fór svo í ljós með Bryndísi Evu. Og endaði svo kvöldið í hárlitun. Bryndís stóð sig svaka vel og er ég nú með nýlitað hár sem ég er mjög ánægð með. Við reyndar gleymdum okkur svoltið mikið í spjalli...eins og venjulega og var klukkan orðin 00:30 þegar Bryndís var búin að setja í mig strípulitinn. Hún fór þá heim en ég þurfti að bíða í 20 mín áður en ég mátti skola úr hárinu á mér. Þá átti ég líka eftir að fara í sturtu. Það var því frekar syfjuð Gulla sem fór á fætur í morgun og tók sig til í vinnuna. En við huggum okkur við það að þetta er stutt vinnuvika. Og er því stutt í næstu "hvíld"...hehehe.
laugardagur, apríl 08, 2006
Spil dagsins
Verð að skella þessu hérna inn..hehe.

V - Æðsti prestur
Þú hrífst af mörgum manngerðum en kýst manneskju sem er heil fram í fingurgóma. Ástin er þér umfram allt list og þú dýrkar manneskjur sem eru tignarlegar í hreyfingum, næmar og kröftugar. Þú elskar að því er virðist í einlægni, en eftir þínu höfði. Þú unnir sjálfstæði þínu og öryggi en ættir að rannsaka enn nánar blíðuna og skilninginn sem gera kynni þín við elskhuga þinn eins náin og raunin er.
Viðurkenndu tilfinningar þínar en ekki bæla þær niður. Haltu þig við eigin tilfinningar og skynjun. Leitaðu að sameiginlegum hvötum, markmiðum og áhugamálum sem bæta samskiptin og gagnkvæma virðingu í sambandinu og mundu að þú hefur fullan rétt á tilfinningum þínum. Tilfinningar eru staðreyndir. Leiðsögn birtist hérna þar sem þú ert minnt/ur á að í heilbrigðu sambandi finnurðu að þér er óhætt að tjá allt, þar á meðal reiðina.
© 2006 Spámaður - Ingunn ehf.
Gulla sloj
Ath... þetta bloggaði ég í gærkvöldi en blogger fór í verkfall og ekkert gerðist.
Ég er búin að vera frekar sloj af þessu blessaða pensilini sem ég fékk við strekktu kokkunum mínum. Get allavega ekki alveg talist sú ferskasta þessa dagana. Læt mig samt hafa það og er þegar örlítið farin að skána í hálsinum. Fór í vinnuna í gær...hálf tuskuleg eitthvað. Og var svo alveg búin á því þegar ég koma heim. Tók smá slökun og ætlaði svo að fara í sund...en skynsemin tók völdin og fór ég bara í sjóðandi heitt bað í staðinn. Dottaði eitthvað fyrir framan sjónvarpið áður en ég skreið inn í rúm... reyndar með smá við komu fyrir framan tölvuna.
Fór svo á námskeið í morgun... streita og streitustjórnun... mjög sniðugt námskeið sko. Mæli alveg með því...en það er nú samt sennilega gott að vera aðeins meira vakandi en ég. Þ.e. athyglin má vera betri... held að pensilínið vinni líka á athyglinni.
Skellti mér svo á Curtis Adams sýninguna í kvöld, með Sissa (myndin er af mér á leiðinni út í kvöld). Það var slatti af Símaliði þarna og svo hitti ég Jóa Dan og Dan. Fannst svoltið fyndið að þeir skyldu vera á þessari sýningu líka..hehehe... var einmitt að hugsa svo mikið til Jóa í dag eitthvað. Og hélt virkilega að ég væri að sjá ofsjónir þegar mér fannst ég sjá hann þarna. En nei nei... þetta var þá bara hann Jói minn. Spjallaði smá við hann en svo hélt sýningin áfram.
Við Sissi rúntuðum svo smá og enduðum á að fá okkur ís (Gulla íssjúklingur) áður en Sissi skutlaði mér heim.
Þetta var bara ágætlega lukkað kvöld. Varð reyndar fyrir smá vonbrigðum með sýninguna...þ.e. hélt að það yrði meira um töfrabrögð. En ég hafði samt gaman af þessu.
miðvikudagur, apríl 05, 2006
Ný gestabók
Jæja nú er ég komin með nýja gestabók. Endilega allir skrifa í nýju fínu gestabókina mína.
Strekktir kokkar
Mér er búið að vera illt í hálsinum frá því á laugardaginn. Og ekki er nema c.a. hálfur mánuður síðan ég var síðast með hálsbólgu.
Þar sem ég er svo dugleg þá hef ég nú samt alveg verið að mæta í vinnu. Tek mér bara verkjatöflu til að komast í vinnuna á morgnanna og er þá svona þokkaleg þar til líður að kveldi. Mér var nú samt ekkert farið að lítast á blikuna þegar ég var ekkert farin að skána í morgun. Hef voða lítið sofið... og það litla sem ég sef veitir mér ekki mikla hvíld. Hringdi því í lækni í morgun en engir tímar lausir í dag. Mér var sagt að hringja aftur eftir hádegi til að athuga hvort að ég kæmist ekki að eftir kl. 17. Jújú... mín fékk tíma kl. 17. Og meira að segja hjá honum Lárusi mínum Ragnarssyni... hann er búinn að vera heimilislæknirinn minn síðan ég flutti hingað suður en þetta er í fyrsta skipti sem ég hitti hann. Í þau skipti sem ég hef farið til læknis hef ég alltaf farið til einhvers annars.
En allavega... hann potaði í hálsinn á mér þ.e. tók sýni og viti menn... jújú það eru strekktir kokkar. Mig var svosem farið að gruna þetta. Sem var að sjálfsögðu ástæðan fyrir því að ég fór til læknis, sem ég reyni að forðast í lengstu lög.
Verð nú samt að viðurkenna að þessi hálseymsli og litli svefn eru aðeins farin að fara í skapið á mér. Er búin að vera frekar pirruð eitthvað síðustu daga. Hef reynt að láta það ekki bitna mikið á vinnufélögunum en vinirnir hafa sennilega fengið eitthvað að finna fyrir því.
Vona að þetta fari að skána þar sem ég er komin á tíu daga skammt af einhverju "skemmtilegum" lyfjum. Fékk meira að segja lyfseðil til að slá á þær aukaverkanir sem ég fæ að öllum líkindum af strekktukokkalyfjunum. Bara gaman af því. Hann sagði reyndar við mig að það þýddi ekkert að taka lyfin við aukaverkununum fyrr en undir lok kúrsins. Þannig að þangað til verð ég örugglega MJÖÖÖÖÖÖÖG pirruð í skapinu. Hmmmm þannig að framundan eru tíu skemmtilegir dagar...jei jei.
þriðjudagur, apríl 04, 2006
Lítið test
Ætli það séu ekki flestar stelpur búnar að taka þetta test...hehehe.
You Are Most Like Carrie! |
![]() You're quirky, flirty, and every guy's perfect first date. But can the guy in question live up to your romantic ideal? It's tough for you to find the right match - you're more than a little picky. Never fear... You've got a great group of friends and a great closet of clothes, no matter what! Romantic prediction: You'll fall for someone this year... Totally different from any guy you've dated. |
laugardagur, apríl 01, 2006
Skrúbb skrúbb
Er aðeins búin að vera að vinna helgarstörfin. Það virðist alltaf vera nóg að þrífa um helgar. Er búin að vera hálf á kafi ofan í baðkarinu að halda áfram að reyna að skrúbba erfiðu blettina. Þetta sem var fast á baðkarinu þegar ég flutti hingað inn. Þetta hefur gengið alveg ágætlega undanfarið. Tek þetta svona smátt og smátt. Var passlega orðin handlama af öllu skrúbbinu þegar pabbi og mamma komu. Já, þau komu nefnilega eftir allt saman. Fékk sms í morgun með spurningunni hvort að þau mættu gista hjá mér í nótt. Gulla litla hoppaði hæð sína af gleði og sagði að sjálfsögðu já.... ja, þetta með að hoppa hæð mína er nú kannski aðeins ýkt.
Pabbi og mamma skiptu um föt hjá mér og drifu sig svo í fermingarveislu. Tíhí..ég meira að segja skipti mér aðeins af því, í hverju mamma fór. Hún ætlaði í buxum en ég lét hana fara í pilsi sem ég á.
Var reyndar orðin svoltið löt fyrst að ég tók mér pásu í þrifunum. En tók mig svo á og fór að þrífa ofninn. Er nú búin að skrúbba hann hátt og lágt. Og passar fínt því að ég gæti átt von á pabba og mömmu aftur núna fljótlega. Þá ætla þau allavega að skipta aftur um föt áður en þau skreppa til Angelu og Gulla. Það er alltaf nóg að gera hjá sveitafólkinu þegar það kemur í borgina. Svo margir sem þarf að heimsækja. Held að þau séu aðeins farin að skipta þessu..hehehe. Heimsótti þennan síðast þá heimsæki ég hinn núna...hehehehe.
Gaman af því. Ég allavega fæ að hafa þau í gistingu...tíhíhí. Enda myndi ég nú móðgast ef þau myndu ekki koma til mín... ég er nú einu sinni dóttir þeirra.
Keypti mér myndavél í gær. Alveg ótrúlegt hvað það er erfitt að vera myndavélarlaus. Hélt að það væri ekkert mál. En er einhvernveginn alltaf búin að vera að lenda í aðstöðu þar sem ég hefði viljað vera með myndavél. Og svona eftirá að hyggja þá á ég alveg hellinga af svona tækifærismyndum. Var bara ekki alveg búin að hugsa út í það. En allavega... keypti alveg þokkalega myndavél. Ekkert fínustu og flottustu neitt en bara alveg passlega fyrir mig, held ég. Fann þrjár myndavélar sem mér leist ágætlega á. Fékk Sissa þá til að koma og dæma þær og mæla með einhverri þeirra. Hann skoðaði þær og benti svo á þá sem hann myndi mæla með. Hann fór einmitt líka og keypti fyrir mig hleðslubatterí og hleðslutæki (á aðeins hagstæðari kjörum), það fylgdi ekki með þessari vél. Hlóð batteríin í gærkvöldi og fór svo að fikta í henni í morgun. Keypti reyndar líka auka minniskort. Þau eru nú alveg ótrúlega dýr í þessa myndavél. Tvöfalt dýrari en minniskortin í gömlu myndavélina. En núna get ég allavega tekið þónokkuð margar myndir án þess að tæma út af kortinu.
Er að prufa nýtt myndaalbúm á netinu. Var orðin vel pirruð á Bravenet albúminu mínu. Pop-up auglýsingar fara alveg hrikalega í taugarnar á mér. Fyrir utan að það var ekki hægt að fletta á milli mynda þegar búið var að klikka á eina mynd. Þú þarft alltaf að fara til baka og klikka á næstu mynd. Ekkert smá pirrandi. Fyrir utan að ég þurfti alltaf að minnka allar myndir áður en ég setti þær þar inn... þær máttu ekki vera stærri en eitthvað visst. Þannig að þetta var alltaf þvílíka dútlið við að setja myndir þar inn.
Allavega nýja albúmið mitt er http://glauga.bebo.com. Það opnast reyndar líka ef klikkað er á "Myndir" hnappinn á heimasíðunni. Er búin að setja inn alveg slatta af myndum. Ekki reyndar allar sem voru í gamla albúminu. Er þó búin að setja inn helling af nýjum myndum sem ég hafði ekki nennt að setja inn í gamla albúmið.

