sunnudagur, júní 18, 2006
Klíkuskapur
Allir nýta sér einhverntíman sambönd sín. Ég gerði þetta um daginn. Fékk ráð hjá sjúkraþjálfara sem ég þekki....nýtti mér það að þekkja hann sko. Ég er búin að vera með verk í öðrum hælnum undanfarnar vikur. Finn sérstaklega mikið fyrir þessu þegar ég er að teygja á kálfanum. Þetta er samt ekki stöðugur verkur. Einnig gat ég kallað fram þennan verk með að þrýsta á ákveðið svæði á öklanum. Árni skoðaði mig nú ekki neitt en ráðlagði mér að kaupa mér voltaren krem. Og nú nokkrum dögum seinna fór Gulla litla og keypti sér umrætt krem. Jújú ég hlýði stundum. Núna verður því fróðlegt að vita hvort að þetta dugi. Mér finnst alveg vera kominn tími á að þessi verkur fari. Er komin með frekar leið á honum. Alveg eins og verknum í bakinu. Sá verkur er reyndar mikið búinn að lagast síðan ég fór að fara í ræktina. Og held ég að það komi nú allt með tímanum. Ég þarf bara að vera þolinmóð. Spurning hvort að ég noti voltaren kremið kannski bara líka á bakið á mér og athugi hvort að það flýti fyrir batanum.
laugardagur, júní 17, 2006
Komin helgi
Já, það er bara komin ein enn helgin. Og meira að segja 17. júní. Þetta er nú bara í fyrsta skipti í mörg ár, held ég, sem ég er ekki fyrir norðan á 17. júní.... eða kannski bara ever... held bara að ég hafi alltaf verið fyrir norðan á 17. júní.
Svoltið skrítið að vera ekki að fara á bílasýninguna, spyrnuna eða burn out-ið.
En þetta er búinn að vera viðburðaríkur dagur (16. júní). Hitti nefnilega pennavinkonu mína, frá Færeyjum, í fyrsta skipti. Við erum búnar að skrifast á síðan við vorum 14 ára. Byrjuðum semsagt að skrifast á, á dönsku, í gegnum dönskukennslu í gagnfræðaskóla. Erum þær einu úr hópnum sem héldum áfram að skrifast á eftir að því ári lauk. Vorum svo komnar út í að skrifa á íslensku og færeysku. Þ.e. ég skrifaði á íslensku og hún á færeysku. Og að sjálfsögðu hefur bréfunum yfir árið fækkað svoltið mikið. En alltaf höldum við þó sambandi. Núnar erum við líka komnar með email og sms... bara snilld.
Mín fékk svo bara sms í gær frá Guðrið og þá var hún bara á Íslandi og á leiðinni til Reykjavíkur. Hún, og fjölskyldan öll, fer svo aftur til Færeyja annaðkvöld. Við erum því búnar að vera að smsast í gær og í dag og endaði með því að ég kíkti til þeirra, þar sem þau gista hérna í bænum. Það var meira að segja stutt að fara því að þau voru í Ystaseli.
Eftir að vera búin að kíkja á Guðrið fór ég og náði í þær Birnu og Höllu og við skelltum okkur í 30 ára afmælið hennar Jónínu. Hún á nefnilega afmæli í dag... 17. júní. Það var reyndar svoltið hópaskipt þetta partý. Þjónustuverið var á einum stað, Kringlan á einum stað og fjölskyldan á þriðja staðnum. Nema ég ... var að flakka á milli þjónustuversins og Kringlunnar. Því að Beggi og Sigrún sátu Kringlu megin og ég var að spjalla svo mikið við Sigrúnu.
Ég skutlaði svo Sigrúnu og Begga heim þegar þau þurftu að fara að senda barnapíuna heim. Skellti mér svo smá stund aftur í partýið áður en ég skutlaði Birnu, Höllu, Kötu og Eygerði niður í bæ. Kom mér svo bara heim og sit nú í tölvunni. Hvort ætli sé gáfulegra að hanga heima í tölvunni eða vera að djamma með stelpunum??? Ætla reyndar að nota þessa helgi til að slaka á svoltið svona. Er búin að vera eitthvað svo þreytt undanfarið. Fór líka í ræktina í morgun kl. 6 svo að dagurinn er nú búinn að vera alveg ágætlega langur. Og fór líka seint að sofa í gærkvöldi þar sem ég skrapp til Bryndísar Evu og fékk hana til að lita á mér hárið. Og er ég líka svona gasalega fín eftir þennan snilling. Held meira að segja að hún hafi nú alveg lúmskt gaman af því að lita á mér hárið...tíhíhí.... takk takk krúttið mitt.
þriðjudagur, júní 13, 2006
Meira í ræktinni
Nú fæ ég sko ekkert að slaka á í ræktinni. Búin að gera 36 mánuða samning við Hreyfingu. Og þar sem mér er illa við að henda peningum í ekki neitt þá er nú eins gott fyrir mig að standa mig. Stærsti kosturinn við að binda sig svona lengi er að þá hlýt ég verðvernd. Verðið kemur nefnilega til með að hækka þegar flutt verður í nýja húsnæðir um mitt næsta ár. Þannig að ég ætti að vera í góðum málum. Fékk svo reyndar gjafabréf upp á einn mánuð sem ég ætla að gefa honum Sissa. Ég get nefnilega ekki nýtt mér það sjálf því að ég þarf að byrja að borga mitt strax. Þetta verður þá bara síðbúin viðbót við afmælisgjöfina hans, snemmbúin jólagjöf eða bara svona tækifærisgjöf til að gleðja greyið...tíhíhí...hann er ekkert grey...tíhíhí.
Svo fékk ég einn tíma hjá einkaþjálfara, íþróttatösku, fótbolta, vatnsflösku og bol. Svo fæ ég frítt í sund, í sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu, í sumar, sem er bara frábært.
sunnudagur, júní 11, 2006
Óvissuferð
Fór í óvissuferð með vinnunni í gær. Svaka fjör. Mæting kl. 11:30 í Ármúlanum. Fengum umslög með óvissuferðargögnunum. Í umslaginu var blað sem sagði að þetta væri Kapphlaupið mikla og nafnspjald í ákveðnum lit. Liturinn gaf til kynna í hvaða liði ég var. Mitt lið var blátt. Einhver afföll voru á fólki og því var ekki alveg jafnt skipt í liðin. En besta mætingin var í mínu liði og vorum við 9.
Fyrstu tvær þrautirnar voru á fyrsta áningarstað... Hljómskálagarðinum. Eftir Hljómskálagarðinn var haldið á Stokkseyri. Heimsóttum Draugasetrið og leystum tvær þrautir. Þá var haldið til baka á höfðuborgarsvæðið og stoppað í Heiðmörk. Þar voru þrjár síðustu þrautirnar leystar og grillaðar pylsur og haft gaman. Liðið mitt endaði í öðru sæti. Frekar svekkjandi að enda í öðru sæti sko... en ferðin var mjög skemmtileg og ekki var verra að vera í einhverjum svona leikjum. Rútan skilaði okkur svo aftur í Ármúlann um kl. 19:30.
Ekki létum við daginn enda þar heldur skruppum heim til að skipta um föt og fórum svo í partý. Fyrst fór ég í smá stelpupartý til hinnar Gullunnar í reikningasvöruninni. Og þaðan brunuðum við svo í kveðjupartýið hans Gumma. Skemmtum okkur konunglega og vorum í svo miklu stuði að við drifum okkur í bæinn rétt fyrir eitt. Fórum á nokkra staði dönsuðum mikið og skemmtum okkur vel. Ég verð þó að viðurkenna að mér finnst tónlistin á skemmtistöðum bæjarins frekar einhæf.
Svengdin var svo farin að herja á okkur þegar við vorum að velta fyrir okkur að fara heim og komum því við á pizza pronto. Skiluðum við okkur svo ein af annari heim undir morgun.
Ég var þó eiturhress að vanda í morgun og skellti mér í ræktina. Er svo bara búin að vera að þvo þvott að laga til hérna heima síðan ég kom úr ræktinni. Maður verður víst að gera það öðru hvoru líka.
Er þegar búin að búa um pabba og mömmu í aukaherberginu þó að þau komi ekki fyrr en eftir 11 daga. Var nefnilega að þvo utan af rúminu síðan stúlkurnar úr Svartárkoti gistu hjá mér. Og fannst alveg óþarfi að vera að ganga frá upp í skáp bara til að ná í það aftur eftir nokkra daga. Geri ráð fyrir að hún Þura mín kúri bara uppí hjá mér. Við hljótum að geta það fyrst að við getum sofið í sama herbergi þegar ég er fyrir norðan.
föstudagur, júní 09, 2006
Spennan magnast!!!
Nú eru bara tvær vikur... já, já og ég er sko þokkalega farin að telja miður. Það eru reyndar nokkrir dagar síðan ég fór að telja niður. Og Þura, systir fór að telja niður á undan mér... hehehe... hún hlýtur þá að vera ennþá óþolinmóðari en ég.
Held meira að segja að pabbi og mamma séu ekkert skárri en við systurnar. Ja, allavega mamma. Er ekki alveg viss með pabba því ég hef ekki heyrt í honum hljóðið nýlega.
Verð svo að setja inn hérna gullkornin hennar Þuru. Þau eru alveg snilld.
Friendship is a garden, memories are the seeds, and laughter is the water that helps it grow little by little everyday
Good friends are never forgotten...they live on in our hearts and souls dancing on our stage of memories
fimmtudagur, júní 08, 2006
Skammir í hattinn
Já ég fékk skammir í hattinn í gærkvöldi. Það var hringt í mig til að skamma mig fyrir að hafa ekki sagt frá því, í síðasta bloggi, hverjum ég fór með í bíó á sunnudagskvöldið…hehehe… Viðkomandi frekar sár sko. Var ekki alveg sáttur við að ég tilgreindi alla aðra sem ég var að gera eitthvað með en ekki hann. Hann sagði reyndar að ástæðan fyrir því að hann hringdi væri bara til að heyra í Gullunni sko. Og lét eins og honum hefði bara dottið þetta svona í hug á meðan hann var að tala við mig. Spjallaði meira að segja alveg heillengi við mig, sko, þessi elska. En ég er viss um að hann hringdi bara til að láta mig vita af þessum mistökum mínum..hehehe. Segi bara svona. Þú mátt alltaf hringja í mig...mér finnst það nefnilega alltaf jafn gaman.
Það var semsagt hann Sissi minn sem ég fór í bíó með á sunnudagskvöldið….hehehe… og hann var (vonandi) bara að grínast þegar hann var að skamma mig fyrir að hafa ekki sagt með hverjum ég fór í bíó. Hann meira að segja keypti handa mér ís sko… veit alveg hvað Gullunni þykir gott.
Ég skal alltaf segja með hverjum ég er að gera hlutina þegar ég er að gera það með þér Sissi minn.
þriðjudagur, júní 06, 2006
Lítið heima
Ég var nú bara lítið heima um helgina þó að ég hefði ekkert farið úr bænum.
Jói minn kom til mín á laugardagskvöldið og dróg mig í heimsókn til sín og svo út á lífið..hehe..hann þurfti nú reyndar ekkert að hafa neitt svakalega mikið fyrir því. Fórum að Café Rosenberg og sátum þar í smá stund. Ég reyndar var frekar þreytt og fór "snemma" heim.
Var samt bara fersk á sunnudaginn og skellti mér í ræktina rétt fyrir hádegi. Dútlaði mér svo í einhverrju svona þvottaveseni... mikið að þvo á svona "stóru" heimili. Ótrúlegt hvað ég þarf mikið að þvo þó að ég sé ein í heimili. Og þá á ég við fyrir utan nuddlökin.
Fór svo í bíó á sunnudagskvöldið...16 blocks með Bruce Willis. Frekar skrítin mynd en hélt samt alveg athyglinni.
Var nú ekki alveg jafn fersk í gærmorgun en kom mér nú samt í ræktina. Tók svona skemmtilega á neðri partinum að ég er að deyja úr strengjum í dag. Er alveg sérstaklega aum í rassinum....það er bannað að hlægja....en ég á meira að segja frekar erfitt með að setjast. Og þegar ég stend upp er ég eins og gömul kerling.
Skrautskrifaði svo inn í eina gestabók fyrir vinkonu mína. Langt síðan ég lofaði að skrifa inn í hana en er búin að vera að trassa það þar sem það er búið að vera eitthvað svo mikið að gera hjá mér. Og hef ekki nennt að eyða þessum litla tíma sem ég á aflögu í að skrautskrifa. En hespaði þessu bara af núna. Vona að hún verði sátt við útkomuna.
Horfði reynda líka á nokkrar dvd um helgina. Jói minn lét mig nefnilega fá "Brokeback Mountain", "Casanova" og "Pride and prejudice" og ég er búin að horfa á þær allar...hehe... smá svona glápi helgi sko.
Kíkti svo smá á Gulla og Auði í gærkvöldi. Þau voru bara hress... ja aðeins mishress reyndar... en hress samt að sjálfsögðu. Það er ekki annað hægt þegar ég kem í heimsókn...hehehe.
Nú er maður svo bara mættur aftur í vinnu. Stutt vika og fínt fínt. Fór meira að segja út að borða, á Troccadero, í hádeginu. Með þeim Ernu og Ollu sem voru að vinna með mér í Bókabúðinni í Mjóddinni. Halla ætlaði að koma líka en komst svo því miður ekki. Hún kemur bara næst. Við hættum ekkert núna þegar við erum búnar að komast upp á lagið með að hitta svona í hádeginu..hehehe.
laugardagur, júní 03, 2006
Góður tími
Þetta er búinn að vera frábær tími síðan stúlkurnar komu. Í gærkvöldi fórum við út að borða á Asíu. Keyptum 6 rétta máltíð og tókum okkur langan tíma í að borða...ekki hægt annað þar sem við borðuðum með prjónum. Ég var reyndar sú eina sem ekki svindlaði...hehehe...Heiðrún og Súlí notuðu gafflana sína smá. Og ég var rosa stolt af mér... það þeyttist enginn matur út í loftið....fór allt á sinn stað...þ.e. upp í munn. Mjög góður matur. Súlí skrapp svo á fund en við Heiðrún létum fara vel um okkur í sófanum hérna heima á meðan. Súlí kom svo til baka rétt fyrir ellefu og hafði Ellu með sér. Við fjórar skelltum okkur svo í ellefubíó í Smáralindinni. Fórum að sjá The Da Vinci code. Mér fannst þetta bara alveg ágætis mynd. Er reyndar ekki búin að lesa bókina. Komum því heim frekar seint en enn í fullu fjöri og kjöftuðum aðeins áður en við fórum að sofa.... lágum semsagt allar fjórar í einu rúmi. Við Súlí fórum svo yfir í mitt rúm og kjöftuðum aðeins meira áður en við fórum að sofa.
Áttum einnig notalega stund í morgun. Borðuðum saman morgunmat og horfðum á dvd (ekki alveg heila mynd) áður en við ungu stúlkurnar skruppum í búðir og Ella fór í fermingu. Heiðrún og Súlí ætluðu nefnilega bara í veisluna en Ella ætlaði líka í athöfnina.
Heiðrún og Súlí voru svo bara rétt að yfirgefa mig. Og eru því núna á leiðinni í Skálholt.
Þó að ég væri með gesti er ég búin að vera rosa dugleg í morgun. Búin að hengja fullt af þvotti út á snúrur (fór með þvottagrindina mína út á snúrur). Það er nú samt ekkert svakalega hröð uppgufun af þvottinum því að vindurinn nær ekki svona niður á bak við vegginn á svölunum. En það er samt fínt að láta aðeins lofta um þvotti. Ég er ekki nógu dugleg við að fara með grindina út þar sem ég er svo sjaldan heima og finnst óþægilegt að hafa þvottinn úti ef ég er lengi í burtu.
föstudagur, júní 02, 2006
Þreyta
Það er ekki laust við að það sé örlítil þreyta í gangi núna. Ég er búin að hafa svo mikið að gera þessa vikuna að það er eins gott að það er að koma löng helgi.
Ég er búin að vera að frá morgni til kvölds og hef ekki farið snemma að sofa einu sinni í þessari viku. Að sjálfsögðu er það samt engum að kenna nema mér. En ég einhvernveginn er búin að vera eitthvað svo upptjúnuð á kvöldin.
Súlí vinkona, og Heiðrún, systir hennar, komu svo til mín í gærkvöldi. Og hvað gerist þá...hmmmmm.... það skyldi þó ekki vera að það hafi verið kjaftað fram á nótt.... varla!!!!
Mér tókst svo að klikka einhvernveginn á verkjaraklukkunni. Þannig að hún leit út fyrir að vera kveikt en það vantaði herslumuninn þannig að um leið og ég kom við takkann þá fór hún að hringja. Sem þýðir að ég vaknaði hálftíma seinna en ég ætlaði mér. Náði þó á korteri að hoppa á fætur, klæða mig og mála, henda íþróttafötunum mínum ofan í tösku, tannbursta mig og koma mér út. Jú og ég henti hárinu á mér í teygju...það má eiginlega segja að það sé smá svona "bad hairday" hjá mér í dag.
Svo er það bara ræktin strax eftir vinnu og út að borða með stúlkukinunum mínum. Ég hlakka geggjað til. Við stefnum svo á að fara í bíó, þegar Súlí er búin á fundinum sem hún þarf að fara á í kvöld. Geri svosem alveg ráð fyrir smá kjaftatörn aftur í kvöld...hehehe. Það er nú ekki það oft sem við hittumst að þetta er nú bara alveg í lagi. Svo verðum við líka að fara að plana stelpuferðina okkar....hehehe....þessa sem við Danmerkurfararnir ætlum að fara í.
Jæja, ætti samt sennilega að fara að vinna núna. Og hætta þessu slóri.
