mánudagur, maí 28, 2007
 
Gamla konan ég
Jájá ég lagðist í dvala og hef því ekkert skrifað. Ástæða þess að ég lagðist í dvala er sú að ég var að reyna að komast hjá því að detta inn í fertugsaldurinn. En... það tókst ekki. Ég átti því afmæli um daginn og varð þrítug. Já já svona er þetta. Nú get ég ekki lengur gert grín af þeim vinum mínum sem þegar voru orðnir þrítugir á árinu. Ekki það að Súlí og Bryndís Eva voru báðar alveg búnar að segja mér að þetta væri ekkert svo slæmt. Og viti menn... ég held að ég hafi nú ekki breyst neitt mikið. Og svona í leiðinni vil ég þakka fyrir afmælisgjafir og kveðjur.
Verð nú samt að viðurkenna að afmælisdagurinn minn var nú ekkert sá besti sem ég hef átt. En það verður vonandi bætt úr því síðar. Erna krútt er t.d. búin að ákveða að það verður partý. Ég þarf bara að finna daginn og hún ætlar þá að sjá um skipulagningu. Ég verð þó að viðurkenna að ég er enn sami þrjóskupúkinn og þversmóðskan sem kom upp í mér í kringum afmælið mitt í fyrr er enn til staðar. Sú þvermóðska er ástæða þess að ég planaði ekkert partý í kringum afmælið mitt núna.
Var í staðinn að spá í að skreppa norður en það varð ekkert af því heldur. Fer samt vonandi norður fljótlega... þori samt ekki að lofa neinu.
Gugga systir hans Kalla er orðin sjálfskipaður hárgreiðslumeistarinn minn...tíhí...eftir að hún greiddi mér fyrir árshátíðina hefur hún fengið að klippa mig og lita. Og hefur það tekist svona líka svakalega vel hjá henni. Ekki slæmt að eiga svona mágkonu/vinkonu. Við ákváðum líka um daginn að vera svona líka svakalega duglegar og skelltum okkur út að labba. Jújú það var fínt... en það var ekkert neitt svakalega hlýtt.. og ég er ekki að ýkja þegar ég segi að nefið á mér hafi verið frosið þegar ég kom heim.
Líkaminn á mér fór í smá uppreisn ... er reyndar ekki alveg búinn að jafna sig ... sem varð til þess að ég er búin að léttast smá...þó að ég hafi trassað það að fara í ræktina (af sömu ástæðu). Var einhvernveginn ekki að koma niður nógu miklu af mat. Og þorði því ekki að fara í ræktina því að ég vildi ekki láta líða yfir mig. Er aðeins að koma til núna svo að ég er aftur farin að koma mér í ræktina. Keypti líka þessar svakalega flottu íþróttahnébuxur (ásamt fleiru) í afmælisgjöf frá pabba, mömmu, Þuru, Freyju og Snorra. Og er þegar búin að nota þær í ræktinni. Algjör snilld. Mér er nefnilega alltaf svo heitt.
Svo má nú ekki gleyma heldur hvað ég er búin að vera dugleg...hehehe... búin að vera að taka smá hreingernigartörn. Tók alla skápahurðir, gluggakistur, hluta af veggjunum, svalarhurðina og útidyrahurðina og þreif. Tók góða rasíu líka inni á baði. En allt virðist þó koma fyrir ekki... það er ennþá allt fullt af hundahárum. Verð nú samt að viðurkenna að ég sakna þess að hafa Vask hérna. Hálf tómlegt eitthvað að hafa hann ekki til að taka á móti mér þegar ég kem heim úr vinnunni. Hann var alltaf svo glaður að sjá mig. Hver veit nema ég fái mér bara eitthvað gæludýr í staðinn. Spurning samt að finna eitthvað sem er ekki alveg jafn loðið og Vaskur. Eða allavega ekki alveg jafn stórt svo að það sé ekki alveg jafn mikið af hárum...tíhí. Kemur allt í ljós bara. Ég er alveg óútreiknanleg.
Er nú samt hálf svekkt að vera ekki búin að fá svar við tölvupóstinum sem ég sendi fyrir rúmri viku í ökuskólann. Er að reyna að fá upplýsingar um það hvenær það eru ökutímar (bóklegir) fyrir bifhjólapróf. Langar að skrá mig í kennslu um leið og Dale Carnegie námskeiðið er búið hjá mér. Bóklega prófið gildir svo í ár þannig að ég hef smá tíma uppá að hlaupa ef ég kemst ekki strax í verklega hlutann. En ég stefni að sjálfsögðu að því að fara í hann sem fyrst. Kalli ætlar að undirbúa mig undir verklega hlutann. Láta mig byrja á að æfa mig á skiptingum og svoleiðis kannski bara á fjórhjóli. Held meira að segja að við eigum tvö fjórhjól núna. Þannig að kannski bara þarf að fara að finna tíma. Það er bara spurning hvað við eigum þessi hjól lengi...hehehe... ég allaveg átti mótorhjólið mitt ekki neitt svakalega lengi... þá var bara búið að selja það. Reyndar var það nú af því að Kalla fannst það of kraftmikið fyrir mig....vildi ekki að ég dræpi mig strax.
Það var einmitt einn vinur minn að lenda í mótorhjólaslysi fyrir nokkrum vikum. Held bara að hann hafi verið nokkuð heppinn að slasast ekki meira en raun varð. Nóg slasaðist hann þó. Hann er þó allur að koma til. Þarf þó að mæta reglulega í sjúkraþjálfun.
Jæja klukkan orðin svolitð margt og Gulla gamla þarf víst að mæta í vinnuna snemma í fyrramálið. En það eru allavega komin einhver skrif núna fyrir hana Ernu, sem var farin að kvarta yfir skrifleysi hjá mér.
sunnudagur, maí 13, 2007
 
Eitt í viðbót
Held að Sissi hafi einhverntíman bent mér á þetta líka... að ég sé voða mikið naut ..hmmm





You are 73% Taurus



How Taurus Are You?

 
held jafnvel að þetta passi



You Are 40% Bitchy



You're a pretty sweet person, and you're definitely not prone to bitchy outbursts.

Sometimes, though, you can't help thinking mean thoughts about people. But at least you don't act on them!

How Bitchy Are You?

 
Og ég sem hélt ég væri svo mikill strákur í mér..hmmm



Your Brain is 73% Female, 27% Male



Your brain leans female

You think with your heart, not your head

Sweet and considerate, you are a giver

But you're tough enough not to let anyone take advantage of you!

What Gender Is Your Brain?

 
Tilviljun???



You Are 29 Years Old



Under 12: You are a kid at heart. You still have an optimistic life view - and you look at the world with awe.



13-19: You are a teenager at heart. You question authority and are still trying to find your place in this world.



20-29: You are a twentysomething at heart. You feel excited about what's to come... love, work, and new experiences.



30-39: You are a thirtysomething at heart. You've had a taste of success and true love, but you want more!



40+: You are a mature adult. You've been through most of the ups and downs of life already. Now you get to sit back and relax.

What Age Do You Act?

föstudagur, maí 11, 2007
 
Bráðum sumarfrí
Já... nú fer ég alveg að komast í viku frí. Það stóð til að fara til London en sú ferð hefur verði blásin af og líkur á að norðurlandið verði heimsótt í staðinn.
Hlakka til að komast út úr bænum. Vil heldur ekki breytast í ellismell hér... tíhíhí... betra að verða það í kyrrþey. Spurning hvort að mamma baki ekki handa mér afmælisköku. Hún er örugglega farin að sakna þess að baka handa mér afmælisköku...tíhíhí.... hlýt nú að vera ennþá litla stelpan hennar þó að ég sér "rétt búin" að ná sjálfræðisaldrinum...hehehe.
Síðustu vikur eru búnar að vera geðbilaðar. Alltof mikið að gera.... ég svona varla man hvað ég heiti... gæti samt verið að það sé aldurinn sem er að segja til sína þar.... vil þó halda því fram að svo sé ekki.
Verð áfram á Dale Carnegie fram í miðjan júní svo að það er ekki alveg farið að sjá fyrir endan á þessum önnum mínum. Svo að það er frábært að fá eina svona fríviku.

Horfði á Eurovision í gærkvöldi. Fannst það ekki meira spennandi en það að ég dottaði yfir því. Sá þó eitthvað af öllum lögunum. Varð heldur svekkt að hann Eiki Hauks kæmist ekki áfram. Fannst lagið okkar betra en flest af þeim lögum sem komst áfram. En svona er þetta....klíkuskapur.

Alveg að verða geðveik á því að standa í því að reyna að fá súbbann minn dreginn í bæinn. Haldið þið að löggunni hafi ekki tekist að skrifa vitlaust bílnúmer á tjónaskýrsluna.... "þú þarft að koma og láta leiðrétta skýrsluna"... með þrjósku tókst mér að láta lögguna leiðrétta sín mistök án þess að þurfa að gera mér ferð til Keflavíkur.... ég meina ... ég var ekki einu sinni á bílnum... og þetta eru þeirra mistök.... ættu þá kannski bara að vera með löggur sem eru ekki lesblindar og víxla því ekki stöfunum á bílnúmerinu. Já og það besta er að tjónaskýrslan er ekki send, til tryggingafélaganna, nema að það sé beðið um það.... halló... hélt að það væri sjálfsagður hlutur að tryggingafélögin fengu tjónaskýrsluna... annars er ekkert gert. Og já... það kom á daginn... bíllinn verður ekki dreginn í bæinn fyrr en TM er búin að fá tjónaskýrsluna... sem verður ekki send til þeirra nema þeir óski eftir því....HALLÓ... Finnst ykkur þetta eðlilegt. Úff hvað ég er búin að vera pirruð yfir þessu. Og allt dótið mitt er því ennþá í súbbanum.. sem er fastur í Keflavík..... Pirr pirr. Ætli frívikan mín fari ekki bara í það að vesenast í þessu.... arrrrg.

Sumarbros til allra.
fimmtudagur, maí 03, 2007
 
Blessuð sé minning hans


Súbbinn minn lét lífið í morgun.... grát grát. Lánaði hann út á Keflavíkurflugvöll og hann var klesstur á leiðinni. Það var einhver sem virti ekki stöðvunarskyldu og keyrði beint í veg fyrir litla krúttið mitt. Og hann er víst talinn alveg ónýtur. Á reyndar eftir að sjá hann sjálf. En hans verður allavega sárt saknað.
 
Henda inn línu


Spurning um að henda inn smá línu.
Áfram búið að vera brjálað að gera hjá mér. Dale Carnegie + nudd tekur flest kvöld og ég reyni svo að hlaupa í ræktina þann litla tíma sem ég á auka. Var svo þingfulltrúi Félags íslenskra símamanna á Rafiðnaðarsambandsþingi sem haldið var á Grand Hótel 27. - 28. apríl. Á föstudagskvöldinu fóru svo FÍS fulltrúarnir út að borða á Argentínu. En á laugardagskvöldið var Rafiðnaðarsambandið með hátíð... þ.e. kvöldverð og ball á Grand Hótel. Allt svaka fansí og flott.
Á sunnudaginn skrapp ég svo norður.... þ.e. Kalli kom og sótti mig (hann fór norður á laugardaginn) og bimmann og við vorum svo í afslöppun í sólinni á norðurlandinu fram á þriðjudag. Þá keyrðum við úr sólinni og inn í rigninguna í Reykjavík. Á mánudaginn var veðrið svo gott að ég var á stuttu pilsi og hlýrabol en samt að deyja úr hita. Og Kalli breyttist í svertingja...hehehehe.. grín.
En það er ennþá alveg jafnmikið að gera hjá mér og því læt ég þetta gott heita í bili... verð að nýta tímann í vinnunni í að vinna ;o)

Powered by Blogger