þriðjudagur, júlí 17, 2007
 
Meiri stjörnuspá
Hef alltaf haft rosalega gaman að stjörnuspám. Hérna kemur aðeins meira af henni...



Nautið (20.apríl - 20.maí) - Ársspá 2007


* Þú ert eins og viðkvæmt blóm á tilfinningasviðinu
* Leggur hart að þér að afla vina og vandamanna
* Þú eflir gjafmildi þína
* Léttlyndi einkennir þig því þú finnur himnaríki sem er líf þitt


Þegar tilfinningar þínar eru skoðaðar árið 2007 þá leggur þú þig sérstaklega fram við að láta samband sem þú ert staddur/stödd í ganga. Það er eins og eftir því sem þú þroskast þá kastar þú sumum af þeim grímum sem þú hefur notað til að fela ótta þinn í gegnum tíðina. Þú virðist byrja að sýna eðli þitt æ meir í ár.

Ef þú velur þér lífsförunaut má viðkomandi teljast mjög heppin/n því þörf þín til að næra og annast þá sem þú elskar er svakalega mikil. Þú elur af þér sterkustu öryggiskennd sem nokkur manneskja getur upplifað. Mikilvægt er að elskhugi þinn meðhöndli þig eins og viðkvæmt blóm og upplifi dýptina sem býr innra með þér.

Það er eins og þú áttir þig á þeirri staðreynd að himnaríki býr í hjarta þínu, í vitund þinni og þú getur náð til þess jafnvel á göngu þinni á þessu andartaki.
sunnudagur, júlí 15, 2007
 
Stjörnuspá dagsins
Naut: Haltu stóru tilrauninni áfram. Það reynir fimm leiðir til að leysa málið. Að lokum er steingeit hluti af lausninni.


hmm... Sissi minn ert það þú sem ert hluti af lausninni????
 
Klukkuð
Ég var klukkuð af henni Ernu Huld... hér koma því 8 staðreyndir um mig. Ég ætla svo að klukka 8.

1. Ég sleikti saltstein með kindunum þegar ég var lítil (það er samt ekki þessvegna sem ég er eins og ég er)

2. Ég var slagsmálahundur í gagnfræðaskóla (var þó einna verst þegar ég var í 8. bekk).

3. Ég keppti í kúluvarpi þegar ég var yngri (jájá hlægið bara).

4. Ég er með krullað hár.

5. Ég hef verið stungin í rassinn, af geitung.

6. Ég á afmæli 16. maí og er alveg ekta naut.

7. Ég hef aldrei reykt... ekki svo mikið sem tekið einn "smók"

8. Ég er óhemju feimin.

Þá er það komið
fimmtudagur, júlí 12, 2007
 
hmm
Stjörnuspá dagsins

Naut: Hugsanir um húsið og bílinn og reikninga eyðileggja fyrir ástinni sem þarfnast næringar. Þar til í kvöld. Gerðu eitthvað rómantískt.


Ætli þetta standist. Verð reyndar að viðurkenna að hugsanir um húsið og bílinn og reikninga hafa verið svoltið ríkjandi hjá mér upp á síðkastið. Kannski sér loksins fyrir endann á þessu áhyggjuefni mínu núna... hver veit???
Annars er eirðarleysi alveg að verða búið að drepa mig. Get ekki verið kjurr eina mínútu. Vil reyndar að hluta til kenna kallinum um það....hehehehe.... hann er verri ef eitthvað er. Erum í hálfgerðri fjarbúð núna þessa dagana. Og alltaf virðist vera nóg að gera samt. Ætlaði smá bara að skreppa til Þorlákshafnar á mánudagskvöldið... var komin þangað um kl. 19 og held að ég hafi ekki lagt af stað heim fyrr en um hálf eitt.... Grilluðum hjá Ragga og Elsu, sem voru að koma frá USA á mánudagsmorgun. Svo þegar heim var komið þá kjöftuðum við svo mikið að ég held að ég hafi ekki verið að fara að sofa fyrr en um hálf fimm.... og þurfti að mæta í vinnu kl átta. Já já Gulla litla pínu þreytt í vinnunni á þriðjudaginn. Þurfti svo að útrétta eftir vinnu á þriðjudaginn þannig að það var engin elsku mamma þá. Fór svo reyndar í sund á þriðjudagskvöld... var í heitu pottunum sennilega í rétt um klukkutíma fór heim fékk mér smá að borða og svo bara lá ég í móki fyrir framan sjónvarpið þar til ég skreiddist inn í rúm um hálf eitt. Var að einhverjum ástæðum samt ekki búin að fylgjast mikið með því sem var í sjónvarpinu...hmmm...gæti verið að ég hafi kannski pínu dottað...hehehe.... ekki dóttir pabba og mömmu fyrir ekki neitt..hehehehehehehe.
Í gær átti svo hún Móna litla, hans Sissa, eins árs afmæli. Innilega til hamingju með það litla sæta skott. Og Sissi minn, innilega til hamingju með dótturina...mátt alveg vera stoltur af henni því hún er svo yndisleg.
þriðjudagur, júlí 10, 2007
 
Stundum leynist sannleikskorn:

Stjörnuspá dagsins:
Naut: Það er ástæða fyrir því að ástarengillinn Kúpid er krakki en ekki viturt gamalmenni. Hrifning er hvatvís, barnaleg og oft býsna heimskuleg. Það þýðir samt ekki að hún geti ekki orðið að sannri ást.
sunnudagur, júlí 08, 2007
 
Brúðkaup Sigrúnar og Begga

Fór í gær í brúðkaupið hjá þeim Sigrúnu og Begga. Þetta var mjög skemmtilegt og fallegt brúðkaup. Alveg einhvernveginn í þeirra anda...þ.e. ekki of stíft en samt fallegt.
Við Jói fórum saman í kirkjuna og Sissi kom svo, með Mónu litlu, smá stund í veisluna. Ég er búin að vera að setja inn myndir úr brúðkaupinu og getið þið séð þær hér.
Ótrúlegt en satt þá var ég bara í nýju kjól númer tvö...hehehe...

Það hefur nú ekki verið oft, síðustu árin, sem sést hefur til mín í kjól. En skiptunum fer greinilega fjölgandi. Og núna á ég tvo svona sumarlega kjóla og verð að sjálfsögðu að nota þá.
Eftir veisluna skutlaði ég Jóa niður í bæ og fór sjálf smá á rúntinn. Var svo bara stillt og góð og komin heim rétt fyrir eitt í nótt.
Vaknaði svo bara hress og kát, fór í ræktina og beint úr ræktinni í sund. Rosa gott að eiga svona daga. Fór svo áðan með Jóa og fékk mér ís og þvoði bílinn. Þannig að núna er ég feit og falleg á hreinum bíl...hehehehe.

Stjörnuspá dagsins á mbl.is
Naut: Þar sem þig langar ekki að svara fyrir hugmyndir þínar eða gjörðir einmitt núna, kanntu vel að meta fólk sem tekur þér eins og þú ert.
fimmtudagur, júlí 05, 2007
 
Myndir úr partýinu
Jæja er allavega búin að setja inn einhverjar myndir úr afmælispartýinu mínu. Þær er að finna hér. Gulli Bergmann tók líka einhverjar myndir og ég ætla að reyna að nálgast þær hjá honum.

Var alveg svakalega dugleg í morgun og mætti í ræktina kl. 6. Var hætt að fara í ræktina kl. 6 og farin að fara á kvöldin í staðinn. En undanfarið hef ég verið upptekin á kvöldin svo að ég hef ekki komist. Og til að bæta úr ræktarþörf minni þá bara tók ég þá ákvörðun að skella mér fyrir vinnu. Er hvort eð er ekki farin að lyfta neitt að ráði ennþá eftir að ég rústaði olnboganum á mér á fjórhjólinu. Svo að ég er ekki ennþá komin í það að vera í tímaþröng á morgnanna ... eins og ég var orðin. Olnboginn er samt allur að skríða saman núna þannig að það styttist í það að ég fari að lyfta aftur.
Fór svo út að labba... kraftgöngu... í kvöld með Guggu. Fórum í Heiðmörk og tókum góðan labbitúr.. í ca 50 mín. Mjög hressandi og ekki verra að fá svona frábært veður. Stefni á að fara aftur í ræktina í fyrramálið... hefði nú samt eiginlega þurft að vera farin að sofa. En það er eitthvað svo hægvirkt netið hjá mér núna að það tekur svo langan tíma að uploada myndum í albúmið mitt.
þriðjudagur, júlí 03, 2007
 
"What each kiss means"
WHAT EACH KISS MEANS
Body: -Kiss on the stomach; I'm ready.
-Kiss on the Forehead; I hope we're together forever.
-Kiss on the Ear; You're my everything.
-Kiss on the Cheek; We're friends.
-Kiss on the Hand; I adore you.
-Kiss on the Neck; We belong together.
-Kiss on the Shoulder; I want you.
-Kiss on the Lips; I love you.
____________________________________________________

What the gesture means...
-Holding Hands; We definitely like each other.
-Slap on the Butt; That's mine.
-Holding on tight; I don't want to let go.
-Looking into each other's Eyes; I just plain like you.
-Playing with Hair; Tell me you love me.
-Arms around the Waist; I like you too much to let go.
-Laughing while Kissing; I am completely comfortable with you.
____________________________________________________
Advice;
Don't ask for a kiss, take one.
If you were thinking about someone while reading this,
you're definitely in Love.
____________________________________________________
Requirements;
Post this again after reading!!
Or you will have a bad year of Relationships.
____________________________________________________
If you LIKE, LOVE, OR MISS someone right now
and can't get them out of your head
then Re-post this within One Minute and Whoever you are
missing will surprise you.
Repost this as "what each kiss means
mánudagur, júlí 02, 2007
 
Síðbúið afmælispartý


Hélt loksins upp á afmælið mitt núna á laugardagskvöldið. Erna vinkona sá um að plana allt og mesta undirbúninginn. Ég reyndar bakaði afmæliskökuna og verslaði inn aðrar veitingar. Var þó bara um að ræða fámennt og rólegt partý....ekki annað hægt þegar maður er orðinn svona gamall....hehehehe....segi bara svona.
Bauð reyndar fleirum en mættu en geri mér alveg grein fyrir því að þetta er nú ekki besti tíminn til að halda partý... þar sem allir eru í útilegum og svoleiðis... jú og svo þurfti Bryndís Eva endilega að unga út sama dag.....hehe... til lukku krúslurnar mínar með stækkun fjölskyldunnar.
Var með gestabók sem skrifað var í. Það hinsvegar lá við að ég táraðis þegar ég las það sem fólk skrifaði....það var allt svo sætt eitthvað.
Ég vil því bara þakka innilega fyrir mig.

Bleytti vel upp í mér um helgina. Því ég fór í sund bæði á föstudag og laugardag. Ekkert smá notalegt svona í góða veðrinu. Var búin að taka mig til fyrir sundi í gær líka en endaði svo bara í sólbaði með Guðrúnu, systir hans Kalla. Við reyndar flúðum upp á svalir þegar farið var að taka myndir af okkur... einhverjir útlendingar sem voru á neðstu hæðinni....pirr pirr.
Í gærkvöldi grilluðum við svo heima hjá mér. Held að Fannar snúlluz ælti að koma í afganga til mín í kvöld, þar sem hann var sofandi í gærkvöldi þegar hann átti að borða með okkur..hehehe.

Powered by Blogger